Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 10

Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 10
Morgunblaðið/Árni Torfason Nýstofnuð hljómsveit flutti tónlist við útskrift hjá Fjölmennt. FJÖLMENNT – menntun og starfs- endurhæfing fyrir fólk með geð- raskanir og seinni tíma heilaskaða útskrifaði nýlega 67 manns sem hafa verið við ýmiss konar nám við skól- ann frá áramótum. Um er að ræða tilraunaverkefni sem Fullorð- insfræðsla fatlaðra setti á stofn í samstarfi við Geðhjálp til þess að koma betur til móts við þennan hóp nemenda. Að sögn Helga Jósefssonar, verk- efnisstjóra Fjölmenntar, voru ýmiss konar námskeið á boðstólum í vetur, bæði bókleg og verkleg auk tónlist- arnáms og myndlistarnáms. „Við er- um að reyna að byggja fólk upp til þess að það finni hreinlega að það geti lært og geti þá jafnvel farið í áframhaldandi nám. Svo höfum við líka boðið upp á stuðning við fólk sem er við nám annars staðar, til dæmis í framhaldsskólum eða há- skólanámi,“ segir Helgi. Fimmtán í fjarnám næsta vetur Að sögn Helga hafa yfir áttatíu manns sótt um nám við skólann næsta vetur en þá verður meðal ann- ars boðið upp á fjarnám við Fjöl- brautaskólann við Ármúla og hafa 15 manns sótt um. „Með þessu móti getur fólk sótt framhaldsnám sem er kennt undir okkar umsjón og leið- sögn og í þessu hlýlega umhverfi sem húsnæði Geðhjálpar býður upp á,“ segir Helgi en Geðhjálp leggur skólanum til húsnæði sitt við Tún- götu í Reykjavík endurgjaldslaust. Sveinn Magnússon, framkvæmda- stjóri Geðhjálpar, segir að með því að hafa starfsemina í húsnæði sam- takanna hafi þeir sem eigi við geð- raskanir að stríða betri aðgang að náminu en ella. „Þetta er sá staður sem þessir einstaklingar leita til alla jafna og fá ákveðinn stuðning sem er grundvallaratriði fyrir þá til þess að geta farið í nám,“ segir Sveinn. „Þetta kallar auðvitað á ákveðin fjárútlát en þörfin liggur nokkuð ljós fyrir miðað við þessa tilraun og ef vel á að vera þarf að leggja í þetta meira fjármagn. Ég hef trú á að menntamálayfirvöld sinni þessu. Þau hafa styrkt Fjölmenntina vel í þessu máli og hafa sýnt að þau hafa fullan skilning og vilja til þess að þetta nái fram að ganga,“ segir Sveinn. Nemendur Fjölmenntar eru með sýningu á myndlist sinni í tengslum við útskriftina nú í vikunni í húsnæði Fjölmenntar við Túngötu 7. Fjölmennt útskrifar nemendur Fimmtán manns í framhaldsskólanám næsta vetur FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ARNFRÍÐUR Ísaks- dóttir hárgreiðslu- meistari lést á heimili sínu, Bakkavör 32, Sel- tjarnarnesi, að morgni 21. maí. Arnfríður var fædd að Bjargi á Seltjarnar- nesi 8. júlí 1930. For- eldrar hennar voru Ísak Kjartan Vil- hjálmsson og Helga Sigríður Runólfsdóttir. Arnfríður lauk prófi frá Landakotsskóla. Nam hún hárgreiðslu við Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan sveinsprófi 1948. Arnfríður starfaði allan sinn starfsaldur við hárgreiðslufagið, á sínum yngri árum starfaði hún eitt ár á hárgreiðslustofu í Kaupmannahöfn. Eftir að Arnfríður snéri aftur til Ís- lands kvæntist hún eftirlifandi manni sínum, Óskari Ólasyni, málarameist- ara. Eignuðust þau fjögur börn. Arnfríður, eða Fríða, eins