Morgunblaðið - 23.05.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 45
AÐ venju eru gríðarlega mörg golf-
mót á dagskrá sumarsins og hafa
þau aldrei verið fleiri en nú, eða
1001 mót sem eru skráð á gagna-
grunn Golfsambandssins. Þar fyrir
utan eru fjölmörg mót á vegum fyr-
irtækja og hópa sem ekki eru skráð
inn á golfvefinn golf.is.
Undanfarin ár hefur kylfingum
fjölgað mikið í klúbbum innan GSÍ
og á sl. ári voru þeir skráðir 10.935
en samkvæmt könnunum spiluðu
um 20 þúsund Íslendingar golf á sl.
ári. Þess má geta að um 1.000 kylf-
ingar bíða eftir að komast að hjá
golfklúbbunum á höfuðborgar-
svæðinu og sagði Júlíus Rafnsson,
formaður GSÍ, að brýnt væri að
sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæð-
inu færu að huga að byggingu
nýrra valla – enda væri eftir-
spurnin gríðarleg.
Fyrir áratug voru 4.835 skráðir í
golfklúbba á vegum GSÍ og hefur
fjöldi kylfinga því ríflega tvöfaldast
á einum áratug.
RAGNAR Ólafsson, liðsstjóri ís-
lensku landsliðanna í golfi, sagði
að mörg verkefni væru fram-
undan á þessu sumri og þau
fyrstu í byrjun júní er Haraldur
H. Heimisson og Sigurpáll Geir
Sveinsson taka þátt í breska
áhugamannamótinu í Skotlandi,
2.–7. júní.
Evrópumót karla verður 20.–
23. ágúst í Skotlandi og Evr-
ópumót kvenna 27.-30. ágúst.
Ragnar bætti því við að skortur á
forgjafarlágum kylfingum í
kvennaflokki gerði það að verk-
um að ekki yrði farið með
kvennalið á Evrópumótið í liða-
keppni sem fram fer í Hollandi
1.–5. júlí. Þess í stað fengju
stúlknalandsliðin fleiri verkefni.
Norðurlandamót í liðakeppni
verður í Svíþjóð dagana 26.–28.
september þar sem 8 keppendur
fara frá Íslandi, 4 af hvoru kyni.
Stúlknalandsliðið tekur þátt í
Evrópumóti landsliða hinn 8.–12.
júlí í Danmörku og á sama tíma
keppir piltalandsliðið í Tékklandi
á sams konar móti.
„Það hefur orðið gríðarleg
breyting á æfingum afrekskylf-
inga undanfarin ár. Nú æfa þeir
allt árið og ekki aðeins að slá
boltann því líkamæfingar af ýms-
um toga skipa stóran þátt í
þeirra æfingum auk þjálfunar á
hugarfari og leikskipulagi,“ sagði
Ragnar.
Haraldur og Sigurpáll
Geir ríða á vaðið
Hörður bætti því við að færrikæmust að en vildu á fyrsta
mótið þar sem 90 kylfingar öðlast
þátttökurétt og ræð-
ur forgjöf þeirra
hvort þeir komast
inn í hvert sinn.
Allir kylfingar
sem hafa 10,4 eða lægra í grunnfor-
gjöf geta tekið þátt en hjá konum er
hámarksforgjöfin 20,4.
Allir bestu kylfingar landsins ætla
sér að leika á mótaröðinni í sumar og
má þar nefna Birgi Leif Hafþórsson
og Björgvin Sigurbergsson sem hafa
að mestu leikið erlendis undanfarin
misseri. Þeir félagar verða reyndar
ekki með í fyrsta mótinu þar sem
þeir eru báðir að keppa á öðrum víg-
stöðvum á sama tíma. Birgir Leifur á
áskorendamóti í Hollandi og Björg-
vin á Europro-mótaröðinni sem fram
fer í Englandi.
