Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
ULI Höness, framkvæmdastjóri,
Bayern München, hefur lýst yfir
áhyggjum sínum af líferni Olivers
Kahn, markvarðar liðsins og þýska
landsliðsins. Kahn, sem hefur staðið
í ströngu utan vallar á þessu ári,
hefur stundað skemmtanalíf
Münchenborgar meira en góðu hófi
gegnir að mati Uli Höness.
ANDRE Agassi tilkynnti á blaða-
mannafundi í gær að hann og Steffi
Graf, eiginkona hans, gætu ekki
leikið saman í tvenndarleik á Opna
franska meistaramótinu í tennis
eins og til stóð. Ástæðan er sú að
þau eiga von á barni og ekki er talið
skynsamlegt fyrir ólétta konu að
taka þátt í slíku móti.
DAVID Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins í knattspyrnu, hefur
orðið við beiðni Nelsons Mandela,
um að styðja umsókn Suður-Afríku
um að fá að halda heimsmeistara-
keppnina í knattspyrnu árið 2010.
Suður-Afríka sótti um að halda
keppnina 2006 en Þýskaland hlaut
hnossið.
STJÓRN norska úrvalsdeildar-
liðsins Molde ákvað um miðjan gær-
dag að reka þjálfara liðsins, Gunder
Bengtsen, ásamt aðstoðarmanni
hans. Við liðinu tekur þjálfari ung-
lingaliðsins en aðeins tímabundið.
Molde sem spáð var góðu gengi í ár,
hefur gengið allt í óhag í byrjun
móts. Liðið er í tíunda sæti af 14 lið-
um að loknum sex umferðum. Með
liðinu leika Andri Sigþórsson, Ólaf-
ur Stígsson og Bjarni Þorsteinsson.
DAVID O’Leary, nýráðinn knatt-
spyrnuþjálfari Aston Villa, hefur
sett stefnuna á að koma liðinu í
Evrópukeppni. „Aston Villa lenti í
16. sæti á síðasta tímabili en svona
stórt félag á ekki að vera í fallbar-
áttu heldur á það að vera í einu af
sex efstu sætunum í ensku úrvals-
deildinni. Ég er mjög ánægður með
að Villa hefur valið mig til að taka
við liðinu og ég hlakka til að byrja
að starfa með leikmönnunum,“
sagði O’Leary.
JOSEPH Yobo, hefur verið seldur
frá Marseille til Everton. Yobo var í
láni hjá Everton á síðustu leiktíð og
David Moyes, knattspyrnuþjálfari
Everton, hreifst af spilamennsku
Yobo og ákvað að kaupa hann til fé-
lagsins. Yobo sem er varnarmaður
og á fast sæti í nígeríska landsliðinu
kostar Everton um 410 milljónir ís-
lenskra króna. Hann er samnings-
bundinn Everton til ársins 2007.
ENGLAND sigraði S-Afríku, 1:2,
í vináttulandsleik í gærkvöldi. Gar-
eth Southgate og Emile Heskey
skoruðu fyrir England en Benedict
Mcharthy gerði mark S-Afríku.
David Bekcham fór af velli á 51.
mínútu vegna meiðsla á hendi.
TORE Andre Flo skoraði fyrir
Noreg í gærkvöldi en fyrir leikinn
hafði Flo ekki skorað fyrir lands-
liðið í þrjú og hálft ár.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
1. deild karla:
Víkin: Víkingur – Haukar..........................20
Kópavogur: Breiðablik – Keflavík ............20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Landsleikir í Keflavík:
Konur: Ísland – Noregur...........................18
Karlar: Ísland – Noregur ..........................20
Aðgangur er ókeypis á leikina í boði
Esso, Lýsingar og Hópbíla.
