Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 27
FYRIR NOKKRU kom út tvöfald-
ur geisladiskur með söng Einars
Sturlusonar tenórs. Nafn Einars hef-
ur ekki borið hátt
síðustu árin þótt
söngur hans hafi
stöku sinnum hljóm-
að í útvarpinu og
jafnan vakið undrun
og aðdáun fyrir
raddfegurð og list-
fengi. Á geisladiskunum er að finna
úrval af upptökum með söng Einars
á tímabilinu 1948–1964, en að auki
eru þar tvö lög tekin upp árið 1997 á
áttræðisafmæli söngvarans, sem nú
er kominn hátt á níræðisaldur. Síðast
töldu upptökurnar eru til vitnis um
það náttúrufyrirbrigði sem rödd Ein-
ars er og hefur verið enda eru margir
til vitnis um að karlinn syngur enn
bjartri og kraftmikilli röddu, sem létt
nær háa C-inu og smitar alltaf af
sannri sönggleði.
Þeir sem til Einars þekkja vita að
hann er mikill sögumaður og að frá-
sagnargleði hans er alveg einstök.
Þegar Einar er kominn á flug skiptir
litlu máli hvort satt sé sagt eða logið
enda er því svo listilega blandað sam-
an og gerir hann sér sjaldnast grein
fyrir því sjálfur. Svipað má segja um
söng Einars, tónarnir koma beint frá
hjartanu og sungið er af hreinni
gleði. Röddin svo ómþýð að fáir ís-
lenskir söngvarar hafa fengið aðra
eins í vöggugjöf. En við gjafmildi
skaparans bætti Einar um betur þeg-
ar hann jók listfengi sitt með margra
ára námi við Konunglegu tónlistar-
akademíuna í Stokkhólmi þar sem
hann var m.a. samskóla Birgit Nils-
son og Nicolai Gedda, sem síðar
lögðu óperuheiminn að fótum sér.
Björt framtíð virtist blasa við Ein-
ari þegar hann að námi loknu hóf fer-
il sinn sem einsöngvari. Það var því
mikill missir fyrir bæði sjálfan hann
og okkur hin þegar Einar veiktist af
astma, sem að miklu leyti batt enda á
söngferil hans áður en hann hafði
byrjað í raun og veru. Áður hafði
Einar þó náð að syngja við óperu-
húsið í Ósló og í óperunni Rigoletto í
Þjóðleikhúsinu 1951 auk þess sem
hann kom fram á einsöngstónleikum
og með kórum á næstu árum þegar
heilsan leyfði.
Það hefði ekki verið Einari líkt að
láta hugfallast við mótlætið. Hann
hélt áfram að lifa í söng, gerðist sjálf-
ur úrvals söngkennari og tók alltaf
lagið þegar lungun leyfðu. Og um síð-
ir gerðist nokkurt kraftaverk. Þegar
Einar var kominn á þroskaðan aldur
hvarf astminn og þá beið hans röddin
með sínum gamla tærleika og krafti
og háa C-ið flaug honum léttilega úr
hálsi. Sönggleðin var auðvitað söm
við sig.
Þegar ég kynntist Einari fyrst
starfaði hann við umönnun aldraðra
á heilabilunardeild á Elliheimilinu
Grund. Á slíkri deild virðist vistin oft
vera heldur dauf og dapurleg. En á
vaktinni hjá Einari var sungið og
sögur sagðar með slíkum þrótti og
sannfæringu að ýmist virtist vel
heppnuð æfing Árnesingakórsins
standa yfir þarna á loftinu eða þá að
snarkalkaðir karlarnir væru að koma
heim eftir vel heppnaðan róður með
Einari formanni sínum. Eftir slíkan
stofugang var deginum bjargað, jafnt
fyrir heilabilaða sem aðra.
Á hinum nýja geisladiski Einars
Sturlusonar gefur að heyra íslensk
sönglög, en einnig sálmalög og tvö
sænsk sönglög. Mörg íslensku lag-
anna eru nú sjaldheyrð, svo sem
sönglög eftir Hallgrím Helgason og
Ólaf Þorgrímsson. Þau syngur Einar
mörg undurfallega og af mikilli til-
finningu, t.d. lögin Móðir mín og Þei,
þei og ró. Þá má nefna sex sönglög
eftir Atla Heimi Sveinsson, sem eru
tekin upp árið 1954. Þau eru æsku-
verk höfundarins og gefa fögur fyr-
irheit. Innileiki raddarinnar hæfir
líka vel sálmalögunum og má þar t.d.
nefna Heims um ból sem er afar fal-
lega sungið. Í sænsku sönglögunum
er Einar ekki síst í essinu sínu og
minnir rödd hans stundum á Jússa
Björling enda ekki ólíklegt að Einar
hafi tekið hann sér til fyrirmyndar á
námsárunum í Stokkhólmi. Rödd
Einars hljómar hrein og skær,
áreynslulaus og laus við allan remb-
ing. Auðheyrilega er hin mikla virð-
ing fyrir tónlistinni ávallt í fyrirrúmi
við túlkun Einars, sem er laus við
óþarfa raddfimleika.
Þess má geta að Einar á það einnig
sameiginlegt með Jússa Björling að
vera með allra sterkustu mönnum og
eru upphandleggir hans gildari en
meðallæri á kúbönskum kerlingum
og stinnari en á Kidda Jóh. Einar
flíkar því líka gjarnan og iðulega.
Margt skrautlegt mætti segja um
kvennamál Einars, jafnvel þótt ekki
væri þar öllu logið, en slíkt verður að
bíða betri tíma og best að hann segði
þá sjálfur frá.
Glaður og óm-
þýður söngvari
Eftir Árna Tómas Ragnarsson
Höfundur er læknir.Einar Sturluson söngvari.
Mörkinni 3, sími 588 0640.
Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15
Brúðkaupsgjafir
Br
úð
ar
gj
af
al
is
ta
r