Undanfarin ár hafa stigahæstu
kylfingar stigamótanna ekki öðlast
sjálfkrafa sæti í íslenska landsliðinu
en að þessu sinni öðlast stigahæstu
kylfingarnir af báðum kynjum
keppnisrétt með íslenska landsliðinu
á Norðurlandamótinu sem fram fer í
Svíþjóð í lok september.
„Það er Staffan Johansson, lands-
liðsþjálfari, sem velur landsliðið og
hann hefur í samvinnu við GSÍ
ákveðið að tengja eitt landsliðssæti
hjá báðum kynjum við árangur
þeirra á mótaröðinni sem verður
vonandi til þess að auka vægi mót-
anna.
Alls eru mótin sex að tölu. Það
fyrsta nú um helgina, 24.-25. maí,
þar sem leiknar verða að venju 36
holur fyrri keppnisdaginn en 18 hol-
ur síðari keppnisdaginn.
Næsta mót fer fram á Akranesi
7.-8. júní og þer þetta í fyrsta sinn
sem Golfklúbburinn Leynir er gest-
gjafi slíks móts.
Keppt verður í Leirunni 20.-21.
júní sem jafnframt er Íslandsmót í
holukeppni.
Íslandsmótið í höggleik fer fram í
Vestmannaeyjum 24.-27. júlí og er
hluti af Toyota-mótaröðinni.
Næstsíðasta mót sumarsins fer
fram á Akureyri dagana 9.-10. ágúst
og síðasta mótið verður á Hvaleyr-
inni 13.-14. september.
Alls eru tíu kylfingar með + for-
gjöf í karlaflokki og má gera ráð fyr-
ir að þeir ættu að blanda sér í barátt-
una um sigurinn að þessu sinni.
Haraldur H. Heimisson úr GR er
með lægstu forgjöfina +2,2, en þar á
eftir kemur Örn Ævar Hjartarson úr
GS með 2 og þriðji í röðinni er Ís-
landsmeistarinn í höggleik frá sl.
sumri, Sigurpáll Geir Sveinsson úr
GA. Heiðar Davíð Bragason úr GKj.
lék afar vel í Þýskalandi á dögunum
og sagði Ragnar Ólafsson, liðstjóri
íslenska landsliðsins, að fáir legðu
eins mikið á sig við íþróttina og Heið-
ar og væri hann að uppskera ríku-
lega af þeirri vinnu.
Í kvennaflokki eru 15 keppendur
skráðir til leiks en Íslandsmeistarar
sl. tveggja ára, Ólöf María Jónsdótt-
ir GK og Herborg Arnardóttir GR,
eru ekki með að þessu sinni. Ólöf er
atvinnukylfingur vestanhafs en Her-
borg eignaðist frumburð sinn um sl.
helgi og verður því lítið með á næst-
unni. Ragnhildur Sigurðardóttir úr
GR er með 1,4 í forgjöf, en Þórdís
Geirsdóttir úr GK kemur þar næst
með 1,9 í forgjöf.
Haraldur H. Heimisson verður í sviðsljósinu á fyrsta stigamótinu um helgina.
Fyrsta stigamót Golfsambandsins á Korpúlfsstaðavellinum
Heiðar Davíð lík-
legur til afreka
„FYRSTA stigamót Golfsambands Íslands, Toyta-mótaröð afreks-
kylfinga, verður á Korpúlfsstaðavelli á morgun. Markar það form-
legt upphaf keppnistímabils kylfinga en í raun lauk því aldrei sl.
haust því tíðarfarið á Íslandi í vetur hefur gert kylfingum kleift að
leika golf við ágætar aðstæður,“ sagði Hörður Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Golfsambands Íslands, á fundi með fréttamönnum.
Heiðar Davíð Bragason
1001
golfmót
Sigurpáll Geir púttar.
Breiðablik - Keflavík
mætast í fyrstu deild Íslandsmótsins
í knattspyrnu á Kópavogsvelli
kl. 20.00 í kvöld
BLIKAR FJÖLMENNUM
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson