Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 35
PENINGAMARKAÐURINN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 35 LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRA- HÚS SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000. BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050. BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími 543 1000. BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími 543 4050. NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími 543 2085. EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222. ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085. LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá- tíðir. Símsvari 575 0505. VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10– 16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369. LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn- isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8– 24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8– 24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl. 9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími 585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232. Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar. NEYÐARÞJÓNUSTA BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep- urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að- standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek- ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif- stofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar- hringinn. Vímulaus æska-Foreldrahús. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 VÍSITÖLUR Eldri Neysluv. Byggingar Launa- lánskj. til verðtr vísitala vísitala Des. ’02 4.417 223,7 277,9 228,7 Jan. ’03 4.421 223,9 278,0 237,0 Feb. ’03 4.437 224,7 285,0 237,5 Mars ’03 4.429 224,3 285,5 237,8 Apríl ’03 4.476 226,7 284,8 238,0 Maí ’03 4.482 227,0 285,6 238,5 Júní ’03 4.474 226,6 285,6 239,0 Júlí ́03 4.478 226,8 286,4 Ágúst ́03 4.472 226,5 286,8 Eldri lkjv., júní ‘79=100; byggingarv., júlí ‘87=100 m.v gildist. launavísit. des. ‘88=100. Neysluv. til verðtrygg LOKAGILDI HELSTU HLUTABRÉFAVÍSITALNA Evrópa Lokagildi breyt.% Úrvalsvísitala aðallista .......................................... 1.525,30 0,73 FTSE 100 ................................................................ 4.098,40 -1,41 DAX í Frankfurt ....................................................... 3.438,89 -1,40 CAC 40 í París ........................................................ 3.169,63 -1,27 KFX Kaupmannahöfn ............................................. 213,67 -0,40 OMX í Stokkhólmi .................................................. 568,51 -0,44 Bandaríkin Dow Jones .............................................................. 9.153,97 -0,86 Nasdaq ................................................................... 1.715,59 -1,12 S&P 500 ................................................................. 980,15 -1,03 Asía Nikkei 225 í Tókýó ................................................. 9.611,67 0,51 Hang Seng í Hong Kong ......................................... 10.248,60 1,12 Viðskipti með hlutabréf deCODE á Nasdaq ................................................. 3,16 -1,86 Big Food Group í Kauphöllinni í London ............... 105,75 3,94 House of Fraser í Kauphöllinni í London .............. 90,00 -0,82 VEXTIR SKULDABRÉFA OG DRÁTTARVEXTIR Dráttar Vxt. alm. Vxt. alm. vextir óvtr. skbr. vtr. skbr. Sept. ’02 20,5 11,5 7,7 Okt. ’02 20,5 10,5 7,7 Nóv.’02 20,5 10,0 7,5 Des. ’02 20,5 9,5 7,1 Jan. ’03 17,5 9,0 7,1 Feb. ’03 17,5 9,0 6,9 Mars ’03 17,5 8,5 6,7 Apríl ’03 17,5 8,5 6,7 Maí ́03 17,5 8,5 6,7 Júní ́03 17,5 8,5 6,7 Júlí ́03 17,0 8,5 6,5 ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar ÁGÚST Mán.gr. Elli-/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) .................................................. 20.630 Full tekjutrygging ellilífeyrisþega (einstakl.) .............................. 38.500 Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........................................... 39.493 Heimilisuppbót, óskert ................................................................ 16.960 Tekjutryggingarauki, hærri........................................................... 