Morgunblaðið - 23.05.2003, Síða 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MÁLÞING um lýðræði og kynja-
og byggðasjónarmið verður haldið
á vegum félagsvísinda- og laga-
deildar Háskólans á Akureyri í
samvinnu við Jafnréttisstofu og
Jafnréttisráð í dag, föstudag, og
hefst það kl. 9 í stofu L101 á Sól-
borg.
Mikael Karlsson forseti deildar-
innar setur þingið, en að því loknu
verða flutt 6 framsöguerindi. Val-
gerður H. Bjarnadóttir fjallar um
hvers vegna hlutfall kynja á þingi
eigi að vera jafnt, þá flytur Grétar
Þór Eyþórsson erindi sem nefnist:
Er rétt að spila maður á mann og
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir
fjallar um konur, kosningar og
kjördæmaskipan. Þá ræðir Sigríð-
ur Andersen um hvort kyn skipti
máli í stjórnmálum og Svanfríður
Jónasdóttir um hvort byggðasjón-
armið séu hindrun á vegi kenna í
stjórnmálum, en lokaerindið flytur
Una María Óskarsdóttir og nefnist
það Flokksforysta ræður fram-
gangi kvenna. Að erindum loknum
verða pallborðsumræður með þátt-
töku fulltrúa stjórnmálaflokkanna.
Ágúst Þór Árnason lektor við fé-
lagsvísinda- og lagadeild HA sagði
að ákveðið hefði verið að efna til
ráðstefnunnar í kjölfar umræðna
sem urðu eftir nýafstaðnar alþing-
iskosningar þar sem konum hefði
fækkað á þingi á sama tíma og
fulltrúum Reykvíkinga hefði fjölg-
að. „Það er ljóst af viðbrögðum að
svo virðist sem bakslag hafi orðið
hvað stöðu kvenna í íslenskum
stjórnmálum varðar,“ sagði Ágúst
Þór, en bætti við að vissulega ætti
eftir að birta nýjan ráðherralista
og þar gæti hlutur kvenna orðið
góður. „Við viljum með þessu mál-
þingi beina sjónum að grundvall-
aratriðum, þ.e. af hverju þarf kyn-
skipting að vera jöfn sem og hvort
einhverju skipti að meirihluti þing-
manna komi frá Reykjavík og ná-
grannabyggðarlögum. Við viljum
skoða hvaða kröfur lýðræðið geri
til samsetningar þingsins og mun-
um reyna að leita svara við því
hvaða lýðræðislegu sjónarmið beri
að hafa að leiðarljósi við kjör-
dæmaskipan og skipan efstu
manna á lista stjórnmálaflokkanna
þannig að réttlátt geti talist.“
Ágúst Þór sagði að spennandi
hefði þótt að stilla málum upp með
þessum hætti, þ.e. hver rökin væru
fyrir því að hlutur kvenna ætti að
vera svo og svo mikill sem og að
landsbyggðin hefði sína eigin þing-
menn.
Málþing um lýðræði
og kynja- og
byggðasjónarmið
KIWANISKLÚBBURINN Embla á
Akureyri færði nýbúabörnunum
frá fyrrum Júgóslavíu reiðhjól og
reiðhjólahjálma að gjöf á dög-
unum. Alls eru börnin 11 sem
fluttu til bæjarins nýlega ásamt
fjölskyldum sínum og eru þau á
aldrinum 2 til 15 ára. Börnin voru
hin ánægðustu með gjöfina og
hjóluðu heim á leið glöð í bragði.
Kiwanisklúbburinn Embla er
kvennaklúbbur sem stofnaður var
árið 1992 og er fyrsti klúbburinn
á landinu sem eingöngu er skip-
aður konum. Klúbburinn er þjón-
ustuklúbbur í alþjóðahreyfingu
sem styrkt hefur hin ýmsu málefni
í gegnum tíðina.
Morgunblaðið/Kristján
Börnin með hjólin og hjálmana framan við Skíðaþjónustuna, ásamt fulltrú-
um frá Kiwanisklúbbnum Emblu og fulltrúa Rauða krossins á Akureyri.
Færði nýbúabörnum
reiðhjól og hjálma að gjöf
Brauðmarkaður verður fyrir utan
kosningamiðstöð Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs í dag,
föstudaginn 23. maí, kl. 15–18 en
þar gefst fólki færi á að kaupa
heimatilbúið brauð og kökur, fá sér
kaffisopa og spjalla.
