Morgunblaðið - 25.06.2003, Page 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 35
Mig langar að
kveðja Sigga afa með
nokkrum orðum. Það
var rosalega skrítið á
sunnudagsmorguninn
þegar mér var sagt að
þú værir farinn, elsku afi. Jafnvel
þótt þú hefðir stundum verið mjög
veikur þá er skrítið að heyra þessi
orð að afi manns sé dáinn. Og skrítið
að fá aldrei aftur að sjá hann og tala
við hann, heyra hann djóka og brosa
til manns. En þótt það hafi verið erf-
itt að fara og sjá þig dáinn var það
samt gott að fá að sjá þig í síðasta
sinn og kveðja þig. Þér þótti alltaf
svo vænt um mig og vildir alltaf vita
hvernig mér gengi og þú varst alltaf
svo hreykinn af því hvað ég var dug-
leg. Þrátt fyrir að ástvinir þínir syrgi
þig nú þá gleðst ég þín vegna því að
nú líður þér hvorki illa í sálinni né
líkamanum, nú líður þér vel. Mér
þykir svo vænt um þig og á alltaf eft-
ir að þykja, ég hugsa nú til þín með
söknuði en veit að þú ert á góðum
stað.
Guð blessi alla sem syrgja afa nú,
Sirrýju, pabba og fjölskyldur þeirra,
Jón frænda og aðra sem þekktu
hann.
Þín sonardóttir,
Aðalbjörg.
Þá er kveðjustundin runnin upp,
elsku Siggi, og við viljum með fátæk-
legum orðum þakka fyrir að hafa
fengið að kynnast þér.
Það var mikið lán fyrir mömmu
okkar þegar hún kynntist þér. Þú
komst inn í líf okkar með gleði og
kærleik og tókst okkur öllum opnum
örmum. Ekki síst Diljá, barna-
barninu hennar mömmu, en þú varst
henni alltaf sem alvöruafi. Hún á
ósköp erfitt með að sjá á eftir þér nú,
aðeins einu og hálfu ári eftir að
amma hennar dó, en við eigum öll
margar og góðar minningar sem við
geymum í hjarta okkar alla tíð.
Við munum aldrei gleyma hversu
vel og innilega þú annaðist mömmu í
hennar löngu og erfiðu veikindum.
Fyrir það verðum við þér ævinlega
þakklát.
Með þessum sálmi kveðjum við
þig því við vitum að hann var þér
kær:
Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim,
mig glepur sýn,
því nú er nótt, og harla langt er heim.
Ó, hjálpin mín,
styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt,
ég feginn verð, ef áfram miðar samt.
Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú
og hennar ljós?
Mér sýndist bjart, en birtan þvarr, og nú
er burt mitt hrós.
Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið,
unz fáráð öndin sættist Guð sinn við.
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
SIGURÐUR TORFI
ZOËGA
✝ Sigurður TorfiZoëga Magnús-
son fæddist í
Reykjavík 6. sept-
ember 1926. Hann
lést á Hrafnistu 8.
júní síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Áskirkju 19.
júní.
í gegnum bárur, brim og
voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru
dyr
og engla þá, sem barn ég
þekkti fyr.
(M. Joch.)
Elsku Gunni, Sirrý
og fjölskyldur, við send-
um ykkur okkar inni-
legustu samúðarkveðj-
ur.
Sigurjón, Linda
og Kristín.
Elsku afi minn. Ég sakna þín svo
mikið, en ég veit að þú munt ávallt
vera hjá mér í hjartanu og öllum
þeim minningum sem við sköpuðum
saman eins og til dæmis allar
nammiferðirnar sem við fórum upp í
Breiðholtskjör, allar stundirnar sem
við eyddum í að horfa á sjónvarpið og
alltaf þegar ég kom í heimsókn í
Hjaltabakkann eða á Hrafnistu þá
hafðirðu alltaf eitthvert nammi til
taks sem þú vildir endilega gefa mér.
Ég veit að þú manst þetta allt jafnvel
og ég.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka’ úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.
Ég heyri’ í fjarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína himinborna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.
(Davíð Stef.)
Þú manst þá líka örugglega eftir
þessu lagi, ég söng það örugglega
þúsund sinnum fyrir þig og þú fékkst
aldrei nóg af því.
Ég elska þig, afi minn, og þótt það
sé erfitt að hugsa til þess að ég eigi
ekki eftir að syngja fyrir þig aftur þá
veit ég að þú ert á betri stað og fylg-
ist með mér og við það get ég andað
rólega.
Nú kveð ég þig í bili en alls ekki í
síðasta sinn.
Þín
Diljá.
Okkur félaga í Kiwanisklúbbnum
Eldey langar til að minnast í örfáum
orðum gamals félaga okkar, hans
Sigga T., eins og við kölluðum hann.
