Morgunblaðið - 18.07.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Valdar vörur
á lækkuðu verði
Ármúla 44 • Sími 553 2035 • www.hphusgogn.is
GIBSON sófasett 3+1+1 leður 299.800 239.800
TOSCANA borðstofusett eik 373.410 279.000
LINEA sjónvarpssamstæða eik 270.270 180.000
HABANA sófab. + hornb. kirsub.viður 53.000 39.500
ALAMBRA sófasett 3+1+1 leður 329.800 249.000
TERRA skenkur ljós eik 129.870 99.000
ALBATROS borðstofusett ljós eik 402.720 299.000
FOREGE kommóða eik 105.000 69.000
PIGALLE hornskápur mahóní 102.500 69.000
ANASTASIA sófas. 3+1+1 ákl. ALCANTARA 368.900 268.900
SJÓNVARPSSAMSTÆÐA ljós eik 263.250 198.800
FOREGE glerskápur hnota 127.100 99.000
LOVELY sófasett 3+1+1 leður 369.800 289.000
IRENE sófaborð 130x80 sm mahóní 46.800 29.900
PAOLA stóll 57.000 39.900
LUIS sófasett 3+1+1 áklæði (rococco) 249.800 179.000
FOREGE skenkur hnota 129.400 99.000
ALFA stóll 10.800 6.900
TONGA sófasett 3+1+1 leður 423.700 299.000
BRUGGE borð og spegill 109.700 59.000
Um er að ræða staka hluti, lítillega útlitsgallaðar vörur
og vörur sem munu hverfa úr úrvali verslunarinnar.
Verð áður: Verð nú:
Gerið góð kaup
Hátíðarganga Hana-nú
Samverustund
fjölskyldunnar
FrístundahópurinnHana-nú semstofnaður var í
Kópavogi fyrir tuttugu ár-
um ætlar að halda upp á
afmælið með því að efna til
hátíðargöngu og samveru-
stundar fyrir fjölskylduna.
Dagskráin hefst kl. 9.00
laugardagsmorguninn 19.
júlí með Krummakaffi fyr-
ir morgunhænur og morg-
unhana. Rétt fyrir kl. 10.00
hefst bumbusláttur og síð-
an flytur Gunnar Birgis-
son forseti bæjarráðs
ávarp. Margrét Sigurðar-
dóttir göngustjóri ræsir
gönguna kl. 10.05. Gengið
verður við bumbuslátt frá
Gjábakka eftir Hamra-
borginni upp Vallartröð og
komið við á Digranesvegi
12 þar sem Guðni Stefánsson, her-
toginn af Hana-nú, flytur ávarp og
Hláturklúbbur Hana-nú bregður
á leik. Eftir það verður haldið nið-
ur á „menningarstétt“ Kópavogs
við Menningarmiðstöðina og
Hrafn Harðarson bæjarbókavörð-
ur Kópavogs ávarpar göngumenn
og Bókmenntaklúbbur Hana-nú
lætur ljós sitt skína. Eftir það
verður gengið til baka að Gjá-
bakka þar sem Sigurbjörg Björg-
vinsdóttir forstöðumaður tekur á
móti hópnum og samvera og sam-
drykkja hefst.
Þeir sem ekki komast í gönguna
geta dvalið í Gjábakka á meðan og
skoðað myndbönd og myndir úr
sögu Hana-nú eða teflt, teiknað,
leirað eða spjallað saman.
Hana-nú? Hvað er nú það?
„Það má eiginlega lýsa Hana-nú
sem bæði formlegum og óformleg-
um félagsskap fólks sem hefur
gaman af því að hitta annað fólk,
fara í gönguferðir, spjalla saman
og leysa lífsgátuna. Ég veit ekki
hvort okkur hefur tekist það, en
ég hef það á tilfinningunni að
Hana-nú hópurinn hafi víða verið
tekinn til fyrirmyndar. Ég vona að
það sé rétt hjá mér að þar á meðal
séu Gönguhrólfar í Reykjavík.
Nú eru tuttugu ár liðin frá því
hópurinn var stofnaður. Upphaf-
legu hugmyndina held ég að
Hrafn Sæmundsson hafi átt en
auðvitað komu margir við sögu.
Hópurinn hefur notið krafta og
leiðsagnar Ásdísar Skúladóttur
allan tímann. Hennar starf hefur
verið mjög mikilvægt og ég held
að mér sé óhætt að segja að sú
kona sé nú bara sérstakt fyrir-
bæri. En þrátt fyrir að gott og
nauðsynlegt sé að hafa manneskju
eins og Ásdísi í forsvari finnst mér
fólkið í klúbbnum líka ótrúlega
sjálfbjarga og duglegt.“
Þú berð titilinn Hertoginn af
Hana-nú?