Hljómsveitin Helgi og hljóðfæra-
leikararnir mun halda tónleika í
Deiglunni í Listagilinu í kvöld,
föstudagskvöldið 23. maí. Fjörið
hefst klukkan 22.30. Sveitin leikur
ef til vill öll sín frægustu lög í
hefðbundna kantinum, en bregður
kannske eitthvað á leik að því er
fram kemur í frétt frá hljómsveit-
inni. Sem sagt: óvæntur glaðningur
fyrir þá sem mæta. Miðaverði er
stillt í hóf; aðeins 500 kall og eru
allir velkomnir meðan húsrúm leyf-
ir.
Í DAG
Ferðafélag Akureyrar efnir til
gönguferðar frá Hjalteyri og suður
að Sjávarbakka á morgun, laug-
ardaginn 24. maí. Brottför er kl. 9
að morgni, en skráning fer fram í
dag, föstudag, frá 17.30 til 19 á
skrifstofu félagsins við Strandgötu
þar sem nánari upplýsingar fást.
Kór Átthagafélags Stranda-
manna heldur tónleika í Gler-
árkirkju á morgun, laugardaginn
24. maí, kl. 16. Óskar Pétursson
kemur fram með kórnum og syng-
ur einsöng. Efnisskráin er létt og
samanstendur af innlendum og er-
lendum lögum eftir ýmsa höfunda.
Stjórnandi kórsins er Þóra Vigdís
Guðmundsdóttir og undirleikari
Bryndís Ásgeirsdóttir. Kórinn er
45 ára á þessu ári og hefur af því
tilefni haldið tónleika víða um land.
Á MORGUN
HAFNARFJARÐARBÆR heldur
upp á 95 ára afmæli sitt 1. júní
og af því tilefni verða hátíðarhöld
í Hafnarfirði í heilan mánuð. Lúð-
vík Geirsson mun bjóða bæjar-
búum upp á tertu á afmælisdag-
inn en hátíðarhöldin hefjast með
sýningunni Fólk og fyrirtæki sem
verður haldin í Kaplakrika
helgina 30. maí til 1. júní. Þar er
gert ráð fyrir að hátt í hundrað
fyrirtæki taki þátt og á sýningin
að höfða til allrar fjölskyldunnar.
Viðfangsefnin verða meðal ann-
ars íþróttir, útivera og sælkeralíf.
Á sýningunni munu ýmsir
skemmtikraftar troða upp, meðal
annars Evróvisjónsöngkonan
Birgitta Haukdal og hljómsveitin
Land og synir.
Menningarhátíð í júní
Bjartir dagar, lista- og menn-
ingarhátíð, tekur svo við 1. júní
en sú hátíð verður í gangi fram á
Jónsmessu. Hafnfirskum grunn-
skólabörnum verður kenndur
léttur dans sem þau eiga að miðla
áfram til fjölskyldna sinna en 3.
júní fara allir Hafnfirðingar sem
vettlingi geta valdið út á götur
og torg og dansa í takt við lagið
Hei Hafnarfjörður.
Myndlistarsýningar verða
haldnar vítt og breitt um bæinn
og frumflutt verða tvö tónverk,
sem voru sérstaklega samin fyrir
hátíðina, svo fátt eitt sé nefnt.
Laugardaginn 21. júní verða svo
haldnir tónleikar á Norðurbakka
þar sem hafnfirskar sveitir á
borð við Botnleðju og Jet Black
Joe munu stíga á svið en hin vin-
sæla hljómsveit Írafár hitar upp.
Bogaskyttur og
bardagamenn
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní
hefst svo árleg Sólstöðuhátíð vík-
inga við Fjörukrána í Hafnarfirði.
Þar koma meðal annars saman
bardagamenn og bogaskyttur,
tónlistarmenn og galdramenn en
búist er við að um 120 víkingar
verði á svæðinu yfir hátíðina sem
stendur til 23. júní.
Víkingasveit frá Færeyjum
mun skemmta gestum alla dag-
ana og siglingar með víkingaskip-
inu Íslendingi eru meðal þess sem
boðið verður upp á. Í lokin verð-
ur svo haldið miðsumarblót sem
nýkjörinn allsherjargoði, Hilmar
Örn Hilmarsson, mun sjá um.
Morgunblaðið/Arnaldur
Ungir Hafnfirðingar stigu dans þegar Hafnarfjarðarbær kynnti afmælisdagskrá sína í gær.
