Morgunblaðið - 20.05.2003, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Fasteignasala
sölumaður
Traust fasteignasala leitar að reyndum og dríf-
andi sölumanni til starfa strax.
Skilyrði: Reglusemi. Reynsla. Prúðmennska!
Vinsamlega sendið fyrirspurn og uppl. í
box@mbl.is merkt: „YV - 13714“.
Norður-Hérað
auglýsir
eftirtalin störf
Skólastjóra Tónskóla Norður-Héraðs.
Kennara við grunnskólann Brúarási.
Leikskólastjóra við leikskóla sem starfar í
9 mánuði á ári.
Leikskólakennara í 70—80% starf.
Upplýsingar gefur:
Sveitarstjóri Norður-Héraðs, sími 471 2715,
netfang nordurherad@eldhorn.is
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 25. maí.
Staða aðstoðarskóla-
meistara laus
til umsóknar
Staða aðstoðarskólameistara við Menntaskól-
ann á Akureyri er laus til umsóknar frá og með
1. ágúst 2003. Skólameistari ræður aðstoðar-
skólameistara að höfðu samráði við skólanefnd
til allt að fimm ára í senn.
Aðstoðarskólameistari er staðgengill skóla-
meistara og vinnur með honum við daglega
stjórn og rekstur skólans. Aðstoðarskólameist-
ari skal uppfylla skilyrði í ákvæðum laga um
lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum
framhaldsskólakennara.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um starf
aðstoðarskólameistara við Menntaskólann á
Akureyri. Ráðið verður til allt að fimm ára frá
1. ágúst 2003 að telja. Umsóknir skulu hafa
borist undirrituðum á hádegi þriðjudag 11. júní
nk.
Menntaskólanum á Akureyri,
19. maí 2003
Tryggvi Gíslason.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir, Erla Alexanders-
dóttir, Katrín Sveinbjörns-
dóttir, Matthildur Sveins-
dóttir, tarrot-lesari og Garðar
Björgvinsson, michael-miðill,
starfa hjá félaginu og bjóða
félagsmönnum og öðrum upp á
einkatíma.
Upplýsingar um félagið, starf-
semi þess, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga árs-
ins frá kl. 13—18. Utan þess
tíma er einnig hægt að skilja ef-
tir skilaboð á símsvara félagsins.
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
KENNSLA
www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. Ob. 1 Petrus 1845208
ATVINNA
mbl.is
FASTEIGNIR mbl.is
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
✝ Gunnar KristinnAlfreðsson fædd-
ist á Húsavík 3. júlí
1940. Hann andaðist
á Landspítalanum við
Hringbraut í Reykja-
vík 8. maí síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Alfreð
Friðgeirsson, f. á
Húsavík 14. júlí 1908,
sjómaður, d. 26. jan-
úar 1993, og Sólrún
Jónasdóttir, f. á Síla-
læk í Aðaldal í
S-Þing. 5. febrúar
1910, húsmóðir, d. 11.
október 1986. Bræður Gunnars eru
Friðgeir Már, f. 3. mars 1938, og
Friðjón, f. 7. mars 1949.
Barnsmóðir Gunnars er Krist-
jana Margrét Friðgeirsdóttir, f. í
Ísafjarðarsýslu 21. ágúst 1950. For-
eldrar hennar voru Friðgeir Ragn-
ar Guðmundsson, f. á Ísafirði 1.
ágúst 1925, d. 20. desember 2000,
og Kristjana Magnea Rósmunds-
dóttir, f. í Bolungarvík 4. septem-
ber 1918, d. 1. nóvember 1964.
Tinnu, f. 24. janúar 1988, Daða
Hrafn, f. 24. maí 1990, og með eig-
inkonu sinni Ágústu: Auðun Birg-
isson, f. 28. janúar 1990, Bjarna
Maron, f. 3. desember 1993, Ólaf
Val, f. 30. september 1997, og Sig-
urð Fannar, f. 6. júní 2002.
Gunnar ólst upp á Húsavík fyrstu
16 árin, fluttist síðan ásamt foreldr-
um og bræðrum til Reykjavíkur.
Ungur stundaði hann knattspyrnu
og fimleika. Í kringum 1960 byrjar
hann að æfa lyftingar og er einn af
frumkvöðlum og varð margfaldur
Íslandsmeistari og átti Norður-
landamet sem stóð í átta ár.
Sigrúnu kynntist hann 1970. Þau
giftust fimm árum síðar. Þau hófu
búskap í Vestmannaeyjum. Þar
vann hann ýmis störf ásamt því að
stunda sjómennsku. Var lengi með
trillu sem hann vann við í frístund-
um og er hann seldi trilluna þá
hellti hann sér út í að byggja sum-
arbústað sem hann eyddi flestum
fríum sínum í.
Árið 1985 fluttu þau til Hafnar-
fjarðar, fór hann fyrst í stað á sjó en
síðan hóf hann störf hjá Jónum HF
og starfaði þar í 12 ár.
Síðustu sjö ár vann hann hjá
Hagvögnum í Hafnarfirði.
Útför Gunnars verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Gunnar og Kristjana
eignuðust eina dóttur:
Guðrúnu Magneu, f. 8.
ágúst 1967, gift Gunn-
ari Sigurðssyni, f. 24.
desember 1959. Guð-
rún á tvö börn úr fyrra
sambandi: Báru Dís
Guðjónsdóttur, f. 5
apríl 1989, og Bjarka
Dag Guðjónsson, f. 19.
febrúar 1991. Gunnar,
maður Guðrúnar, á
einn son: Atla Þór, f. 7.
janúar 1983.
