Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Júróbíll
VW PASSAT W/G TURBO 11/98.
Ekinn 73 þ. km. Vél 1800 cc. Beinskiptur. Verð 1.410 þ kr.
TILBOÐ 1.250 þ. kr. www.toyota.is
„Ein bisschen Frieden, ein bisschen Sonne.“
Kauptu Júróbíl fyrir 24. maí.
Þú gætir unnið bíl til ókeypis afnota í heilt ár!
STJÓRN Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna samþykkti
einróma á fundi sínum í gær að
óska eftir því við Björgólf Jó-
hannsson forstjóra Síldarvinnsl-
unnar á Neskaupstað að hann
gæfi kost á sér sem næsti for-
maður LÍÚ.
Á aðalfundi Landssambands
íslenskra útvegsmanna á síðasta
ári lýsti Kristján Ragnarsson
formaður samtakanna því yfir
að hann myndi ekki gefa kost á
sér til endur-
kjörs á aðal-
fundi 2003.
Kristján hefur
verið formaður
LÍÚ frá árinu
1970 og starfs-
maður samtak-
anna frá 1958.
Aðalfundur
LÍÚ verður
haldinn dagana 30. og 31. októ-
ber næstkomandi.
Stjórn LÍÚ vill Björgólf
sem næsta formann
Björgólfur
Jóhannsson
FIMM karlmenn og tvær konur sem
eru ákærð fyrir þátttöku í ólögmæt-
um innflutningi á nokkrum kílóum af
amfetamíni komu fyrir Héraðsdóm
Reykjaness í gær þegar málið gegn
þeim var þingfest.
Meintur höfuðpaur málsins er tæp-
lega þrítugur og hefur margoft komið
við sögu lögreglu. Hann er nú ákærð-
ur fyrir að flytja inn 300 grömm af
kókaíni og tæplega sex kíló af amfeta-
míni með pósti frá Þýskalandi en
hann kveðst saklaus.
Samkvæmt ákæru sá þrítugur
maður um söluna á meginhluta efn-
anna og játaði hann sök en kvaðst þó
ekki hafa komið nálægt innflutningn-
um. Rúmlega tvítug systir höfuð-
paursins er ákærð fyrir að liðka fyrir
smyglinu á ýmsan hátt og fyrir pen-
ingaþvætti með því að afhenda bróð-
ur sínum 1,4 milljónir króna sem hún
vissi að var ávinningur fíkniefnasölu.
Hún neitar sök.
Aðrir eru ákærðir fyrir að aðstoða
við innflutning og sölu, s.s. með því að
ná í hluta af fíkniefnunum og koma
þeim áleiðis. Aðeins einn kvaðst hafa
vitað að hann hefði verið með amfeta-
mín í vörslum sínum, hinir kváðust
ekki hafa vitað hvað var í þessum
sendingum. Kolbrún Sævarsdóttir,
fulltrúi ríkissaksóknara, undraðist
framburð margra sakborninga og
sagði hann verulega frábrugðinn því
sem þeir sögðu hjá lögreglu.
Einn játaði að eiga barnaklám
Þrjár aðrar ákærur gegn höfuð-
paurnum meinta voru þingfestar en
hann neitaði yfirleitt sök, játaði ein-
göngu að hafa verið með um 300
grömm af kókaíni sem lögregla fann á
honum. Kvaðst hann hafa verið að
sendast með efnið fyrir annan mann
en neitaði að greina frá um hvern var
að ræða. Annar sakborningur játaði á
sig vörslu á rúmlega níu þúsund
barnaklámsmyndum og 56 hreyfi-
myndum með barnaklámi.
Stefnt hafði verið að því að hefja
aðalmeðferð í byrjun júní en Kristján
Stefánsson hrl., verjandi systurinnar,
sagðist ekki hafa tök á því, bæði
vegna anna og vegna þess að hann
þyrfti að afla læknisfræðilegra
gagna.
Sjö manns ákærðir í um-
fangsmiklu fíkniefnamáli
LANDSBANKI Íslands hóf í upp-
hafi mánaðarins að taka gjald, 330
krónur, í hvert sinn sem fasteigna-
salar fá senda staðfestingu með faxi
á stöðu heimilislána hjá bankanum.