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni KSÍ
VISA-bikar karla, 1. umferð:
HK - Leiknir R. .....................................5:0
Árborg - Víðir ........................................1:4
Stjarnan 23 - Selfoss .............................1:5
Völsungur - KA 23.................................6:1
Ægir - Austri Raufarhöfn.....................1:2
ÍR - Kjölur .............................................5:0
Huginn - Knattsp. Eskifjarðar.............4:0
Fjölnir - Númi........................................1:2
Hamar - KFS .........................................1:4
Leiknir F. - Sindri .................................4:0
Tindastóll - Magni .................................5:2
Fylkir 23 - Léttir ...................................4:3
Í 2. umferð mætast:
Reynir Á. - Tindastóll
KFS - Fram 23
Keflavík 23 - Breiðablik
Völsungur - Leiftur/Dalvík
HK - Haukar 23
Skallagrímur - Deiglan
Höttur - Fjarðabyggð
Víðir - Fylkir 23
BÍ - Bolungarvík
Njarðvík - Breiðablik 23
Leiknir F.- Huginn
KS - Snörtur
ÍR - HK 23
Númi - Austri R.
Selfoss - FH 23
KR 23 - ÍA 23
3. deild karla A
BÍ - Bolungarvík....................................1:2
Vináttulandsleikir
Noregur - Finnland...............................2:0
O. Leonhardsen 19., Tore Andre Flo 80.
Suður-Afríka - England .......................1:2
G. Southgate 1., E. Heskey 64., - B.
Mcharthy 18.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Vormót ÍR
Karlar, 100 m hlaup:
Andri Karlsson, Breiðabliki ..............11,29
Óttar Jónsson, FH.............................11,47
Magnús V. Gíslason, Breiðabliki ......11,50
400 m hlaup:
Sigurkarl Gústafsson, UMSB ...........49,80
Björgvin Víkingsson, FH ..................50,67
Guðmundur V. Þorsteinsson, UMSB52,39
3000 m hlaup (Kaldalshlaupið):
Björn Margeirsson, Breiðabliki .....8.45,83
Sigurbjörn Á. Arngrímss.,UMSS ..8.50,43
Burkni Helgason, ÍR ......................8.52,15
110 m grindahlaup:
Ólafur Guðmundsson, UMSS............15,73
Unnsteinn Grétarsson, ÍR ................16,05
4x100 m boðhlaup:
Sveit Breiðabliks ................................43,55
Sveit FH .............................................43,93
Sveit UMSS ........................................44,76
Stangarstökk:
Sverrir Guðmundsson, ÍR...................4,50
Gauti Ásbjörnsson, UMSS ..................4,00
Spjótkast:
Guðmundur H. Jónsson, Breiðabliki56,90
Sigurður Gunnarsson, Breiðabliki....55,01
Arnar Már Þórisson, FH ..................53,97
Konur, 100 m hlaup:
Sunna Gestsdóttir, UMSS.................12,34
Þórunn Erlingsdóttir, Breiðabliki ....12,56
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Breiðabliki ..12,56
400 m hlaup:
Anna Jónsdóttir, Breiðabliki.............59,97
Kristín B. Ólafsdóttir, ÍR..................61,05
800 m hlaup:
Arndís M. Einarsdóttir, UMSS .....2.21,74
Árný H. Helgadóttir, Breiðabliki ..2.23,26
Herdís H. Arnalds, Breiðabliki......2.27,24
100 m grindahlaup:
Vilborg Jóhannsdóttir, UMSS ..........16,48
Kristín B. Ólafsdóttir, ÍR..................16,48
Linda B. Lárusdóttir, Breiðabliki ....17,39
4x100 m boðhlaup:
Sveit Breiðabliks ................................48,85
Sveit UMSS ........................................49,46
A-meyjasveit ÍR.................................50,87
Langstökk:
Sunna Gestsdóttir, UMSS...................5,83
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Breiðabliki ....5,45
Brynja Finnsdóttir, Aftureldingu ......5,26
Hástökk:
Íris Svavarsdóttir, FH ........................1,60
Helga Þráinsdóttir, ÍR ........................1,45
Bergrós A. Jóhannesdóttir, ÍR...........1,40
Spjótkast:
Sigrún Fjeldsted, FH ........................45,58
Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni ...........43,42
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, FH........40,43
Sleggjukast:
María Lúðvíksdóttir, FH ..................43,65
Helga Rúnarsdóttir, UDN ................36,67
Stangarstökk:
Fanney B. Trygvadóttir, ÍR ...............3,45
Meyjamet.
