Morgunblaðið - 20.05.2003, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.05.2003, Qupperneq 42
DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Helgafell, Dettifoss, Atlantic Peace og Karma koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss, Fornax og Víking komu í gær. Karma kemur og fer í dag. Silver Pearl og Gerda María koma í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5, fataúthlutun þriðju- daga kl. 16–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað, vinnustofa, leir- list og jóga, kl. 10 og kl. 11 enska, kl. 11 dans, kl. 13 vinnust. og postulín, kl. 14 söngur. Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa, kl. 9–12.30 bókband og öskjugerð, kl. 9.30 dans, kl. 10.30 leik- fimi, kl. 13–16.30 handavinnu- og smíða- stofur. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 12 tréskurður, kl. 10– 11.30 sund, kl. 13–16 leirlist, kl. 14–15 dans. Leikfimi og qigong. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 op- in handavinnustofan, kl. 9–16 vefnaður, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, tré- skurður, kl. 10–11 leikfimi, kl. 12.40 verslunarferð í Bónus, kl. 13.15–13.45 bóka- bíll. Korpúlfar, Graf- arvogi, Vatnsleikfimi er í Grafarvogslaug kl. 9.45. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Golf- námskeiðið verður frá 26. maí til 4. júní kl. 13–14. Skráning í s. 525 8590 og 820 8571 eftir hádegi. Félag eldri borgara, Kópavogi. Vorferðin verður farin 23. maí. Lagt af stað frá Gjá- bakka kl. 13 og Gull- smára kl. 13.15, ekið til Hveragerðis og skoðuð sýningin „Vor í Garðyrkjuskólanum“, ekið niður Ölfusið að Eyrarbakka að veit- ingastaðnum „Hafið bláa hafið“ við Óseyr- arbrú og drukkið kaffi, Strandarkirkja skoðuð. Ekið til Her- dísarvíkur. Á heimleið er áætlað að koma við í Krýsuvíkurkirkju og Bláa húsinu. Áætluð heimkoma kl.18.30 til 19.30 Skráningarlistar liggja frammi í Gull- smára s. 564 5260 og Gjábakka 554 3400, til fimmtud. 22. maí kl. 17. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Brids kl. 13, saumur og biljard kl. 13.30. Púttæfingar á Hrafn- istuvelli kl. 14 til 16 Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Skák kl. 13. Mið- vikud.: Göngu-Hrólfar ganga frá Glæsibæ kl. 10. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Vinnustofur opnar frá kl. 9–16.30, kl. 13 boccia, mánud. 26. maí verður farið í heimsókn á handa- vinnusýningu á Afla- granda, lagt af stað kl. 13.30. Skráning hafin í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 silkimálun, handavinnustofan op- in, kl. 14 boccia og ganga. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17, handavinnustofan opin frá kl. 13–16. Sum- arfagnaður verður miðvikud. 21. maí kl. 14. Anna Sigríður frá Manneldisráði ræðir um hollustu og hreyf- ingu. Steinunn Gísla- dóttir les sumarljóð, Þorvaldur Halldórsson syngur, kaffihlaðborð. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun og glerskurður, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunar- ferð, kl. 13 myndlist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 boccia, kl. 13 helgi- stund. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 10– 11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9.15–16 bútasaumur og postulínsmálun. kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 10.15–11.45 enska. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 gler- skurður og morg- unstund, kl. 10 leik- fimi, kl. 13 handmennt og postulínsmálning, kl. 13–14 félagsráð- gjafi, kl. 14 félagsvist. Bridsdeild FEBK, Gjábakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Boccia-mót í bláa salnum miðvikudaginn 21. maí kl. 8.30. Í dag er þriðjudagur 20. maí, 140. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna. (Rómv. 12, 18.)     