Morgunblaðið - 23.05.2003, Page 28
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, heil
menntamálaráðherra, á flokksráðsfundi Sjálfstæðis
DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálfstæðis-flokksins, sagði við fjölmiðlamenn eftirfund flokksráðs Sjálfstæðisflokksins ásjötta tímanum í gær að flokksráðið
hefði verið mjög ánægt með stjórnarsáttmála
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þá væru
sjálfstæðismenn, að sögn Davíðs, mjög ánægðir
með skattamálin í samningnum. Stjórnarsáttmál-
inn var samþykktur nær einróma á fundinum.
Inntur eftir því hvort sjálfstæðismenn væru
sömuleiðis ánægðir með skiptingu ráðuneytanna
milli flokkanna sagði Davíð að þeir hefðu sætt sig
við hana. Inntur eftir því hvort sjálfstæðismenn
hefðu, meðan á stjórnarmyndunarviðræðunum
stóð, gert kröfu um heilbrigðisráðuneytið sagði
Davíð: „Jú, það voru alls kyns óskir og kröfur eins
og gengur en menn voru samt samþykkir þessu í
heild.“
Ekki sem skiptimynt
Davíð var spurður nánar um einstök atriði í
málefnasamningnum. Meðal annars var hann
inntur eftir því hverju það breytti að hans mati að
setja ákvæði í stjórnarskrá um sameign þjóðar-
innar á fiskimiðunum. „Það kannski er ekki annað
en áferðarbreyting, býst ég við,“ sagði hann.
Davíð var einnig spurður að því hvort ríkis-
stjórnin hygðist nota lækkun skatta sem skipti-
mynt í komandi kjarasamningum. „Nei, ekki sem
skiptimynt í kjarasamningum,“ svaraði hann,
„hins vegar spila skattar og kauphækkanir saman
því menn eru að reyna að tryggja fyrst og fremst
kaupmáttaraukningu. Og kjarahækkanir, sem
væru bara tölur sem sköpuðu verðbólgu, myndu
eyðileggja möguleika á skattalækkunum.“
Tvær sjálfstæðiskonur
Nýr þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði í
Valhöll eftir flokksráðsfundinn. Að honum lokn-
um sagði Davíð að tillaga sín um skipan í ráð-
herraembætti hefði verið samþykkt samhljóða.
„Þessi tillaga var samþykkt samhljóða og þau
fluttu tölur þau Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra og Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra og lýstu yfir að þau væru sátt við þessar
niðurstöður, sem hefðu komið fram í samtölum
þeirra við mig í dag [í gær], og það var almenn
samstaða um þær tillögur sem þarna voru gerðar.
Þarna er um þær breytingar að ræða að þegar
þetta er allt komið í kring verða af hálfu Sjálf-
stæðisflokksins tvær konur í ríkisstjórninni og
kona forseti Alþingis.“
Flokksráðið ánæ
stjórnarsáttmá
28 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
NÝ RÍKISSTJÓRN
Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkis-stjórnar Sjálfstæðisflokks ogFramsóknarflokks, sem sam-
þykktur var af stofnunum flokkanna í
gærkvöldi, tekur að miklu leyti mið af
þeirri uppsveiflu sem framundan er í
efnahagsmálum, vegna ákvarðana er
teknar voru á síðasta kjörtímabili.
Það er óhætt að segja að síðasta rík-
isstjórn hafi búið vel í haginn fyrir þá
sem nú er að taka við. Raunar var það
eitt helsta einkenni nýliðinnar kosn-
ingabaráttu að kosningaloforð flokk-
anna byggðust á væntingum um að
framundan væri langt og öflugt hag-
vaxtarskeið.
Það skiptir miklu máli hvernig haldið
er á stjórn efnahagsmála á þenslutím-
um. Nýrrar stjórnar bíður það verkefni
að tryggja áframhaldandi stöðugleika
en jafnframt að hagvöxturinn skili sér í
betri lífskjörum íslensku þjóðarinnar.
