Morgunblaðið - 20.05.2003, Side 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 45
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Veigar Páll Gunnarsson fagna sigurmarki Sigurðar fyrir KR.
Morgunblaðið/Kristinn
AUÐUN Helgason lék allan leik-
inn með Landskrona sem tapaði á
heimavelli fyrir AIK, 1:2, í sænsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær-
kvöld. Hjálmar Jónsson var hins-
vegar ekki í leikmannahópi Gauta-
borgar sem gerði jafntefli við
Hammarby, 1:1, á útivelli.
ATLI Sveinn Þórarinsson gat
ekki leikið með Örgryte vegna
meiðsla þegar lið hans vann Örebro,
2:0, í sænsku úrvalsdeildinni í gær-
kvöld.
JÓHANN Guðmundsson sem lék í
marki Selfyssinga í handknattleik í
vetur er genginn til liðs við ÍBV og
hefur hann skrifað undir tveggja
ára samning. Sebastian Alexand-
ersson leysir Jóhann af hólmi í
marki Selfyssinga en hann hefur
verið ráðinn spilandi þjálfari Selfoss
á næstu leiktíð.
MAGNÚS Aron Hallgrímsson,
kringlukastari úr Breiðabliki, kast-
aði kringlunni 61,22 metra á vormóti
UMSB í Borgarnesi um helgina.
Þetta var þriðja mótið í röð á innan
við viku þar sem Magnús Aron kast-
ar kringlunni yfir 60 metra en hann
náði því einnig á tveimur mótum hjá
FH-ingum í Kaplakrika á dögunum.
JULIAN Róbert Duranona lék
ekki með Wetzlar gegn Hamborg í
þýsku 1. deildinni í handknattleik á
sunnudaginn þar sem skammtíma-
samningur hans við félagið er út-
runninn. Duranona stendur ekki til
boða nýr samningur hjá félaginu á
næstu leiktíð og verður hann því að
róa á önnur mið ætli hann sér að
leika handknattleik.
GARETH Barry, leikmaður
Aston Villa og fyrirliði enska U-21
árs landsliðsins, var í gær kallaður
inn í enska A-landsliðshópinn þar
sem Wayne Rooney, Everton, og
Danny Murphy, Liverpool, eru
meiddir. Englendingar mæta S-Afr-
íkubúum í vináttuleik í vikunni en
leikurinn er liður í undirbúningi
þeirra fyrir leikinn gegn Slóvenum í
undankeppni EM í næsta mánuði.
BARRY, sem á dögunum var út-
nefndur leikmaður ársins hjá Aston
Villa, hefur ekki fyrr verið valinn í
landsliðshóp Sven Göran Erikssons
en hann fékk að spreyta sig sex
sinnum undir stjórn Kevins Keeg-
an.
NORSKA meistaraliðinu Rosen-
borg hefur gengið allt í haginn und-
ir stjórn Danans Åge Hareide en
hann tók sem kunnugt er við stjórn
Rosenborg af Nils Arne Eggen eftir
tímabilið í fyrra. Rosenborg hefur
unnið sex fyrstu leiki sína í norsku
úrvalsdeildinni, er með markatöluna
28:0 í tveimur bikarleikjum. Liðið
hefur ekki beðið ósigur í 23 leikjum í
röð undir stjórn Danans og sigur-
leikirnir eru orðnir 18 í röð.
FÓLK
SKIPTAR skoðanir virðast vera á
því hvort skrá eigi síðara mark
Valsmanna á móti Grindvíkingum í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
Grindavík í fyrradag á Jóhann
Hreiðarsson eða bróður hans, Sig-
urbjörn.
Jóhann skaut þá knettinum í átt
að marki Grindvíkinga, boltinn
hafði viðkomu í Sigurbirni og
breytti um stefnu áður en hann
hafnaði í netinu.
Morgunblaðið skráði markið á
Jóhann og það gerði sömuleiðis
dómari leiksins, Jóhannes Val-
geirsson, en sumir telja að markið
eigi að skrá á Sigurbjörn þar sem
knötturinn breytti greinilega um
stefnu áður en hann lenti í netinu.
„Við ræddum um þetta atvik við
dómararnir inni í klefanum eftir
leikinn og okkar niðurstaða var að
skrá markið á Jóhann og eftir að
hafa séð markið í sjónvarpinu er ég
á því að það sé rétt.