Landsbankinn er eini viðskiptabank-
inn sem tekur gjald fyrir þessa þjón-
ustu og eru fasteignasalar mjög
ósáttir við gjaldtökuna. Benda þeir
m.a. á að bankar innheimti lántöku-
gjöld, sem oft séu býsna há, þegar
lánin eru veitt og það gjald eigi að
fela í sér að lántakinn geti fengið yf-
irlit um stöðu lána á hverjum tíma.
Landsbankinn bendir á hinn bóg-
inn á að fasteignasalar hafi öll gögn í
höndum til þess að vinna yfirlitin,
bankinn sjái ekki ástæðu til þess að
veita þeim ókeypis þjónustu sem
fasteignasalar rukki síðan sína við-
skiptavini fyrir.
Björn Þorri Viktorsson, formaður
Félags fasteignasala, segir þetta fyr-
irkomulag, sem Landsbankinn er
búinn að koma á varðandi heimilis-
lánin, sé alveg nýtt því alla tíð hafi
lánardrottnar, þ.e. viðskiptabankar,
veitt skuldurum sínum og fasteigna-
sölum sem starfa í þeirra þágu, upp-
lýsingar um stöðu lánanna án endur-
gjalds. Fasteignasalar séu því mjög
ósáttir við gjaldtökuna.
„Þegar við seljum eignir þurfum
við auðvitað að fá upplýsingar um
lánastöðu og nú neitar Landsbank-
inn að faxa okkur þessar upplýsingar
nema við millifærum 330 króna gjald
inn á þeirra reikning og staðfestum
jafnframt með umboði að við höfum
heimild til þess að fá upplýsingarnar.
Þetta finnst okkur fasteignasölum
gríðarleg afturför. Við höfum alltaf
talið að þegar bankarnir veita lánin
og taka sérstakt lántökugjald, sem í
mörgum tilvikum er býsna hátt, fæl-
ist í því sú þjónusta að fólk gæti feng-
ið að vita stöðu sína á hverjum tíma,“
segir Björn.
Hafa öll gögn í höndunum
Sigurjón Gunnarsson hjá Lands-
bankanum segir að fasteignasalar
hafi auðvitað öll gögn í höndum og
geti auðvitað unnið yfirlit yfir stöðu
lána sjálfir, þ.e. reiknað vexti og
verðbætur frá síðasta yfirliti sem
skuldarinn hafi undir höndum. En
þeir kjósi að biðja bankann um yf-
irlitið en rukki síðan viðskiptavini
sína fyrir gagnaöflun. Þannig megi
segja að bankinn hafi fram til þessa
unnið hluta af vinnu fasteignasala án
endurgjalds
„Við erum að vinna þessi yfirlit
vegna fasteignaviðskipta. Fasteigna-
salar taka sölulaun af sínum við-
skiptavinum en við höfum til þessa
ekkert fengið fyrir þessa þjónustu.“
Sigurjón segir bankann ekki telja
ástæðu til þess að veita þjónustu sem
þessa frítt og þá um leið á kostnað
annarra viðskiptavina bankans. „Það
hefur almennt verið stefnan hjá okk-
ur með minnkandi vaxtamun að
draga úr slíku. Við lítum svo á að það
séu frekar þeir sem valdi kostnaðin-
um sem eigi að bera hann,“ segir Sig-
urjón.
Fasteignasalar lýsa óánægju með Landsbanka Íslands
Eini bankinn sem tekur
gjald fyrir lánayfirlit
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
skipað Ragnhildi Hjaltadóttur í
embætti ráðuneytisstjóra sam-
gönguráðuneytisins frá og með 1.
júní nk. Tekur hún við af Halldóri
S. Kristjánssyni, sem hefur verið
staðgengill Jóns Birgis Jónssonar
ráðuneytisstjóra frá áramótum.
Ragnhildur er fædd í Reykjavík
árið 1953 og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1973. Hún lauk lögfræðiprófi frá HÍ
árið 1979 og stundaði framhalds-
nám í alþjóðarétti við Institut Int-
ernationales de Haute Études í
Genf á árunum 1979 til 1981. Hún
varð héraðsdómslögmaður árið
1985.
Ragnhildur gegndi lögmanns-
störfum áður en hún varð fulltrúi í
samgönguráðuneytinu 1983, deild-
arstjóri í sama ráðuneyti 1984 og
1988 varð hún skrifstofustjóri ráðu-
neytisins. Ragnhildur hefur gegnt
mörgum tímabundnum nefndar-
störfum.
