Morgunblaðið - 29.07.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
...í útileguna
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
sia
.is
/
N
M
0
6
8
2
1
næði á Selfossi og 500 fermetra hús-
næði á Hvolsvelli. Sagði Jón að rekst-
urinn væri í þokkalegu horfi eins og
hann orðaði það, en fóðursala er uppi-
staðan í rekstrinum.
Sagði Jón að lögð yrði áhersla á við-
ræður við samstarfsaðila félagsins,
Fóðurblönduna, til að tryggja áfram-
haldandi rekstur. Þær viðræður væru
hafnar og væru í vinsamlegum far-
vegi. Þriðja svið Kaupfélags Árnes-
inga, hótelsvið, fer með daglegan
rekstur hótela á Flúðum, Selfossi, í
Vík og á Kirkjubæjarklaustri.
Ársvelta sviðsins er um 400 millj-
ónir króna og hefur reksturinn að því
er fram kom í máli Jóns verið undir
áætlunum þetta árið og vegur rekstur
Hótel Selfoss þar þungt. Hann segir
að horfur í rekstri Hótel Selfoss séu
ágætar í júlí og ágúst en ljóst sé að
rekstararáætlanir fyrir hótelið hafi
verið full bjartsýnar. Hann sagði að
fjárhagserfiðleikar KÁ og Brúar,
eignarhaldsfélagsins sem á hótelið,
hafi haft áhrif á hótelsviðið og skoða
þeirri stöðu sem komin er upp.
Á fundinum kom fram að takast
mun að greiða allar veðkröfur í félag-
ið, alls að upphæð 585 milljónir króna,
og forgangskröfur, sem eru launa-
tengd gjöld að mestu, alls að upphæð
55 milljónir króna. Hins vegar væru
almennar kröfur í uppnámi, en þær
nema 790 milljónum króna.
Í máli Einars Gauts Steingríms-
sonar hrl. aðstoðarmanns á greiðslu-
stöðvunartíma á fundinum kom fram
að 96 milljóna króna innlán í Kaup-
félaginu væru tryggð og kæmust inn-
lánseigendur skammlaust frá borði
eins og hann orðaði það, en innlán eru
á meðal almennra krafna.
300 kröfuhafar
Kröfuhafar í Kaupfélag Árnesinga
eru alls um 300 talsins, stærstur
þeirra er Íslandsbanki með rúmar
514 milljónir króna og annar stærsti
kröfuhafinn er Sparisjóður Hafnar-
fjarðar með 67 milljónir alls.
Helstu almennar kröfur eru frá
Sýslumanninum á Selfossi vegna
virðisaukaskatts,130 milljónir króna,
frá Innlánsdeild þar sem krafan er
áðurnefndar 96 milljónir og þar á eftir
eftirlaunaskuldbinding upp á 55 millj-
ónir króna. Alls skuldar Kaupfélag
Árnesinga 1.429 milljónir króna. Séu
ábyrgðir sem talið er að gætu fallið á
Kaupfélagið taldar með nema skuld-
irnar rúmum 1.807 miljónum króna.
Þó er talið ólíklegt að ábyrgðir að
fjárhæð um 80 milljónir króna falli á
félagið. Miðað við það eru skuldir fé-
lagsins ásamt ábyrgðum 1.727 millj-
ónir og skuldir félagsins umfram
eignir eru um 320 milljónir króna.
Á fundinum var áréttað að mögu-
lega gæti enn vantað einhverjar fjár-
hæðir eða að fjárhæðir gætu verið
rangar. Ennfremur var minnt á að
eignir félagsins væru misseljanlegar
og virði þeirra réðist á markaði.
Á fundinum var rakin afkoma
þriggja meginsviða Kaupfélagsins,
skálasviðs, búrekstrarsviðs og hótel-
sviðs. Sagði Jón Steingrímsson
rekstrarráðgjafi sem fenginn var til
að endurskipuleggja fjármál félags-
ins, að skálasvið hefði verið ágætlega
rekið að undanförnu. Velta þess væri
955 milljónir króna á ári og þar ynnu
nú um 80 starfsmenn. Velta búrekstr-
arsviðs er um 400 milljónir króna á
ári, þar eru sjö starfsmenn og fer
starfsemin fram í 900 fermetra hús-
KAUPFÉLAG Árnesinga mun
sækja um áframhaldandi greiðslu-
stöðvun til allt að þriggja mánaða og
leita nauðasamninga við lánardrottna
sína, en félagið hefur verið í greiðslu-
stöðvun síðan 14. júlí sl. vegna mikilla
fjárhagsörðugleika. Áframhaldandi
greiðslustöðvun og nauðasamningar
tryggja að félagið heldur áfram
daglegum rekstri með eðlilegum
hætti. Þetta kom fram á kröfuhafa-
fundi sem haldinn var á Hótel Selfossi
í gær. Félagið skuldar 320 milljónir
króna umfram eignir og vega kaup og
endurbætur á Hótel Selfossi þungt í
þurfi vel framhald reksturs hótel-
sviðsins og grípa til viðeigandi að-
gerða.
