Morgunblaðið - 25.06.2003, Page 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VALUR Fannar Gíslason, varn-
armaðurinn sterki hjá Fylki, var í
gær úrskurðaður í eins leiks bann af
aganefnd KSÍ vegna fjögurra gulra
spjalda. Valur Fannar tekur bannið
út í næstu viku þegar bikarmeist-
ararnir sækja KA-menn heim í 16
liða úrslitum bikarkeppninnar.
ÞÓRHALLUR Örn Hinriksson úr
KR var sömuleiðis úrskurðaður í
eins leiks bann af sömu ástæðum og
Valur Fannar. Þórhallur missir af
bikarleiknum gegn U-23 ára liði ÍA í
næstu viku.
HELGI Bragason hefur verið ráð-
inn aðstoðarþjálfari Erlings Rich-
ardssonar, þjálfara karlaliðs ÍBV í
handbolta.
SERENA Williams hóf titilvörn-
ina á Wimbledon-mótinu í tennis í
gær með sigri á Jill Craybas, 6:3 og
6:3. Williams átti ekki í teljandi
vandræðum og gerði út um viður-
eignina á tæpri klukkustund.
ANDRE Agassi hafði betur gegn
Bretanum Jamie Delgado. Agassi
vann tvær fyrstu loturnar, 6:4 og
6:0, en Delgado tókst að vinna
þriðja settið, 7:5. Agassi gerði svo
út um viðureignina í fjórðu lotunni,
6:4.
FÓLK
AUÐUR Skúladóttir, knattspyrnu-
konan reynda úr Stjörnunni, lék í
gærkvöld sinn 200. leik í efstu deild
þegar lið hennar mætti Breiðabliki
á Kópavogsvelli. Auður er aðeins
þriðja knattspyrnukonan frá upp-
hafi sem nær þessum áfanga, enda
þarf að spila í 15 ár í efstu deild
kvenna til að ná honum. Hinar sem
náð hafa 200 leikjum eru Sigurlín
Jónsdóttir, sem lék 233 leiki með ÍA
og KR, og Guðrún Jóna Kristjáns-
dóttir, sem enn er á fullri ferð sem
fyrirliði KR og hefur spilað 212
leiki.
Auður, sem er 32 ára, lék fyrst í
efstu deild með Stjörnunni árið
1987, þá 16 ára gömul, en áður
hafði hún leikið með félaginu deild
neðar. Af þessum 200 leikjum hefur
hún spilað 190 fyrir Stjörnuna en
hún var eitt tímabil í röðum Breiða-
bliks og lék þá 10 leiki.
Auður hefur skorað 33 mörk í
þessum 200 leikjum. Hún átti lengi
fast sæti í íslenska landsliðinu og
var kölluð inn í það á ný í febrúar
og lék þá sinn 35. landsleik þegar
Ísland mætti heimsmeisturum
Bandaríkjanna. Hún var þjálfari
Stjörnunnar, jafnframt því að spila
með, samfleytt frá 1998 til 2002 en í
ár einbeitir hún sér að hlutverki
leikmannsins.
„Ætli það sé ekki félagsskapur-
inn sem heldur mér gangandi í
þessu. Ég hef mjög gaman af því að
æfa og leika knattspyrnu. En ég
viðurkenni það alveg að það hefði
verið gaman að halda upp á þessi
tímamót með eftirminnilegri leik,“
sagði Auður Skúladóttir í samtali
við Morgunblaðið eftir leikinn við
Breiðablik á Kópavogsvelli í gær-
kvöldi.
Auður Skúladóttir þriðja
í 200 leikja klúbbinn
Morgunblaðið/Arnaldur
Auður Skúladóttir lék sinn
200. leik í efstu deild í gær.
KEFLVÍKINGAR eru meðþriggja stiga forystu á toppi 1.
deildarinnar í knattspyrnu eftir
sanngjarnan 0:2–sig-
ur á liði Hauka í
Hafnarfirðinum í
gærkvöldi. Hauk-
arnir eru hins vegar í
heldur verri málum því þeir eru stigi
frá fallsæti með sex stig eftir sex
leiki.
Keflvíkingar náðu forystunni
strax á 9. mínútu leiksins. Magnús
Þorsteinsson fékk sendingu inn fyrir
vörn Hauka frá Hólmari Rúnars-
syni, sem hann nýtti vel og sendi
knöttinn framhjá Jörundi Kristins-
syni í marki Hauka. Sóknarleikur
Keflvíkinga var beittur og skapaði
oft usla fyrir framan mark heima-
manna, en Haukarnir áttu vart telj-
andi færi í hálfleiknum. Magnús var
svo aftur á ferðinni á 27. mínútu þeg-
ar hann fiskaði víti, en Jörundur
gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna
frá Stefáni Gíslasyni. Gestirnir héldu
áfram að vera ágengir upp við mark
Haukanna og áður en hálfleikurinn
var allur höfðu gestirnir átt skot í
stöng og annað sem heimamenn
björguðu á línu.
