Morgunblaðið - 29.07.2003, Qupperneq 39
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 39
KAJSA Bergqvist setti í fyrradag
sænskt kvennamet í hástökki er hún
vippaði sér yfir 2,06 metra á móti
sem fram fór í Þýskalandi. Hún átti
gamla metið sjálf, 2,05 metra, en ár-
angur hennar er besti árangur árs-
ins í hástökki kvenna. Stökk hinnar
27 ára gömlu Bergqvist er þar með í
þriðja sæti yfir hæstu stökk allra
tíma en hún reyndi í þrígang við
nýtt heimsmet, 2,10, en mistókst að
bæta heimsmetið sem er í eigu
Stefka Kostadinova frá Búlgaríu,
2,09, sett árið 1987 í Róm á Ítalíu.
CURT Wadmark, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Svía í handknatt-
leik og formaður sænska hand-
knattleikssambandsins, lést á
sunnudaginn. Curt, sem var 88 ára,
starfaði mikið á vegum Alþjóða-
handknattleikssambandsins, IHF.
KRISTINN Magnússon, KR-ing-
ur, lék sinn fyrsta leik í efstu deild í
knattspyrnu í fyrrakvöld þegar KR
bar sigurorð af Fram. Þetta var
samt ekki fyrsti stóri leikur hans
með félaginu því Kristinn hóf feril
sinn með því að spila með KR í for-
keppni Meistaradeildar Evrópu
gegn Pyunik frá Armeníu á dög-
unum en þar var hann í byrjunarlið-
inu, rétt eins og gegn Fram.
FRAMARAR tefldu líka fram ný-
liða í leiknum því hinn 17 ára gamli
bakvörður Kristján Hauksson spil-
aði sinn fyrsta leik í efstu deild.
DARRELL Armstrong hefur
ákveðið að leika með New Orleans
Hornets næsta vetur í NBA-deild-
inni í körfubolta en Armstrong hef-
ur verið í herbúðum Orlando Magic
síðustu fjögur ár. Armstrong er
bakvörður og skoraði að meðaltali
9,4 stig og gaf 3,9 stoðsendingar í
leik á síðasta tímabili en hann er
þekktur fyrir að vera sterkur varn-
armaður.
ELDEN Campbell mun leika með
Detroit Pistons á næstu leiktíð í
NBA-deildinni í körfubolta. Camp-
bell var samningslaus en hann spil-
aði með Seattle og New Orleans
síðasta vetur. Campbell er 35 ára
gamall og leikur í stöðu miðherja en
hann skoraði 6,1 stig og tók 3,2 frá-
köst að meðaltali í leik sl. tímabili.
FÓLK
ÞAÐ er skammt stórra högga á milli í golflífi Íslendinga
þessa dagana. Íslandsmótinu í höggleik lauk á sunnudag og í
gær fór hið árlega Canon Pro-Am-mót fram hjá Keili. Ís-
lensku keppendurnir áttu í fullu tré við bresku atvinnu-
mennina Justin Rose og Peter Baker og sigraði Sigurpáll
Geir Sveinsson, GA, eftir „bráðahögg“ við Magnús Lárusson,
GKj þar sem þeir slógu eitt högg hvor af 100 metra færi og
sá hafði betur sem hitti nær holu. Það gerði Sigurpáll, en
þeir léku báðir völlinn á 70 höggum, einu höggi undir pari.
Rose og Baker léku á parinu eins og Björgvin Sigurbergs-
son. Þeir léku sama leikinn og gert var í keppninni um fyrsta
sætið og varð Baker þriðji, Rose í fjórða sæti og Björgvin í
því fimmta. Höggi á eftir voru Ólafur Már Sigurðsson og
Örn Ævar Hjartarson, Heiðar Davíð Bjarnason lék á 73,
Birgir Leifur Hafþórsson á 74, Úlfar Jónsson á 75 höggum,
Auðunn Einarsson á 76, Sigurður Pétursson á 78 höggum
eins og Haraldur Heimisson. Davíð Már Vilhjálmsson var á
80 höggum og Sigurþór Jónsson á 83 en Ottó Sigurðsson
varð að hætta keppni um miðbik leiksins.
Morgunblaðið/Golli
Sigurpáll Geir Sveinsson,
GA, sigraði á Canon Pro-Am-
mótinu.
„Bráðahögg“ til að
sigra á Canon-mótinu
ANTON Collins, 26 ára gamall bandarískur körfu-
knattleiksmaður, er genginn til liðs við KFÍ frá Ísa-
firði, nýliðana í úrvalsdeildinni. Collins er hávaxinn
og sterkur, 2,06 m á hæð og 110 kíló, og hefur spilað
í Dóminíska lýðveldinu, Mexíkó, Ekvador og Kól-
umbíu síðustu árin. Áður spilaði hann eitt tímabil
með Saint Troyen í Frakklandi en í háskóla lék
hann með Chicago. Samkvæmt heimasíðu KFÍ skor-
ar Collins grimmt undir körfunni og tekur mikið af
fráköstum.
Þar með er ljóst að tveir bandarískir leikmenn
spila með KFÍ í vetur en áður hafði félagið samið við
Jeb Yvey. Þeir eru báðir væntanlegir til Ísafjarðar í
lok ágúst og fara með KFÍ til Englands í byrjun
september þar sem liðið tekur þátt í æfingamóti.
