Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 40

Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÉG undirritaður íbúi í Dalabyggð legg fram stjórnsýslukæru vegna vinnubragða við fyrirhugaða sölu Hitaveitu Dalabyggðar. Samningar um söluna voru langt á veg komnir áður en nokkur hafði fengið umboð, hvorki sveitarstjórnar né stjórnar hitaveitunnar, til samn- ingaviðræðna. Keyrir þó um þver- bak þegar sveitarstjóri sendir út bréf með villandi upplýsingum sama dag og haldinn var almennur fundur um málefni hitaveitunnar. Í bréfi sveitarstjóra eru menn óbeint lattir til að mæta á fundinn, enda muni fulltrúar meirihluta ekki mæta og málið á frumstigi og þess vegna litlar upplýsingar hægt að veita um málið. Þrátt fyrir þetta letjandi bréf sveit- arstjóra mæta um 90 manns á fund- inn sem er nálægt annar hver full- orðinn íbúi í Búðardal, en einnig fólk úr sveitum. Á þeim fundi samþykktu menn samhljóða ályktun þar sem menn lýstu sig mótfallna sölunni og vinnubrögðum við undirbúning söl- unnar. Engu að síður ritar sveitar- stjóri tveimur dögum seinna undir fullgerðan samning (með hefðbundn- um fyrirvara um samþykki sveitar- stjórnar), en það er í hróplegu ósam- ræmi við dreifibréfið 2 dögum áður, þar sem því var haldið fram að málið væri alls ekki hæft til kynningar. Samningurinn hljóðar upp á um 135 milljóna kaupverð, en skuldir eru tæplega 120 milljónir. Við það af- skrifast mestur hluti hlutafjár sveit- arfélagsins í hitaveituna, tæplega 70 milljónir, og önnur eins upphæð í tengigjöldum, án þess að brýna nauðsyn beri til. Afskrift sem nemur nær milljón á hvert hús í bænum. Þetta stórmál er síðan drifið í gegn án kynningar og jafnvel með alvar- legum rangfærslum. Rangfærslum sem skaða traust manna á æðsta embættismanni sveitarfélagsins. Hvernig á að vera hægt að treysta bréfum, sem koma frá sveitarstjóra í framtíðinni? Þannig má segja að við gífurlegt fjárhagstjón sem íbúar sveitarfélagsins verða fyrir bætist tilfinningalegt tjón þegar ofbeldi og ósannindum er beitt til að drífa stefnu meirihluta sveitarstjórnar í gegn og stórskaða þannig eindrægni og sátt í byggðarlaginu. Þótt ríkisstjórn skipi aðeins fulltrúar sitjandi meirihluta, þá skipa sveitarstjórnir um land allt bæði fulltrúar meiri- og minnihluta. Víðast eru flest mál afgreidd í sátt. Ef um ágreining er að ræða eru mál- in rædd í sveitarstjórn og meirihluti ræður og ber hina endanlegu ábyrgð. Ef ekki verður tekið alvar- lega á þessari kvörtun og málsatvik rannsökuð, þá er hætt við að slæmt fordæmi skapist, sem gæti skaðað starfshætti sveitarstjórna bæði hér og í öðrum byggðalögum. SIGURÐUR GUNNARSSON, læknir á Heilsugæslustöðinni í Búðardal. Stjórnsýslukæru í Dalabyggð Frá Sigurði Gunnarssyni ÉG VIL gjarnan taka mér penna í hönd á þessum tímamótum og benda Samfylkingunni á það að styrkur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur nær langt út fyrir höfuðborgarsvæð- ið. Landsmenn greiddu henni atkvæði sitt og vildu sjá konu í forsetisráð- herrastól, hún hefur sannað sig sem borgarstjóri Reykjavíkur undanfarin kjörtímabil og hún hefur gríðarlegt fylgi á landsvísu. Því miður kom hún inn í landsmálin með stuttum fyrirvara en náði því þó að hífa Samfylkinguna upp fyrir 30% múrinn. Ef hún hefði haft meiri tíma til að sýna sig sem verðugan fulltrúa í forsætisráðherrastól geri ég ráð fyrir að ekki hefði verið spurt að leikslok- um. Hún hefur nú fjögur ár til að ná þeim árangri sem stefnt var að með svo litlum fyrirvara. Því vil ég benda Samfylkingunni á að hún verðskuldar stöðu innan flokksins sem rödd henn- ar heyrist frá svo að eftir verði tekið. Það er ekki neitt áhlaupaverk að koma sem forsætisráðherraefni og vera kona með svo litlum fyrirvara sem hún hafði en árangurinn var samt gríðarlegur á landsvísu vegna þess að hún hefur unnið sér virðingu sem fulltrúi fólksins í landinu öllu. Það er hægt að glopra meira fylgi en þessu á fjórum árum og því tel ég mikilvægt að Ingibjörgu verði gert kleift að setja fingraför sín á næstu fjórum árum á Samfylkinguna og sýna að hún hafi styrk til þess að valda því verkefni að vera næsti for- sætisráðherra landsins. Nú hefur Samfylkingin tíma til að þakka henni þann mikla trúnað sem hún hefur sýnt Samfylkingunni og traust með verðugum sessi. Ingibjörg hefur komið inn í lands- málin sem ferskur sveipur hægrisinn- aðs jafnaðarmanns með jafnrettis- hugsjóninna að leiðarljósi sem hún hefur sýnt svo ákveðið sem borgar- stjóri Reykjavíkur. Hún hefur tekið fylgið aðallega af hægri væng stjórnmálanna þar sem þau sjá nú annan valkost en gömlu trénuðu lögmálin sem hefur vantað allan jöfnuð í. Hún hefur kjark og áræði til að stjórna landinu og því þarf hún að hafa verðugan sess innan Samfylk- ingarinnar til að láta að sér kveða svo eftir verði tekið. Ég hef trú á því að Samfylkinginn sjái þetta í því ljósi sem ég sé það. BJARNI ÞÓR ÞORVALDSSON, Asparfelli 12, Reykjavík. Kveðja til Samfylkingarinnar Frá Bjarna Þór Þorvaldssyni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.