Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 29

Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 29
Morgunblaðið/Sverrir sar hér Tómasi Inga Olrich, fráfarandi sflokksins í gær. ægt með álann MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 29 UNDANFARIN átta ár hafa einkennst af bjartsýni, framförum ogbættum hag þjóðarinnar. Öflugt atvinnulíf hefur lagt grunninnað blómlegu mannlífi og sókn á flestum sviðum þjóðlífsins. Styrkstjórn landsmála hefur leitt af sér lengsta samfellda skeið vax- andi kaupmáttar og hagsældar í Íslandssögunni og tekist hefur að tryggja efnahagslegan stöðugleika. Á grundvelli þessa og í ljósi hins mikla hagvaxtar sem framundan er skapast þjóðinni nú ótal tækifæri til að sækja fram til aukinnar velmegunar og enn betri lífskjara. Slík framþróun er forsenda þess að tryggja megi næga atvinnu, stöðugt verðlag, efla velferðarkerfið og treysta stoðir þess. Ríkisstjórn Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks vill enn bæta þjónustu í heilbrigðiskerfinu og auka skilvirkni í einstökum þáttum þess. Haldið verður áfram uppbyggingu í menntakerfinu með það að markmiði að Íslendingar skipi sér enn sem fyrr á bekk meðal fremstu þjóða heims. Áhersla verður lögð á samheldni þjóðarinnar, víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins og samvinnu dreifbýlis og þéttbýlis um efnahagslegan stöðugleika svo markmið um frekari framfarir, uppbyggingu atvinnulífs, bættar samgöngur, menntun og öryggi borgaranna náist. Staða fjölskyld- unnar í samfélaginu verður styrkt og fjölgað tækifærum foreldra til að sam- ræma starf og fjölskyldulíf í anda þeirrar stefnu ríkisstjórnarinnar sem m.a. birtist í lögum um fæðingarorlof. Með aðgerðum sínum á kjörtímabilinu hyggst ríkisstjórnin leggja grunn að frekari velferð þjóðarinnar til fram- tíðar. Á árinu 2004 minnast Íslendingar tveggja merkra atburða í sögu þjóð- arinnar. Hinn fyrsta febrúar það ár verða liðin eitt hundrað ár frá því Íslend- ingar fengu heimastjórn og fyrsti íslenski ráðherrann tók til starfa. Hinn sautjánda júní sama ár fagnar þjóðin því að sextíu ár eru liðin frá stofnun lýðveldisins. Þessir merkisviðburðir í sögu þjóðarinnar minna á mikilvægi þess að hlúa að menningu og sögu hennar og jafnframt á þau miklu afrek sem undangengnar kynslóðir hafa unnið í þágu íslenskrar þjóðar. Helstu markmið ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á kjörtímabilinu eru þessi:  Að tryggja að jafnvægi og stöðugleiki ríki í efnahagsmálum þjóð- arinnar. Með því skapast skilyrði til enn frekari vaxtar þjóðartekna og aukins kaupmáttar almennings. Jafnframt er stöðugleiki í efnahags- málum forsenda aukinnar samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.  Að viðhalda jafnvægi í fjármálum ríkisins. Ríkisfjármál munu gegna lykilhlutverki í hagstjórn á næstu árum og nauðsynlegt er að stefnu- mótun verði sveigjanleg með tilliti til þróunar efnahagsmála. Umbótum í ríkisrekstri verði haldið áfram til þess að draga úr kostnaði og verklag við fjárlagagerð þróað áfram til þess að styrkja afgreiðslu og fram- kvæmd fjárlaga. Mikilvægt er í þessu samhengi að horft verði til lengri tíma en eins árs í senn.  Að nýta aukið svigrúm ríkissjóðs til að tryggja aukinn kaupmátt þjóð- arinnar með markvissum aðgerðum í skattamálum. Á kjörtímabilinu verður m.a. tekjuskattsprósenta á einstaklinga lækkuð um allt að 4%, eignarskattur felldur niður, erfðafjárskattur samræmdur og lækkaður og virðisaukaskattkerfið tekið til endurskoðunar með það í huga að bæta kjör almennings. Enn fremur er ætlunin að auka möguleika al- mennings á skattfrjálsum viðbótarlífeyrissparnaði. Skattalækkanir verði nánar ákveðnar í tengslum við gerð kjarasamninga.  