Morgunblaðið - 25.06.2003, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 15
WHO, Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin, tilkynnti í gær að tekist
hefði að vinna bug á heilkennum al-
varlegrar og bráðrar lungnabólgu
(HABL) í Peking, og felldi úr gildi
aðvörun við ferðum þangað. Þar
með hefur WHO afnumið allar við-
varanir vegna faraldursins, og í
raun sagt hann afstaðinn í heim-
inum öllum.
„Þetta er stór áfangi í baráttunni
við HABL í Kína og heiminum öll-
um,“ sagði dr. Shigeru Omi, svæð-
isstjóri WHO í Austur-Asíu, á
blaðamannafundi í gær. „Frá og
með deginum í dag eru allar ferða-
viðvaranir WHO í heiminum falln-
ar úr gildi.“ En Omi sagði enn-
fremur að þrátt fyrir þennan
árangur yrði enn að fara að öllu
með gát.
HABL varð fyrst vart í Guangd-
ong-héraði í suðurhluta Kína í
nóvember í fyrra, barst þaðan til
Hong Kong, en alls smituðust um
átta þúsund manns víðs vegar í
heiminum, langflestir í Kína, og
rúmlega 800 létust í 32 löndum.
Ferðaviðvörun WHO til Hong
Kong var afnumin í fyrradag.
WHO lýsir
HABL afstaðinn
Peking. AFP.
ÍTALSKA lögreglan handtók í
gær í Mílanó sex manns, sem
sakaðir eru um að hafa haft
tengsl við hryðjuverkasamtökin
al-Qaeda. Eru þeir grunaðir um
að hafa tekið þátt í að fjármagna
þau og útvega þeim nýja liðs-
menn og einnig að hafa stutt
öfgasamtök múslíma í Alsír. Um
er að ræða fimm Túnisbúa og
einn marokkóskan klerk. Sagði í
yfirlýsingu lögreglunnar, að
handtökurnar væru „stóraðgerð
í baráttunni við alþjóðlega
hryðjuverkastarfsemi“.
Styðja hern-
að í Íran
MEIRIHLUTI Bandaríkja-
manna, 56% á móti 38%, er
hlynntur hernaðaraðgerðum í
Íran til að koma í veg fyrir, að
stjórnvöld þar komi sér upp
kjarnavopnum. Kemur það fram
í nýrri skoðanakönnun Wash-
ington Post-ABC News. Meiri-
hlutinn styður einnig aðgerðirn-
ar í Írak þrátt fyrir vaxandi
áhyggjur af mannfalli meðal
bandarískra hermanna þar. Er
þessi meirihluti nú 67% en var
75% í apríl. Þá telja 60%, að
Íraksstríðið hafi verið réttlæt-
anlegt þótt þar finnist engin
gereyðingarvopn.
Havel aftur
undir stýri
VACLAV Havel, fyrrverandi
forseti Tékklands, er nú aftur
sestur undir stýri eftir 14 ára
hlé. Hann
hefur alltaf
haft gaman
af því að aka
en sem for-
seta var hon-
um bannað
það. Nú ætla
þau hjónin
að fara í
tveggja
vikna öku-
ferð á Mercedes-jeppa um Evr-
ópu og er fyrsti áfanginn Barcel-
ona á Spáni. Þar ætlar Havel að
sitja ráðstefnu til stuðnings and-
ófsmönnum á Kúbu og eiga fund
með Jóhanni Karli Spánarkon-
ungi og Jose Maria Aznar for-
sætisráðherra.
Nýr flugvöll-
ur við Ósló
KØBENHAVN Lufthavne, fyr-
irtækið, sem rekur flugvelli
Kaupmannahafnar, hyggst opna
nýjan flugvöll fyrir lággjalda-
flugfélög fyrir sunnan Ósló
snemma á næsta ári. Verður
hann í Rygge-herstöðinni, sem
hefur verið lögð af, og keppir
beint við Gardermoen-flugvöll-
inn fyrir norðan Ósló. Telja
margir, að þetta muni koma sér
illa fyrir SAS, en talsmenn þess
bera sig þó vel og segja, að það
sé ekki nóg að bjóða upp á flug-
braut til að laða að flugfélög.
Tala látinna
hækkar
LJÓST er, að að minnsta kosti
51 maður fórst í lestarslysi í
Maharashtraríki á Indlandi um
síðustu helgi og líklegt er, að
tala látinna sé hærri. Var lestin
á leið með fólk í sumarleyfi er
fjórir vagnar fóru út af sporinu.
Er slysið rakið til mikillar úr-
komu og aurflóðs, sem fór yfir
lestarteinana.
STUTT
Handtökur
á Ítalíu
Havel
www.fotur.net