Morgunblaðið - 29.07.2003, Side 42
GÓÐ spóluvika er framundan. Vik-
an hófst með þeim Robert De Niro
og Billy Crystal í Analyze That sem
er framhald myndarinnar Analyze
This. De Niro er mafíuforingi sem,
ekki ósvipað Tony Soprano, leitar
til sálfræðings til að koma ró á sál-
artetur sitt. Hann er núna kominn í
steininn og andlegir örðugleikar
fara að gera vart við sig aftur sem
birtist meðal annars í því að hann
syngur upp úr þurru lög úr West
Side Story. Sálfræðingurinn, leik-
inn af Billy Crystal, fær það verk-
efni að komast að hvort hans gamli
skjólstæðingur sé í raun geggjaður
eða bara að reyna að komast hjá
fangelsisvist. Endar það með því að
hann þarf að taka hann að sér á
heimili sínu sem gengur ekki vand-
ræðalaust enda eiga margir gamlir
félagar úr undirheimunum mafíós-
anum grátt lamb að gjalda.
Óskarsverðlaunaheimildar-
myndin Í Keilu fyrir Columbine
(Bowling for Columbine) kemur á
spólu í dag, þriðjudag. Hér er á ferð
einhver umtalaðasta og vinsælasta
heimildarmynd sem gerð hefur ver-
ið í seinni tíð og fjölmenntu íslensk-
ir kvikmyndahúsagestir á myndina
þar sem hún var m.a. sýnd á kvik-
myndahátið 101 og Regnbogans.
Þjóðfélagsrýnirinn Michael Moore
reynir þarna að varpa ljósi á banda-
ríska þjóðarsál með það fyrir aug-
um að útskýra yfirþyrmandi tíðni
morða, ofbeldis og skot-
vopnaeignar hjá banda-
rísku þjóðinni. Moore er
skarpur í gagnrýni sinni og
kynnir áhorfendur fyrir ýmsum
kynlegum kvistum og sérkenni-
legum siðum, eins og bankanum
þar sem fólk fær gefins byssu ef
það stofnar reikning og drengnum
sem að dundar sér við að búa til
napalm-sprengiefni.
Hryllingsmyndirnar Hringingin
2 (Ring 2) og Undir niðri (Below)
koma út í vikunni. Sú fyrrnefnda er
framhald af jap-
anskri hryllings-
mynd sem sló
rækilega í gegn
og gerð var
amerísk út-
gáfa af seinna meir. Andi hinnar
illu Sadako lifir enn og myrðir fólk
á hrottafenginn hátt. Í Below er
sagt frá skipverjum á kafbát sem
taka skipreka áhöfn um borð. Fljót-
lega fara dularfullir hlutir að ger-
ast og ekki virðist allt lengur með
felldu í skipinu heldur yfirnátt-
úrulegir hlutir á ferð.
Einnig koma á myndband teikni-
myndin um hinn káta Kalla á Þak-
inu, eftir samnefndum bókum um
persónu Astridar Lindgren, og
kvikmyndin Foyle’s War 2: The
White Feather sem segir frá lög-
reglumanninum Christopher Foyle
sem leiðist út í dularfulla atburða-
rás í seinni heimsstyrjöldinni.
Kate Blanchett er í aðalhlutverki
í myndinni Charlotte Gray. Þetta
er enn ein seinnastríðs-myndin,
en hér túlkar Kate skoska
konu sem er vel fær í
frönsku og býður sig
fram til verkefna í
Frakklandi til að
mega komast að af-
drifum elskhuga
síns sem hvarf þar
á meðan hann var
í sendiför fyrir
breska herinn.
Í lok mánaðarins
kemur síðan grín-
myndin National
Security með Mart-
in Lawrence og
Steve Zahn í aðal-
hlutverkum. Martin er fyrir löngu
þekktur fyrir gríngeiflur sínar og
galsaskap en Steve Zahn hefur
sömuleiðis hægt og bítandi haslað
sér völl á þeim vettvangi, meðal
annars með leik sínum í myndum á
borð við Daddy Day Care. Martin
Lawrence virðist einkar tamt að
leika spaugilega lögreglumenn og
gerir hann það hér enn einu sinni,
nú sem maður sem rekinn hefur
verið úr löggunni með skömm og
neyðist til að fara að vinna hjá
einkareknu öryggisfyrirtæki. Brátt
kemst hann þó á snoðir um glæpa-
hring sem teygir anga sína í efstu
raðir innan lögreglunnar. Allt er
þetta síðan matreitt á eins spaugi-
legan máta og framast er unnt.
