Morgunblaðið - 23.05.2003, Síða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 47
ERIK Veje Rasmussen var í gær
sagt upp starfi sem þjálfara þýska
handknattleiksfélagsins Flens-
burg, þegar hann átti aðeins eftir
að stjórna liðinu í einum leik í 1.
deildinni. Rasmussen, sem lengi
var lykilmaður í danska landslið-
inu, hefur þjálfað Flensburg und-
anfarin fimm ár og hefur samið
við danska félagið Århus GF fyrir
næsta tímabil. Flensburg varð
fyrir skömmu þýskur bikarmeist-
ari og burstaði meistara Lemgo,
40:32, í næstsíðustu umferð 1.
deildarinnar í fyrrakvöld og er
þar með öruggt með annað sætið í
deildinni. Mesti blómatími félags-
ins hefur verið undanfarin fimm
ár, undir stjórn Danans, en liðið
hefur þó hvað eftir annað mátt
sætta sig við annað sæti á hinum
ýmsu mótum.
Rasmussen og framkvæmda-
stjóri Flensburg, Thorsten Storm,
hafa eldað saman grátt silfur í
vetur en Storm kom til félagsins
fyrir þetta tímabil eftir að hafa
starfað hjá Kiel og Rasmussen
hefur verið óspar á gagnrýni í
hans garð.
„Það er virkilega leiðinlegt að
þetta skyldi enda svona en það
verður líka að segjast að Erik átti
upptökin að þessu. Það mátti bú-
ast við því að svona færi,“ sagði
Jan Fegter, fyrirliði Flensburg.
Rasmussen vildi ekki ræða
málavöxtu við þýska fjölmiðla í
gær, kvaðst ekki hafa áhuga á
skeytasendingum í fjölmiðlum.
Aðstoðarþjálfari hans, hinn gam-
alkunni pólski og síðar þýski
landsliðsmaður, Bogdan Wenta,
stjórnar liði Flensburg í lokaleik
tímabilsins sem er í Essen á morg-
un.
Veje sagt upp fyrir
lokaleik Flensburg
ANNIKA Sörenstam sýndi á fyrsta
leikdegi á Colonial golfmótinu í Tex-
as að hún getur vel att kappi við
karlmenn á golfvellinum. Sörenstam
lék á 71 höggi eða einu höggi yfir
pari en Rory Sabbatini lék á fæstum
höggum í gærkvöldi en hann var á
sex höggum undir pari. Patrick
Sheehan og Mark Calcavecchia eru í
öðru til þriðja sæti en þeir spiluðu á
fimm höggum undir pari.
Sörenstam byrjaði vel í gær og lék
fyrstu holurnar ágætlega og hún
var einu höggi undir pari eftir 13
holur. Þegar hún hóf leik eftir 17
holur var hún á pari en hún lék síð-
ustu holuna á einu höggi yfir pari og
endaði á 71 höggi.
Sörenstam er fyrsta konan í 58 ár
sem spilar á móti karlmönnum á
PGA-mótaröðinni og hefur fjöl-
miðlaumfjöllunin í kringum hana
verið gífurleg á síðustu dögum. „Ég
hef verið stressuð í allan dag en ég
er mjög ánægð með hvernig ég spil-
aði. Ég er ánægð með að deginum er
lokið og það er mikill léttir að vera
búin með fyrsta daginn. Auðvitað
verð ég hæstánægð ef ég kemst í
gegnum niðurskurðinn en ef ég
spila eins og í dag skiptir það í raun
litlu máli,“ sagði Sörenstam eftir að
hafa lokið keppni í gærkvöldi.
Sörenstam fékk góðan stuðning
frá áhorfendum sem hvöttu hana til
dáða á hverri holu. Í kvöld kemur í
ljós hvort Sörenstam kemst í gegn-
um niðurskurðinn.
Annika Sörenstam
á einu höggi yfir pari
Þetta er í fyrsta sinn sem Björnsigrar í Kaldalshlaupinu en eldri
bróðir hans, Sveinn, vann það fimm ár
í röð frá 1997 til og
með 2001. Í fyrra
varð Daníel Smári
Guðmundsson, FH,
hlutskarpastur.