Hjörtur Harðarson, þjálfarikvennalandsliðsins, sagði á
fundi með fréttamönnum að hann
og stúlkurnar myndu renna blint í
sjóinn. „Við höfum litlar upplýs-
ingar um Norðmenn, en ég tel að
við eigum góða möguleika á sigri.“
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
karlalandsliðsins, tilkynnti í gær að
hann væri með fjórtán manna hóp
sem myndi skipta leikjunum á milli
sín, en tólf leikmenn mega vera á
leikskýrslu í hverjum leik. Íslenska
liði þekkir það norska ágætlega því
liðin mættust á síðasta ári og lauk
þeim leik með eins stigs sigri Ís-
lendinga, í leik sem Íslendingar
höfðu meiri yfirburði en tölurnar
gefa til kynna. Bæði lið verða án
lykilmanna. Auk þeirra sem ekki
gáfu kost á sér í íslenska hópinn nú
fyrr í mánuðnum er Jón Arnór
Stefánsson meiddur.
Karlaliðið er skipað Sverri Sverr-
issyni, Gunnari Einarssyni, Magn-
úsi Þór Gunnarssyni og Jóni Nor-
dal Hafsteinssyni, allir úr Keflavík,
Friðriki Stefánssyni, Njarðvík, Páli
Axel Vilbergssyni og Guðmundi
Bragasyni, Grindavík, Sigurði Þor-
valdssyni, ÍR, Baldri Ólafssyni,
KR, Hlyn Bæringssyni, Snæfelli,
Pálma Frey Sigurgeirssyni, Breiða-
bliki, Loga Gunnarssyni, Ulm,
Fannari Ólafssyni, IUP, og Helga
Má Magnússyni, Catwapa.
Í kvennaliðiðinu eru Birna Val-
garðsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir,
Kristín Blöndal, Marín Rós Karls-
dóttir, Rannveig Randversdóttir og
Erla Reynisdóttir, allar úr Kefla-
vík, Hanna Kjartansdóttir, Helga
Þorvaldsdóttir og Hildur Sigurð-
ardóttir, KR, Alda Leif Jónsdóttir,
Svandís Sigurðardóttir og Signý
Hermannsdóttir, ÍS, og Sólveig
Guðlaugsdóttir, UMFG.
Sex leikir gegn
Norðmönnum
LANDSLIÐSMENN í körfuknattleik verða á ferðinni um helgina er
þeir leika sex landsleiki við Norðmenn – kvennalandsliðið leikur
þrjá þeirra og eru það fyrstu landsleikir kvennaliðsins sem hafa far-
ið fram hér á landi síðan 1997. Kvenna- og karlalandsliðið eru á för-
um til Möltu, þar sem liðin taka þátt í Smáþjóðaleikunum í byrjun
júní. Fyrstu leikirnir verða í kvöld í Keflavík. Kvennaliðið leikur kl.
18 og karlaliðið kl. 20.
Leikmenn San Antonio halda nú til Dallas fullir sjálfs-trausts eftir öruggan sigur næturinnar sem aldrei var
í hættu. Leiks liðanna í SBC-höllinni í San Antonio verður
ekki minnst fyrir glæsileg tilþrif leikmanna liðanna. Leik-
urinn var afar harður og hafði Joey Crawford, dómari
leiksins, gefið fjórar tæknivillur þegar innan við tíu mín-
útur voru liðnar af fyrsta leikhluta. Stuttu síðar mótmælti
Don Nelson, þjálfari Dallas, einum af fjölmörgum dómum
Crawfords dómara sem lauk með því að Nelson var vikið
úr höllinni. Rétt á eftir fór aðstoðarmaður Nelsons, Del
Harris, sömu leið – eftir að hafa gengið inn á völlinn í leyf-
isleysi.