„Þetta er ein mesta virðingar-
staða sem hægt er að öðlast hér á
landi. Að vísu veit ég ekki fyrir
hvað mér veittist þessi heiður.
Kannski vegna þess að ég hef
tengst Hana-nú, beint og óbeint,
frá upphafi. Eitthvað hef ég
kannski greitt götu
hópsins þegar klúbbur-
inn var stofnaður, en
þá var ég einmitt í bæj-
arstjórn Kópavogs.
Síðan höfum ég og fé-
lagi minn oft fengið að spila á
harmónikku, til dæmis í gagn-
kvæmum heimsóknum Hana-nú
og Gönguhrólfa í Reykjavík. Ég
tók líka upp á því að bjóða hópn-
um í heimsókn til mín í sumarbú-
staðinn minn í Lækjarbotnum og
það fannst mér styrkja tengsl mín
við hópinn.“
Hvað eru margir félagar í
Hana-nú?
„Þessari spurningu get ég því
miður alls ekki svarað. Ég held
reyndar að aldrei hafi farið fram
formleg skráning þeirra sem
tengst hafa hópnum. Enda hefur
verið hafður sá háttur á að fólk
tekur þátt í starfseminni þegar
það hefur löngun og getu til að
njóta félagsskapar þessa hressa
fólks. En enginn hefur nokkurn
tíma verið skyldugur að mæta.
Það segir kannski ýmislegt um
þennan félagsskap að þrátt fyrir
það er alltaf nóg af fólki sem mæt-
ir til dæmis í gönguferðirnar. En
auðvitað er fólk misjafnlega upp-
lagt og þá ræður það hvort það
mætir. Flestir sem mæta í göngu-
ferðirnar eru á aldrinum frá
fimmtugu og upp úr og sumir dá-
lítið fullorðnir.“
Hvernig er starfseminni annars
háttað?
„Ef tekið er dæmi af Göngu-
klúbbnum hittast þeir sem í hon-
um eru reglulega til að fara í
gönguferðir. Fyrst og fremst er
gengið um Kópavoginn. Á sumrin
er oft boðið upp á tvær til þrjár
lengri eða styttri ferðir. Á þessu
sumri verður til dæmis farið í
óvissuferð til Njarðvíkur 26. júlí
næstkomandi og Hana-nú ætlar
einnig að taka þátt í Sumargleði
Skógræktarfélags Kópavogs 9.
ágúst næstkomandi. Innan Hana-
nú eru starfandi ýmsir klúbbar og
má nefna til dæmis Hláturklúbb-
inn og Bókmenntaklúbbinn auk
Gönguklúbbsins. Bók-
menntaklúbbsfólk er
einmitt boðað á æfingu
hjá Soffíu Jakobsdótt-
ur á Bókasafni Kópa-
vogs í dag kl. 13.00.
Annars einkennist starfsemin af
því að það er sérstaklega hresst
og skemmtilegt fólk sem er í þess-
um hópi. Mér finnst áberandi
hversu jákvæðir allir eru og hafa
margt jákvætt að segja. Við get-
um státað af því að í Hana-nú
þrífst ekkert nöldur. Það hefur
mikið að segja. Þess vegna vona
ég að Hana-nú breytist sem
minnst og lifi sem lengst.“
Guðni Stefánsson
Guðni Stefánsson stálvirkja-
meistari er fæddur að Karlsskála
við Reyðarfjörð 5. október 1938.
Hann nam við Alþýðuskólann á
Eiðum, síðar nam hann stálvirkj-
un hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík
og stundaði nám í Bergen í Nor-
egi í rafsuðu og fleiru tengt stál-
virkjun. Lengst af starfaði Guðni
sem sjálfstæður verktaki, aðal-
lega við að leggja hitaveitu og
reisa stálgrindarhús. Guðni sat í
bæjarstjórn í Kópavogi í tuttugu
ár. Hann er kvæntur Guðbjörgu
Ásgeirsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi og eiga þau fimm börn og
mörg barnabörn.
Í Hana-nú
þrífst ekkert
nöldur
ÞAÐ er ýmislegt hægt að taka sér fyrir hendur þegar sólin skín og hitinn fer upp undir 20 stig. Þetta unga fólk
skellti sér í badminton á Austurvelli í Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Badminton á Austurvelli