Morgunblaðið - 29.07.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 11
Stórkostlegt opnunartilboð á Vikingfellihýsum 9 feta
Netsalan hefur opnað nýja sérverslun með útivistar- og húsbílavörur í Knarrarvogi 4.
Takmarkað magn
AÐEINS 3 STK. EFTIR!
Verð nú 645.000*
Verð áður 798.000
Dometic ísskápar í fellihýsi
Fullt verð:
kr. 75,000
Risakynningartilboð á tjöldum, borðum og stólum
AÐEINS ÞESSA VIKU!
Tilboðsverð:
kr. 39,000
CE
Gas, 12v, 220v.
Netsalan ehf.
Knarrarvogi 4, Reykjavík.
Ath. nýtt símanúmer 517 0220 - Fax 517 0221
Netfang: netsalan@itn.is • Heimasíða: www.itn.is/netsalan
Opið á virkum dögum frá kl. 10-19
Lokað laugardaga til 1. september.
Nýtt
Risaútsölutilboð
*Sólskyggni fylgir ekki með vagninum
alltaf á föstudögum
OLÍU var dælt í fyrsta sinn úr olíuflutningaskipi í
tanka Atlantsolíu í gær, en áður hafði fyrirtækið
fengið nokkra gáma af olíu til að prófa dælur og
annan búnað birgðastöðvarinnar.
„Þetta gekk allt eins og í sögu,“ segir Guðmundur
Kjærnested, einn af eigendum Altantsolíu. „Maður
mundi nú búast við að það yrðu einhver vandamál
svona í byrjun en það var ekki neitt.“
Einn tankur hannaður til
að geta tekið við bensíni
Samtals var dælt 2.200 tonnum, um 2,7 milljónum
lítra, af olíu úr norska skipinu Norsk Drott. Alls er
rúm fyrir tæplega 10.000 tonn í þremur tönkum Atl-
antsolíu í Hafnarfjarðarhöfn, segir Guðmundur.
Fyrirtækið hefur leyfi til að byggja einn tank til við-
bótar á svæðinu, en Guðmundur segir að ekki verði
þörf á fjórða tanknum í bráð. „Við getum komist
upp í um 10% markaðshlutdeild með þessum tönk-
um sem við erum með í dag.“
Einn af tönkunum er hannaður til að geta tekið
bensín, en mun meiri kröfur eru gerðar til tanka sem
geyma bensín en olíu vegna aukinnar eldhættu.
Fyrstu olíunni dælt í tanka
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Olíuflutningaskipið Norsk Drott í Hafnarfjarðarhöfn.
Starfsmenn Atlantsolíu unnu hörðum höndum við að mála merki félagsins á tankana.