Morgunblaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 32
MINNINGAR
32 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Gísli Sigurðssonfæddist í Hrauns-
ási í Hálsasveit í
Borgarfirði 26. jan-
úar 1919. Hann lést á
Elli- og dvalarheim-
ilinu Grund 19. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Sigurð-
ur Bjarnason, bóndi í
Hraunsási, f. 21. apr-
íl 1870, d. 27. desem-
ber 1959, og Magnes
Signý Jónsdóttir, f.
28. apríl 1876, d. 28.
apríl 1921. Alsystkini
Gísla voru Þorgeir, f.
3. nóvember 1913, d. 20. janúar
1933, og Þóra, f. 18. júní 1917, d.
22. júní 1917. Systkini Gísla, sam-
feðra voru Bjarni, f. 30. apríl
1901, d. 30. júlí 1974, Jón, f. 27.
janúar 1904, d. 11. maí 1957, og
Helga, f. 9. apríl 1908, d. 25. októ-
ber 1982.
Gísli missti móður sína á unga
aldri og var þá tekinn í fóstur af
móðursystkinum sínum í Stóra-
Ási í Hálsasveit þar sem hann var
til 8 ára aldurs. Eftir það ólst
hann upp hjá föður sínum í
Hraunsási, dvaldist þar óslitið til
1942 og oft á sumrum, næstu árin.
Hann lærði flugvéla- og svifflugu-
smíði í Þýskalandi og Svíþjóð, á
árunum eftir seinni
heimsstyrjöldina og
var eini lærði svif-
flugusmiðurinn á Ís-
landi, en þau rétt-
indi fékk hann með
ráðherrabréfi. Hann
tók einnig C-próf í
svifflugi 1955. Gísli
starfaði fyrir Svif-
flugfélag Íslands frá
1941-1980, sat í
stjórn félagsins
1949-1978 og var
gerður heiðurs-
félagi árið 1963.
Hann starfaði á tré-
smíðaverkstæði Flugmálastjórn-
ar frá 1980-1988, en frá 1988 og
fram til síðasta dags vann hann
fyrir Flugsögufélagið við að gera
upp gamlar flugvélar. Meðal
þeirra véla sem Gísli gerði upp á
ferli sínum var Klemminn svo-
kallaði, mótorvél sem þýskur svif-
fluguleiðangur kom með til Ís-
lands, rétt fyrir seinna stríð.
Einnig starfaði hann um árabil
við blómaskreytingar fyrir
blómabúðina Flóru.
Útför Gísla verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15. Jarðsett verð-
ur frá Stóra-Ási á morgun, mið-
vikudaginn 30. júlí klukkan 16.
Kveðja frá Svifflugfélaginu
Heiðursfélagi í Svifflugfélagi Ís-
lands er látinn. Gísli Sigurðsson verð-
skuldaði þann titil manna best og bar
hann með sóma. Enginn hefur helgað
sviffluginu krafta sína jafnríkulega og
hann. Svifflugíþróttin barst hingað til
lands á millistríðsárunum og var félag
stofnað árið 1936. Svifflug verður
ástríða þeim sem á annað borð ná að
tileinka sér þá himnesku íþrótt, Gísli
fór ungur að fljúga og segja má að
hann hafi trúlofast fluginu. Hann
gekk í Svifflugfélagið árið 1941. Svo
mikill var áhuginn og eljusemin hjá
Gísla að eftir stríð fór hann til Þýska-
lands og lærði þar svifflugusmíði. Eft-
ir það sá hann meira og minna um all-
ar viðgerðir á flugvélum félagsins. Má
nærri geta hvort þessi mikli áhugi og
sérþekking hafi ekki gefið félaginu
byr undir báða vængi.
Gísli var starfsmaður félagsins í
áratugi og bjó þá á Sandskeiði á
sumrin.
Hann var bæði sérstakur maður og
minnisstæður félagi. Gísli helgaði sig
fluginu allt frá ungum aldri og fram í
andlátið. Síðustu tvo áratugina vann
hann við að gera upp gamlar flugvél-
ar, fyrst fyrir Flugmálastjórn og síð-
ar með Flugsögufélaginu og liggja
þar eftir hann ómetanleg verk.