Það var allt annað Haukalið sem
mætti út á völlinn eftir leikhlé. Þeir
réðu lögum og lofum á vellinum og
aðeins klaufaskapur sóknarmanna
varð til þess að þeir náðu ekki að
skora. Þeim var refsað fyrir mark-
}óheppnina á 68. mínútu þegar Þór-
arinn Kristjánsson kom gestunum í
2:0 eftir krafs fyrir framan mark
Haukanna. Við markið var sem allur
vindur væri úr Haukunum og leikur
þeirra lognaðist út af. Keflvíkingar
héldu sínu og hleyptu heimamönnum
hvergi nærri sér. Þeir fögnuðu því
góðum sigri í leikslok.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari
Hauka, var ekki yfir sig hrifinn af
frammistöðu sinna manna í gær:
„Heilt yfir var leikurinn slakur af
okkar hálfu. Það komu kaflar inn á
milli sem voru sæmilegir, en við
brotnuðum alveg niður þegar við
fengum á okkur annað markið.“
Spurður að því hvað það væri sem
stæði Haukaliðinu helst fyrir þrifum
svaraði hann því til að markaskor-
unin væri alls ekki eins góð og hún
þyrfti að vera: „Það sem hefur klikk-
að hjá okkur í sumar er að við erum
aðeins búnir að skora fimm mörk í
sex leikjum, við sköpum okkur ekki
nægilega mikið af færum. Að sama
skapi erum við búnir að fá á okkur
tíu mörk í þessum leikjum, sem er
allt of mikið. Við skorum ekki nóg og
það er stóra vandamálið.“
Maður leiksins: Þórarinn Krist-
insson, Keflavík.
Keflavík
styrkti
stöðu
sína
Benedikt Rafn
Rafnsson
skrifar
Ég kann mjög vel við mig í fram-línunni og það var frábært að
gera fjögur mörk í kvöld þar sem
ég hef aldrei gert
jafnmörg mörk síð-
an ég fór að leika í
meistaraflokki. Það
er enginn vafi í mín-
um huga að æfingaferðin sem við
fórum til Ítalíu virkaði vel á hóp-
inn. Það hefur líka sést á síðustu
tveimur leikjum sem liðið hefur
leikið. Varðandi framhaldið vona
ég að við höldum áfram að spila af
sama krafti og við höfum gert í síð-
ustu leikjum, því ég er í þessu til að
vinna bikara,“ sagði Elín Anna
Steinarsdóttir, hetja Breiðabliks,
kampakát að leik loknum í gær.
Allt frá fyrstu mínútu leiksins
var ljóst að róðurinn ætti eftir að
verða þungur fyrir Stjörnuna.
Breiðablik komst yfir strax á 8.
mínútu þegar Elín Anna skallaði í
mark Stjörnunnar eftir fyrirgjöf
Bryndísar Bjarnadóttur. Elín
Anna var síðan aftur á ferðinni rétt
í lok fyrri hálfleiks þegar hún nýtti
sér mistök í vörn Stjörnunnar.
Síðari hálfleikur hófst ekki
gæfulega hjá gestunum því á 52.
mínútu fullkomnaði Elín Anna
þrennu sína þegar hún hirti bolt-
ann af Auði Skúladóttur í vörn
Stjörnunnar og lék á Maríu B.
Ágústsdóttur í marki Stjörnunnar
og lagði boltann í autt markið.
Varamaðurinn Björk Gunnarsdótt-
ir minnkaði muninn á 62. mínútu í
3:1 fyrir Stjörnuna úr fyrsta um-
talsverða marktækifæri Stjörnu-
stúlkna. Breiðablik skoraði í næstu
sókn á eftir. Þar var að verki Ólína
G. Viðarsdóttir með glæsilegu
skallamarki eftir sendingu frá Silju
Þórðardóttur. Aftur minnkaði
Björk Gunnarsdóttir muninn, nú
með hnitmiðuðu skoti í bláhornið.
En það var við hæfi að Elín Anna
skyldi eiga lokaorðið. Hún kom
Breiðabliki í 5:2 á 82. mínútu.
Hjá gestunum úr Stjörnunni lék
María B. Ágústsdóttir ágætlega í
markinu en vörnin fyrir framan
hana var slök í gær. Þá var inn-
koma Bjarkar Gunnarsdóttur
glæsileg en hún er aðeins 16 ára og
á svo sannarlega framtíðina fyrir
sér. Hafa ber í huga að Stjarnan
saknaði Elfu B. Erlingsdóttur,
helsta markaskorara síns, vegna
meiðsla.