Ragnhildur á tvær dætur, 17 og 7
ára.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ragnhildur Hjaltadóttir ásamt Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra.
Skipuð ráðuneytisstjóri
HRYSSAN Brana á Lýsuhóli í
Staðarsveit kastaði í fyrradag
tvíburafolöldum, sem voru nefnd
í höfuðið í Birgittu Haukdal söng-
konu. Fékk merfolaldið Birg-
ittunafnið en bróðir hennar
Haukdalsnafnið. Eru þau undan
Þrym frá Gröf í Breiðuvík í Snæ-
fellsbæ.
Hryssan Brana er í eigu Jó-
hönnu Báru Ásgeirsdóttur sem
rekur hestarækt og tamningastöð
á Lýsuhóli ásamt manni sínum
Agnari Gestssyni. Á sumrin eru
þau með hestaleigu fyrir ferða-
menn og nú um helgina verður
leigan opin þar sem teymt verður
ókeypis undir börnum, en reikna
má með að margir vilji líka skoða
folöldin Birgittu og Haukdal.
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Tvíburafolöld á Lýsuhóli
Hellnum. Morgunblaðið.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær skipstjóra og útgerð-
arfélag Báru ÍS af ákærum að hafa
kastað að minnsta kosti 25 fiskum aft-
ur í hafið í veiðiferð í nóvember árið
2001. Myndir sem teknar voru af
brottkasti frá Báru ÍS birtust m.a. í
Morgunblaðinu og Ríkissjónvarpinu.
Skipstjórinn neitaði sök. Hann vís-
aði í myndband af brottkastinu og
sagði að eingöngu sex fiskum hefði
verið kastað fyrir borð en þeir hafi
verið í neti sem hafi legið í fjórar næt-
ur og því ónýtir. Sigurður Grétar
Marínósson, forsvarsmaður útgerð-
arfélagsins Sameyrar, sagði Magnús
Þór Hafsteinsson hafa haft samband
við sig og spurt hvort Ragnar Axels-
son ljósmyndari og Friðþjófur Helga-
son myndatökumaður mættu fara í
veiðiferð. Hann hafi leyft það og
kvaðst hann hafa vitað af því að fjög-
urra nátta trossa yrði dregin í veiði-
ferðinni. Því mætti búast við að eitt-
hvað af fiskinum yrði ónýtur og
honum yrði því hent. Aðspurður sagði
hann að bilun í dælu hafi ráðið því að
netið var ekki dregið fyrr.
Hvorki Friðþjófur né Ragnar
treystu sér til að fullyrða nokkuð um
fjölda þeirra fiska sem var kastað í
sjóinn.
Dæmt eftir eldri lögum
Ákæran byggðist m.a. á mynd-
bandi og ljósmyndum af fiskum í gulu
fiskikari sem ríkislögreglustjóri taldi
að hafi öllum verið kastað fyrir borð. Í
dómnum segir að af myndbandinu
megi ráða að nokkrum fiskum, e.t.v.
sex að tölu, var varpað fyrir borð.
Engin gögn sýni að fleiri fiskum hafi
verið kastað fyrir borð og ekkert
komi fram um frekara brottkast í
framburði vitna og ákærðu í málinu.
Samkvæmt lögum sem voru í gildi
þegar umrædd veiðiferð var farin,
mátti varpa fyrir borð afla sem var
sýktur, selbitinn eða skemmdur á
annan hátt. Þessum lögum var breytt
fljótlega eftir að myndirnar af brott-
kastinu birtust í fjölmiðlum og lönd-
unarskyldan var hert. Það er á hinn
bóginn meginregla að dæma eftir lög-
um sem voru í gildi á þeim tíma sem
meint brot er framið. Taldi dómurinn
ósannað að hent hafi verið fiski sem
skipverjum bar að landa og var því
sýknað af ákærunni.
Guðjón St. Marteinsson kvað upp
dóminn. Helgi Magnús Gunnarsson
sótti málið f.h. ríkislögreglustjóra en
Hilmar Baldursson hdl. var til varnar.
Ekki sannað að ekki hafi
mátt kasta fiskunum