Morgunblaðið - 23.05.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.05.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ  BENTE Ovedie Skogvang, norski kvendómarinn sem rak Gylfa Ein- arsson útaf í leik með varaliði Lille- ström eftir að hafa fengið ljót orð í eyra frá Íslendingnum, segir í viðtali við norska blaðið Verdens Gang að eftir þetta atvik ætli hún ekki lengur að mæta með fimm ára gamla dóttur sína á völlinn þegar hún er í hlut- verki dómara.  SKOGVANG sem er 40 ára gömul og er í miklum metum sem dómari segir; „Ég hef alltaf tekið hana með en hún er orðin það stór að hún er farin að skilja það sem sagt er. Eftir þessa uppákomu held ég að það sé best að ég skilji hana eftir heima.“  SIR Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, er að sögn Manchester Ewening News með fjóra leikmenn efsta á óskalista sem eru Brasilíumaðurinn Ronaldinho, leikmaður París SG, Frakkinn Jul- ien Escude, 21 árs gamall bakvörður sem leikur með Rennes, Portúgalinn Ricardo Quasresma, 19 ára gamall miðju- og sóknarmaður sem leikur með Sporting Lissabon og Paul Robinson, markvörður Leeds Unit- ed.  GEORGE Burley kveðst tilbúinn til að taka við starfi knattspyrnu- stjóra Derby County en hann stýrði liðinu á lokasprettinum í ensku 1. deildinni eftir að John Gregory var settur í bann hjá félaginu. Í dag verður mál Gregorys tekið fyrir hjá stjórn Derbys og þá skýrist hvort hann eigi einhverja framtíð fyrir sér hjá félaginu.  BURLEY stýrði Ipswich um árabil með góðum árangri og keypti m.a. Hermann Hreiðarsson til félagsins. „Ef starfið hjá Derby er laust hef ég mikinn áhuga á að taka við því.“  TÉKKNESKI landsliðsmaðurinn Patrick Berger verður líklega fyrsti leikmaðurinn sem Peter Reid fær til Leeds. Berger, sem hefur verið í herbúðum Liverpool í sjö ár, er með lausan samning við hliðið.  FRANSKI landsliðsmaðurinn Ro- bert Pires, 29 ára, segist ætla að vera áfram í herbúðum Arsenal og mun hann skrifa undir nýjan samn- ing á næstu dögum. FÓLK Hinn 28. maí nk. mun Breiðabliksenda stærsta hóp íslenskra körfuknattleiksmanna og kvenna sem farið hefur utan í skipulagða keppnis- ferð í körfuknattleik. Alls eru 60 leikmenn, fjögur karlalið og tvö kvennalið, auk um 15 manna farar- stjórnar og þjálfara að fara til Gauta- borgar í Svíþjóð. „Þetta verður spennandi ferðalag en jafnframt er þetta sá þáttur sem heldur krökkun- um við efnið. Það er gulrótin að fá að skoða heiminn og við höfum lagt áherslu á að fara út einu sinni á ári og það bíður okkar önnur ferð í ágúst þegar við förum til Tampere í Finn- landi sem er vinabær Kópavogs,“ sagði Egill en þá fer hann „aðeins“ með A-liðið í þá ferð. Fjáröflun er stór þáttur í starfi félgsins líkt og hjá öllum öðrum íþróttafélögum og segir Egill að flokkarnir hafi fengið mörg verkefni sem tengjast Smáralind í vetur og það hafi skilað sér í ferðasjóðinn fyrir Svíþjóðarferðina. Lætur verkin tala Egill er rólegur að eðlisfari, er ekki maður hinna mörgu og stóru orða en lætur verkin þess í stað tala. Hann er lamaður og er í hjólastól eft- ir að hafa lent í umferðarslysi á Vest- fjörðum árið 1994. Hann vill hins veg- ar ekki gera mikið úr sérstöðu sinni sem þjálfara og segist komast á flesta