og hún var jafnan kölluð, stofnaði hár- greiðslustofuna Permu 1957 sem var starfrækt um árabil í Garðsenda 21. Fyrirtækið óx og dafnaði undir stjórn Arnfríðar. Um tíma rak Arnfríður ásamt dætrum sínum Permu, Hall- veigarstíg 1 í Reykjavík og Permu, Eiðistorgi Seltjarnarnesi. Arnfríður var í forsvari fyrir hár- greiðslunema á Iðnskólaárum sínum. Hún var síðar formaður Félags hár- greiðslusveina. Arnfríð- ur var ritari Hár- greiðslumeistarafélags Íslands árin 1962–65 og sinnti formennsku í sama félagi árin 1968– 72 og aftur 1976–80. Hún sinnti einnig fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir félagið. Arnfríður var formaður Sambands hárgreiðslu- og hár- skerameistara árin 1970–79, 1980–82 og 1984–86, varaformaður 1979–80 og 1982–84. Arnfríður var fyrst Ís- lendinga til þess að fá réttindi sem al- þjóðlegur fagdómari í hárgreiðslu og vann starf brautryðjanda við að koma á alþjóðlegu samstarfi innan fagsins. Hún var fyrsta konan sem sat í framkvæmdastjórn Landssambands iðnaðarmanna en þar átti hún sæti ár- in 1975–92. Þar sinnti hún ýmsum trúnaðarstörfum og sat í fræðslu- nefnd og prófnefndum. Hún var yf- irprófdómari sveinsprófa í hár- greiðslufaginu í rúman hálfan annan áratug. Arnfríður sat í sambands- stjórn Vinnuveitendasambands Ís- lands árin 1977–82. Arnfríður Ísaksdóttir hlaut heið- ursfélaganafnbót Hárgreiðslumeist- arafélags Íslands 29. nóvember 1995 og var einnig sæmd æðsta heiðurs- merki Landssambands iðnaðar- manna. Andlát ARNFRÍÐUR ÍSAKSDÓTTIR SAMNINGUR um sölu á íbúðum í hinni nýju íbúðaþyrpingu í Skugga- hverfi var undirritaður í gær af fulltrúum fasteignasalanna Eigna- miðlunar og Húsakaupa og fulltrúa 101 Skuggahverfis, hlutafélags í eigu fasteignafélagsins Stoða og Burðar- áss, fjárfestingafélags Eimskipa- félags Íslands. Að sögn Einars I. Halldórssonar, framkvæmdastjóra 101 Skuggahverf- is, voru fasteignasölurnar sérvaldar til að annast sölu á öllum íbúðunum til þess að tryggja festu og markviss vinnubrögð. Sala á íbúðunum hefst strax eftir helgi. Sverrir Kristinsson, löggiltur fast- eignasali hjá Eignamiðlun, telur að ekki hafi áður verið hafist handa við byggingu á glæsilegri fjölbýlishúsum á Íslandi. „Staðsetning íbúðanna ör- stutt frá miðbæ Reykjavíkur nýtur mikilla vinsælda og við fögnum því að eiga samskipti við þessa traustu að- ila,“ segir hann. Guðrún Árnadóttir, viðskiptafræð- ingur og löggiltur fasteignasali hjá Húsakaupum, tekur í sama streng. Hún segist vonast til þess að standa undir þeim væntingum og kröfum sem til þeirra séu gerðar. „Hér er ver- ið að bjóða spennandi valkost á fast- eignamarkaði á Íslandi, nýjan lífstíl ef svo má að orði komast, sem er um margt líkari því umhverfi sem menn þekkja að utan,“ bætir hún við. Í tilkynningu frá Eignamiðlun, Húsakaupum og seljanda segir að fyrstu íbúðirnar í þyrpingunni verði tilbúnar til afhendingar haustið 2004. Einnig segir að áhersla hafi verið lögð á að hönnun og allur frágangur verði í hæsta gæðaflokki, sem nýti sem best kosti staðsetningarinnar. Frá undirskriftinni, í aftari röð eru Brynjar Harðarson, Húsakaupum, Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður 101 Skuggahverfis, og Guðmundur