Eiginkona Gunnars
er Sigrún Sigurðar-
dóttir, f. á Ísafirði 1. júlí 1944. For-
eldrar hennar voru Sigurður Guð-
mundur Líkafrónsson, f. 27.
febrúar 1912, d. 26. október 1989,
og Hallfríður Jóhannesdóttir, f. 10.
september 1903, d. 11. október
1988. Sigrún á son frá fyrra sam-
bandi: Sigurð Halldór Bjarnason, f.
15. janúar 1965, kvæntur Ágústu
Árnadóttur, f. 17. nóvember 1971.
Sigurður á fimm börn og einn fóst-
urson, tvö úr fyrra samböndum:
Mig langar að minnast tengdaföð-
ur míns með nokkrum orðum. Það er
með söknuði sem ég kveð þig miklu
fyrr en mig hafði grunað. Þegar ég sá
þig í fyrsta sinn fór ég með dóttur
þína á mótorhjóli, þangað sem þú
varst að smíða sumarbústaðinn uppi í
Eilífsdal. Ekki veit ég hvort þér leist
nokkuð á mig komandi í hlað með
dótturina aftan á hjólinu. En aldrei
fékk ég annað en hlýju og velvilja frá
þér og Sigrúnu. Þú varst þá að smíða
bústaðinn sem varð þér svo kær,
setja niður plöntur og skipuleggja
lóðina. Það var með ólíkindum hvað
þú varst duglegur að smíða og fara
uppeftir með björg í bú. Ég veit að
það er til eldiviður til margra ára í
kamínuna úr öllu timbrinu sem þú
varst búin að sanka að þér. Einnig
verður lítið mál að stækka pallinn, því
eitt er víst, ekki vantar timbrið. Nú
þegar við erum tekin við bústaðnum
sé ég hvað þú varst búin að leggja
mikið á þig til að koma þessu upp, og
hvað bústaðurinn er vel byggður.
Og þegar frá leið og þú sást að þú
varst að koma dótturinni út, þá varst
þú oft tíður gestur hjá okkur hérna á
Sléttahrauninu. Sjaldan leið sá dagur
nú í seinni tíð að þú kæmir ekki við
eða við heyrðum frá þér þegar ég var
í landi. Þú starfaðir lengi vel við sjáv-
arútveginn og varst í útgerð sjálfur
þannig að þú iðaðir oft í skinninu að fá
fréttir af sjónum þegar ég kom í land,
þó oft á tíðum þú hafir nú ekki verið
neitt sérstaklega ræðinn, komst
kannski, settist í eldhúsið, fékkst
kaffi, kveiktir í sígarettu sast í
klukkutíma jafnvel án þess að segja
mikið. En það skipti engu, ég get alla-
vega þagað líka.
Aldrei gleymi ég fyrstu jólunum.
Þá færðir þú mér þennan líka fína
strá kúrekahatt. Ekki man ég hvort
ég setti hann nokkurn tíma upp, og
ég held að Guðrún hafi nú látið þig
heyra það með hattinn, reyndar rakst
ég á hattinn uppi í bústað. Ekki veit
ég hvernig hann komst þangað, og
kannski set ég hann eitthvern tíma
upp, en þú bættir það svo sannarlega
upp á næstu jólum þá fékk ég þessa
fínu skyrtu frá Armani sem þú hafðir
keypt hjá Sævari ásamt flottu bindi,
og núna nærri tíu árum seinna er ég
ennþá að nota þessa skyrtu. Aldrei
man ég eftir því að þú hafir verið neitt
að kveinka þér, hvað þá í þessum
veikindum þar sem þú varst sann-
færður um að þú mundir komast yfir
þau, en þegar ég kom af sjónum núna
síðast sá ég að ekki var allt með
felldu, þar sem þú komst ekki að
heilsa upp á mig þegar ég kom. Og
svo þegar ég heimsótti þig varst þú
nú ekkert á þeim buxunum að fara á
spítala, þeir væru ekki fyrir þig. En
svona er þetta líf, enginn veit sína æv-
ina fyrr en öll er.
Þegar ég skoða myndirnar úr
brúðkaupinu okkar Guðrúnar sést vel
á þér hversu ánægður þú ert, hvort
það er ánægja með tengdasoninn eða
bara að koma dótturinni upp að alt-
arinu veit ég svo sem ekki, en ég á
eftir að sakna þín og ég verð að lofa
þér að klára þetta litla sem var eftir
uppi í bústað, viðhalda honum, og
halda honum eins og þú vildir.
Guð blessi minningu þína.
Þinn tengdasonur
Gunnar Sigurðsson.
Langri baráttu við erfiðan sjúk-
dóm er nú lokið hjá Gunnari Alfreðs-
syni eða Gunna eins og hann var kall-
aður af vinnufélögunum. Í meira en
ár barðist Gunni hetjulega við
krabbamein og gafst aldrei upp fyrr
en hann kvaddi þennan heim 8. maí
síðastliðinn.
Gunni hafði starfað hjá okkur síð-
an 1996 og var hann einn okkar
traustustu starfsmanna. Alltaf mátti
reiða sig á hann og ef við vorum í
vandræðum með aukavaktir, þá var
ekki vandamálið að fá Gunna til að
bjarga því. Hann var hæglátur mað-
ur, sem ávann sér traust vinnuveit-
enda sinna og samstarfsfélaga.
Um leið og við þökkum Gunna
samfylgdina viljum við enda þetta á
nokkrum orðum úr Hávamálum:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
Við vottum eiginkonu hans Sig-
rúnu, fjölskyldu og vinum dýpstu
samúð okkar. Megi minningin um
góðan dreng lifa í hjarta okkar og
létta stundirnar á þessum erfiðu tím-
um.
Fyrir hönd Hagvagna hf.,
Hrafn Antonsson og
Guðrún Gísladóttir.
GUNNAR KRISTINN
ALFREÐSSON