Í Deiglunni birtist rit-stjórnarpistill, þar sem lagðar eru til breytingar á ráðherraliði Sjálfstæð- isflokksins og tekið undir með þeim, sem vilja Þor- gerði Katrínu Gunn- arsdóttur í ráðherrastól.     Nú er allt útlit fyrir aðSjálfstæðisflokkur og Framóknarflokkur end- urnýi stjórnarsamstarf sitt. Það er mikilvægt að Sjálfstæðisflokkurinn noti það tækifæri, sem ríkisstjórnarþátttaka býður, til þess að gefa nýju fólki tækifæri til þess að komast í fremstu röð innan flokksins,“ seg- ir Deiglan. „Nokkuð hef- ur verið rætt um það að Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir sé álitlegt ráð- herraefni, þrátt fyrir að hún hafi skipað fjórða sæti á framboðslista flokksins í Suðvest- urkjördæmi. Deiglan tekur heils hugar undir þá skoðun. Þorgerður Katrín er ekki aðeins ákaflega öflugur stjórnmálamaður heldur er hún einnig af þeirri kynslóð sem hingað til hefur ekki verið nægilega áberandi í forystu Sjálf- stæðisflokksins. Ef flokk- urinn gerir hana að ráð- herra er ekki einasta verið að gefa einum efni- legasta stjórnmálamanni þjóðarinnar tækifæri til þess að byggja sig upp og öðlast aukna ábyrgð held- ur væri verið að senda skýr skilaboð um að ung- ar konur eigi möguleika á að ná æðstu metorðum innan stærsta stjórn- málaflokks landsins.“     Áfram heldur Deiglan:„Augljósir hæfileikar og vinsældir Þorgerðar gera hana að afar heppi- legum ráðherrakosti og taka má tillit til þess að við uppröðun á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi var ekki viðhaft prófkjör. Hefði Þorgerður Katrín haft færi á að bjóða sig fram í prófkjöri er mjög líklegt að hún hefði lent ofar á framboðslistanum heldur en fjórða sæti.“     Deiglan segir að Sigríð-ur Anna Þórð- ardóttir, formaður þing- flokks Sjálfstæðis- flokksins, myndi að sama skapi sóma sér vel sem ráðherra, en hún komi úr sama kjördæmi og Þor- gerður Katrín. „Að mati Deiglunnar væri það hyggilegra fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að velja Þorgerði Katrínu, eink- um og sér í lagi vegna þess að flokkurinn hefur ekki oft haft tækifæri til að gera unga og öfluga konu að ráðherra. Slík ráðstöfun myndi líka styrkja forystusveit flokksins til lengri tíma litið. Með þessu er á eng- an hátt verið að gera lítið úr hæfileikum Sigríðar Önnu, en út frá hags- munum flokksins til lengri tíma, skipan for- ystusveitar til framtíðar, er Þorgerður Katrín betri kostur,“ segir Deigl- an. STAKSTEINAR Þorgerður Katrín og ráðherrastóllinn Víkverji skrifar... VÍKVERJI er einn þeirra semendalaust kvartar yfir íslenskri veðráttu og vill helst eyða sumar- mánuðunum á fjarlægum ströndum þar sem lofthitinn er viðunandi. Á síðustu dögum hefur Víkverji hins vegar ekki haft mörg tilefni til að fussa og sveia yfir veðrinu. Þeg- ar hann ók heim úr vinnu í gær sýndi hitamælirinn í bílnum sextán stiga hita. Víkverji þorir hins vegar ekki enn að treysta því að einstakt sumar sé í uppsiglingu. Þá þyrfti hann jafnvel að ferðast innanlands. x x x KONA Víkverja hefur ósparthvatt Víkverja til slíkra ferða- laga síðastliðin sumur en þær ferðir hafa alla jafna orðið til að staðfesta alla fordóma Víkverja. Eitt sumarið lét hann þó undan og leigður var forláta sumarbústaður á Suður- landi. Þeir sem þar höfðu áður dvalið rómuðu allir veðurblíðuna á þessum slóðum og hugsaði Víkverji sér gott til glóðarinnar að sitja í ró- legheitum á sólpallinum með góða bók og jafnvel kalt hvítvínsglas. Þegar í bústaðinn var komið var hins vegar fljótlega ljóst að ekki yrði af slíku. Þetta var snemma í ágúst en þrátt fyrir það birtist skyndilega fyrsta haustlægðin með tilheyrandi kulda, roki og rigningu. Það var hreinlega ekki hundi út sigandi, hvað þá kulvísum Víkverja sem varð að láta sér nægja að horfa