Að stuðla að því að stjórnkerfið endurspegli breyttar aðstæður í þjóð- félaginu. Einkum verði horft til þess hvernig best má nýta kosti upplýs- ingasamfélagsins og rafrænnar stjórnsýslu til að tryggja jafnt aðgengi borgaranna að nauðsynlegum upplýsingum og þjónustu. Haldið verður áfram að styrkja lögregluna í landinu, m.a. með því að auka sýnilega löggæslu. Öryggi borgaranna verður að hafa forgang. Vinna þarf að auknu umferðaröryggi, bæði í dreifbýli og þéttbýli, m.a. með gerð mis- lægra gatnamóta og lýsingu vega.  Að tryggja að öflug samkeppni ríki á sem flestum sviðum atvinnulífsins til hagsbóta fyrir neytendur. Boðinn verði út rekstur á vegum rík- isstofnana þar sem því verður komið við en jafnframt verði aðgengi og þjónusta tryggð. Sjálfstæði eftirlitsstofnana hins opinbera þarf að vera ótvírætt og tryggja þarf að starfsemi þeirra verði ekki óþarflega íþyngj- andi. Á undanförnum árum hefur verið unnið að sölu á eignarhlutum ríkisins í fyrirtækjum á samkeppnismarkaði. Fylgt verði eftir heimild Alþingis um sölu á hlut ríkisins í Landssíma Íslands og þess gætt að sala fyrirtækisins fari fram þegar markaðsaðstæður eru hagstæðar og þannig tryggt að ríkissjóður fái sanngjarnt verð fyrir eign sína. Tryggt verður að núverandi þjónusta við almenning á þessu sviði skerðist ekki.  Að auka beinan stuðning við barnafjölskyldur með hækkun barnabóta og frítekjumarks þeirra og áfram verði dregið úr tekjutengingu þeirra. Áfram verði stutt dyggilega við íþrótta- og æskulýðsstarf.  Að styrkja rannsókna- og þróunarstarf, m.a með því að auðvelda fyr- irtækjum að leggja fé til þess og örva þannig frumkvöðlastarfsemi. Í samræmi við ný lög um Vísinda- og tækniráð verði unnið að markvissri uppbyggingu rannsóknastarfsemi og nýsköpun á sem flestum sviðum.  Að hvetja fyrirtæki og opinberar stofnanir til að vinna að jafnrétt- ismálum. Gengist verði fyrir rannsóknum á stöðu kynjanna á vinnu- markaði og áfram unnið að því að jafna launamun kynjanna.  Að byggja áfram á núverandi aflamarkskerfi með hóflegu veiðigjaldi við stjórn fiskveiða. Stjórnkerfi fiskveiðanna hefur verið í stöðugri endur- skoðun til þess að sem víðtækust sátt megi skapast um þessa und- irstöðuatvinnugrein þjóðarinnar. Áhersla verði áfram lögð á betri ár- angur við uppbyggingu fiskistofna og líffræðilega stjórn veiðanna. Þróunar- og rannsóknarstarfi verður haldið áfram til að auka verðmæti sjávarfangs. Leitast verður við að styrkja hagsmuni sjávarbyggða, til dæmis með því að kanna kosti þess að styrkja forkaupsréttarákvæði sveitarfélaga og lögaðila, að nýta tekjur af veiðigjaldi til uppbyggingar þeirra, takmarka framsal aflaheimilda innan fiskveiðiársins, auka byggðakvóta og taka upp ívilnun fyrir dagróðrarbáta með línu. Ákvæði um að auðlindir sjávar séu sameign íslensku þjóðarinnar verði bundið í stjórnarskrá.  Að íslenskum landbúnaði verði skapað það starfsumhverfi að hann geti séð neytendum fyrir hollum og öruggum búvörum á hagstæðum kjör- um. Greininni verði sköpuð skilyrði til að nýta styrkleika sína til að tak- ast á við aukna samkeppni, m.a. með hliðsjón af væntanlegum samn- ingum Alþjóða viðskiptastofnunarinnar, WTO. Þetta verði t.d. gert með lækkun gjalda á búvöruframleiðslu, eflingu mennta- og rannsóknarstofn- ana í landbúnaði og stuðningi við nýsköpun og nýliðun í sveitum. Þannig verði möguleikar landbúnaðarins til frekari sóknar nýttir til fulls, auk þess sem brýnt er að styrkja lífeyrisréttindi bænda og rétt þeirra til sjúkrabóta.  Að nýta sóknarfæri ferðaþjónustunnar eins og kostur er. Greininni verði sköpuð sambærileg rekstrarskilyrði og í samkeppnislöndunum. Ferða- málaráð vinni náið með aðilum í greininni að markaðsstarfi og framþróun með það að markmiði að þjónusta við ferðamenn verði heilsársatvinnu- grein og skapi þannig fleiri örugg og vel launuð störf.  