Sigurjónsson, Eignamiðlun. Í fremri röð eru Guðrún Árna- dóttir, Einar I. Halldórsson og Sverrir Kristinsson. Sala íbúða í Skugga- hverfi hefst eftir helgi MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá dómsmálaráðuneytinu vegna um- ræðu um stöðu lögreglunnar í Reykjavík: „Vegna umræðu um fjármál lög- reglunnar í Reykjavík vill dóms- málaráðuneytið taka fram að eng- innniðurskurður á framlögum til lögreglunnar í Reykjavík hefur ver- ið boðaður. Á fjárlögum þessa árs var gerð 0,3% hagræðingarkrafa til stærstu lögregluembætta landsins, sem nemur um 5 milljónum króna af tæplega 2 milljarða króna heild- arframlagi til lögreglunnar í Reykjavík. Sérstakar fjárveitingar vegna rannsóknar umfangsmikilla fíkniefnamála og vopnaeftirlits á flugvöllum á fjárlögum þessa árs hafa þegar að stærstu leyti runnið til lögreglustjórans í Reykjavík og því ljóst að raunhækkun hefur orðið á fjárframlögum til lögreglustjór- ans í Reykjavík á þessu fjárlagaári. Lögreglunni í Reykjavík ber eins og öðrum opinberum stofnunum, lögum og reglum samkvæmt, að halda sig innan þess fjárhags- ramma sem Alþingi markar á fjár- lögum hverju sinni. Fyrir liggur að embættið var rekið með um 40 m.kr. halla á síðasta ári og til að snúa þeirri þróun við var það mat yfirstjórnar embættisins að grípa þyrfti til ákveðinna aðgerða. Þær eru hins vegar mjög umfangslitlar og fyrir liggur að þær munu ekki hafa áhrif á þjónustu embættisins eða öryggi borgaranna. Dómsmálaráðuneytið vinnur nú í samvinnu við fjármálaráðuneytið að fjárlagatillögum fyrir næsta ár, en þeirri vinnu er ekki lokið. Ekki er því tímabært að fullyrða hvaða til- lögur um breytingar á fjárfram- lögum til löggæslu verða gerðar í frumvarpi til fjárlaga næsta árs. Dómsmálaráðuneytið hefur ítrek- að bent á í opinberri umræðu um málefni löggæslunnar að staða hennar sé sterk og traust. Fyrir liggur í opinberum gögnum að frá árinu 1997 hefur orðið um 30% raunhækkun á framlögum til lög- gæslu og hefur sú raunhækkun ein- vörðungu farið til eflingar löggæslu á ýmsum sviðum. Lögreglumönnum hefur á sama tíma fjölgað umtals- vert, meðal annars um 10% að minnsta kosti á síðustu tíu árum hjá lögreglunni í Reykjavík. Sam- anburður á fjölda lögreglumanna milli landa sýnir einnig að hlutfalls- lega eru flestir lögreglumenn á Ís- landi af öllum Norðurlöndunum og á sama tíma sýna tölur að afbrota- tíðni hér á landi er með því lægsta sem gerist í heiminum. Traust al- mennings á Íslandi til lögreglunnar er yfirgnæfandi og sýna árlegar skoðanakannanir að það vex með hverju ári. Áberandi hefur verið í opinberri umræðu að vöxtur hafi hlaupið í embætti ríkislögreglustjóra, á kostnað löggæslu í landinu. Slíkt er fjarri sanni. Raunhækkanir sem orðið hafa á undanförnum árum á framlögum til löggæslu hafa ein- ungis að litlu leyti runnið til emb- ættis ríkislögreglustjóra. Þær raun- hækkanir hafa farið í fjölgun lögreglumanna, t.d. við fíkniefna- rannsóknir, hringinn í kringum landið, meðal annars hefur verið fjölgað um vel á annan tug fíkni- efnalögreglumanna hjá lögreglu- stjóranum í Reykjavík. Sú aukning sem orðið hefur hjá embætti rík- islögreglustjóra stafar eins og áður sagði fyrst og fremst af tilflutningi verkefna sem að mati löggjafans hafa átt betur heima hjá ríkislög- reglustjóra vegna þess samræming- ar- og þjónustuhlutverks sem hann gegnir fyrir lögregluembættin í landinu. Sá tilflutningur hefur í öll- um tilvikum styrkt íslenska lög- gæslu til mikilla muna, eins og upp- bygging fjarskiptamiðstöðvar lög- reglu og umferðardeildar ríkis- lögreglustjóraembættsins hafa glögglega sýnt. Allar framangreindar upplýsing- ar eru aðgengilegar í ítarlegri skýrslu dómsmálaráðherra um stöðu og þróun löggæslu, sem lögð var fyrir Alþingi á 127. löggjaf- arþingi. Skýrsluna í heild er unnt að nálgast á heimasíðu dómsmála- ráðuneytisins, www.domsmalaradu- neyti.is.“ Tilkynning frá dómsmálaráðuneytinu um stöðu lögreglunnar í Reykjavík Enginn niðurskurður framlaga boðaður SALA á nýju íbúðunum í Skugga- hverfi hefst formlega um helgina og af því tilefni verður haldinn opinn kynningarfundur í Listasafni Ís- lands á mánudag. Að sögn Einars I. Halldórssonar, framkvæmdastjóra 101 Skuggahverfis, munu arkitektar húsanna, Morten Schmidt og Ög- mundur Skarphéðinsson hjá Horn- steinum, kynna ágæti þeirra og hvernig staðið hefur verið að hönn- un bygginganna. Auk þess munu söluaðilarnir, Eignamiðlun og Húsa- kaup, gera grein fyrir því hvernig framkvæmd sölunnar verður háttað. „Það hefur lengi verið áhugi fyrir þessum íbúðum og þessari staðsetn- ingu,“ segir Einar og bendir á að á fundinum verði sýnd líkön, myndir og teikningar af fyrirhuguðum hús- um. Hann segir að nokkuð sé síðan íbúðirnar hafi verið verðlagðar. „Minnstu íbúðirnar eru 54 fermetrar og þær stærstu eru 260 fermetrar. Verðið er mjög misjafnt eftir stærð og eftir því hvar þetta er staðsett, eftir hæðum í húsinu og annað slíkt. Ódýrustu íbúðirnar eru um 15 millj- ónir með innréttingum og þær dýr- ustu fara upp í nokkra tugi millj- óna,“ bætir hann við. Einar leggur áherslu á að í raun sé um 12 stærðir og gerðir að ræða. „Þyrpingin samanstendur af lágum fjögurra hæða byggingum og fjór- um átta til sextán hæða turnum. Hún myndar síðan inngarð og undir hús- unum eru bílageymslur.“ Kynning á Skuggahverf- inu í Lista- safni Íslands Fulltrúar lögreglu áttu fund með dómsmálaráðherra FÉLAGSMÁLAFULLTRÚAR lögreglunnar í Reykjavík áttu fund í gær með Sólveigu Péturs- dóttur dómsmálaráðherra og Stefáni Eiríkssyni, skrifstofu- stjóra í dómsmálaráðuneytinu, vegna umræðu á undanförnum dögum um stöðu lögreglunnar í Reykjavík. „Farið var yfir málefni lögregl- unnar í Reykjavík á víðum grunni og skipst var á skoðunum. Und- irritaðir telja að fundurinn hafi verið gagnlegur og til þess fallinn að auðvelda úrlausn mála lögregl- unni til framdráttar. Ljóst er að samtök lögreglu- manna, yfirstjórn lögreglustjóra- embættisins í Reykjavík og dóms- málaráðuneytið þurfa að vinna saman að varanlegri og farsælli lausn á málefnum lögreglunnar í Reykjavík,“ segir í fréttatilkynn- ingu sem fjölmiðlum var send í gær en undir hana rita Óskar Bjartmarz, formaður Landssam- bands lögreglumanna, Sveinn I. Magnússon, formaður Lögreglu- félags Reykjavíkur, og Kristján Kristjánsson, formaður Félags ís- lenskra rannsóknarlögreglu- manna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.