200 milljóna skekkja
Kaupfélag Árnesinga á talsvert af
fasteignum eins og fram kom á fund-
inum. Langstærst þeirra er húsið að
Austurvegi 3–5 á Selfossi, KÁ-húsið,
en það er að mestu í útleigu. Stærsti
leigutaki hússins, Kaupás, er með
óuppsegjanlegan samning til ársins
2009. Jón sagði að raunvirði eignar-
innar væri óljóst á þessu stigi, en sé
tekið mið af arðsemi gerðra leigu-
samninga gæti skeikað allt að 200
milljónum króna í mati á húsinu, en
það var metið fyrir tveimur árum á
620 milljónir króna. Húsið væri því
mögulega mun verðminna en áður var
talið.
Sagði Jón að næsta mál á dagskrá
væri að finna raunverðmæti eignar-
innar og ræða við stærsta kröfuhaf-
ann, Íslandsbanka, en hann er með
veð í húsinu að upphæð 436 milljónir
króna.
Hlutabréfaeign Kaupfélags Árnes-
inga er nokkur. Ber þar hæst hluta-
bréfaeignin í Brú ehf. en þar á KÁ
63% hlut, sem er að nafnvirði 141
milljón króna. Sá hlutur ásamt við-
skiptakröfum félagsins á Brú voru
ekki höfð með í kröfulýsingu sem lögð
var fram á fundinum auk þess sem
gert var ráð fyrir í lýsingunni að allar
ábyrgðir vegna Brúar falli á KÁ.
Jón sagði að skuldir Brúar væru
900 milljónir króna, þar af næmu veð-
skuldir 450 milljónum króna. Þá kom
fram að enn er ólokið framkvæmdum
að andvirði 75–100 milljónum króna
við hótelið. Sagði Jón að væntanleg
væri sérstök skýrsla um Brú þar sem
fram komi að Brú ráði við afborganir
af skuldum að andvirði 400–600 millj-
ónir króna.
Félög sem Kaupfélagið á stóra
hluti í og eru í verulegum rekstrarerf-
iðleikum eru Áburðarsalan Ísafold en
þar liggur gjaldþrotabeiðni fyrir,
Áleiningar hf. á Hvolsvelli en starf-
semin hefur verið innsigluð, gjald-
þrotabeiðni liggur fyrir hjá HK-bú-
vélum og Vélsmiðja KÁ er í nauða-
samningum. Ennfremur liggur fyrir
gjaldþrotabeiðni vegna fyrirtækisins
X föt. Einnig eru fyrirtækin Búað-
föng sem KÁ á 50% hlut í, og Hótel
Flúðir, sem KÁ á 61% hlut í, í erfiðum
rekstri.
Kröfuhafafundur Kaupfélags Árnesinga var haldinn á Hótel Selfossi í gær
Áframhaldandi greiðslu-
stöðvun og nauðasamningar
SEGLSKÚTAN Elding er komin
til landsins eftir siglingar sumars-
ins og mun hún að líkindum hafa
vetursetu í Kópavogshöfn í vetur,
segir Hafsteinn Jóhannsson skip-
stjóri.
Elding er víðförulasta íslenska
skútan, en Hafsteinn smíðaði
hana og sigldi henni einsamall í
kringum hnöttinn árið 1991. Síð-
an hefur hún siglt víða á slóðir
víkinga, meðal annars til Vín-
lands og Miðgarðs, og hafði vet-
ursetu á Spáni síðasta vetur.
Sigling sumarsins gekk vel að
sögn Hafsteins. Siglt var frá
Spáni til Gíbraltar, og svo norður
með vesturströnd Spánar. Þaðan
var farið til Rotterdam og svo
siglt um Kílar-skurðinn milli Dan-
merkur og Þýskalands. Þaðan lá
leiðin i heimahöfn í Harðang-
ursfirði í Noregi. „Svo héldum við
áfram til Shetlands, Færeyja og
Íslands. Nú eru svo allar siglingar
búnar í ár.“
Elding var í samfloti með 17
feta (5,2 metra) vélbáti á ferðinni
frá Noregi og varð hann viðskila
við skútuna mitt á milli Noregs
og Hjaltlandseyja, en þar er olíu-
vinnslusvæði. „Við fórum fyrir
vestan það [olíuvinnslusvæðið] og
hann fyrir austan og svo ætluðum
við að mætast hinum megin við
það,“ segir Hafsteinn. „Af ein-
hverjum ástæðum þá fundum við
hann ekki og hann ekki okkur.