Við svifflugsfélagar vottum að-
standendum Gísla samúð okkar
vegna fráfalls hans. Við kveðjum
hann með virðingu og þökk fyrir öll
hans góðu störf í þágu flugsins.
Kristján Sveinbjörns-
son formaður.
Kveðja frá
Flugmálafélagi Íslands
Góðvinur úr fluginu, Gísli Sigurðs-
son, er allur á aldarafmæli flugs í
heiminum. Það er í sjálfu sér tákn-
rænt fyrir þennan öðling því flugið
var líf hans og yndi.
Örlögin höguðu því svo til að eitt af
tveimur aðalhlutverkum Gísla í flug-
sögu þjóðarinnar var að verða flug-
vélasmiður, en á því sviði var hann al-
gjörlega sjálfmenntaður. Örlaga-
valdarnir í lífi Gísla voru flug-
málastjórarnir Agnar Kofoed--
Hansen og Pétur Einarsson, og á
milli þessarra valinkunnu manna
myndaðist eftirtektarvert traust og
virðing. Starfsævi sinni eyddi Gísli
sem trésmiður hjá Flugmálastjórn
Íslands og lagði gjörva hönd á mörg
flugsamgöngumannvirki.
Þeir Agnar og Pétur vissu að hægt
var að virkja hæfileika Gísli á fleiri
sviðum þar sem maðurinn var hvoru-
tveggja í senn, þúsundþjalasmiður og
listasmiður. Þeir vissu að það var
hægt að leggja traust sitt á Gísla Sig-
urðsson. Því fólu þeir Gísla hið vanda-
sama starf að endurbyggja gamlar
flugvélar og á því sviði liggja eftir
hann sannkölluð listaverk. Og þó Gísli
vinur okkar sé nú horfinn á braut skil-
ur hann eftir sig slíka kjörgripi að
ómetanlegt má teljast fyrir flugsögu
þjóðarinnar.
Hitt aðalhlutverk Gísla í flugsög-
unni var fórnfúst starf hans á sviði
svifflugmála en Gísli var jafnórjúfan-
legur hluti Sandskeiðsins og sjálft
Vífilfellið. Í mörg sumur um áratuga
skeið fluttist Gísli beinlínis búferlum
upp á Sandskeið og vann þar óeigin-
gjart starf við að dytta að svifflug-
unum, draga þær á loft með drátt-
arspilinu góða og síðast en ekki síst
gegndi hann afar mikilvægu uppeldis-
hlutverki fyrir nýliðana. Þar fundu
þeir félagarnir í Svifflugfélagi Íslands
það sama og vinnuveitendur hans –
það var hægt að leggja allt sitt traust
á Gísla Sigurðsson.
Allir sem áttu samleið með Gísla
vissu að hann var einstaklega góður
vinur vina sinna, víðlesinn og slíkur
hafsjór af fróðleik um allt er laut að
fluginu að hrein unun var á að hlýða,
lífsspekin var einföld þegar flugið var
annars vegar: Fyrst kemur flugið og
svo kem ég sjálfur.
Það væri full ástæða til þess að
minnast starfa Gísla Sigurðssonar að
svifflugmálum Íslands með því að
reisa smekklegan minnisvarða á
Sandskeiði er myndi vera táknrænn
fyrir þennan góða dreng: Listasmíði,
einfaldur, látlaus og traustur.
Það er vel við hæfi að síðasta ferð
þessa mikla flugáhugamanns í jarð-
nesku lífi verði með flugvél en að-
standendur hans og vinir sýna honum
þann sóma að fljúga með Gísla á
æskustöðvar sínar í Borgarfirði að
lokinni útför hans hér í Reykjavík.
Flugmálafélag Íslands óskar Gísla
góðrar hinstu flugferðar heim í Borg-
arfjörðinn með innilegu þakklæti og
djúpri virðingu fyrir heilladrjúg störf
að íslenskum flugmálum. Við biðjum
þessum vini okkar og aðstandendum
hans Guðs blessunar.
F.h. Flugmálafélags Íslands
Arngrímur B.
Jóhannsson, forseti.