Á síðasta kjörtímabili voru tekin mik-
ilvæg skref í þá átt að styrkja stöðu og
auka samkeppnishæfni íslenskra fyrir-
tækja, meðal annars með stórfelldri
lækkun á tekjuskatti lögaðila niður í
18%. Þá var því jafnframt lýst yfir að
eðlilegt væri að næst þegar skattar yrðu
lækkaðir yrðu einstaklingar látnir njóta
góðs af því. Það er því fagnaðarefni að í
nýjum stjórnarsáttmála er að finna
ákvæði um verulegar kjarabætur til ís-
lensks launafólks í gegnum skattakerf-
ið. Á kjörtímabilinu er stefnt að því að
lækka tekjuskattsprósentu einstak-
linga um allt að fjögur prósentustig,
samræma og lækka erfðafjárskatt og
afnema eignaskatt. Þá verður virðis-
aukaskattskerfið tekið til endurskoðun-
ar „með það í huga að bæta kjör almenn-
ings“. Stefnt er að því að skatta-
breytingar verði útfærðar í tengslum
við kjarasamninga og má gera ráð fyrir
að meðal þess, sem þar verður teflt fram
af hálfu ríkisstjórnarinnar verði lækkun
virðisaukaskatts á matvælum. Þetta
verður vonandi til að liðka fyrir samn-
ingum á vinnumarkaði með það fyrir
augum að auka kaupmátt en viðhalda
stöðugleika.
Þá vekur athygli markmið ríkis-
stjórnarinnar um að húsbréfalán til al-
mennra íbúðakaupa verði aukin í 90% á
kjörtímabilinu. Sú ráðstöfun mun ef-
laust verða til að auðvelda mörgum,
ekki síst ungu fjölskyldufólki, að eign-
ast húsnæði eða stækka við sig vegna
breyttra fjölskylduaðstæðna. Jafn-
framt verður mikilvægara en nokkru
sinni, ekki síst vegna verðtryggingar
veðlána, að koma í veg fyrir að verð-
bólga fari ekki aftur af stað hér á landi.
Sjávarútvegsmál voru mikið til um-
ræðu á síðustu vikum kosningabarátt-
unnar og greinilegt að ekki ríkir full
sátt um núverandi fyrirkomulag fisk-
veiðistjórnunar. Það er því mikilsvert
að í nýjum stjórnarsáttmála eru tekin
mikilvæg skref í þá átt að auka sátt um
sjávarútvegsmálin. Skiptir þar mestu
að stefnt er að því að binda ákvæði um
að auðlindir sjávar séu sameign ís-
lensku þjóðarinnar í stjórnarskrá en
jafnframt er gert ráð fyrir ákveðnum
aðgerðum til þess að tryggja stöðu sjáv-
arplássanna og smábátaútgerðar.
Í gær voru jafnframt samþykktar
töluverðar mannabreytingar á ríkis-
stjórninni sem ekki koma þó allar til
framkvæmda strax. Þar vekur ekki síst
athygli að Sjálfstæðisflokkurinn skipar
tvær öflugar konur, þær Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur og Sigríði Önnu
Þórðardóttur, sem ráðherra. Þorgerður
Katrín tekur við af Tómasi Inga Olrich
sem menntamálaráðherra um áramótin
og Sigríður Anna verður umhverfisráð-
herra er það ráðuneyti fellur Sjálfstæð-
isflokknum í skaut í september á næsta
ári.
Sjálfstæðisflokkurinn sætti tölu-
verðri gagnrýni í liðinni kosningabar-
áttu fyrir það að hlutur kvenna væri of
rýr á framboðslistum flokksins. Þá varð
það niðurstaða kosninganna að þing-
konum Sjálfstæðisflokksins fækkaði.