Hjá Breiðabliki var títtnefnd El-
ín Anna best. Þá voru þær Margrét
Ólafsdóttir, Silja Úlfarsdóttir og
Ólína G. Viðarsdóttir öflugar á
miðjunni og réðu þar lögum og lof-
um. Það er allt annað að sjá til
Breiðabliksliðsins núna en í upp-
hafi móts og greinilegt að Ólafur Þ.
Guðbjörnsson þjálfari er á réttri
leið með liðið.
Morgunblaðið/Arnaldur
Elín Anna Steinarsdóttir framherji Breiðabliks fór á kostum gegn Stjörnunni í gær og skoraði
fjögur mörk. Hér hefur hún betur gegn Guðlaugu S. Gunnarsdóttur varnarmanni Stjörnunnar.
Elín Anna af-
greiddi Stjörnuna
Hjörvar
Hafliðason
skrifar
BREIÐABLIK sigraði Stjörnuna í nágrannaslag á Kópavogsvelli í
gærkvöldi, 5:2, í lokaleik fyrri umferðar efstu deildar kvenna.
Breiðablik er nú í fjórða sæti deildarinnar en Stjarnan í því fimmta,
níu stigum á eftir Breiðabliki. Elín Anna Steinarsdóttir, framherji
Breiðabliks, átti stórleik í gær og skoraði fjögur mörk.
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna
Landsbankadeild
Breiðablik - Stjarnan .............................. 5:2
Elín Anna Steinarsdóttir 8.,41.,57.,82., Ól-
ína G. Viðarsdóttir 65. - Björk Gunnars-
dóttir 62., 80.
Staðan:
KR 7 6 1 0 32:3 19
Valur 7 5 1 1 21:9 16
ÍBV 7 5 0 2 31:10 15
Breiðablik 7 5 0 2 23:15 15
Stjarnan 7 2 0 5 11:18 6
FH 7 2 0 5 3:21 6
Þór/KA/KS 7 1 0 6 5:23 3
Þróttur/Haukar 7 1 0 6 6:33 3
Markahæstar:
Hrefna Jóhannesdóttir, KR ..................... 13
Ásthildur Helgadóttir, KR ......................... 9
Olga Færseth, ÍBV...................................... 9
Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV ............... 8
Ólína G. Viðarsdóttir, Breiðabliki.............. 7
Elín A. Steinarsdóttir, Breiðabliki ............ 6
Laufey Ólafsdóttir, Val ............................... 6
Mhairi Gilmour, ÍBV................................... 6
1. deild kvenna A
Þróttur/Haukar-2 - ÍR..............................0:6
Staðan:
Breiðablik 2 4 4 0 0 31:4 12
HK/Víkingur 5 3 1 1 15:5 10
RKV 4 3 1 0 14:8 10
ÍR 6 3 0 3 26:14 9
Fjölnir 5 3 0 2 15:13 9
Þróttur/Haukar 2 5 0 0 5 4:29 0
HSH 5 0 0 5 7:39 0
1. deild karla
Haukar - Keflavík.................................... 0:2
Magnús Þorsteinsson 9., Þórarinn Krist-
jánsson 68.
Staðan:
Keflavík 6 5 0 1 14:6 15
Víkingur R. 6 3 3 0 8:3 12
Þór 6 3 2 1 13:10 11
HK 6 2 2 2 7:5 8
Njarðvík 6 2 2 2 10:9 8
Afturelding 6 2 2 2 6:9 8
Breiðablik 6 2 1 3 6:8 7
Haukar 6 1 2 3 5:10 5
Leiftur/Dalvík 6 1 1 4 5:9 4
Stjarnan 6 0 3 3 6:11 3
3. deild karla A
Víkingur Ó. - Grótta ................................. 1:0
Staðan:
Víkingur Ó 5 5 0 0 16:1 15
Skallagr. 5 4 0 1 16:7 12
BÍ 4 3 0 1 10:8 9
Númi 4 2 1 1 10:10 7
Bolungarvík 5 2 0 3 11:12 6
Grótta 6 1 1 4 8:10 4
Drangur 5 1 0 4 4:14 3
Deiglan 6 1 0 5 8:21 3
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Akureyrarvöllur: KA - Valur................19.15
KR-völlur: KR - Grindavík ...................19.15
Kaplakrikavöllur: FH - Fram ..............19.15
Akranesvöllur: ÍA - Fylkir ...................19.15
1.deild kvenna:
Smárahvammsv.: Breiðablik 2 - RKV ......20
Eskifjarðarvöllur: Fjarðabyggð - Höttur20
Í KVÖLD