Þetta var í 21. sinn sem Kaldalshlaup-
ið er þreytt. „Ég skal viðurkenna að
ég hef oft verið óöruggari með mig á
hlaupabrautinni en að þessu sinni, ég
var nokkuð viss um að vinna á loka-
sprettinum,“ sagði Björn eftir að
hann hafði komið í mark og tekið við
Kaldalsbikarnum sem er farandbikar
sem ættingjar Jóns Kaldals gáfu til
hlaupsins.
Frá upphafi hlaupsins skáru Björn,
Sigurbjörn og Burkni sig nokkuð frá
öðrum keppendum en alls voru þeir
tólf. Hlupu þeir þremenningar í ein-
um hnapp og skiptust á um að hafa
forystuna allt þar til 200 metrar voru
eftir en þá tók Björn á rás og hljóp af
geysilegum krafti síðustu metrana án
þess að þeir Sigurbjörn og Burkni
fengju rönd við reist. Síðustu 200
metrana hljóp Björn á 27,5 sek., sem
gefur ákveðin fyrirheit vegna sum-
arsins þar sem hann hyggst leggja
áherslu á 800 og 1.500 metra hlaup.
Björn var nokkuð frá sínu besta í
greininni sem er 8.31,74. „Ég átti ekki
von á því að bæta minn besta árangur
í 3.000 metra hlaupi þar sem þetta var
frekar taktískt hlaup,“ sagði Björn.
„Ég meiddist haustið 2001 og er fyrst
að koma til baka af krafti um þessar
mundir. Á þessum tíma hef ég lyft
mikið, nokkuð sem ég hefði hvort sem
er þurft að gera. Þannig að ég er
sterkari nú en nokkru sinni fyrr og
það skilaði sér meðal annars á loka-
sprettinum að þessu sinni. Síðustu tvö
hundruð metrarnir voru kraftmiklir
og gefa mér ákveðna vísbendingu um
hvers ég megi vænta,“ sagði Björn.
Sunna Gestsdóttir, UMSS, náði sér
ekki á strik en vann eigi að síður
öruggan sigur bæði í langstökki og
100 m hlaupi. Hún hljóp 100 metrana
á 12,34 sekúndum sem er nokkuð frá
hennar besta og stökk 5,83 m í lang-
stökki en Íslandsmet hennar er 6,24.
Sunna er nýlega stigin upp úr veik-
indum og sagðist vera nokkuð sátt við
langstökkið en hlaupið hefði ekki ver-
ið nógu gott. „Ég komst aðeins á skrið
í langstökkinu,“ sagði Sunna sem tel-
ur sig eiga mikið inni fyrir sumarið en
næsta keppni hennar er á Smáþjóða-
leikunum á Möltu í byrjun júní. „Von-
andi næ ég mér á strik í hitanum á
Möltu,“ sagði Sunna með bros á vör.
Eitt aldursflokkamet féll á mótinu
þegar Fanney Björk Tryggvadóttir,
ÍR, bætti meyjamet Völu Flosadóttur
í stangarstökki um fimm sentimetra
með því að stökkva yfir 3,45 metra.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Björn Margeirsson, Breiðabliki, tekur við hamingjuóskum frá einum keppinauta sinna eftir að
hann kom fyrstur í mark í Kaldalshlaupinu í gærkvöldi.
Björn vann af
miklu öryggi
BJÖRN Margeirsson, Breiðabliki, sigraði í hinu árlega Kaldals-
hlaupi á Vormóti ÍR á Laugardalsvelli í gærkvöld. Hlaupið, sem er 3
km, er kennt við Jón Kaldal, langhlaupara og ljósmyndara, sem var
fremsti langhlaupari Norðurlanda í lok annars áratugar og í upphafi
þriðja áratugar síðustu aldar. Björn hljóp á 8.45,83 mín., en annar
varð Sigurbjörn Árni Arngrímsson, UMSS, á 8.50,43 og þriðji í mark
kom ÍR-ingurinn Burkni Helgason á 8.52,15 sem er hans besti tími í
greininni.
Ívar
Benediktsson
skrifar