Afmælishátíð í Hafnarfirði
Hafnarfjörður
BERGLIND Inga Árnadóttir,
íþróttakennari og framkvæmda-
stjóri Reiðskóla Harðar, segir marg-
ar rangfærslur vera í bréfi forsvars-
manna Hestamiðstöðvarinnar Hind-
isvíkur til bæjarráðs þar sem
kvartað er undan því að bærinn
skekki samkeppnisstöðu reiðskóla
með styrkjum og ókeypis vinnuafli.
Greint var frá efni bréfsins í Morg-
unblaðinu á miðvikudag.
Berglind segir Reiðskóla Harðar
og Hestamiðstöðina Hindisvík ekki
sambærilega reiðskóla. Reiðskóli
Harðar hafi frá upphafi haft þá sér-
stöðu að sinna reiðþjálfun fatlaðra
sem sé undirstaða starfseminnar og
hafi til langs tíma verið eini reiðskól-
inn sem sinnti fötluðum. Á þetta hafi
ekki verið minnst í umræddu bréfi til
bæjarráðs. Reiðskóli Hindisvíkur
hafi á hinn bóginn ekki boðið upp á
námskeið fyrir fatlaða. Hún segir
reiðþjálfun fatlaðra krefjast miklu
fleira starfsfólks og því sé hún mjög
kostnaðarsöm og ekki mögulegt að
halda henni úti nema með styrkjum.
Hún segir ekki rétt að fyrir utan
rekstraraðila reiðskólans vinni ein-
ungis unglingar frá Vinnuskólanum
þar. Tveir unglingar séu sérstaklega
valdir úr Vinnuskólanum með
reynslu af hestamennsku auk þess
sem hún sé með þrjá starfsmenn á
aldrinum 17–20 ára í vinnu.
Berglind segir að í bréfi Hindis-
víkur sé fullyrt að Mosfellsbær geri
ólíkar kröfur til reiðskólanna. Þar sé
hins vegar augljóslega verið að
blanda saman kröfum sem gerðar
séu til starfsemi Hindisvíkur á vet-
urna og sumarstarfs reiðskólanna í
bænum.
Hún segir að sú fullyrðing að
Reiðskóli Harðar hafi enga inniað-
stöðu fyrir nemendur sé röng,
Rekstraraðili hafi aðgang að inniað-
stöðu ef á þurfi að halda og vissulega
hafi reiðskólinn greiðan aðgang að
salernum.
Samkeppnisstaða reiðskólanna
Ekki sambæri-
legir skólar
Mosfellsbær
BÚIST má við undarlegum manna-
ferðum í Hafnarfirði í sumar þar
sem fólk skimar á bak við hóla,
hæðir tré og undir steina. Ekki er
þó ástæða til að hafa áhyggjur af
þessu háttalagi því að öllum lík-
indum verður þarna um að ræða
þátttakendur í Ratleik Hafnar-
fjarðar sem Upplýsingamiðstöð
bæjarins stendur fyrir í allt sumar.
Þetta er í áttunda sinn sem Upp-
lýsingamiðstöðin stendur fyrir rat-
leik af þessum toga. Hann gengur
út á að leita að spjöldum á felu-
stöðum en þeir eru merktir inn á
sérstakt ratleikskort, sem fæst
ókeypis hjá Upplýsingamiðstöðinni.
Kortið nýtist jafnframt sem al-
mennt útivistarkort en inn á það
eru merktar gönguleiðir ásamt
leiðarlýsingum eftir Jónatan Garð-
arsson.
Ekki er um kapphlaup við tím-
ann að ræða þannig að hægt er að
krydda gönguferðir fjölskyldunnar
með leitinni allt sumarið en lausnir
verða að berast fyrir 23. september
næstkomandi.
Leitað að feluspjöldum
Hafnarfjörður
ÞEIR sem ganga með arki-
tekt eða byggingafræðing í
maganum fá á morgun tæki-
færi til að láta ljós sitt skína
því þá verður sandkastala-
keppni haldin á ylströndinni í
Nauthólsvík. Það er Dag-
skrárnefnd Arkitektafélags
Íslands sem stendur fyrir
keppninni sem hefst klukkan
14.
Keppt verður í ýmsum
flokkum bygginga sandkast-
ala eða skúlptúra en hver og
einn keppandi hefur frjálst
val um það á hvaða hátt hann
lætur til sín taka. Þátttak-
endur þurfa að koma með
eigin tæki og tól til bygging-
arinnar og er verkfæraval
frjálst að því undanskildu að
þau mega ekki vera vélknúin.
Segir í fréttatilkynningu að
aðeins hugmyndaflugið sé
þröskuldurinn í þessari uppá-
komu félagsins.
Sandkast-
alakeppni
á morgun
Nauthólsvík