Að treysta undirstöður byggðar í landinu og skapa jöfn skilyrði til at- vinnu, menntunar og menningar. Sérstök áhersla verði lögð á fjarnám til þess að sem flestir geti stundað nám í sinni heimabyggð. Unnið verði að uppbyggingu byggðakjarna í samræmi við byggðaáætlun ríkisstjórn- arinnar sem samþykkt var á Alþingi á síðasta kjörtímabili. Haldið verði áfram stuðningi við atvinnuþróun á landsbyggðinni og áhersla lögð á að hagsmunir landsins felast í markvissu samstarfi höfuðborgar og lands- byggðar og gagnkvæmum skilningi.  Að lokið verði við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, þannig að heildstætt yfirlit fáist yfir nýtingarmöguleika landsmanna á þeim miklu verðmætum sem felast í beislun orku. Orkulindir hvers land- svæðis verði nýttar af skynsemi til að byggja upp atvinnu og efla mannlíf. Áhersla verði lögð á að saman fari nýting orkulindanna og náttúruvernd. Stefnt skal að frekari áföngum í vetnisvæðingu þjóðarinnar og að í fram- tíðinni byggist orkunotkun landsmanna á endurnýtanlegum orkugjöfum og verði þannig sjálfbær.  Að standa vörð um íslenska tungu, sögu og þjóðmenningu. Sköpuð verði frekari vaxtarskilyrði fyrir blómlegt menningarlíf. Öflugt listalíf verði að- gengilegt öllum landsmönnum og menningarstarfsemi sköpuð viðeigandi aðstaða, t.d. með tónlistar- og ráðstefnuhúsi í Reykjavík og menningar- húsum á landsbyggðinni. Stutt verði við kynningu á íslenskri menningu og listafólki á erlendri grund.  Að tryggja öllum jöfn tækifæri til náms án tillits til búsetu og efnahags. Háskólanám verði eflt og fjarnám þróað í samvinnu við menntastofnanir á framhalds- og háskólastigi. Öflugt símenntunarkerfi verði þróað áfram í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og sérstök áhersla verði lögð á sókn á sviði starfs- og verkmenntunar. Lánasjóður íslenskra námsmanna gegni áfram því meginhlutverki að tryggja öllum tækifæri til náms. Hug- að verði að lækkun endurgreiðslubyrði námslána og lög um sjóðinn verði endurskoðuð.  Að haldið verði áfram endurskipulagningu á húsnæðismarkaði í sam- ræmi við markmið um Íbúðalánasjóð. Lánshlutfall almennra íbúðalána verði hækkað á kjörtímabilinu í áföngum í allt að 90% af verðgildi eigna, að ákveðnu hámarki. Leigumarkaður íbúðarhúsnæðis verði efldur.  Að allir landsmenn hafi greiðan og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu, óháð aldri, búsetu og efnahag. Nauðsynlegt er að verja fjármunum sem best og nýta kosti breyttra rekstrarforma og þjónustusamninga um ein- staka þætti þar sem það á við til að tryggja góða þjónustu, án þess að dregið verði úr rétti allra til að nota heilbrigðisþjónustu. Efla þarf heilsu- gæsluna sem hornstein heilbrigðisþjónustunnar í landinu. Áfram verði unnið að aukinni þjónustu við geðfatlaða. Sérstaklega þarf að huga að börnum og unglingum með geðraskanir og þroskafrávik. Treysta þarf stuðning við fatlaða og geðsjúka, m.a. með auknu framboði á skamm- tímavistun og annarri stoðþjónustu. Langveikum verði gert kleift að tak- ast á við veikindi sín með fjárhagslegum og félagslegum stuðningi.  Að almannatryggingakerfið verði endurskoðað og einfaldað og sér- staklega verði skoðað samspil þess við skattkerfið og lífeyrissjóðina. Könnuð verði hagkvæmni þess að fela lífeyrissjóðunum að sjá um greiðslu elli- og örorkulífeyris almannatrygginga. Dregið verði úr skerð- ingum á bótum öryrkja vegna atvinnutekna og örorkulífeyrir yngri ör- yrkja verði hækkaður sérstaklega. Áhersla verði lögð á að tryggja sér- staklega hag þeirra öryrkja, fatlaðra og aldraðra sem lægstar tekjur hafa. Heimaþjónusta við aldraða verði aukin og unnið að því að allir geti búið sem lengst á eigin heimili. Mikilvægt er að samþætta þjónustu ríkis og sveitarfélaga við aldraða til að þjónustan nýtist sem best. Haldið verði áfram uppbyggingu hjúkrunar- og dvalarheimila.  