Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
IR
2
11
78
05
/2
00
3
Lagadeild • Viðskiptadeild • Tölvunarfræðideild
Námsráðgjöf
Alla virka daga kl. 10.00 - 11.30 er fastur viðtalstími þar
sem þú getur komið og rætt við námsráðgjafa
Háskólans í Reykjavík, kennara eða núverandi nemendur
um hvaðeina er lýtur að námi við skólann.
Þar fyrir utan getur þú hringt og pantað tíma í síma 510 6200
www.ru.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní
HALLDÓR Blöndal segir að sér lítist
ljómandi vel á niðurstöðu þingflokks-
ins í gær, en hann lætur af embætti
forseta Alþingis haustið 2005. „Mér
líst ljómandi vel á þetta. Ég er búinn
að vera lengi á þingi. Mér finnst þetta
góð lausn og Sólveig Pétursdóttir
verður mjög góður forseti.“
Halldór var spurður að því hvort
hann hygðist gefa kost á sér til þings
að nýju að fjórum árum liðnum. Hann
svaraði því til að hann hefði enga
ákvörðun um það tekið.
Góð lausn
Halldór Blöndal
SÓLVEIG Pétursdóttir fráfarandi
dómsmálaráðherra sagði að hún
hefði átt langt samtal við Davíð
Oddsson fyrir þingflokksfundinn í
gær og „það er ljóst að menn vildu
sjá ákveðnar breytingar,“ sagði hún.
„Ég fæ tækifæri til þess að gegna
embætti forseta Alþingis sem er auð-
vitað mjög góð og merkileg staða,
þannig að mér finnst ágætt að breyta
til. Ég er sátt við þessa niðurstöðu.“
Þegar Sólveig var spurð að því
hvers vegna hún teldi að þessi
ákvörðun hefði verið tekin sagði hún:
„Eins og ég sagði þá held ég að menn
hafi viljað sjá ákveðnar breytingar.
Ég fagna því sérstaklega að við erum
að sjá fjölgun kvenna í ráðherrastól-
um og ég vil líka benda á að staða
forseta þingsins hefur hingað til ver-
ið talin nokkuð merkileg. Ég held
því að áhrif kvenna séu að aukast.“
Sólveig kvaðst aðspurð ekki líta á
þessa niðurstöðu sem vantraust á
sig. „Það er auðvitað þannig að það
kemur maður í manns stað og það er
ósköp eðlilegt að huga að breyt-
ingum eftir að hafa verið fjögur ár
sem ráðherra.“
Sátt við
niðurstöðuna
Sólveig Pétursdóttir
TÓMAS Ingi Olrich sagðist ágæt-
lega sáttur við það að láta af emb-
ætti menntamálaráðherra um ára-
mót. „Það leggst ágætlega í mig. Ég
vinn að því núna fram að áramótum
að undirbúa fjárlög og vinna að ýms-
um verkefnum sem við höfum verið
að vinna við. Svo taka nýir tímar við
og ég er fyllilega sáttur við það.“
Inntur eftir því hvort niðurstaðan
hefði komið á óvart sagðist hann
hafa verið búinn að ræða þessi mál
við Davíð Oddsson fyrir þingflokks-
fundinn í gær. „Ég hef aldrei talið
mig eiga neitt gefið í pólitík og tek
þeim verkefnum sem þarf að vinna.“
Tómas Ingi sagði að það legðist
ágætlega í sig að verða sendiherra í
París. Spurður hvenær af því yrði
sagði hann að það yrði að ári. „Það
verður með vormánuðum geri ég ráð
fyrir, á næsta ári.“ Hann kvaðst ekki
vera búinn að taka ákvörðun um það
hvenær hann léti af þingmennsku.
Tek þeim
verkefnum
sem þarf
að vinna
Tómas Ingi Olrich
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir
sagðist aðspurð ekki hafa átt von á
að verða ráðherra. Henni litist hins
vegar mjög vel á að taka við ráð-
herradómi í umhverfisráðuneytinu.
„Ég tel þetta vera mjög skemmtilegt
verkefni og margt áhugavert sem
liggur þar fyrir. Umhverfismálin eru
líka vaxandi málaflokkur og skipta
gríðarlega miklu máli. Ég er sann-
arlega ánægð yfir því að fá að takast
á við þau.“ Hún sagði ennfremur að
það yrði spennandi að taka að sér
skipulagsmálin sem væru ekki síður
fyrirferðarmikil í ráðuneytinu.
Aðspurð svaraði Sigríður Anna
því til að það væri svo sannarlega
eftirsjá að þeim sem láta af ráð-
herradómi. „Ég sé náttúrlega mjög
mikið eftir Sólveigu Pétursdóttur
sem hefur staðið sig mjög vel í starfi
sínu en aftur á móti er ég viss um að
þingforsetastarfið mun henta henni
afskaplega vel.“
Átti ekki
von á ráð-
herradómi
Sigríður Anna Þórðardóttir
BJÖRN Bjarnason, verðandi dóms-
og kirkjumálaráðherra, sagði að-
spurður eftir þingflokksfund sjálf-
stæðismanna í gærkvöldi að hann
hefði ekki tekið ákvörðun um hvort
hann myndi hætta sem borgar-
fulltrúi. Þó væri þó ljóst að ekki færi
saman að vera oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn og ráðherra
dóms- og kirkjumála.
„Þetta ber svo brátt að að ég hef
ekki haft tíma til annars en að borða
síðan ég heyrði þetta,“ sagði hann
við fréttamenn, „þannig að ég hef
ekki tekið ákvörðun. Ég þarf að
meta stöðuna.“
Björn sagði að næsta verkefni
væri að hitta sitt fólk í borgarstjórn-
arflokknum og ræða málin. „En það
fer náttúrlega ekki saman að vera
oddviti Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjórninni og dóms- og kirkju-
málaráðherra. Það þarf að leysa það
með einhverjum hætti.“
Aðspurður sagði hann að ákvörð-
un í þessum efnum yrði tekin næstu
daga.