18.000 Tekjutryggingarauki, lægri ........................................................... 14.066 Makabætur ................................................................................... 48.098 Örorkustyrkur................................................................................ 15.473 Uppbót v/reksturs bifreiðar......................................................... 7.736 Barnalífeyrir v/eins barns............................................................ 15.558 Meðlag v/eins barns.................................................................... 15.558 Mæðralaun/feðralaun v/tveggja barna ..................................... 4.532 Mæðralaun/feðralaun v/þriggja barna eða fleiri ...................... 11.782 Dánarbætur – 6 mánaða ............................................................. 23.340 Dánarbætur – 12 mánaða........................................................... 17.499 Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)......................................................... 23.340 Fæðingarstyrkur mæðra.............................................................. 39.232 Umönnunargreiðslur/barna, 25-100% ..................... 20.630 – 82.519 Vasapeningar vistmanna............................................................. 20.630 Vasapeningar vegna sjúkratrygginga.......................................... 20.630 Daggreiðslur Fullir sjúkradagpeningar einstakl. ................................................. 821 Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ............................. 224 Fullir slysadagpeningar einstaklinga ......................................... 1.008 Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ............................... 216 Vasapeningar utan stofnunar ......................................................... 1.644 FRÉTTIR/ÞJÓNUSTA TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF. sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem segir að í tilefni af umfjöllun Fréttablaðsins og fréttastofu RÚV í gær vilji félagið koma á framfæri andmælum við ásökunum í frumat- hugun Samkeppnisstofnunar um að- ild félagsins að meintu samráði í tengslum við útboð á vegum dóms- málaráðuneytisins á slysatrygging- um lögreglumanna árið 1996. Morgunblaðið birtir hér tilkynn- ingu TM í heild sinni: „Útboð á slysatryggingum lögreglumanna 1. Inngangur Undir þessum lið er TM ásamt SA talin hafa brotið 10. gr. samkeppn- islaga vegna útboðs á slysatrygging- um lögreglumanna í desember 1996. Af hálfu Samkeppnisstofnunar er aðallega byggt á eftirfarandi gögn- um: Símbréfi frá TM, dags. 19. des- ember 1996, til Ríkiskaupa og bók- unar í fundargerð hjá SA frá 20. desember 1996. 2. Forsaga málsins Aðdragandi máls þessa var sá að SA hafði verið með slysatryggingar lögreglumanna og greiddi dóms- málaráðuneytið helming iðgjald- anna. Vegna 60% hækkunar sem varð um áramótin 1995/1996 mun ráðuneytið hafa beint því erindi til Ríkiskaupa að athugað yrði með það að bjóða tryggingarnar út. Það varð úr og í desember 1996 óskuðu Ríkiskaup eftir tilboðum í umræddar tryggingar og skiluðu TM, SA og VÍS inn tilboðum. Tilboð voru opnuð 19. desember 1996 og kom þá í ljós að tilboð TM var lang- lægst eða 6.484.000 krónur. SA bauð 9.691.330 krónur og VÍS 11.871.243 krónur. 3. Mistök Þar sem munur á tilboðunum var meiri en svo að eðlilegt gæti talist, var farið að athuga málið innanhúss hjá TM. Kom þá í ljós að tilboð TM byggðist á einfaldri vátryggingar- fjárhæð, en ekki tvöfaldri eins og gert var ráð fyrir í útboðsskilmálum. Þar sem iðgjöld ráðast að stórum hluta af þeirri áhættu, sem verið er að tryggja var hér komin skýringin á hinu lága tilboði TM. Strax og mistökin voru ljós, sem var samdægurs, var haft samband við Ríkiskaup, þeim sent símbréf og gerð grein fyrir þeim mistökum sem átt höfðu sér stað og jafnframt að TM treysti sér ekki til að standa við tilboð sitt. Ríkiskaup tóku skýringar TM gildar og féllust á að leysa félagið frá tilboði sínu og munu í framhaldi af því hafa snúið sér til SA, sem nú voru komnir með lægsta tilboðið og sömdu við þá um áframhald tryggingarinn- ar. 4. Ályktanir Samkeppnisstofnunar Hvernig Samkeppnisstofnun kemst að þeirri niðurstöðu að hér hafi verið um að ræða ólöglegt sam- ráð milli SA og TM er með öllu óskilj- anlegt. Í frumathuguninni er talað um að í tilboði TM hafi komið fram