Morgunblaðið - 25.06.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Meðferðarúrræði fyrir ungt fólk
Fraud fær ekki
sófann aftur
HEILBRIGÐIS- ogtryggingamála-ráðuneytið,
Áfengis- og vímuvarnaráð
og Ný leið ráðgjöf standa
fyrir tveggja daga nám-
stefnu í Safnaðarheimili
Fríkirkjunnar sem hefst á
morgun. Námstefnuna
heldur Pr. Harvey Milk-
man sem fjallar um með-
ferðarúrræði handa ungu
fólki sem hann hefur þró-
að og kallast á íslensku
„Lífs-listin“.
– Hver er meðferðin
sem þú hefur þróað?
„Meðferðin snýst um að
virkja listræna hæfileika
unglingsins með öllum
formum listsköpunar t.d.
leiklist og málaralist.
Hugmyndin á bak við
meðferðina er sú að skapa
náttúrulega vímu sem getur
breytt heilastarfseminni til að
bæta líf fólks en ekki að eyði-
leggja það. Það er nefnilega svo,
líkt og ég útskýri í bók minni,
Craving for Ecstacy, sem fjallar
um reynsluna af langvarandi
sælutilfinningu, að fólk getur orð-
ið háð reynslu tengdri t.d. áfengi
eða spilum frekar en fíkniefnum
og það sem fólk ánetjast í raun
eru þær breytingar sem verða í
heilastarfseminni af völdum nátt-
úrulegra deyfilyfja líkamans, t.d.
seratonins, sem verða til fyrir til-
stilli eiturlyfja eða lífsreynslu.
Árið 1992 var mér úthlutað 1,2
milljónum bandaríkjadala til að
koma á fót þessari meðferð sem
við höfum nú notað í heilan ára-
tug og hefur hjálpað mörg þús-
und unglingum.
Við notum leiðir sem eru já-
kvæðar fyrir bæði unglinginn og
samfélagið og koma því öllum
vel.“
– Er nauðsynlegt að laga
meðferðina að íslensku sam-
félagi?
„Við teljum hugmyndina eiga
vel við íslenska menningu þó svo
að þörf sé á að laga meðferðina
að íslenskum aðstæðum. Ég er í
nánu samstarfi við Guðberg K.
Jónsson hjá Rannsóknarstofu um
mannlegt atferli, við þekkjum
verk hvor annars og það er nauð-
synlegt að hafa íslenskan tengi-
lið.
Á Íslandi verður hafist handa
við að bæta við meðferðina fjöl-
skyldumeðferð. Í henni verður
gerð sú breyting að leitast ekki
aðeins við að hjálpa unglingnum
sem einstaklingi og sem parti af
hópi heldur líka að hjálpa fjöl-
skyldunni að skilja og bæta hlut-
verk hennar. Þetta er nýtt og
spennandi tækifæri í ljósi þess að
þetta snertir bæði fjölskylduna
og unglinginn.“
– Hvernig hefur meðferðin
reynst?
„Mjög vel, við finnum að með-
ferðin bætir andlega heilsu ung-
linganna.
Þeir eru ekki jafn þunglyndir
því þeir finna, sumir í
fyrsta sinn á ævinni,
að þeir eru metnir fyr-
ir hæfileika sína. Þeir
hafa einnig bætt sam-
skipti sín við fjölskyld-
una og reiða sig ekki jafnmikið á
vini sem draga þá niður því þeir
öðlast betri sýn á sjálfa sig sem
einstaklinga en ekki hluta af
hópi.
Meðferðin er mikils metin og
hefur verið veitt viðurkenning af
President’s Committee on the
Arts and the Humanities í
Bandaríkjunum.“
– Meðan á dvöl þinni hér
stendur starfar þú með ýmsum
samtökum t.d. Umferðarráði,
hver eru verkefni þín þar?
„Við áttum athyglisverðan
fund með Umferðarráði í fyrra-
dag þar sem umræðuefnið var
hvort bjóða ætti fólki sem keyrt
hefði drukkið upp á meðferð, en
það kæmi ekki í staðinn fyrir
hefðbundin viðurlög. Þar kom vel
fram að nota má meðferðarúr-
ræðið í fleiri tilvikum en þeim
sem varða unglinga.
Við höfum leiðir til að hjálpa
fólki að þróa með sér hæfni til að
t.d. vera sáttara við sjálft sig,
eiga auðveldara með að höndla
þunglyndi, reiði og samviskubit
sem leiðir til þess að það reiðir
sig ekki á áfengi á erfiðum stund-
um og sest síður undir stýri und-
ir áhrifum áfengis.“
– Hvert er markmið nám-
stefnunnar?
„Markmið þessarar tveggja
daga námstefnu er að þjálfa ráð-
gjafa sem munu starfa með ungu
fólki.
