Morgunblaðið - 23.05.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 9
VERJANDI sextugs Þjóðverja,
„burðardýrs“, sem ákærður er fyrir
að smygla um 900 grömmum af
amfetamíni og um einu kílói af hassi
til landsins í nóvember í fyrra, efast
um að málið hefði upplýst nema
vegna góðrar samvinnu hans við
lögregluna. Rannsókn málsins hefði
a.m.k. tekið mun lengri tíma.
Maðurinn hefur játað að hafa far-
ið sjö smyglferðir til landsins og
gögn um símanotkun hans hér á
landi styðja þessa frásögn að
nokkru leyti. Verjandi mannsins,
Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl.,
krefst þess að ákæru vegna smygl-
ferðarinnar í nóvember verði vísað
frá þar sem rannsókn á öðrum
smyglferðum hans frá Þýskalandi
sé ólokið. Málið sé gríðarlega um-
fangsmikið og ljóst að burðardýrin
hafi verið mun fleiri en mál hans
tengist þýskum smyglhring sem ný-
lega var upprættur.
Sigurður Gísli Gíslason, yfirlög-
fræðingur hjá lögreglustjóranum í
Reykjavík, hafnaði frávísunarkröf-
unni og sagði ekkert því til fyr-
irstöðu að ákæra hann fyrir þetta
eina brot. Auk þess hefði lögregla
lítið í höndunum um aðrar ferðir
hans annað en framburð hans sjálfs.
Ef beðið væri eftir því að rannsókn
lyki í Þýskalandi væri alls óvíst hve-
nær tækist að ákæra hann. Það
gæti jafnvel dregist fram í nóvem-
ber. Fram kom hjá Guðrúnu að
Þjóðverjinn vill alls ekki losna úr
gæsluvarðhaldi því hann býst við
því að varðhaldstíminn verði dreg-
inn frá refsingunni eins og venja er
til hér á landi. Sigurður benti á að
gæsluvarðhald væri ekki húsnæð-
isúrræði heldur refsivörsluúrræði.
Ef ákærunni yrði vísað frá væri alls
óvíst að lögregla sæi sér fært að
fara fram á áframhaldandi gæslu-
varðhald.
Segir að burðardýrin
hafi verið mun fleiri
HRÚTARNIR voru kátir þegar
þeim var loksins sleppt úr fjárhúsi
eftir langa inniveru í vetur. Þeir
börðust af krafti og höggin voru
þung þegar þeir skullu saman. Þeir
þurftu auðsjáanlega að fá útrás fyr-
ir óútkljáð deilumál, enda búnir að
vera saman í þröngri stíu síðan
sauðburður byrjaði. Á myndinni
eru það hrútarnir Dúr og Halur
sem berjast, en Mjöður íhugar
hvort hann eigi að skerast í leikinn.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Barist af krafti
Fagradal. Morgunblaðið.
Bankastræti 14, sími 552 1555
Fallegur fatnaður
á konur
15% sumartilboð
á glæsilegum heilsársfrökkum
í dag og á morgun
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Í tilefni af góðri veðurspá
bjóðum við 20% afslátt af öllum
fatnaði í dag og á morgun
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—16.
Laugavegi 84, sími 551 0756
Glæsilegur hörfatnaður
www.casa.is
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686
Stór humar
Túnfiskur, hámeri,
skötuselur og lúða
- Góða sönghelgi -
S
tóra
norræ
na fíla
sýningin
Myndlist fyrir börn
á öllum aldri
Peter Hentze,
Thomas Winding
Pernelle Maegaard
Victoria Winding
„Norræna húsið býður ungu
kynslóðinni á opnunina
laugardaginn 24. maí, kl. 14.
Allir sem mæta í fílabúning
fá ís frá
Norræna húsið
24.5. - 17.8. 2003
Jakkaföt 18.600
Skyrtur 1.990 - Bindi 800
Laugavegi 34, sími 551 4301