að félagið hafi kynnt sér útboðsgögn rækilega. Það er vissulega rétt, en jafnvel þó svo væri geta menn engu að síður gert mistök eins og þarna urðu og voru útskýrð fyrir þeim er fyrir útboðinu stóðu. Hér virðist bókun í fundargerð hjá SA frá 20. desember 1996, þar sem fram kemur að TM muni draga tilboð sitt til baka, vega þungt. Hér sem endranær hafnar TM því að bókanir annarra tryggingafélaga geti verið á ábyrgð félagsins eða komi félaginu við, en þó skal bent á að bókunin er ekki alls kostar rétt miðað við stað- reyndir eins og þær lágu fyrir, því þar segir að tilboð TM verði dregið til baka, sem er rangt. Það hafði þá þeg- ar verið dregið til baka. Það er hins vegar svo að bókunin sem slík á sér eðlilegar skýringar að mati TM og gefur ekki tilefni til þeirra ályktana sem Samkeppnis- stofnun dregur af henni. Þannig er að þeir sem fást við gerð tilboða fyrir TM í málum sem þessum geta með nokkurri vissu sagt fyrir um á hvaða bili tilboðin verða út frá trygginga- legum forsendum og þegar tilboðin voru opnuð var ljóst að munurinn var meiri en eðlilegt gat talist og málið því skoðað eins og rakið er hér að framan í kafla 4.13.3. Hér skal ekkert fullyrt 6 árum eft- ir umræddan atburð hvernig vitn- eskja barst SA um að TM hefði fallið frá tilboði sínu. Um leið og stað- reyndir lágu fyrir um þau mistök er höfðu átt sér stað hjá félaginu var það hins vegar ekkert leyndarmál og gat engin áhrif haft á aðra tilboðs- gjafa sem ekki gátu breytt tilboðum sínum. Ekki er hægt að útiloka að vitneskja SA um afturköllunina hafi komið frá Ríkiskaupum þó svo ekk- ert skriflegt hafi farið milli Ríkis- kaupa og SA á þessum tíma og Rík- iskaup kannist nú ekki við að SA hafi verið upplýst um að tilboð TM hafi verið afturkallað. Eins og áður segir er furðulegt hvernig Samkeppnisstofnun getur ályktað út frá þessum staðreyndum að SA og TM hafi haft samráð við út- boðið. Ef ályktun Samkeppnisstofn- unar væri rétt að þessu leyti, hefði þá ekki verið auðveldara að TM hefði einfaldlega sleppt því að taka þátt í útboðinu og látið SA um það? Telur Samkeppnisstofnun virkilega að markaðsdeild TM hafi verið að leggja vinnu í útboðið til þess eins að draga það síðan til baka og láta SA hirða pakkann? Hér er vandinn sá að það eru engin skynsamleg rök fyrir þessari niður- stöðu frumathugunarinnar og þar sem ofangreindar skýringar lágu fyrir hjá Samkeppnisstofnun áður en frumathugunin var send frá stofnun- inni hlýtur að vera spurt hvort svar TM við þessum lið hafi verið lesið. Félagið hafnar því algerlega að þessi liður frumathugunarinnar eigi við rök að styðjast og leggur jafn- framt áherslu á að verði ekki fallist á það telur félagið meint brot vera fyrnt.“ TM andmælir ásökunum í frumskýrslu Sam- keppnisstofnunar SJÓVÁ-ALMENNAR sendu frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í gær: „Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum þar sem vitnað er í frumathugun Samkeppnisstofnunar um rannsókn á meintu samráði vátryggingafélag- anna, vilja Sjóvá-Almennar trygg- ingar hf. koma eftirfarandi á fram- færi: Sjóvá-Almennar hafa ekki tekið þátt í ólöglegu samráði með öðrum vátryggingafélögum. Öllum fullyrð- ingum þess efnis í frumathugun Samkeppnisstofnunar er alfarið vís- að á bug með rökstuddum hætti í svari félagsins sem sent var stofn- uninni fyrir tæpu ári síðan. Félagið lýsir undrun og stórum áhyggjum af því hve rannsókn Sam- keppnisstofnunar hefur tekið lang- an tíma en sex ár eru nú liðin síðan rannsóknin hófst. Einnig lýsir fé- lagið áhyggjum af því að upplýs- ingar úr frumskýrslunni hafi „lekið út“ og hafi birst í fjölmiðlum. Upp- lýsingar í frumskýrslu eru ekki endanleg niðurstaða af hálfu Sam- keppnisstofnunar en eru til þess fallnar að sverta félagið í augum al- mennings, séu þær birtar opinber- lega í fjölmiðlum. Sjóvá-Almennar telja að opinber birting upplýsinga úr frumskýrsl- unni vegi að réttaröryggi félagsins því í skýrslunni hefur ekki verið tekið tillit til andmæla og athuga- semda félagsins. f.h. Sjóvá-Almennra trygginga hf. Einar Sveinsson forstjóri.“ Sjóvá-Almennar vísa öllum ásökunum á bug          !"  !"### $## %%# %## &%# &## %# ##         ## $%#&&' ()*+,-../ '() * (+   $,## %,## &,## ,## -,## ,## #,## - ,## -.,## -!,## -$,## -%,## -&,## -,## --,## -,##       /  0   Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.