William James, einn af upp-
hafsmönnum amerískrar sál-
fræði, sagði í kringum 1900 að
mesta uppgötvun lífs síns hefði
verið að manneskja gæti breytt
lífi sínu með því að breyta við-
horfi sínu, og þetta er það sem
námstefnan snýst að miklu leyti
um. T.d. halda margir krakkar að
hass hafi verið sett hér á jörð til
að nota það, til hvers væri það
annars hér? Við viljum hjálpa
fólki að sjá aðrar leiðir til að
hugsa um hlutina.
Nútímasálfræði beinist ekki
lengur að barnæskunni og því
sem gerðist í fortíðinni heldur að
því sem er að gerast í
núinu.
Fraud hafði mikil
áhrif en eftir 100 ár
með Fraud höfum við
nú loks flust á næsta
stig og þess vegna mun Fraud
gamli ekki fá sófann sinn aftur.“
– Hvenær hefst dagskráin?
„Dagskráin hefst klukkan 9
báða dagana og stendur til kl.
16.“
Milkman mun einnig halda
kynningu á „Lífs-listinni“ í Hinu
húsinu í dag klukkan 14, allar
nánari upplýsingar má nálgast á
slóðinni http://www.nyleid.is.
Harvey Milkman
Harvey Milkman fæddist árið
1944 í Brooklyn í New York.
Milkman er með háskólagráðu
frá Michigan State University í
sálfræði og starfar í dag sem
prófessor í sálfræði við Metro-
politan State College of Denver.
Milkman er kvæntur og á tvær
dætur, 13 og 16 ára.
Náttúruleg
víma bætir líð-
an fólks
NÝ tegund landbúnaðartækis var
tekin í notkun á dögunum þegar
bændur við Bjólu fengu afhenta
nýja rúllubindi- og pökkunarvél.
„Þetta er fyrsta vélin sem kem-
ur til landsins sem er rúllubindivél
og pökkunarvél í einni einingu,“
segir Baldur Þorsteinsson, sölu-
maður hjá Vélum og þjónustu.
Hann segir þetta vera vand-
meðfarið verkfæri með miklar
tölvustýringar og þess vegna hafi
verið sendur maður til að kenna
kaupendum fyrsta tækisins á það.
Það var þá ekki ómerkari maður
en forstjóri framleiðslufyrirtæk-
isins, Marten McHale, sem kom og
kenndi mönnum á tækið.
„Þetta er sennilega stærsti
pökkunarvélaframleiðandinn í
Evrópu,“ segir Baldur, og menn
urðu því hissa þegar forstjórinn
kom sérstaklega hingað í þessum
tilgangi. Baldur segir að McHale
hafi sérstakar tilfinningar til
landsins, enda var Ísland fyrsta
landið utan heimalandsins þar sem
vélar frá McHale voru seldar.
Vélin getur afkastað allt að tvö-
falt meira en hefbundin tæki og er
að rúlla og pakka um 60 rúllum á
klukkustund. Þar sem menn eru
með sambyggðar vélar þykir gott
að ná 30 til 35 rúllum á klukku-
stund í dag, að sögn Baldurs. Þeg-
ar hafa margar fyrirspurnir borist
eftir fleiri vélum, en þær eru upp-
seldar frá framleiðanda þar til á
næsta ári.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Marten McHale, forstjóri McHale Engineering, setur hér nýja rúllu af plasti á rúllubindi- og pökkunarvélina.
Forstjórinn kenndi á nýju vélina
Í sumar er lengri opnunartími í timbursölu Súðarvogi 3-5 og versluninni Skútuvogi.
Opið virka daga kl. 8.00-18.00 og laugardaga kl. 9.00-17.00
Smáratorg
Opið virka daga kl. 8.00-19.00, laugard. kl. 9.00-18.00
og sunnudaga kl. 10.00-17.00
Athugið!ÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
21
57
6
0
6/
20
03
Electrolux þvottavél
EW 1677
1600 snúninga
Tekur 5 kg þvott
Orkuflokkur A
Þvottahæfni A
Vinduhæfni A
Verð 75.990 kr.
Sumartilboð á heimilistækjum
Electrolux
uppþvottavél
ESF 6230
Tekur borðbúnað fyrir 12 manns
Þvottakerfi 5
Hitakerfi 3
Hljóðstyrkur 49db
Barnaöryggi
Mál 820x600x600 mm
Verð 55.990 kr.
Kæli/frystiskápur
Electrolux ERB 3400
1835957
Hæð 180 sm
Verð áður 116.595 kr.
Nú 86.990 kr.
Amica eldavél SEO
1850511
Breidd 50 sm
Verð áður 39.990 kr.
Nú 29.990 kr.
Muna:
kíkja í
Smárato
rg