Stýrði boltanum ekki
viljandi í netið
Ef við ætlum að túlka markið á
þann veg að Sigurbjörn eigi það
býst ég við að sjálfsmörkunum eigi
eftir að rigna niður í allt sumar.
Sigurbjörn stýrði boltanum ekki
viljandi í netið heldur fékk hann
skotið í sig. Ef Sigurbjörn hefði
hins vegar teygt sig í átt eftir bolt-
anum og hann breytt um stefnu þá
horfði málið öðruvísi við,“ sagði
Jóhannes Valgeirsson við Morgun-
blaðið.
Annað mark Vals
skráist á Jóhann
MEÐALAÐSÓKN á leiki
fyrstu umferðar úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu
var 1.306 áhorfendur á leik.
Reyndar með fyrirvara um
réttar tölur úr leik FH og
ÍA sem ekki fengust stað-
festar í Kaplakrika. Á síð-
asta tímabili voru 996
áhorfendur að meðaltali á
leik en fyrsta umferðin
dregur alltaf að sér mun
fleiri en ella. Í fyrra voru
t.d. 1.402 áhorfendur að
meðaltali á leik í fyrstu um-
ferð, og árið 2001 voru þeir
1.380. Þrjú síðustu árin
skera sig mjög úr hvað
varðar aðsókn á fyrstu um-
ferðina.
Aðsókn langt
yfir meðaltali
Athygli vakti að Vesturbæingarhéldu sig aftarlega á vellinum
til að byrja með og lögðu frekar
áherslu á vörnina.
„Við vinnum út frá
ákveðnu skipulagi og
það grunnskipulag
verður að virka í
hverjum leik en það er líka háð því
hvernig mótherjarnir spila og hvern-
ig við bregðumst þá við. Ástæðan
fyrir því að við féllum aftarlega í
fyrri hálfleik var einfaldlega sú að
við vorum ekki á tánum og náðum
ekki að vinna svæði svo að við þurft-
um að gefa eftir og reyna síðan að
vinna okkur inn í leikinn. Leikurinn
þróaðist þannig því Þróttarar
spiluðu vel og við þurftum að hafa
okkur alla við – þurftum líka að verj-
ast.“
Las ekki yfir mönnum sínum
Willum Þór fór hamförum á hlið-
arlínunni og rak sína menn áfram en
hann sagðist ekki hafa látið þá heyra
það í hálfleik. „Mér fannst ekki
ástæða til að lesa duglega yfir mín-
um mönnum í hálfleik, frekar að fara
yfir ákveðna þætti, sérstaklega varð-
andi sóknarleikinn. Menn voru
strekktir í fyrri hálfleik og mark
Þróttar var skellur en strákarnir eru
tilbúnir að berjast í níutíu mínútur.
Við vitum að það er feiknakraftur í
okkar liði og við getum spilað í níutíu
mínútur á fullri siglingu, við vitum
um hraðann og keyrum á honum,“
sagði Willum Þór, ánægður með að
sleppa með þrjú stig yfir lækinn.
Erfitt fyrir hvaða lið sem er
að koma hingað
„Það er alltaf svolítið erfitt að ýta
vagninum af stað og sagan segir að
nýliðar berjast í samræmi við það.
Það sást á leik Þórs og ÍA í fyrra og
núna á leik Vals og Grindavíkur, sem
var fín áminning fyrir okkur. Við
þurftum því að búa okkur þannig
undir leikinn. Þróttarar spiluðu
feikivel, eru með fínt lið og sterka
liðsheild. Þessir strákar gefa allt fyr-
ir klúbbinn og áhorfendur þeirra eru
frábærir svo það verður erfitt fyrir
hvaða lið sem er að koma hingað,“
sagði Willum Þór Þórsson.
KR-ingar halda því taki sínu á
Þrótturum, sem aðeins hafa sigrað
tvívegis í 23 viðureignum félaganna í
efstu deild.
Morgunblaðið/Kristinn
Hallur Hallsson, miðjumaður Þróttar, hefur betur gegn Bjarka Gunnlaugssyni.
Eftir
Stefán
Stefánsson
Fengum
góða
aðvörun
VIÐ áttum von á svona leik,
kannski ekki að lenda strax
undir en þar fengum við líka
góða aðvörun,“ sagði Willum
Þór Þórsson, þjálfari KR, við
Morgunblaðið eftir leikinn gegn
Þrótti í gærkvöld. Hann var
ánægður með að fá þrjú stig en
hafði trú á sínum mönnum, sem
knúðu fram sigur, 2:1, áður en
yfir lauk.