Með því að skipa þær Þorgerði Katrínu
og Sigríði Önnu ráðherra jafnframt því
sem Sólveig Pétursdóttir mun taka við
embætti varaforseta og síðar forseta Al-
þingis, sýnir Sjálfstæðisflokkurinn að
hann hyggst taka á þeim vanda sem
óneitanlega er til staðar.
Þeir ráðherrar sem nú eru á útleið úr
ríkisstjórn hafa komið margvíslegum
umbótamálum í verk í ráðherratíð sinni.
Þar má nefna að Sólveig Pétursdóttir
hefur haft forgöngu um ýmsar mikil-
vægar umbætur á löggjöf sem varðar
kynferðisafbrot. Má þar nefna þyng-
ingu viðurlaga við brotum er tengjast
barnaklámi og ríkari refsivernd barna
vegna kynferðisafbrotamála. Einnig
var í ráðherratíð Sólveigar tekin
ákvörðun um að verja fjármunum til að
þolendur heimilisofbeldis fengju fría
lögfræðiaðstoð. Meðal mikilvægra laga
er samþykkt voru í dómsmálaráð-
herratíð Sólveigar eru fyrstu lögin um
fasteignakaup og ný útlendingalög. Þau
lög og setning reglugerðar um útlend-
inga í framhaldi af lögunum hafa orðið
til að styrkja réttarstöðu útlendinga er
hafa búsetu á Íslandi. Páll Pétursson
vann einnig ötullega að því í félagsmála-
ráðherratíð sinni að bæta réttarstöðu
erlendra ríkisborgara, jafnt almennra
borgara sem flóttamanna er hingað
koma. Þá vann hann sem félagsmálaráð-
herra að því í samvinnu við fleiri ráðu-
neyti að koma á nýrri og framsækinni
löggjöf um fæðingarorlof á síðasta kjör-
tímabili.
Björn Bjarnason, sem lét af starfi
menntamálaráðherra á síðasta ári til að
leiða lista Sjálfstæðisflokksins fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í Reykja-
vík, tekur nú sæti í ríkisstjórn á nýjan
leik. Björn var farsæll og afkastamikill
menntamálaráðherra og í ráðherratíð
hans var mörgum framfaramálum hrint
í framkvæmd. Endurkoma hans í rík-
isstjórn styrkir ráðherralið Sjálfstæð-
isflokksins.
Tómas Ingi Olrich er tók við af Birni
er hann hvarf úr ráðherrastól mun
gegna stöðu menntamálaráðherra
áfram til áramóta en hverfur þá úr rík-
isstjórn. Það sem óneitanlega stendur
upp úr á ráðherraferli Tómasar Inga er
merkilegt frumkvæði hans til að efla
menningartengslin við Dani og hug-
myndir hans um stofnun íslensk-
danskrar menningarstofnunar er hefði
aðsetur á Íslandi. Þar yrðu varðveittir
allir íslenskir forngripir, sem nú eru í
vörslu Dana. Þótt enn hafi ekki náðst
samkomulag um stofnun slíkrar stofn-
unar hefur þetta aukna samstarf þegar
leitt til þess að ýmis merkileg skjöl er
tengjast sögu Íslands, til dæmis fyrsta
stjórnarskrá Íslendinga, hafa nú verið
afhent Íslendingum.
Breytingarnar eru umfangsminni hjá
Framsóknarflokknum en vekja engu að
síður athygli. Nýr og ungur þingmaður,
Árni Magnússon, tekur við embætti fé-
lagsmálaráðherra. Þessi skipan er til
marks um þá breytingu sem er að verða
á Framsóknarflokknum. Flokkurinn
hyggur á landvinninga á suðvesturhorn-
inu í framtíðinni og hyggst festa sig þar
í sessi sem frjálslyndur miðjuflokkur.
MIÐSTJÓRN Framsókn-arflokksins samþykktiá fundi sínum á Grand-hóteli í gærkvöldi að
ganga til ríkisstjórnarsamstarfs
við Sjálfstæðisflokkinn á grunni
málefnasamnings milli flokkanna
sem Halldór Ásgrímsson, formað-
ur flokksins, kynnti á fundinum.