Segja má að góður sigur San Antonio hafi byggst á
góðri einbeitingu leikmannanna sem reyndu að einbeita
sér að því að spila körfuknattleiken ekki að vera að agnú-
ast út í dómarann líkt og leikmenn Dallas.
Hjá San Antonio gerði Tim Duncan 32 stig og tók 15 frá-
köst, Malik Rose gerði 25 stig, þar af 13 stig af vítalínunni
og Frakkinn ungi, Tony Parker gerði 19 stig. Hjá Dallas
var Michael Finley með 29 stig og 10 fráköst, næstur hon-
um kom Dirk Nowitzki sem gerði 23 stig og tók 10 fráköst.
„Leikurinn var okkur erfiður – það er alltaf erfitt að
reyna að vernda forystuna líkt og við gerðum í fyrsta
leiknum, með slæmum afleiðingum. Nú hugsuðum við
ekki um að halda forystu heldur eingöngu um að vinna
leikinn,“ sagði Tim Duncan, miðherji San Antonio Spurs.
AP
Tim Duncan (t.h.) er greinilega ánægður með
framgöngu Tony Parkers, sem lék vel með
San Antonio gegn Dallas.
Leikmenn
Spurs
náðu
að jafna
LEIKMENN San Antonio Spurs lögðu Dallas
Mavericks í öðrum leik liðanna í úrslitum Vest-
urdeildar NBA-deildarinnar, sem fram fór í San
Antonio í fyrrinótt, 119:106. Með sigrinum jöfn-
uðu þeir metin 1:1.
ÁSGEIR Sigurvinsson og
Logi Ólafsson tilkynna í dag
landsliðshópinn í knatt-
spyrnu fyrir leikina tvo í und-
ankeppni EM í næsta mánuði.
Leikið er við Færeyjar á
Laugardalsvellinum 7. júní
og við Litháen í Vilnius fjór-
um dögum síðar.
Ásgeir sagði í samtali við
Morgunblaðið að allir sem
hefðu verið viðloðandi lands-
liðið að undanförnu væru
heilir og tilbúnir í slaginn,
nema Heiðar Helguson sem
er meiddur.
„Ég á eftir að fá endanlega
staðfestingu frá Eyjólfi
Sverrissyni en geri ráð fyrir
því að óbreyttu að hann sé
tilbúinn,“ sagði Ásgeir, en
Eyjólfur hefur léð máls á því
að gefa kost á sér í landsliðið
að nýju.
Það eru því horfur á því að
Eyjólfur, Guðni Bergsson og
Þórður Guðjónsson bætist all-
ir í hópinn frá leiknum við
Finna í Vantaa í lok síðasta
mánaðar. Guðni hætti þá sem
kunnugt er við að fara til
Finnlands vegna pressu frá
Bolton og Þórður sneri aftur
til Þýskalands frá Finnlandi
vegna meiðsla áður en leik-
urinn fór fram.
Allir tilbúnir
nema Heiðar
GUÐNI Bergsson, landsliðsmiðvörður í knattspyrnu,
mun ekki leika með Valsmönnum í úrvalsdeildinni í
sumar, en orðrómur hefur verið í gangi að Guðni
kynni að leika einhverja leiki með sínum gömlu félög-
um eftir að hann sneri heim úr atvinnumennskunni.
„Samningur minn við Bolton rennur út 1. júlí þann-
ig að ég hef ákveðið að spila ekki með Val í sumar.
Ég held að það sé raunsætt mat hjá mér og eðlileg
ákvörðun þar sem ég er búinn að vera á fullu síðustu
ellefu mánuði eða svo. Ég þarf að á hvíldinni að halda
og ég tel rétt fyrir mig og fjölskyldu mína að ég helli
mér ekki út í þennan slag,“ sagði Guðni í samtali við
Morgunblaðið.Guðni Bergsson
Guðni ekki
með Val
í sumar