Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 38
HESTAR
38 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Reiðfatnaður
Náttúrulegur lífsstíll
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
HELSTU tíðindi helgarinnar voru
þau að Olil Amble og Suðri frá
Holtsmúla heilluðu dómarana á
Gaddstaðaflötum upp úr skónum
sem gáfu þeim heila 7,60 í fjór-
gangi og bættu um betur í úrslit-
unum og gáfu 8,01. Að öllum lík-
indum er hér um að ræða hæstu
einkunn sem gefin hefur verið í
þessari grein. Telja ónefndir
spekingar sig sjá þarna tilvon-
andi heimsmeistara í fjórgangi
yrði Suðra teflt þar fram.
En Sigurður Sæmundsson, einn
eigenda Suðra, þurfti ekki langan
umhugsunarfrest þegar hann var
inntur eftir því hvort klárinn færi
í úrtökuna.
Svarið var eitt stórt nei en
hann sagði hinsvegar að stefnan
yrði sett á Íslandsmótið og að því
loknu færi hann í girðingu með
hryssum.
Þórður Þorgeirsson lét nokkuð
að sér kveða fyrir austan. Hann
hafði laumað sér á Ásdísi frá
Lækjarbotnum í fjarveru Hafliða
Halldórssonar og að sjálfsögðu
þýddi það góðan sigur í töltinu
en þó eftir spennandi keppni við
Árna Pálsson á Teiti frá Teigi.
Þá sigraði Þórður einnig í gæð-
ingaskeiði á Kvisti frá Hvolsvelli
og varð í öðru sæti í fimmgangi á
Heri Dahl sem keppti á hinum
drjúggóða Esjari frá Holtsmúla.
Þá áttu Sigurbjörn Bárðarson og
Húni frá Torfunesi nokkuð léttan
dag í slaktaumatöltinu.
Á Varmárbökkum var býsna
góð þátttaka og þar var keppt í
meistaraflokki þar sem Harð-
armenn sigruðu í öllum greinum
en því var öfugt farið í fyrsta
flokki þar sem utanfélagsmenn
sigruðu í öllum hringvallar-
greinum.
Nú eru dagar íþróttamótanna og voru meðal annars haldin tvö
öflug mót um helgina hjá Geysi og Herði. Valdimar Kristinsson
var á Varmárbökkum og fylgdist þar með gangi mála.
Morgunblaðið/Vakri
Kristján Magnússon, t.v., hefur löngum verið atkvæðamikill hjá Herði og
sigraði nú m.a. bæði í tölti og fjórgangi á Hlökk frá Meiri-Tungu, næst honum
er Ari á Adam, Sigurður á Hrafnari, Ragnhildur á Ösp og Játvarður á Spóa.
Suðri frá
Holts-
múla yfir
áttuna í
fjórgangi
Guðrún Stefánsdóttir hafði sigur
í fjórgangi annars flokks á
Varmárbökkum með jafnri og
góðri sýningu í úrslitum á Sprota
frá Bakkakoti.
Opið mót Geysis haldið
á Gaddstaðaflötum
Opinn flokkur/tölt
1. Þórður Þorgeirsson, Andvara, á Ásdísi
frá Lækjarbotnum, 7,07/7,30
2. Árni B. Pálsson, Fáki, á Teiti frá Teigi,
6,97/7,26
3. Haukur Tryggvason, Létti, á Hvin frá
Holtsmúla, 6,70/7,18
Fjórgangur
1. Olil Amble, Sleipni, á Suðra frá Holts-
múla, 7,60/8,01
2. Birna Káradóttir, Smára, á Kviku frá
Egilsstaðakoti, 6,73/7,18
3. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Kára frá
Búlandi, 6,43/7,01
Slaktaumatölt
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Húna frá
Torfunesi, 6,30/6,92
2. Agnar Stefánsson, Hring, á Hörpu frá
Eystri-Hóli, 4,93/6,13
3. Heri D. Dahl, Geysi, á Esjari frá Holts-
múla, 4,87/5,31
Fimmgangur
1. Heri D. Dahl, Geysi, á Esjari frá Holts-
múla, 6,47/6,91
2. Þórður Þorgeirsson, Andvara, á Kvisti
frá Hvolsvelli, 6,60/6,89
3. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á Súlu frá
Hóli, 6,27/6,61
Gæðingaskeið
1. Þórður Þorgeirsson, Andvara, á Kvisti
frá Hvolsvelli, 7,45
2. Sigurður Sæmundsson, Geysi, á Rosta
frá Ormsstöðum, 7,45
3. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Neista frá
Miðey, 7,42
Íslensk tvíkeppni
Birna Káradóttir og Kvika, 131,24
Skeiðtvíkeppni
Þórður Þorgeirsson og Kvistur, 148,8
Stigahæsti knapi
Sigurbjörn Bárðarson, 302,57
2. Flokkur/tölt
1. Friðbergur Ólafsson, á Rómi frá Hala,
5,73/6,31
2. Smári Gunnarsson, Geysi, á Súperblesa
frá Hellu, 5,73/6,30
3. Ida Bjurgren, Geysi, á Klæng frá
Reykjavík, 5,53/6,28
Fjórgangur
1. Björk Svavarsdóttir, Geysi, á Gullmola
frá Bólstað, 5,17/6,01
2. Nadine Semmler, Geysi, á Létti frá
Lækjarbotnum, 5,90/5,93
3. María Svavarsdóttir, Geysi, á Orku frá
Bólstað, 5,30/5,90
Ísl. tvík.
