Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 17
Afgreiðslutími
allra verslana Hörpu Sjafnar!
Alla virka daga kl. 8–18 og
laugardaga kl. 11–15.
Helgarvakt
í Skeifunni 4.
Opið laugardaga kl. 11–18
og sunnudaga kl. 13–18.
Skeifan 4
Reykjavík
Sími 568 7878
Snorrabraut 56
Reykjavík
Sími 561 6132
Stórhöfði 44
Reykjavík
Sími 567 4400
Austursíða 2
Akureyri
Sími 461 3100
Hafnargata 90
Keflavík
Sími 421 4790
Dalshraun 13
Hafnarfirði
Sími 544 4414
Austurvegur 69
Selfossi
Sími 482 3767
Bæjarlind 6
Kópavogi
Sími 544 4411
599kr.lítrinnm.v.10 lítra dós
672kr
.
lítrinn
789 kr.lítrinn
399kr.lítrinn
Stórafsláttur af útimálningu og viðarvörn
SUMARTILBOÐ
SJÖTUGUR Japani varð í gær
elzti maðurinn sem afrekað hefur
að klífa tind Mount Everest, hæsta
fjalls heims.
„Draumurinn
færðist alltaf
nær, skref fyrir
skref, og að lok-
um auðnaðist
mér að standa á
tindi Everest,
hæsta punkti á
jörðinni,“ sagði
Yuichiro Miura í
símasamtali til Tókýó, eftir því
sem talsmenn leiðangurs hans
greindu frá. Í liði með Miura voru
sonur hans og fleiri Japanir.
Miura, sem er sjötugur og 222
dögum betur, sló með afreki sínu
met landa síns Tomiyasu Ishikawa,
sem náði á 8.848 m háan tind Ev-
erest í maí í fyrra, þá 65 ára og
176 daga að aldri.
Leiðangur Miura er einn margra
sem stefna á Everest-tind þessa
dagana til að minnast þess að hinn
29. maí eru rétt 50 ár liðin frá því
Nýsjálendingurinn Sir Edmund
Hillary og nepalski sherpinn Tenz-
ing Norgay urðu fyrstu mennirnir
til að komast á tind Everest. Rúm-
lega 40 manns náðu á tindinn í gær
og umferðin um hlíðar fjallsins því
þung þessa dagana.
Yuichiro Miura
Elztur á
Everest
Tókýó. AFP.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti fékk í gær þau skilaboð frá Vlad-
ímír Pútín Rússlandsforseta að
Rússar vildu auka samstarf ríkjanna
á öllum sviðum til að reyna að bæta
tengsl þeirra eftir deilurnar um
Írak.
„Það sem sameinar okkur vegur
miklu meira en það sem stíar okkur í
sundur,“ sagði í bréfi frá Pútín sem
Sergej Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, afhenti Bush á 20 mín-
útna fundi þeirra í Hvíta húsinu í
gær. Rússneska fréttastofan ITAR-
TASS sagði að Bush hefði fagnað
þessum skilaboðum.
Er þetta skýrasta yfirlýsingin til
þessa um að rússnesk stjórnvöld vilji
sættast við Bandaríkjastjórn og
bandarískir embættismenn virtust
sannfærðir um að Rússar myndu
ekki bera kala til hennar vegna
ágreiningsins um Írak.
Ráðgert er að Bush eigi fund með
Pútín í Sankti Pétursborg 1. júní.
Pútín vill
bæta tengsl-
in við Bush
Moskvu. AFP.
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, neitaði
því alfarið í gær að tilraunir Breta og Bandaríkja-
manna til að stjórna Írak, nú þegar hernaðarað-
gerðum er lokið, teldust ólöglegar. Kom yfirlýsing
hans í kjölfar þess að vikuritið New Statesman
birti minnisblað sem breski ríkissaksóknarinn,
Peter Goldsmith lávarður, ritaði um þessi efni og
sendi Blair 26. mars sl.
Minnisblaði ríkissaksóknarans var lekið til New
Statesman en í því lýsir Goldsmith þeirri skoðun
að ný ályktun öryggisráðs SÞ þurfi að koma til svo
Bretar og Bandaríkjamenn geti talist hafa heimild
til að breyta stjórnskipulaginu í Írak og hefja þar
uppbyggingarstarf. Innrásaraðilarnir hafi í raun
aðeins heimild til að athafna sig með það í huga að
tryggja lög og reglu. „Stjórnin hefur komist að
þeirri niðurstöðu að nauðsynlega þurfi að koma
núverandi stjórn í Írak frá, ef afvopnun á að eiga
sér stað. En því lengur sem Írak er hernumið, og
því fleiri verkefni sem bráðabirgðastjórn tekst á
hendur, þeim mun meiri hætta er á að æ erfiðara
verði að réttlæta hernámið lagalega,“ sagði í
minnisblaðinu.
Blair sagði hins vegar í gær að algerlega rangt
væri að segja að á nokkrum tímapunkti hefði rík-
issaksóknarinn sagt að stjórnvöld færu fram með
ólögmætum hætti. „Og í öllu falli, svo maður orði
það hreint út, skipta þessir hlutir ekki lengur máli
vegna samþykktar nýrrar ályktunar hjá SÞ,“
sagði Blair.
Reuters
Tony Blair og Gerhard Schröder ræða saman í
Berlín í gær en þeir tóku báðir þátt í fundi sam-
taka jafnaðarmannaflokka í Evrópu.
Neitar því að lagalega
réttlætingu hafi vantað
London. AFP.
TOMMY Franks hershöfðingi, sem
lagði á ráðin um og stýrði stríði
bandamanna í Írak og Afganistan,
hefur ákveðið að
láta af störfum
sem æðsti yfir-
maður hermála-
stjórnar Banda-
ríkjanna og sem
yfirmaður her-
námsliðsins í Írak,
að því er embætt-
ismenn á sviði
varnarmála
greindu frá í gær. Bæði George W.
Bush Bandaríkjaforseti og Donald H.
Rumsfeld varnarmálaráðherra hafa
lofað frammistöðu Franks í stríðinu
gegn stjórn Saddams Husseins.
Ekki er ljóst nákvæmlega hvenær
Franks, sem er 57 ára Texasbúi, mun
láta af störfum og setjast í helgan
stein. Eftirmaður hans hefur heldur
ekki verið skipaður. Franks gekk í
herinn árið 1967 og þjónaði m.a. í
Víetnam.
Franks
hættir
Washington. AP.
Tommy Franks
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