Að sögn Halldórs var mjög góð
samstaða á fundinum um samning-
inn. „Það greiddu allir atkvæði
með þessum sáttmála að undan-
skildum einum,“ sagði hann eftir
fundinn, sem um 150 manns sóttu,
en 164 skipa miðstjórn flokksins.
Halldór Ásgrímsson sagði að
efnahagsmálin og skattamálin
væru mikilvæg á komandi kjör-
tímabili. Eins skiptu velferðarmál-
in mjög miklu máli og nefndi hann
sérstaklega heilbrigðismál í því
sambandi. „Íbúðamálin og 90%
lánin skipta mjög miklu máli fyrir
unga fólkið í flokknum og við höf-
um lagt mikla áherslu á það mál,“
bætti hann við og lagði áherslu á
að ekki mætti raska stöðugleik-
anum.
Ekki urðu miklar umræður um
samninginn á fundinum. Halldór
Ásgrímsson sagði samt að þær
hefðu verið ágætar og fram hefðu
komið ýmsar ábendingar um það
sem betur mætti fara. „Það var al-
mennt ánægja um okkar störf og
það sem er í þessum sáttmála.“
Eftir miðstjórnarfundinn héldu
Framsóknarmenn stuttan þing-
mannafund í alþingishúsinu og að
honum loknum greindi Halldór Ás-
grímsson frá því að Árni Magn-
ússon yrði félagsmálaráðherra en
að öðru leyti færu ráðherrar
Framsóknarflokksins með sömu
embætti og í fyrri ríkisstjórn.
Árni fulltrúi nýrrar kynslóðar
„Við treystum honum afskaplega
vel til þess,“ sagði formaður Fram-
sóknarflokksins um ákvörðunina
um nýja ráðherrann, sem er jafn-
framt nýr á þingi, en Halldór lagði
fram tillögu um ráðherralista á
fundinum. „Hann er fulltrúi nýrrar
kynslóðar. Við höfum lagt mikla
áherslu á unga fólkið og við teljum
að hann sé sérstakur full
fólksins. Hann hefur
reynslu. Hann hefur ver
kvæmdastjóri flokksins m
góðum árangri, hann hef
mikið að sveitarstjórnarm
hann hefur líka verið aðst
ur bæði í utanríkisráðuney
iðnaðar- og viðskiptaráð
þannig að hann kemur m
reynslu inn í okkar hóp.“
Halldór sagði að mjö
hugur hefði verið um ráðh
sinn. Aðrir hefðu fengið
enda væru margir se
trausts og væru hæfir til
þessum embættum en mik
hluti hefði stutt tillögu sín
Um 150 manns voru á fund
kvöldi, en fremst eru Dag
jánsson heilbrigðisráðher
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, gerir grein
fyrir niðurstöðum miðstjórn-
arfundarins.
Góð samstaða
framsóknarmö
FLOKKSRÁÐSFUNDUR Sjálfstæðisflokks-
ins samþykkti síðdegis í gær tillögu Davíðs
Oddssonar, formanns flokksins, um að heimila
flokknum að ganga til stjórnarsamstarfs við
Framsóknarflokkinn á grundvelli þess stjórn-
arsáttamála sem gerður hefði verið og þing-
flokkurinn hefði samþykkt í fyrradag.
Davíð sagði eftir fundinn, sem haldinn var í
Valhöll, að heimildin hefði verið samþykkt
með öllum atkvæðum gegn einu. Litlar um-
ræður urðu um samninginn á fundinum í gær.
Um 230 manns eiga sæti í flokksráði Sjálf-
stæðisflokksins og mætti á annað hundrað
þeirra á fundinn í gær. Að fundinum loknum
héldu nýkjörnir þingmenn þingflokksfund þar
sem tillaga Davíðs um skipan í ráðherraemb-
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins heimilar s
Samkomulag um
bundið við persón