Morgunblaðið - 29.07.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 43
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Stríðið er hafið!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Tortímandinn er kominn aftur.
Fyrsta flokks spennumynd.
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Búðu þig undir versta brúðkaup sumarsins þar sem allt getur gerst!
Ein besta gamanmynd sumarsins með stórleikaranum Michael Douglas.
YFIR 18000 GESTIR!
YFIR 29.000
GESTIR!
MICHAEL DOUGLAS ALBERT BROOKS
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11.10. B.i. 14 ára.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Stríðið er hafið!
Tortímandinn er kominn aftur.
Fyrsta flokks spennumynd.
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
Búðu þig undir versta brúðkaup sumarsins þar sem allt getur gerst!
Ein besta gamanmynd sumarsins með stórleikaranum Michael Douglas.
YFIR 18.000 GESTIR!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
YFIR 29.000 GESTIR!
Laugavegi 91 s.511-1717 - Kringlunni s.5689017 - www.sautjan.is
Ný sending af DIESEL gallabuxum
DIESEL gallabuxur frá: 7.990
DIESEL
DIESEL
DIESEL
DIESEL
skór
bolir
jakkar
háskólabolir
frá:
frá:
frá:
frá:
4.990
1.990
10.990
3.990
alltaf á föstudögumDAGLEGT LÍF
LEIKARINN Bob Hope
lést í gær á 101. aldursári.
Hope fæddist í Lundúnum
29. maí 1903 en fjölskylda
hans fluttist til Bandaríkj-
anna þegar hann var fjög-
urra ára þar sem fyrir hon-
um lá að verða kvik-
myndastjarna. Hann var
skírður Leslie en breytti
nafni sínu í Bob, að því er
sagan segir vegna þess að í
kennslustundum var hann
kallaður upp sem „Hope,
Leslie“ sem skólafélagar
hans styttu í „hopeless“
(vonlaus). En snemma á
ferli sínum varð hann þó
uppnefndur „Skíðabrekku-
nef“ vegna sérstæðrar lög-
unar nefs síns.
Hann var meðal annars
titlaður „Skemmtikraftur
20. aldarinnar“ og á að baki
yfir 70 kvikmyndir. Hann
hlaut á lífsleiðinni fjölda
verðlauna og viðurkenninga en
Hope er skráður í Heimsmetabók
Guinness sem sá leikari sem flestar
viðurkenningar hefur hlotið og eru
þær eru taldar vera yfir 1.500 í
heildina.
Það var honum mikið kappsmál
að styðja við bakið á bandarískum
hermönnum og heimsótti hann og
skemmti þeim í flestum stríðsátök-
um sem Bandaríkin komu nálægt
allt frá seinni heimsstyrjöldinni til
Persaflóastríðsins.
Eftir að hann dró sig í hlé fyrir
um 20 árum hefur nokkrum sinnum
komið fyrir að því hafi ranglega ver-
ið haldið fram að hann væri látinn.
Um miðjan 10. áratuginn birti vef-
síða frétt þess efnis sem þingmaður
í fulltrúadeild bandaríkjaþings las
og tilkynnti þingheimi að leikarinn
væri látinn.
Bob Hope lék meðal annars með
Bing Crosby og Dorothy Lamour í
Road to...-myndaröðinni en meðal
annarra þekktra mynda sem hann
lék í má nefna The Cat and the Can-
ary, My Favourite Blonde, The Sev-
en Little Foys, The Paleface, The
Great Lover, The Princess and the
Pirate og Fancy Pants sem var
fyrsta af mörgum kvikmyndum þar
sem hann fékk að leika á móti Luc-
ille Ball. Um hver jól var sýndur
sérstakur gamanþáttur með honum
sem var í hugum margra Banda-
ríkjamanna ómissandi þáttur í jóla-
haldinu.
Undir lokin var Bob Hope orðinn
mjög tæpur á heilsu en hann var þó
allur hinn brattasti þegar aldar-
afmæli hans var fagnað fyrr á árinu
en þá vottaði fjöldi fyrirmenna hon-
um virðingu sína fyrir framlag sitt
til að skemmta heimsbyggðinni.
Hann lætur eftir sig eiginkonu
sína til 69 ára en þau áttu fjögur
börn og fjögur barnabörn.
Einn ástkærasti grínleikari sögunnar
fallinn frá, aldargamall
Bob Hope látinn
Reuters
Bob Hope
Bob Hope var ekki hvað síst þekktur fyrir smellin tilsvör. Meðal
helstu gullkorna hans eru þessi:
„Það var mjög hart í ári þá. Ég hefði ekki haft neitt að éta ef ekki
hefði verið fyrir grænmetið sem áhorfendur grýttu í mig.“
„Hvar annars staðar en í Bandaríkjunum gætu kvenréttindasinnar
fjarlægt brjóstahaldarana sína og síðan farið í sjónvarpið að
kvarta yfir skorti á stuðningi?“
„Víetnam-stríðinu lauk loks með samkomulagi sem hvorugur að-
ilinn hyggst heiðra. Það var eins og brúðkaup hjá Zsa Zsa Gabor.“
„Strákarnir í Washington verða að fara að laga gengismálin. Það er
búið að teygja svo úr dollarnum að George Washington er kominn
með frekjuskarð.“
„Þú veist að þú ert orðinn gamall þegar kertin kosta meira en kak-
an.“