Morgunblaðið - 23.05.2003, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FRAMBOÐ óháðra í Suðurkjör-
dæmi. T-listinn bauð fram í einu kjör-
dæmi, Suðurkjördæmi, fyrir kosn-
ingarnar 10. maí sl. Það kom strax í
ljós þegar skoðanakannanir birtust
að þetta framboð var meðhöndlað í
fjölmiðlum eins og það byði fram í öll-
um kjördæmum og tölur um fylgi við
T-listann birtar á landsvísu. Þetta
þýddi í raun að deilt var með tölunni 7
í fylgi T-listans áður en það var birt á
landsvísu. Þannig varð 5% fylgi í Suð-
urkjördæmi að 0,7% fylgi á landsvísu
hjá fjölmiðlunum. Þetta er svona
álíka og að segja að Akureyringar
séu jafn margir og Reykvíkingar og
bera þá þannig saman í könnunum.
Þessi samanburður var sérlega skað-
legur fyrir framboð T-listans og hafði
mikil og neikvæð áhrif. Það keyrði þó
um þverbak þegar Morgunblaðið
birti skoðanakönnun í blaðinu daginn
fyrir kjördag og fullyrðir þar að
T-listinn mælist ekki á landsvísu! Ef
við gefum okkur að Morgunblaðið
hafi mikil áhrif, sem ég geri ráð fyrir
að ritstjórinn telji, hlýtur þessi frétt
að hafa haft mikil og neikvæð áhrif á
fylgi T-listans. Þegar það er svo haft í
huga að um þriðjungur kjósenda
ákveður sig á kjördag er þetta enn
skýrara. Að mínu áliti var þessi fylg-
iskönnun Morgunblaðsins daginn
fyrir kjördag pólitískt skemmdar-
verk. Þrátt fyrir þessa árás daginn
fyrir kjördag fékk T-listinn 844 at-
kvæði í Suðurkjördæmi eða 3,4%
fylgi sem verður að teljast kraftaverk
miðað við það sem hér hefur verið
lýst. Þremur dögum fyrr hafði Gallup
mælt fylgi T-listans 8-9% í kjördæm-
inu. Þessi reynsla leiðir hugann að
því hvort þeir hafi rétt fyrir sér, sem
vilja banna skoðanakannanir í vik-
unni fyrir kjördag.
KRISTJÁN PÁLSSON,
1. maður á T-listanum.
Aths. ritstj.: Vegna ummæla Krist-
jáns Pálssonar skal tekið fram, að
Morgunblaðið gerði engar fylgis-
kannanir fyrir kosningar. Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands gerir
skoðanakannanir, sem Morgunblaðið
kaupir birtingarrétt á.
Opið bréf til ritstjóra
Morgunblaðsins
Frá Kristjáni Pálssyni
MIÐVIKUDAGURINN 5. mars er
sorgardagur fyrir land og þjóð.
Reyndar fyrir heimsbyggðina, því
þann dag samþykti Alþingi að virkjað
skyldi við Kárahnjúka. Þetta verður
eitt af meiriháttar umhverfisslysum
af mannavöldum sem um getur í
heiminum. Aldrei hefur þjóð vor verið
látin fórna svo miklu fyrir svo fáa. Til
viðbótar og í framhaldi af harmleik
þessum er klesst niður við Reyðar-
fjörð eiturspúandi stóriðjuskrímsli
fyrir útlenda auðjöfra að græða á. Af-
leiðingar svo skelfilegrar skammsýni
verða því verri sem lengra líður. Fyrir
unga fólkið og óbornar kynslóðir nán-
ast martröð. Þótt lýsingum á tilræði
þessu gagnvart landi og þjóð hafi ver-
ið gerð frábær skil af færara fólki en
mér er viðvörunin sígild, enda má
líkja arðsemismöguleikunum við
rússneska rúllettu.
Úr bréfi skrifað 11.12.2000 til vin-
konu minnar sem nú spreytir sig í
efnafræðinámi: „Það er tvennt ólíkt
að njóta lífsstunda og eyða þeim. Það
er sorglegt að sjá vítt og breitt um
samfélagið fólk í andlegum álagsfjötr-
um. Fólk sem ætlar af engu að missa,
en finnur samt að svo er, en bara
öðruvísi en það heldur. Það veit ekki
að það er að missa af lífinu sjálfu í til-
búnu tímaleysi og kapphlaupi eftir
engu. Lærdómur og leti fara álíka vel
saman og stóriðja og ósnortin náttúra
og framkvæmdir án fyrirhyggju eru
hættulegar og það á við um hvað sem
er. Hafirðu ekki þegar gert þér ljóst
hvað við búum í fögru og stórfenglegu
landi horfðu þá vandlega, hugsaðu
vandlega, hlustaðu vandlega, fáðu til-
finningu fyrir landinu og allt um kring
og njóttu svo af heilum hug.“
„Í tilefni af sjónvarpsþætti Ómars
Ragnarssonar“ er heiti á grein Jak-
obs Björnssonar, fv. orkumálastjóra,
og Jóhanns Más Maríussonar fv. að-
stoðarforstjóra Landsvirkjunar, í
Morgunblaðinu 26. mars.
Það er sorglegt þegar svo reyndir
menn skrifa af svo mikilli glám-
skyggni og hlutdrægni. Auðvitað er
ekki hægt að skila kolunum sem not-
uð voru í virkjunina til síns fyrri
heima. Þar, eins og víðar, voru gerð
mistök síns tíma sem seinni tíma
menn létu sér að kenningu verða.
Höfundunum finnst Ómar hafa komið
sér undan að skýra hlutlaust frá. Það
virðist í forgangi greinarhöfunda að
gera Ómar Ragnarson ótrúverðugan.
Þessum herramönnum er óhætt að
trúa því sem flestir vita nema þeir, að
enginn hefur komist með tærnar þar
sem Ómar hefur hælana í að upplýsa
um land sitt og þjóð. Eins hefur hann
greint af skilningi, en á sinn hlutlausa
hátt, frá þjóðum sem áttuðu sig á mik-
ilvægi ósnortinnar náttúru og þeim
gífurlega skaða sem ógrundaðar
vatnsaflsvirkjanir geta valdið henni.
Snilld Ómars í efnistökum og umfjöll-
un um menn og málefni og umfram
allt ást hans og skilningur á landinu
okkar hefur skilað sér til þjóðarinnar.
Hann hefur opnað augu hennar fyrir
stórfenglegri fegurð og tign Íslands í
öllum sínum margbreytileika. Hann
hefur opnað þjóðinni sýn á hálendið,
nokkuð sem aðeins útlendingar nutu
og skildu. Ómar sagði til um hvaða
fjall þjóðin mundi álíta fegurst og
varð sannspár. Þeir sem bendla Ómar
Ragnarsson við hlutdrægni og óheið-
arleika ættu að leita sér læknis. Þeir
eru ófáir sem nú tróna hátt en verða
löngu gleymdir á meðan Ómar verður
talin einn af bestu sonum þjóðarinnar.
Undarlegt er hve margir afbragðs-
menn eru látnir gjalda en ónytjungar
og skaðvaldar verðlaunaðir og af-
burðamenn ekki krýndir fyrr en þeir
eru látnir.
ALBERT JENSEN,
Sléttuvegi 3, Reykjavík.
Í tilefni af sjónvarps-
þætti Ómars
Frá Alberti Jensen