á grillið út um gluggann. Á öðrum degi var föggunum pakkað saman, lítil börn voru með í för og ekki á þau leggjandi að búa við slíkar að- stæður. Nokkrum vikum síðar var haldið til Flórída. x x x SUMARIÐ þar á eftir ákvað Vík-verji að forðast haustlægðirnar og Suðurland og var því haldið norður í land í júní. Þar tók hins vegar ekki betra við þrátt fyrir að Norðlendingar séu iðnir við að dásama veðurblíðuna og stríða Sunnlendingum með myndum af hitamælinum Á Ráðhústorgi. Það var hins vegar ekki norð- lensk veðurblíða sem tók á móti Víkverja og fjölskyldu heldur ísköld norðanátt. Þegar komið var í Dimmuborgir var orðið ansi kalt og byrjað að rigna. Engu að síður var ákveðið að halda að Dettifossi enda búið að lofa ungum konum að sýna þeim þennan mikilfenglega foss. Hitinn hélt samt áfram að lækka og þegar loks var komið að Dettifossi hafði rigningin breyst í slyddu. Endaði ferðin á því að Víkverji varð að bera grátandi dætur sínar yfir hraunið í átt að bifreiðinni. x x x ÞRÁTT fyrir þetta er áfram rættum ferðir innanlands á heimili Víkverja og eins og sumarið hefur farið af stað verður sífellt erfiðara fyrir Víkverja að finna afsakanir. Ef ekki byrjar að snjóa fljótlega á hann sér líklega ekki undankomu auðið. Morgunblaðið/Kristján Tapað/fundið Kippa fundin Í BANKASTRÆTI fannst lyklakippa með fjórum lyklum hinn 17. maí sl. Upplýsingar má fá í síma 551 3602. Kippa í óskilum LYKLAKIPPA fannst við Sundlaugaveg fyrir viku. Sá sem telur sig eiga kipp- una má hringja í Ólaf í síma 892 9013. Silfurlitað hjól tapaðist SILFURLITAÐ reiðhjól af gerðinni G-Force var tekið ófrjálsri hendi í vest- urbænum í liðinni viku. Þess er sárt saknað af eig- andanum og eru þeir sem vita um afdrif hjólsins beðnir að hringja í 551 6591 eða hafa samband við næstu lögreglustöð. Dýrahald Íslenskir hvolpar TVO yndislega og fallega 5 mánaða íslenska hvolpa vantar góð heimili. Þeir sem geta tekið þá að sér geta hringt í síma 567 4020 og 899 2067. Tveir blíðir TVEIR blíðir kassavanir kettlingar fást gefins á gott heimili. Annar er svartur en hinn svartur og hvítur. Góðhjartaðir dýravinir sem vilja taka þá að sér hringi í síma 865 5178. Sérlega sætir GEFINS eru 5 kettlingar. Þeir eru kassavanir og góð- ir og ferlega sætir. Einn er svartur með hvítar tær en hinir gulbröndóttir. Þeir sem vilja taka að sér þessar rosalegu kelirófur mega hafa samband í síma 661 1920. Dúlli týndur HANN Dúlli týndist frá Tunguvegi miðvikudaginn 14. maí. Hann er síðhærður köttur, með hvítan og svartan feld og nokkuð stærri en hann virðist á myndinni. Hans er afskaplega sárt saknað og eru þeir sem vita um ferðir hans beðnir að hringja í 697 8663 eða 692 9273. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 mang, 4 þegjandaleg, 7 ganga, 8 tákn, 9 tek, 11 stillt, 13 dauði, 14 hygg- ur, 15 haf, 17 tunnan, 20 samtenging, 22 dreggjar, 23 dulin gremja, 24 valska, 25 kaka. LÓÐRÉTT 1 skaut, 2 lagfæring, 3 spilið, 4 tölustafur, 5 braka, 6 hæð, 10 upp- lagið, 12 hreinn, 13 yf- irbragð, 15 sýgur, 16 óhræsi, 18 sonur, 19 híma, 20 erta, 21 tómt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 fagurkeri, 8 grund, 9 lúður, 10 und, 11 rætur, 13 afræð, 15 þjórs, 18 argur, 21 ull, 22 gjall, 23 vappa, 24 fagurgali. Lóðrétt: 2 alurt, 3 undur, 4 kulda, 5 ræður, 6 agar, 7 fríð, 12 urr, 14 fær, 15 þæga,16 óraga, 17 sultu, 18 alveg, 19 gepil, 20 róar. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Þekkir þú fólkið? ÞESSAR myndir voru í eigu konu ættaðrar úr Land- sveit í Rangárvallasýslu, en hún bjó í Reykjavík frá 1915 til 1945. Þeir sem kunna að þekkja fólkið eru beðnir að hafa samband við Gunnar Guðmundsson, Freyvangi 15, 850 Hellu, eða í síma 487 5098.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.