Að markvisst verði unnið í baráttunni gegn fíkniefnavandanum. Mótuð verði heildstæð forvarnastefna í samvinnu við lögreglu, skólayfirvöld, íþróttafélög og foreldra. Hafnað er hvers kyns eftirgjöf gagnvart fíkni- efnum, innflutningi þeirra, dreifingu og notkun. Meðferðarúrræðum verði fjölgað og rík áhersla lögð á forvarnir.  Að Ísland haldi stöðu sinni sem forystuþjóð í umhverfismálum, m.a. í bar- áttunni gegn mengun hafsins. Fylgt verði eftir áformum um nýjan þjóð- garð norðan Vatnajökuls og skipulag hálendisins tekið til endurskoðunar. Unnið verði að því að auka ábyrgð einstaklinga og fyrirtækja í umhverf- ismálum.  Að tryggja stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Ísland verði áfram virkur þátttakandi í samstarfi við aðrar þjóðir á vettvangi Atlantshafs- bandalagsins, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og Sameinuðu þjóðanna. Varnarsamstarfið við Bandaríkin verði þungamiðja örygg- isstefnu þjóðarinnar hér eftir sem hingað til, ekki síst í ljósi þeirrar ógnar sem heimsbyggðinni stafar af hryðjuverkum. Samskiptin við Evrópu- sambandið verði áfram treyst á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og annarra samninga sem Ísland á aðild að. Fylgst verði grannt með samrunaferlinu í Evrópu og áhrifum þess á íslenska hags- muni. Samstarfið innan Norðurlandaráðs er Íslendingum mikilvægt og sem fyrr verður lögð rækt við samstarf norrænna vina- og bræðraþjóða. Að standa áfram vörð um samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á al- þjóðavettvangi, t.d. með því að auka þjónustu við fyrirtæki og ein- staklinga á erlendum mörkuðum. Áhersla verður lögð á eflingu íslensku friðargæslunnar og starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar. Ísland skipi sér framarlega í flokki þeirra þjóða sem berjast fyrir mannréttindum. Reykjavík, 23. maí 2003. Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks AUKIN VELMEGUN, ENN BETRI LÍFSKJÖR Hér fer á eftir stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem samþykkt var í stofnunum flokkanna í gærkvöldi trúi unga r mikla rið fram- með mjög fur unnið málum og toðarmað- ytinu og í ðuneytinu með mikla ög góður herralista ð atkvæði em nytu að gegna kill meiri- na. Fram hefur komið að Sjálfstæð- isflokkurinn fái umhverfisráðu- neytið í september á næsta ári, þegar Halldór Ásgrímsson tekur við forsætisráðuneytinu. Hann sagði að þegar hann tæki við for- ystu í ríkisstjórninni yrði skipað með nýjum hætti í ríkisstjórn og þá yrði sambærileg atkvæða- greiðsla um skipan ráðherra. Hins vegar hefði engin ákvörðun verið tekin í því efni og tíminn fram að því yrði notaður vel. Ennfremur hefðu engar ákvarðanir verið tekn- ar um önnur embætti en stjórn þingflokksins yrði kosin á mánu- dag og síðan yrði skipað í nefndir með hefðbundnum hætti. Morgunblaðið/Jim Smart di miðstjórnar Framsóknarflokksins í gær- gný Jónsdóttir, sem er nýr þingmaður, Jón Krist- rra og Jónas Hallgrímsson frá Seyðisfirði. a hjá önnum ætti og önnur embætti var samþykkt sam- hljóða. Skv. heimildum Morgunblaðsins kom m.a. fram í ræðu Davíðs á flokksráðsfundinum að samkomulagið um forsætisráðherraskiptin væri bundið við persónu Halldórs Ásgríms- sonar, formanns Framsóknarflokksins. Þá kom fram í ræðu Davíðs, skv. heimildum Morgunblaðsins, að Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, hefði u.þ.b. hálf- tíma eftir að úrslit þingkosninganna lágu fyrir á sunnudagsmorgun, haft samband við Hall- dór Ásgrímsson og boðið honum forsætisráð- herrastól í ríkisstjórn með Samfylkingunni. Það símtal hefði ekki aukið möguleika Sam- fylkingarinnar á samstarfi við aðra flokka. samstarf við Framsóknarflokkinn stjórnarforystu nu Halldórs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.