Björn kvaðst ekki hafa sóst eftir
ráðherradómi. Hann sagði enn-
fremur aðspurður að hann væri
ánægður með að fá að sinna dóms-
og kirkjumálum. „Ég er lögfræð-
ingur og hef mikinn áhuga á örygg-
ismálum og öryggi borgaranna,“
sagði hann og bætti við að hann væri
enn fremur gamall starfsmaður
Landhelgisgæslu Íslands. „Ég hef
áhuga á almannavörnum og öllu því
sem undir dómsmálin heyrir og síð-
an er ég líka mikill kirkjunnar mað-
ur þannig að ég kvíði því ekki að
sinna þessum verkefnum.“
Björn sagði að auðvitað fylgdu
breytingar nýjum mönnum en
minnti á að stefnan væri mörkuð í
stjórnarsáttmálanum.
Breytingar
fylgja nýjum
mönnum
Björn Bjarnason
ÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttir,
sem verður menntamálaráðherra um
áramót, sagði við fréttamenn að ráð-
herradómurinn hefði komið sér þægi-
lega á óvart. Hún hefði ekki átt von á
þessu. „Þau [tíðindin] eru óvænt en
mjög ánægjuleg,“ sagði hún. „Mér
finnst þetta afskaplega mikil áskorun
og ögrun að taka við mennta-
málaráðuneytinu. Það er búið að gera
stórkostlega hluti þar á síðastliðnum
árum undir stjórn okkar og forystu
okkar sjálfstæðismanna. Það er um
að gera að reyna að halda áfram því
góða starfi og reyna að bæta aðeins
við það.“
Þorgerður á von á barni í sumar og
segist hafa tíma fram að áramótum til
að njóta þess að vera með barninu.
Innt eftir því hvort menntamála-
ráðuneytið væri það ráðuneyti sem
hún hefði haft hug á sagði Þorgerður
að það væri aldrei hægt að segja að
eitthvert ráðuneyti væri óskaráðu-
neyti. „Þegar stjórnmálamenn gefa
kost á sér í pólitík eiga þeir að geta
tekist á við öll verkefni,“ sagði hún.
Mikil
áskorun
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
Morgunblaðið/Sverrir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verður menntamálaráðherra um næstu áramót, Björn Bjarnason verður nú
dóms- og kirkjumálaráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir verður umhverfisráðherra haustið 2004.
Tveir nýir ráðherrar taka sæti í ríkisstjórn á ríkisráðsfundi í dag. Þá bætast tvær konur í hóp ráðherra á næstu
misserum og forsetaskipti verða á Alþingi. Morgunblaðið ræddi við verðandi og fráfarandi ráðherra og þingforseta.
ÁRNI Magnússon verður félags-
málaráðherra og tekur við af Páli
Péturssyni, sem er hættur sem al-
þingismaður, en aðrir ráðherrar
Framsóknarflokksins gegna áfram
störfum sínum eins og í fyrri rík-
isstjórn.
„Ég hlakka til að takast á við
verkefnið og það er alltaf spennandi
að finna það að manni er treyst fyr-
ir miklum og göfugum verkum,“
sagði Árni Magnússon eftir þing-
flokksfund Framsóknarmanna í
gærkvöldi, en viðurkenndi að
ákvörðunin hefði að vissu leyti kom-
ið sér á óvart. Hann sagðist ekki
hafa búist frekar við því að verða
ráðherra, þetta væri eitt af því sem
menn yrðu að vera viðbúnir þegar
þeir ætluðu að hasla sér völl í
stjórnmálum, en hann hefði ekki
sóst sérstaklega eftir embættinu.
„Ég hef haft þann háttinn á að ég
hef reynt að sinna þeim verkum
sem mér hafa verið falin og ég sótt-
ist ekkert frekar eftir þessu heldur
en öðru,“ sagði hann. „Það eru svo
sem allir í kjöri þegar kemur að því
að velja ráðherrana og ég held að
ég hafi átt alveg jafna möguleika og
aðrir í því frá upphafi en ég átti
ekkert sérstaklega von á þessu.“
Árni Magnússon sagði að ungt
fólk væri í auknum mæli að koma til
starfa í Framsóknarflokknum, bæði
á Alþingi og í framvarðasveitinni að
öðru leyti, og með þessari ákvörðun
væri það staðfest. „Hér er komin
ung og vösk sveit sem ætlar sér
talsverða hluti.“
Í máli Árna kom fram að hann
hefði mikinn áhuga á málaflokkn-
um, en hann hefði til þessa verið
varaformaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga og hefði starfað í
sveitarstjórn. „Málefni sveitarfélag-
anna eru mér auðvitað mjög hug-
leikin,“ sagði þessi nýkjörni þing-
maður.
„Það blasir við að við lögðum upp
í þessa kosningabaráttu með tals-
vert mikla áherslu á húsnæðismálin,
hækkun lánshlutfalls, og ég mun
auðvitað fylgja því eftir.“ Hann
sagði að málefni fatlaðra væru sér
einnig mjög hugleikin sem og jafn-
réttismál. Jafna þyrfti launamun í
samfélaginu og það yrði eitt af bar-
áttumálunum.
Árni Magnússon
Ung og vösk
sveit ætlar
sér talsverða
hluti
Morgunblaðið/Sverrir
Árni Magnússon, verðandi félagsmálaráðherra, svarar spurningum frétta-
manna eftir þingflokksfund Framsóknarflokksins í Alþingishúsinu.