Í dag kveðjum við kæran vin og
frænda, Gísla Sigurðsson. Gísli var
alltaf hjá okkur um jól og áramót,
hafði sitt sæti við matarborðið og í
stofunni og var fastur þáttur í hátíð-
arhöldunum. Það eru margar góðar
minningar sem börnin okkar eiga um
Gísla frænda. Alltaf voru tekin fram
spil á jóladag og um áramót, en nú
verður sætið hans autt. Það er ljúft
fyrir börn að eiga slíkar minningar.
Við hjónin áttum þess kost að vera í
ferðahóp með Gísla. Hann hafði mjög
gaman af því að ferðast, var fróður
um land og þjóð og miðlaði þeim fróð-
leik til ferðafélaganna.
Frá árinu 1988 dvaldi Gísli á dval-
arheimilinu Grund þar sem hann fékk
að sjá um bókasafnið og var þar rétt-
ur maður á réttum stað, og um tíma
sá hann einnig um fánann.
Við kveðjum Gísla með ljóði Guð-
rúnar Jóhannsdóttur frá Brautar-
holti:
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Fjölskyldan Njálsgötu 98.
Einn af öðrum hverfa af sjónarsvið-
inu æskufélagarnir sem við áttum
samleið með bæði í leik og starfi. Nú
hefur Gísli í Hraunsási kvatt.
GÍSLI
SIGURÐSSON
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BIRGIR GARÐARSSON,
Krókatúni 4a,
Akranesi,
(áður Hlíðarbyggð, Garðabæ),
verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Álftanesi,
miðvikudaginn 30. júlí kl. 13.30.
Svava Birgisdóttir, Sigurður Ásgeirsson,
Guðrún Birgisdóttir, Guðlaugur Jakob Ragnarsson,
Einar Björgvin Birgisson, Ágústa H. Bárudóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
LÝÐUR BOGASON,
Ásvegi 21,
Akureyri,
sem lést þriðjudaginn 22. júlí síðastliðinn,
verður jarðsettur frá Akureyrarkirkju miðviku-
daginn 30. júlí kl. 13.30.
Erla G. Magnúsdóttir,
Antonía M. Lýðsdóttir, Sigurður Hermannsson,
Elín M. Lýðsdóttir, Atli Sturluson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
STURLAUGUR JÓHANNSSON,
frá Ísafirði,
Dalbraut 18,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju mið-
vikudaginn 30. júlí kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans láti heimahlynningu Krabbameinsfélgsins
njóta þess.
Anna M. Gísladóttir,
Páll Sturlaugsson, Emma Rafnsdóttir,
Sigríður Sturlaugsdóttir, Ómar Þorbjörnsson,
Bragi Benediktsson,
Guðrún Sturlaugsdóttir, Karl Jensson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til hinna fjölmörgu sem á marg-
víslegan hátt sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, bróður, tengdasonar og afa,
PÉTURS EINARSSONAR
byggingameistara,
Þrastarási 4,
Hafnarfirði.
Hildur Jónsdóttir,
Jón Ragnar, Kristín Erla,
Einar Pétur, Guðbjörg Hildur Pétursbörn,
Einína, Ólöf Unnur, Guðrún og Gyða Einarsdætur.
Auður Albertsdóttir, Jón R. Steindórsson,
Aron Bjarki.
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GÍSLI ÞORGEIRSSON
fyrrv. kaupmaður,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 31. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Brynfríður Halldórsdóttir,
Þorgeir Gíslason, Steinunn G. Lórenzdóttir,
Vilmundur Þór Gíslason, Hrafnhildur K. Óladóttir,
barnabörn og langafabörn.
ÁGÚST BJÖRGVINSSON
bifreiðastjóri,
lést laugardaginn 12. júlí.
Útförin hefur farið fram.
Aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
amma og systir,
SIGRÚN EDDA GESTSDÓTTIR,
Furugrund 42,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtu-
daginn 31. júlí og hefst athöfnin kl 13.30.
Líney Marinósdóttir, Karl Magnússon,
Bent Marinósson, Sif Á. Guðbjartsdóttir,
Líney Bentsdóttir,
barnabörn og systkini.
Faðir minn og afi okkar,
KRISTINN GUÐLAUGSSON,
Karlsbraut 6,
Dalvík,
lést sunnudaginn 27. júlí. Útför hans verður
gerð frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 5. ágúst
kl. 13.30.
Atli Rafn Kristinsson
og barnabörn.