Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 55

Morgunblaðið - 20.05.2003, Page 55
VEÐUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2003 55                                                                    ! "#$ %  #" & #'  !  ) ) ) "# (   !   ( (   "#     (  "$%&&'( " )'$ *+,(( " (+% -%., (%#  (      ( * * * * !   ( ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) )       +," " ##  " --.#"  !" #'" /"   #0   / 1 (& 1##--.#"  !" #')  .#"!"   (       &'/0 *,    !" #       $    "  #   %& '   (     '   )(  ' * + !+  )(         /0 ,1# (  23""--.#" , !& #'( 23 +#% 23 +#% 23 +#% +4/!5 / 67%.,5 / /%+4 ,((# /!%81! .94+. :%%/ :((((%; <"()= 6+,+. >( %&..)     4.  0 4! /" ##' 4.  "##" 40 0'/(4( 4/  40 /(4( 40 0 4! /" ##' 5!4 ##" 7//)"% ?+(./ %8 (,7@ 7.*7.  ( (+* ./ ?87 6+ . . ,5+ 40 40 /(4( 5  "##" 4.  "##" 4.  4.  4/  9, (( 6A+7. 97A " +.+4! B..&+, 97.+ ?C :+@ 3)A,7 .*7  4/   14.  4/  14.  4/  4/  4/  5!4 4.  %,*,%  #* %!"4.  4)#440   # #'( +  ") . ## #'# #!   #( %..%*,% 6/ 03   #0// #! *  #)40   "##" #!  #!" #)# ##  0 4!(+' 4# / (        9#5/%*,%D%*,%7,=(%* + "$ 3"  "! !" $ 4#5!4$ 44  #'# (+") . ## #'#' "( !,-- .., ..-            FRÉTTIR af dræmu áhorfi á nýjustu þáttaröð Stranda- glópa, eða Survivor, gefa til kynna að bólan sem hefur snúist í kringum raunveru- leikasjónvarp sé farin að hjaðna. Vinsældir Stranda- glópa hafa verið ótrúlegar og svipað efni er í fram- leiðslu sem byggist á svip- aðri hugmynd, þ.e. að horfa á venjulega Jóna og Gunn- ur takast á við einhver vandamál fyrir opnum tjöldum. Sá útgangspunkt- ur virðist hitta áhorfendur beint í hjartastað, eitthvað er það sem heldur millj- ónum manns límdum við skjáinn, þar sem fylgst er með léttklæddu fólki „af götunni“ synda og svamla, leggja sér skordýr til munns, smíða kofa o.s.frv. á milli þess sem fólkið arga- þrasast hvað við annað, myndar bandalög og leitar leiða til að koma andstæð- ingunum úr þáttunum. Strandaglópar eru banda- rísk framleiðsla og þegar frægð þeirra hóf að vaxa var ljóst að búið var að setja ný viðmið hvað sjón- varpsmenningu varðar. Áherslan var nú á hugmyndina, frekar en vönduð vinnubrögð sem kristallast ábyggilega best í þættinum Kjána- prik. Þar er myndataka hrá – líkt og um heimaupptöku sé að ræða – og tilgangurinn er einfaldur. Kjánaprikin reyna eftir megni að gera sjálf sig og aðra að fíflum með alls kyns uppátækjum. Hið nýja draslsjónvarp er staðreynd. Ég trúði því t.d. varla þegar ég heyrði að það ætti að gera þáttinn Piparsveininn. Í dag er hann hins vegar staðreynd og hefur undirrit- aður staðið sig að því að fylgjast grannt með framvindunni þar. Skýringin á vinsældum svona þátta hlýtur að liggja sumpart í því að fátt veit mannskepnan betra en skemmtilega keppni. Einstak- lingshyggjan er og sterk í Banda- ríkjunum, „ég, ég, ég“ viðhorf ein- kennandi, eitthvað sem kemur vel upp á yfirborðið í Strandaglópum, þætti sem snýst um það að koma sjálfum sér áfram, hvað sem kost- ar. Þessi dýrkun á villimannseðl- inu er ógnvekjandi. Ónefndur þáttaframleiðandi lét hafa það eft- ir sér á dögunum að ef hann kæm- ist upp með að myrða mann í beinni, bara til þess að hækka áhorfstölur, þá myndi hann gera það! Raunveruleikasjónvarpið hefur orðið vinsælt vegna þess að áhorf- endum er sagt að það sem sé að gerast í þáttunum sé alvöru, þátt- takendur séu venjulegt fólk sem sé að bregðast við hinum og þessum aðstæðum, rétt eins og ég og þú myndum gera. Myndavélarnar séu því í raun eins og flugur á vegg. En ekki er allt sem sýnist og upp komst um svik fyrir tveimur árum. Áhættuleikarar voru fengnir til að leika nokkur atriði fyrir fyrstu þáttaröðina sem tekin var upp á eyju einni í Malasíu. Þar hafið þið það. Óraunverulegt raunveruleika- sjónvarp! Og framleiðandinn, Mark Burnett, svaraði um hæl: „Mér gæti ekki verið meira sama. Ég er enda að búa til frábært sjónvarpsefni.“ Og þar með var það orðið uppvíst að fyrst og fremst snýst þetta um að búa til efni sem selst – með hvaða ráðum sem mönnum finnst fýsileg. Mér fannst ég vera hálfgert kjánaprik að láta gabba mig svona. Strandaglóparnir voru nú síðast í Amazon og Skjár einn sendi loka- þáttinn út í gær. Eins og áður seg- ir hefur þessi nýjasta þáttaröð fengið dræmar viðtökur. Það vant- aði eitthvað – straumarnir hjá fólkinu voru neikvæðir og dæmið gekk bara ekki upp. Í fyrsta skipti var hópnum kynjaskipt, eitthvað sem ég er sannfærður um að hafi verið mistök. En kannski er form- úlan bara orðin þreytt og það þyrfti mögulega að stokka þetta upp. Strandaglópar á Íslandi? Satt og logið Clay Jordan var strandaglópur í þarsíðustu þáttaröð sem gerðist í Taílandi. Ljósvakinn … Arnar Eggert Thoroddsen Á ÍSLANDI er listamaðurinn Matthew Barney einkum þekktur fyrir að vera unnusti og barns- faðir söngkonunnar Bjarkar Guð- mundsdóttur. En þess utan þykir Barney vera með athyglisverðustu samtímalistamönnum og hefur hann skapað sér nafn með verkinu Cremaster, sem er kvikmynd í fimm hlutum og kallast heildin The Cremaster Cycle. Viðfangs- efni þessarar heimildamyndar er einmitt það verk, en skúlptúrar og innsetningar úr myndunum voru til sýnis á Guggenheimsafninu fyr- ir stuttu. Barney verður með sýn- ingu í Nýlistasafninu næsta laug- ardag. Hringrás- in eilífa Morgunblaðið/Einar FalurMatthew Barney Matthew Barney og Cremaster- hringrásin verður sýnd kl. 23.10. Sjónvarpið sýnir heimildamynd um Matthew Barney ÚTVARP/SJÓNVARP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.