Þegar við fundum hann ekki töl-
uðum við við menn á olíu-
borpallinum og athuguðum hvort
þeir hefðu séð hann. Þegar svo
reyndist ekki vera tilkynntum við
bátinn týndan. Þá var komið
myrkur svo þyrlan gat bara verið
á lofti í 15 til 20 mínútur, svo það
var eiginlega ekki byrjað að leita
fyrr en morguninn eftir.“
Báturinn sem leitað var að var
talstöðvarlaus, og rafhlöðurnar í
GPS-staðsetningartækinu klár-
uðust. Báturinn fannst svo fljót-
lega um 60 mílur frá Eldingunni
á leið til Hjaltlands. „Það var
engin hætta sem steðjaði að hon-
um, þetta er sami bátur og ég
kom með hingað fyrir fjórum ár-
um. Þá fékk ég sama veður og
það hafði ekkert að segja.“
Norsk fjölskylda í áhöfn
Sex voru í áhöfn Eldingar á
leiðinni frá Noregi til Íslands,
þrír Íslendingar og þriggja
manna norsk fjölskylda, auk Haf-
steins sjálfs: „Hann [fjölskyldufað-
irinn] sigldi með mér þegar hann
var 15 ára, 1985.“ Norðmönn-
unum líkaði siglingin vel og eru
nú á ferðalagi um Ísland.
Elding mun líklega liggja við
bryggju fram á næsta sumar, að
sögn Hafsteins: „Það er meiningin
að sigla í kringum Ísland næsta
sumar. Það er næstum tveggja
mánaða túr.“ Hann segir að ekk-
ert sé farið að áætla hvað verði
skoðað, það bíði betri tíma.
Elding hefur vetur-
setu í Kópavogshöfn
Ljósmynd/Rúnar Ármann Arthúrsson
Hafsteinn Jóhannsson skipstjóri á haug eina víkingsins sem fundist hefur í
Frakklandi. Haugurinn er á eyjunni Groix undan suðurströnd Bretagne.
Enginn veit með vissu hver þarna var heygður en þó er vitað að sá var mik-
ill höfðingi og var lík hans í útförinni brennt með skipi hans og öðru verð-
mæti, ásamt frillum, áður en haugnum var lokað.
VALUR Oddsteinsson, stjórn-
arformaður Kaupfélags Ár-
nesinga, segir í samtali við
Morgunblaðið að leitað hefði
verið að þeirri niðurstöðu sem
kæmi best út fyrir alla hlut-
aðeigandi.
Nú var fundurinn átakalítill,
hvað lestu út úr því?
Ég met það svo að kröfuhaf-
ar telji málið í góðum farvegi
og í góðum höndum þeirra
starfsmanna sem vinna nú hjá
félaginu, þeirra Einars Gauts
og Jóns.
Ertu bjartsýnn á að hægt
verði að bjarga félaginu?
„Maður getur svo sem ekki
verið bjartsýnn í þessari stöðu.
Ég tel að þetta hafi farið í
þann farveg að við náum að
vinna úr því á besta hugs-
anlegan veg. Við erum samt
kannski ekkert sérlega sáttir
við að þetta fór í þetta far.“
Leitað
góðrar
niðurstöðu
BRÚÐHJÓN sem héldu upp á brúð-
kaup sitt á hóteli í Reykjavík á laug-
ardag urðu fyrir þeirri óskemmti-
legu reynslu að óboðinn gestur
laumaði sér í veisluna. Þrátt fyrir að
vera ítrekað vísað frá náði gesturinn
að stela farsíma brúðgumans. Hann
komst einnig burt með myndavél og
myndbandsupptökutæki sem höfðu
að geyma allt myndefni úr brúð-
kaupinu. Nýbökuðu hjónunum var
því mikið í mun að endurheimta tæk-
in, að því er fram kemur í dagbók
lögreglunnar. Eftir mikla leit á hót-
elinu fannst þýfið og minningunum
var bjargað.
Í dagbók lögreglu kemur fram að
helgin hafi verið með rólegasta móti.
Fá útköll voru báðar nætur og ekki
alvarleg. Nokkuð margir voru á ferli
í miðbænum á laugardagskvöld og
fram eftir nóttu enda veður gott.
Stal
myndum úr
brúðkaupi
TILKYNNT var um innbrot í gæslu-
völl við Njarðarholt í Mosfellsbæ í
gærmorgun. Sá eða þeir sem þar voru
að verki brutu sér leið gegnum rúðu á
útidyrahurð og höfðu á brott með sér
ferðaútvarpstæki og skiptimynt.
Þá var í gærmorgun tilkynnt um
innbrot í hús við Bjargarstíg. Að sögn
lögreglunnar í Reykjavík var farið inn
um glugga og stolið hljómtækjum og
tveimur gíturum.
Lögregla fékk einnig tilkynningu
um að veski hefði verið stolið frá
starfsmanni Hótels Aldar við Njáls-
götu en í því voru lítilsháttar peningar
og skilríki.
Hljómtækjum
stolið
Innbrot við Bjargarstíg
BÍLL valt á Vatnsnesi um hádegis-
bilið í gær. Tvennt var í bílnum, bæði
erlendir ferðamenn. Að sögn lög-
reglunnar á Blönduósi urðu engin al-
varleg meiðsl á fólkinu.
Bílvelta á
Vatnsnesi
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