staði sjálfur en fari hins vegar ekki oft útá land með flokkum sínum. Hann kallar á hópinn og talar lágt til leikmanna sem meðtaka skila- boðin, rjúka af stað í verkefnið. „Þrír saman, sniðskot, þrisvar í gólfið og báðum megin,“ segir Egill og án þess að nokkur spyrji myndast þriggja manna hópar við fjölmargar körfur Smárans og æfingin er byrjuð. „Ég er oft með aðstoðarmenn á æf- ingum og nota þá til þess að sýna æf- ingar og tækni sem ég legg fyrir hverju sinni. Ef þeir eru ekki á svæð- inu tek ég einn af strákunum afsíðis, útskýri fyrir honum, læt hann sýna mér og við komumst að niðurstöðu hvernig best er að gera æfinguna. Það að ég geti ekki sýnt allar æfingar er engin hindrun í mínum huga og ég veit að strákarnir eru hættir að spá í þetta. Ég er bara þjálfarinn þeirra.“ Egill er 34 ára gamall Patreksfirð- ingur og er nú yfirþjálfari hjá yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Breiðabliks, Hann þjálfar sjálfur 7. og 8. flokk og á ríkan þátt í að iðk- endum hefur fjölgað úr 80 í rúmlega 300 á nokkrum misserum. „Það eru allt að 40 krakkar í yngstu flokkun- um og við erum ánægðir með hvernig til hefur tekist. Krakkarnir hafa nóg fyrir stafni og sem dæmi má nefna að A-liðið í 8. flokki lék 70 leiki á sl. ári og æfði að meðaltali 5 sinnum í viku. „Lítið brottfall“ „Þetta er nokkuð mikið en það er stefna okkar að gleðin sé aðalatriði á æfingum og við sjáum árangurinn þar sem svo margir halda áfram að æfa. Brottfallið er lítið.“ Það einkennir marga drengi á þessum aldri að handleggir þeirra og fætur virðast risavaxnir í saman- burði við líkamsburði þeirra. Hreyf- ingarnar eru ekki enn alveg sam- hæfðar og margir eru afar hávaxnir miðað við aldur. Þegar Egill er inntur eftir því hvort strákarnir séu settir undir körfuna ef þeir eru hávaxnir er hann fljótur að svara að sérhæfing sé ekki á dagskrá á þessum aldri. „Það vita það allir sem hafa þjálfað yngri flokka að maður veit ekki hverjir verða í raun stórir þegar upp er stað- ið. Við höfum því lagt áherslu á að leikmenn okkar fái að leika allar stöð- ur á vellinum. Slíkt gerir þá betri.“ Egill lék sjálfur körfuknattleik með Herði frá Patreksfirði og ÍA á Akranesi þar sem hann stundaði nám. Hann viðurkennir að mikill tími fari í þjálfunina sem oft á tíðum sé lýjandi en afar skemmtileg. „Ég verð ekki efnaður maður á þessu stússi en ég reyni að fylgjast vel með öllu sem viðkemur þjálfun og sæki öll nám- skeið sem í boði eru.“ Vill þjálfa meistaraflokk Aðspurður um framtíðaráformin segir Egill að hann vilji starfa með yngri flokkum félagsins næstu tvö til þrjú árin. „Ég hefði áhuga á að spreyta mig með meistaraflokk í framtíðinni en það er seinni tíma verkefni og þangað til verð ég hér í Smáranum flesta daga að gera það sem er skemmtileg- ast – að þjálfa,“ sagði Egill Steinar Fjeldsted. Breiðablik fer með stóran hóp ungmenna á körfuknattleiksmót í Gautaborg „Ég er bara þjálfarinn þeirra“ ÞAÐ fór ekki mikið fyrir 35 ung- um körfuknattleiksmönnum úr 8. flokki Breiðabliks í Smár- anum þar sem þeir léku listir sínar undir stjórn þjálfarans Eg- ils Steinars Fjeldsteds á risa- vöxnum gólffletinum sl. mið- vikudag. „Sjáðu þennan,“ segir Egill við þann sem þetta skrifar. „Hann er einu ári yngri en hinir og er einn af þeim betri á land- inu. Hann er farinn að lyfta lóð- um og er líklegur til afreka ef hann heldur rétt á spilunum,“ segir Egill hógvær en það leyndi sér ekki að hann átti talsvert mikið í árangri drengjanna. Egill Steinar Fjeldsted er hér ásamt hluta af hópnum sem hann þjálfar hjá Breiðabliki í Kópavogi. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson HJÁLMUR Dór Hjálmsson, bakvörður í knattspyrnuliði Skagamanna, verður frá keppni næstu tvo mánuðina. Hjálmur Dór sleit liðbönd í ökkla í leik með 23-ára liði ÍA gegn Víkingi í Ólafsvík á þriðjudagskvöldið, skömmu eftir að hann skoraði sigur- markið í leiknum, 1:0. „Ég lenti illa eftir skallaein- vígi með þessum afleiðingum. Það má því segja að tímabilið hafi aldrei hafist hjá mér, ég náði aðeins að spila fimm leiki á undirbúningstímabilinu vegna nárameiðsla, var ekki með gegn FH í fyrstu umferð- inni, og svo tekur þetta við. En ég verð vonandi kominn af stað þegar síðari umferð Íslands- mótsins byrjar og svo stefni ég á að komast í 21-árs landsliðið þegar það mætir Þjóðverjum í haust,“ sagði Hjálmur Dór við Morgunblaðið í gær. Hjálmur er 21 árs og hefur spilað 30 leiki með Skaga- mönnum í úrvalsdeildinni. Þar af lék hann 17 af 18 deilda- leikjum liðsins á síðasta tíma- bili. Hjálmur var ekki eini Skaga- maðurinn sem meiddist í Ólafs- vík því miðjumaðurinn efni- legi, Ágúst Örlaugur Magnússon, nefbrotnaði í leiknum. Hjálmur Dór frá keppni í tvo mánuði „ÉG ER bara þokkalega sáttur við hvernig ég spilaði í dag,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, eftir að hann hafði lokið leik á fyrsta degi Burggolf Pumerend golf- mótsins í Hollandi í gær. Mótið er liður í áskorendamótaröð- inni. Birgir Leifur lék á þremur höggum undir pari vallarins í gær, kom inn á 69 höggum og átti nokkur ágæt tækifæri til að skora betur. „Völlurinn er gríðarlega fallegur og erfiður. Þetta er mik- ill vatnavöllur og eiginlega eins og slíkir vellir eru í Banda- ríkjunum. Ég sló ágætlega í dag og þetta gekk allt stór- slysalaust. Ég fékk fimm fugla og tvo skolla, á níundu og átjándu holunum. Ég missti pútt á þeirri níundu, sem var síð- asta holan mín, en ég hóf leik á tíundu holu. Átjánda er 530 metra löng par fimm hola og hún var leikin á móti vindi þannig að maður varð að fara varlega vegna vatnsins,“ sagði Birgir Leifur. Hann fékk skyndilega boð um að koma í mótið og þáði það og sleppir því fyrsta mótinu í Toyota-mótaröðinni hér heima. Birgir Leifur á þremur undir pari Birgir Leifur Hafþórsson Viltu spila fótbolta í sól og sumarhita? Knattspyrnulið Einherja frá Vopnafirði auglýsir eftir metnaðarfullum þjálfara sem getur bæði spilað og þjálfað liðið í sumar. Áhugasamar hafi sambandi við Svövu Birnu Stefánsdóttur í síma 691 1342 eða Lindu Björk Stefánsdóttur í síma 861 2282. LEK - golfmót Eldri kylfingar á Garðavelli á Akranesi sunnudaginn 25. maí. Mótið er viðmiðunarmót til landsliðs karla 55 ára og eldri og kvenna 50 ára og eldri. Keppt er í flokkum karla 50-54 ára, 55 ára og eldri og 70 ára og eldri og kvenna 50 ára og eldri. Skráning á golf.is og í síma 431 2711.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.