Nadine Semmler og Léttir, 110,15
Stigah. kn.
Nadine Semmler, 110,15
Ungmenni/tölt
1. Katla Gísladóttir, Geysi, á Viðju frá
Neðra-Seli, 6,37
2. Freyja A. Gísladóttir, Sleipni, á Ási frá
Ásvöllum, 6,33
3. Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Fógeta
frá Oddhóli, 6,17
Fjórgangur
1. Freyja A. Gísladóttir, Sleipni, á Ási frá
Ásvelli, 6,20/6,57
2. Katla Gísladóttir, Geysi, á Prýði frá
Leirubakka, 6,17/6,40
3. Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Jökli
frá Austvaðsholti, 6,20/6,39
Ísl. tvík.
Freyja A. Gísladóttir og Ás, 122,81
Stigah. kn.
Katla Gísladóttir, 122,96
Unglingar/tölt
1. Rósa Eiríksdóttir, Geysi, á Snæ frá Suð-
urhlíð, 6,23/6,53
2. Sigrún A. Brynjarsdóttir, Sleipni, á Orku
frá Selfossi, 6,10/6,27
3. Elín H. Sigurðardóttir, Geysi, á Hrafni
frá Þverá, 5,73/6,20
Fjórgangur
1. Laufey Kristinsdóttir, Geysi, á Bragi frá
Eyrarbakka, 6,23/6,66
2. Rósa Eiríksdóttir, Geysi, á Snæ frá Suð-
urhlíð, 6,07/6,56
3. Elín H. Sigurðardóttir, Geysi, á Hrafni
frá Þverá, 5,83/6,21
Fimmgangur
1. Elín H. Sigurðardóttir,Geysi, á Heklu frá
Skarði, 5,17/5,89
2. Laufey G. Kristinsdóttir, Geysi, á Frosta
frá Skarði, 4,60/5,45
3. Sara Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Flugari
frá Hvítárholti, 4,77/4,61
Ísl. tvík.
Rósa Eiríksdóttir og Snær,120,6
Stigah. kn.
Elín H. Sigurðardóttir, 159,34
Börn/tölt
1. Hekla K. Kristinsdóttir, Geysi, á Össu
frá Ölversholti, 6,10/6,49
2. Ragnheiður H. Ársælsdóttir, Geysi, á
Glettu frá Bakkakoti, 5,67/6,43
3. Sara Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Hyl frá
Oddhóli, 6,20/6,40
Fjórgangur
1. Hekla K. Kristinsdóttir, Geysi, á Össu
frá Ölversholti, 6,37/6,47
2. Sara Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Hergli
frá Oddhóli, 6,33/6,16
3. Ragnheiður Hallgrímsdóttir, Geysi, á
Tommu frá Hurðarbaki, 5,27/5,83
Ísl. tvík.
Hekla K. Kristinsdóttir og Assa, 121,27
Stigah. kn.
Sara Sigurbjörnsdóttir, 122,22
Opna EJS-mót Harðar
haldið á Varmárbökkum
Meistaraflokkur/tölt
1. Guðmar Þ. Pétursson, Herði, á Hreim
frá Hofstöðum, 6,93/7,18
2. Sara Ástþórsdóttir, Fákur, á Þyrnirós
frá Álfhólum, 6,87/6,88
3. Jón Styrmisson, Herði, á Gnótt frá
Skollagróf, 6,60/6,77
Fjórgangur
1. Dagur Benónýsson, Herði, á Silfurtoppi
frá Lækjarmóti, 6,70/7,15
2. Hugrún Jóhannsdóttir, Sleipni, á Spretti
frá Glóru, 6,80/6,96
3. Guðmar Þ. Pétursson, Herði, á Hreimi
frá Hofstöðum, 6,80/6,94
Fimmgangur
1. Barbara Meyer, Herði, á Þotu frá
Skriðu, 6,07/6,58
2. Guðni Jónsson, Fáki, á Prúðu frá Kot-
strönd, 6,00/6,52
3. Súsanna Ólafsdóttir, Herði, á Garpi frá
Torfastöðum, 6,20/6,4
Ísl. tvík.
Guðmar Þ. Pétursson, 134,54
Skeiðtvík.
Guðni Jónsson, 136,3
Stigah. kn.
Sigurður Sigurðarson, 244,15
1. Flokkur/tölt
1. Jón Ó. Guðmundsson, Andvara, á
Brúnku frá Varmadal, 6,60/7,21
2. Hinrik Bragason, Fáki, á Þengli frá
Kjarri, 6,40/6,94
3. Hjörtur Bergstað, Fáki, á Djákna frá
Votmúla, 6,30/6,73
Fjórgangur
1. Sigurður Sigurðarson, Geysi, á Vin frá
Minnivöllum, 6,60/7,19
2. Jón Ó. Guðmundsson, Andvara, á
Brúnku frá Varmadal,6,40/6,75
3. Halldór Guðjónsson, Herði, á Vonanda
frá Dallandi, 6,60/6,68
Fimmgangur
1. Páll Bragi Hólmarsson, Sleipni, á Brími
frá Austurkoti, 6,00/6,77
2. Sölvi Sigurðarson, Herði, á Freyði frá
Hafsteinsstöðum, 6,03/6,56
3. Jakob Lárusson, Herði, á Frægð frá Hól-
um í Hjaltadal, 5,97/6,42
Ísl. tvík.
Jón Ó. Guðmundsson, 122,46
Skeiðtvík.
Sölvi Sigurðarson, 126,3
Stigah. kn.
Sigurður Sigurðarson, 299,44
2. flokkur/tölt
1. Andrés P. Rúnarsson, Fáki, á Hróa frá
Gamla Hrauni. 5,97/6,47
2. Hlynur Þórisson, Herði, á Krumma frá
Vindheimum, 5,27/6,2
3. Anna B. Ólafsdóttir, Herði, á Skugga frá
Kúskerpi, 4,77/5,97
Fjórgangur
1. Guðrún Stefánsdóttir; Herði, á Sprota
fráBakkakoti, 5,73/6,15
2. Jón W. Bjarkason, Stíganda, á Draumi
frá Egilsá, 5,27/5,87
3. Sveinbjörn Ragnarsson, Herði, á Hausta
frá Nýjabæ, 5,13/5,75
Fimmgangur
1. Trille Kjeldsen, Fáki, á Kolskegg frá
Garði, 6,03/5,79
2. Guðríður Gunnarsdóttir, Herði, á Gyðju
frá Þúfu, 5,13/5,65
3. Guðmundur Björgvinsson, Herði, á Yrju
frá Skálmholti, 4,97/5,54
Ísl. tvík. og stigah. kn.
Hlynur Þórisson 105,98/105,98
Skeiðtvík.
Trille Kjeldsen, 54,3
Ungmenni/tölt
1. Kristján Magnússon, Herði, á Hlökk frá
Meiri-Tungu, 6,57/6,55
2. Gunnar Jónsson, Herði, á Dropa frá Sel-
fossi, 5,33/6,26
3. Ari B. Jónsson, Herði, á Adam frá Götu,
5,77/6,17
Fjórgangur
1. Kristján Magnússon, Herði, á Hlökk frá
Meiri-Tungu, 6,50/6,71
2. Ari B. Jónsson, Herði, á Adam frá Götu,
5,77/6,47
3. Sigurður S. Pálsson; Herði, á Hrafnari
frá Hindisvík, 5,83/6,25
Fimmgangur
1. Játvarður J. Ingvarsson, Herði, á Nagla
frá Árbæ, 5,77/5,79
2. Valdimar Bergstað, Fáki, á Nótt Ytri-
Gegnishólum, 5,77/5,65
3. Sigurður S. Pálsson, Herði, á Haffa frá
Samtúni, 5,57/5,54
Gæðingaskeið
1. Kristján Magnússon, Herði, á Eldi frá
Valanesi, 7,12
2. Ragnar Tómasson, Fáki, á Dreka frá
Syðra-Skörðugili, 3,13
3. Valdimar Bergstað, Fáki, á Nótt frá Ytri-
Gegnishólum, 2,00
Ísl-, skeiðtvík. og Stigah. kn.
Kristján Magnússon, 127,92/85,44/256,29
Unglingar/tölt
1. Linda R. Pétursdóttir, Herði, á Val frá
Ólafsvík, 6,03/6,24
2. Jóhanna Jónsdóttir, Herði, á Darra frá
Akureyri, 5,90/6,23
3. Heiða R. Guðmundsdóttir, Mána, á
Glampa frá Fjalli, 5,53/6,06
Fjórgangur
1. Linda R. Pétursd., Herði, á Val frá Ólafs-
vík, 6,53/6,81
2. Jóhanna Jónsdóttir, Herði, á Darra frá
Akureyri, 6,27/6,49
3. Hreiðar Hauksson, Herði, á Fróða frá
Hnjúki, 5,73/6,22
Ísl. tvík. og stigah. kn.
Linda R. Pétursdóttir, 121,73
Börn/tölt
1. Teitur Árnason, Fáki, á Hrafni frá Ríp,
5,30/6,27
2. Arna Ý. Guðnadóttir, Fáki, á Dagfara frá
Hvammi II. 5,70/6,16
3. Leó Hauksson, Herði, á Klakki frá Lax-
árnesi, 5,50/5,91
Fjórgangur
1. Ragnar Tómasson, Fáki, á Perlu frá
Bringu, 6,17/6,31
2. Edda H. Hinriksd., Fáki, á Bjarma frá
Ytri-Hofdölum,5,47/6,08
3. Teitur Árnason, Fáki, á Erró frá Galta-
nesi, 5,70/5,94
Ísl. tvík. og stigah. kn.
Arna Ý. Guðnadóttir, 109,17
Jómfrúrbikarinn
María G. Pétursdóttir
Glæsilegasta par mótsins
Linda R. Pétursdóttir og Valur frá Ólafsvík
Úrslit
ÞÁ HEFUR verið afráðið að
úrtakan vegna vals á landsliði
Íslands sem tekur þátt í
heimsmeistaramótinu fari
fram í Glaðheimum í Kópa-
vogi dagana 5. til 9. júní nk.
Keppnin verður með sama
sniði og verið hefur, það er
tvöföld umferð. Einn frídagur
verður milli umferða.
Tekið er við skráningum á
skrifstofu Landssambands
hestamannafélaga dagana 2.
og 3. júní en einnig verður
hægt að skrá í síma 514 4030.
Skráningin kostar 5000 krón-
ur á hverja grein og er hægt
að greiða með greiðslukorti ef
skráð er í gegnum síma.
Úrtökumót fyrir HM í Dan-
mörku 29.7.–3.8. 2003
Úrtakan
hjá Gusti
Í DAG hefst starfsemin á Sæðinga-
stöðinni í Gunnarsholti þrátt fyrir erf-
ið rekstrarskilyrði undanfarin ár.
Nú sem áður verður Orri frá Þúfu,
flaggskip íslenskra stóðhesta, notað-
ur á stöðinni og verður sætt með hon-
um alveg fram í miðjan júlí.
Auk Orra verða tveir aðrir úrvals-
hestar, þeir Glampi frá Vatnsleysu og
Þristur frá Feti, á stöðinni frá og með
deginum í dag. Þá verður þar einnig
þriggja vetra mjög vel ættaður foli,
Kjarni frá Þjóðólfshaga 3, en hann er
undan Andvara frá Ey og Kringlu frá
Kringlumýri. Þrátt fyrir ungan aldur
var mikil ásókn í þennan fola á síðasta
ári og komust þá færri að en vildu.
Einnig var mjög mikil ásókn í Þrist
frá Feti eftir landsmótið í fyrra og
virðist mikill spenningur fyrir honum
í ár.
Eins og áður verður sætt alla daga
og geta menn komið með hryssur til
sæðinga í Gunnarsholt hvaða dag sem
er á morgnana frá kl. 7 til 11.
Verðið undir þrjá síðasttöldu hest-
ana er 40 þúsund krónur undir
Kjarna, 50 þúsund undir Þrist og 65
þúsund krónur undir Glampa. Innifal-
ið í þessu verði er grunngjald á sæð-
ingu og folatolli, en þar fyrir utan
þurfa hryssueigendur að greiða dag-
gjald vegna fóðrunar á hryssum en
annar aukakostnaður, t.d. vegna frjó-
semisvandamála, er undanskilinn.
Ný tækni verður nú viðhöfð við
sæðingarnar á stöðinni eins og áður
hefur komið fram hér á hestasíðunni.
Þessi aðferð býður upp á mun betri
nýtingu á sæðinu sem byggist á því að
hægt er að þynna sæðið meira út og
þar með hægt að sæða mun fleiri
hryssur úr hverjum skammti en áður
var hægt. Páll Stefánsson, dýralækn-
ir og forstöðumaður stöðvarinnar,
vonast til að þessi aðferð muni einnig
auka líkur á að hryssurnar fyljist og
þar með skili stöðin hærri fyljunar-
hlutfalli. Telur hann að þessi tækni
muni án efa nýtast mörgum góðum
hestum í framtíðinni.
Sæðingar hefjast í Gunnarsholti í dag
Ný tækni eykur afköst
sæðinga verulega
Morgunblaðið/Vakri
Orri frá Þúfu er mættur á Sæðingastöðina í Gunnarsholti og er þegar byrj-
að að tappa af honum eins og það er kallað og snemma í morgun átti að
byrja að sæða hryssur með sæði úr honum.