Annar Banda-
ríkjamaður
til Ísfirðinga
HK sendi 3. flokk sinn til keppni íIshöj, alls 28 leikmenn, og léku
árgangarnir tveir í flokknum sinn í
hvorum aldursflokki mótsins. Eldra
lið HK, skipað piltum fæddum 1987,
sigraði í sínum riðli eftir harða
keppni við lið frá Svíþjóð, Póllandi,
Tékklandi og Danmörku, og vann að
lokum pólska liðið Kujawa-
Pomorski, 6:5, í framlengdri víta-
spyrnukeppni eftir markalausan úr-
slitaleik. Elvar Þór Alfreðsson,
markvörður HK og drengjalands-
liðsins, tryggði liði sínu titilinn með
því að verja sjöundu spyrnu Pól-
verjanna.
Yngra liðið, leikmenn fæddir
1988, vann líka sinn riðil en tapaði í
vítaspyrnukeppni fyrir sænsku liði,
Malmslätts, í undanúrslitum eftir
2:2 jafntefli. HK vann hinsvegar
Bílovec frá Tékklandi, 2:0, í úrslita-
leik um bronsverðlaunin. HK-liðin
tvö léku samtals 14 leiki á mótinu
og töpuðu engum þeirra í venjuleg-
um leiktíma, unnu níu leiki og gerðu
fimm jafntefli. Alls tóku um 150 lið
frá 15 löndum þátt í mótinu sem
haldið var í þriðja skipti en HK er
fyrsta íslenska félagið sem þar tek-
ur þátt.
Fram komst í úrslitaleik
Jafnaldrar HK-inga í 3. flokki
Fram voru í Danmörku á sama tíma
og tóku þátt í Lyngby Cup, rót-
grónu móti í Kaupmannahöfn. Þeir
stóðu sig líka mjög vel og komust
alla leið í úrslitaleik en biðu þar
lægri hlut fyrir KB, 3:0. Áður höfðu
Framarar tapað fyrir Bröndby, 1:2,
en sigrað Holstebro frá Danmörku,
6:1, Helsingborg frá Svíþjóð, 4:2, og
Lyngby frá Danmörku, 3:2.
Sex af Danmerkurförunum, fjórir
leikmenn úr HK og tveir úr Fram,
hafa í nógu að snúast því þeir fóru í
gær til Noregs með drengjalands-
liðinu, U17, sem mætir Englend-
ingum í fyrsta leik Norðurlanda-
mótsins í dag.
Leikmenn HK-liðanna úr 3. flokki karla sem gerðu það gott í Danmörku, fengu gull og brons á knattspyrnumóti.
HK úr Kópavogi sigraði í flokki 16 ára pilta á Denmark Soccer
Festival, alþjóðlegu knattspyrnumóti, sem fram fór í Ishöj í Dan-
mörku í síðustu viku. Kópavogsfélagið hreppti ennfremur brons-
verðlaunin í flokki 15 ára pilta á mótinu.
HK sigraði í Danmörku
STÓRSTJÖRNURNAR hjá Real
Madrid eru mættar til leiks í Kína,
en þar hóst Asíuferð meistaranna
frá Spáni. Það er valinn maður í
hverju rúmi hjá Real Madrid og
margar spurningar hafa vaknað um
hvernig David Beckham, fyrirliði
enska landsliðsins, falli inn í leik-
mannahópinn. „Ég sé ekki annað en
að Beckham hafi náð að falla vel inn
í hópinn. Hjá okkur eru leikmenn af
ýmsu þjóðerni og þeir tala allir
sama málið inni á vellinum – knatt-
spyrnu,“ segir Argentínumaðurinn
Jorge Valdano, sem er tæknilegur
ráðgjafi hjá Real Madrid.
Það er sagt að portúgalski þjálf-
arinn Carlos Queiroz, fyrrverandi
aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson
hjá Manchester United, glími við
skemmtileg vandamál – það er að
púsla öllum stórstjörnunum hjá Real
Madrid saman í liðsheild. Queiroz er
með geysilega öflugan 25 manna
leikmannahóp í Kína, þar sem eru
stórstjörnur á borð við Ronaldo,
Zinedine Zidane, Luis Figo, Raul
Gonzalez, David Beckham og Ro-
berto Carlos. Einnig eru með í för
leikmenn sem hafa verið orðaðir við
önnur lið víðs vegar í Evrópu, eins
og enski landsliðsmaðurinn Steve
McManaman, fyrrverandi leik-
maður Liverpool, og spánski lands-
liðsmaðurinn Fernando Morientes.
„Við munum nýta þær tvær vikur
sem við ferðumst um Asíu til að
finna út hvað við getum gert til að
hafa lið okkar sem sterkast. Allir
leikmennirnir eru tilbúnir í slaginn
og við ætlum að tefla fram öflugu
liði frá byrjun keppnistímabilsins,“
sagði Valdano, en Real Madrid leik-
ur sinn síðasta leik í Asíuferðinni í
Bangkok í Taílandi 10. ágúst.
Hefja vörnina í Madrid
Leikmenn Real hefja meist-
aravörn sína á heimavelli við Real
Betis 31. ágúst. Leikurinn sem flest-
ir bíða eftir á Spáni – viðureign
Barcelona og Real Madrid í Barce-
lona í byrjun desember og Barce-
lona kemur síðan til Madrid 1. maí.
Stjörnur Real Madrid í Kína
AP
Luis Figo og David Beckham
ræða málin í Kína.