Siggi gekk í Eldey árið 1983 og var
mjög virkur í starfi klúbbsins,
gegndi öllum helstu embættum í
stjórn og nefndum og var forseti
1993–1994. Á hátíðarsamkomum þar
sem félagar gera sér glaðan dag var
Siggi ómissandi, hann hélt uppi fjöri
og glensi og hvatti alla til þess að
taka þátt í dansinum og skemmtun-
inni. Hann útvegaði oft menn til að
spila og spilaði oft sjálfur á tromm-
urnar með glæsibrag. Hann var
einnig sérlega skemmtilegur ræðu-
maður og kom okkur oft á óvart með
glensi og gamni. Þegar Siggi sagði
skilið við Kiwanis sökum heilsu-
brests sáum við Eldeyjarfélagar á
bak góðum og skemmtilegum félaga
og geymum nú minningu um góðan
dreng. Við vottum öllum aðstand-
endum samúð okkar við fráfall
Sigga.
Fyrir hönd félaga í Kiwanis-
klúbbnum Eldey,
Már Þorvaldsson forseti.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BORGÞÓR ÓMAR PÉTURSSON
framkvæmdastjóri,
Vesturvangi 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði fimmtudaginn 26. júní kl. 13.30.
Elísabeth Ósk Ellerup,
Jóhann Óskar Borgþórsson, Arnfríður K. Arnardóttir,
Ásgeir Örn Jóhannsson,
Stefán Þór Borgþórsson, Gunnhildur I. Georgsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför hjartkærrar eiginkonu, móður okkar,
stjúpmóður, ömmu og langömmu,
AÐALHEIÐAR HELGADÓTTUR
íþróttakennara,
Safamýri 50,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki líknardeildar Landspítala,
Kópavogi, Sigurði Björnssyni lækni, svo og öllum öðrum, fyrir kærleiks-
ríka umönnun.
Kristján Þór Þórisson,
Steinþór Kristjánsson,
Anna Þuríður Kristjánsdóttir,
Kristín Þóra Kristjánsdóttir,
Þorgerður Kristjánsdóttir,
Sif Kristjánsdóttir, Trausti Þór Ósvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur
og bróðir,
RÖGNVALD KJARTANSSON,
Víðigrund 35,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 26. júní kl. 13.30.
Guðrún Magnea Tómasdóttir,
Hanna Ósk Rögnvaldsdóttir,
Kjartan Rögnvaldsson,
Tómas Þröstur Rögnvaldsson,
Sesselja Gísladóttir
og systkini hins látna.
Við þökkum af alhug öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og vinarhug vegna andláts
yndislegs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
ÞORKELS EINARSSONAR
húsasmíðameistara,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ.
Guðs blessun fylgi ykkur öllum.
Friðþjófur Þorkelsson, Louise Anna Schilt,
Sigurlaug Þorkelsdóttir,
Einar Þorkelsson, Kristín Jóhannsdóttir,
Svanhildur Þorkelsdóttir, Jóhann S. Björnsson,
Brynhildur Þorkelsdóttir, Valdimar Kristinsson,
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og
útför ástkærs sambýlismanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og bróður,
BIRGIS ANTONSSONAR,
Ársölum 3,
Kópavogi.
Jóna Fjalldal,
Halldóra Birgisdóttir,
Börkur Birgisson, Hrafnhildur Óladóttir,
Hlynur Birgisson, Inga Huld Pálsdóttir,
Kristjana Ösp Birgisdóttir, Áskell Þór Gíslason,
Halldór Arnarson, Ingibjörg R. Bjarnadóttir,
Birgir Örn Arnarson, Kristjana Baldursdóttir,
Þorvaldur Örn Arnarson, Hólmfríður B. Pétursdóttir,
Óli Antonsson, Ingibjörg Eggertsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og virðingu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
STEFÁNS EIRÍKS SIGURÐSSONAR
fyrrv. verkstjóra,
Skipasundi 88,
Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hanna Soffía Gestsdóttir,
Innilegar þakkir til allra þeirra, er auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður, ömmu og dóttur,
KRISTRÚNAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Heiðarási 4,
Þökkum frábæru starfsfólki deildar 11-G
Landspítala Hringbraut, heimahlynningarinnar
í Reykjavík og líknardeildar Landspítala Kópavogi.
Fyrir hönd ættingja,
Viggó E. Magnússon.
Þökkum hlýhug og vinsemd við andlát og útför
bróður okkar,
BERGS SÆMUNDSSONAR
frá Stóru-Mörk.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks sem
annaðist hann.
Katrín Sæmundsdóttir,
Ólafur Sæmundsson,
Guðlaug Sæmundsdóttir,
Sigurbjörg Sæmundsdóttir
og fjölskyldur.