Michael Moore skoðar
allskyns afkima banda-
rísks samfélags og
reynir að skýra háa
morðtíðni hjá þess-
ari merkilegu
þjóð.
Skúrkar í
sálarkrísu og
keiluferð um
kanaland
!" #
$
$
!" #
$
$
!" $
$
$
!"
!"
!"
!"
!"
!" #
!" %
&
&
%
&
%
%
&
&
%
'
&
&
%
&
%
%
%
&
'
!
! " !
"#
#
$
% !&
' ("
" (
# )*+, -./-0
# )*+, -1/23
# )*+, 2-/24
56 7
8
Heimildarmyndin Í keilu fyrir Columbine er meðal myndbanda vikunnar
42 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Varðandi Schmidt
(About Schmidt)
Þrátt fyrir alvöruna og hlífðarlaust
raunsæið er Varðandi Schmidt
gráglettin í aðra röndina, krydduð
háðskum athugasemdum um fall-
valtleikann og fánýti mannlífsins.
Örugglega með bestu og mætustu
myndum stórleikarans Jacks Nich-
olsons. (S.V.)
Hvergi í Afríku
(Nowhere in Africa)
Vel leikin, vel gerð mynd með fal-
legum boðskap, þótt framvinda
reynist heldur ótrúverðug á stund-
um. (S.V.)
Blood Work (Blóðrannsókn)
Leikstjórinn Eastwood gerir
þokkalega hluti en leikarinn
Eastwood er ósannfærandi sem
harðsvíraður lögreglumaður og
kvennagull í eltingaleik við rað-
morðingja. (S.V.)
The Banger Sisters
(Grúppíurnar)
Tvær frábærar leikkonur Susan
Sarandon og Goldie Hawn halda líf-
inu í gamanmynd um miðaldra kon-
ur sem eyddu bestu árunum sem
hjásvæfur poppara. 20 árum síðar
hefur margt breyst. (S.V.)
Gríptu mig ef þú getur
(Catch Me If You Can)
Þeir eru allir í toppformi; Di Caprio
sem barnungur svikahrappur;
Hanks sem FBI-maðurinn á hælum
hans og Walken sem lánleysinginn
faðir pilts. Frábær endursköpun
sjöunda áratugarins og myndin sú
fyndnasta frá Spielberg. (S.V.)
Talandi um kynlíf
(Speaking of Sex)
Ekta kynlífsfarsi í anda þeirra
gömlu (mis)góðu sem Ítalir og Dan-
ir eru hvað frægastir fyrir. Bill
Murray frábær, James Spader al-
veg eins og fífl. (S.G.)
May
Athyglisverð B-mynd sem svipar
um margt til Carrie Kings og De-
Palma. Leggið nafn leikstjórans
Lucky McKee á minnið. (S.V.)
Bara koss (Just a Kiss)
ÞESSI rómantíska gamanmynd er
blessunarlega ekki eins og þær
flestar. Hún er fyrir það fyrsta
frumlegri. Hún er klikkaðri og þar
af leiðandi langsóttari. (S.G.)
Villtar vegalöggur
(Super Troopers)
Ótrúlega heimskuleg mynd en
glettilega fyndin. En það er búið að
vara ykkur við, hún er heimskuleg!
(S.G.)
Í augnsýn allra (My Little Eye)
Fersk hrollvekja um ungmenni sem
eru vöktuð öllum stundum af net-
myndavélum. (S.G.)
Gengi New York-borgar
(Gangs of New York )
Metnaðurinn og hæfileikarnir hefðu
tvímælalaust notið sín betur hefði
Scorsese farið styrkari höndum um
hina áhugaverðari þræði sögunnar,
en á heildina litið er þetta mögnuð
kvikmynd. (H.J.)
GÓÐ MYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn
Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Stríðið er hafið!
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Tortímandinn er kominn aftur.
Fyrsta flokks spennumynd.
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
YFIR 18.000 GESTIR!
YFIR 29.000
GESTIR!
Sýnd kl. 6.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14
X-IÐ 97.7
SV MBL
ÓHT RÁS 2
HK DV
Sýnd kl. 4, 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
kl. 6, 8.30 og 11.
Stríðið er hafið!
Sýnd kl. 6.
Tortímandinn er kominn aftur.
Fyrsta flokks spennumynd.
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
YFIR 18.000 GESTIR!
YFIR 29.000
GESTIR!
19. SÝNING MIÐVIKUDAG 30/7 - KL. 20 UPPSELT
20. SÝNING FIMMTUDAGINN 31/7 - KL. 20 UPPSELT
21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 ÖRFÁ SÆTI LAUS
24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 LAUS SÆTI
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA !