Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Þá ætti nú að vera búið að uppfylla alla hirðsiðina. Ráðstefna Félags kvenna í fræðastörfum Von á tvöhundr- uð gestum EvrópuráðstefnaDelta KappaGamma verður haldin á Grand hótel dag- ana 6. til 9. ágúst en ráð- stefnuna sækir fjöldi kvenna beggja vegna Atl- antshafsins. Áslaug Brynj- ólfsdóttir er í undirbún- ingshóp ráðstefnunnar. Hvað er Delta Kappa Gamma? Delta Kappa Gamma Society International eru alþjóðasamtök kvenna í fræðslustörfum sem voru stofnuð af 12 konum í Austin í Texas 1929 en fé- lagar í samtökunum eru um 140 þúsund. Hvenær voru samtökin stofnuð á Íslandi? Fyrsta deildin á Íslandi, Alfadeild, var stofnuð 1975 í Reykjavík, en Landssambandið tveimur árum síðar. Nú eru deild- irnar 8 víðsvegar um landið og konur í þeim eru rúmlega 200. Sérstakt Evrópusvæði var fyrst stofnað 1998 og svæðaráðstefnur eru haldnar annaðhvert ár. Þetta er því í þriðja skipti sem slík ráð- stefna er haldin. Hvert er viðfangsefni ráðstefn- unnar og hverjir eru helstu fyrir- lesarar? Þarna verður fjallað um upp- eldis- og fræðslumál af ýmsum toga, en yfirskrift ráðstefnunnar er: Gróska – hæfni – forysta. Að- alfyrirlesarar eru fjórir. Á setningarhátíðinni, 6. ágúst, er fyrstur aðalfyrirlesara Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for- seti og heiðursfélagi í samtökun- um á Íslandi. Fyrirlestur hennar nefnist: „Women and Leadership in the 21’st Century“. Næst aðal- fyrirlesara er dr. Lynne Schole- field, en erindi hennar nefnist: „Learning from the Enneagram“. Þriðji aðalfyrirlesari er dr. Sig- rún Aðalbjarnardóttir prófessor og nefnir hún erindi sitt: „Respect – Cultivating Citizen- ship Awareness and Democratic Values Among the Youth“. Að lokum flytur dr. Gerður G. Ósk- arsdóttir fræðslustjóri fyrirlestur sem hún kallar „Skills for the Future in Europe“. Auk þessa er val um fjölda fyr- irlestra, bæði erlendra og inn- lendra. Íslensku fyrirlesararnir eru Ragnheiður Gestsdóttir, Rósa Kristín Júlíusdóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir, dr. Guðrún Pét- ursdóttir, dr. Gyða Jóhannsdótt- ir, dr. Jóhanna Einarsdóttir, dr. Sigrún Klara Hannesdóttir og Herdís Egilsdóttir, en auk þess eru erlendir fyrirlesarar 21 að tölu. Þarna verður einnig ýmislegt gert til skemmtunar, ekki satt? Jú, svo sannarlega. Inn á milli verða atriði sem má segja að til- heyri hefðum samtakanna. Á setningarhátíðinni munu nýir for- setar Evrópulanda bera inn fána sinna landa og taka formlega við embættum. Skemmtun og menn- ingarviðburðir ýmiss konar eru líka á dag- skrá, kvöldverður, skemmtidagskrá í Perlunni og „Íslenskt kvöld“ með heimsókn í Orkuveitu Reykjavíkur en þaðan verður farið í Bláa lónið. Lokahóf- ið verður haldið á Grand hótel og þar verður aðalræðumaður Jean Gray, forseti alþjóðasamtakanna. Hvaða konur taka þátt í ráð- stefnunni? Þetta eru konur í uppeldis- og fræðslustörfum af öllum skóla- stigum, en einnig konur í ýmiss konar fræðslustörfum úr atvinnu- lífinu. Þessar konur eru frá lönd- um beggja vegna Atlantshafsins, frá ýmsum Evrópulöndum og einnig Bandaríkjunum, Kanada og Mið-Ameríku. Þátttakendur í ráðstefnunni eru liðlega 200, en svo koma einnig nokkrir makar. Er ráðstefnan aðeins ætluð fyr- ir félagskonur? Nei, Hún er opin þeim konum á Íslandi sem hafa áhuga á að koma en hún er ekki ókeypis. Ráð- stefnugjaldið er 7.500 krónur en svo er hægt að koma í heilan dag eða hálfan og er verðið þá lægra. Er þörf á sérstöku félagi kvenna í fræðslustörfum? Þetta er sjálfsagt alltaf spurn- ing um hvort nauðsyn sé á sér- félögum karla og kvenna, en myndir þú spyrja karlmenn sem eru í sérstökum karlafélögum samskonar spurningar? Mér finnst þörf á félagsskap sem er faglegur og þessi félagsskapur er mjög gefandi og víkkar sjóndeild- arhringinn. Enda eru markmið samtakanna meðal annars að efla tengsl kvenna sem vinna að fræðslustörfum víðs vegar í heim- inum og jafnframt að efla per- sónulegan og faglegan þroska fé- lagskvenna og hvetja þær til virkni. Það er gagnlegt að kynn- ast fræðslumálum, ekki bara á einu skólastigi heldur frá leik- skóla og upp í háskóla. Þessi sam- tök spanna allt sviðið, lóðrétt, og það finnst mér frábært. En ég hugsa nú að margt hafi færst til betri vegar á þessum nálega 75 árum síðan fyrstu konurnar hittust og samtökin voru stofnuð. Hér áður fyrr var ekki mikið um að konur væru skólastjórar eða í ábyrgðarstöðum innan mennta- kerfisins. Ég man eftir því að um það leyti sem Alfadeildin var stofnuð hér á landi voru ekki ýkja margar konur í stjórnunarstöðum innan skólakerfisins, en þetta hef- ur breyst. Til dæmis voru flestir kennarar í grunnskólunum kon- ur, en svo voru skólastjórar og yfirkennarar oftast karlar. Áslaug Brynjólfsdóttir  Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrr- verandi fræðslustjóri, er fædd árið 1932 á Akureyri. Áslaug er menntuð kennari og sérkennari og er með masterspróf í uppeld- is- og kennslufræðum. Hún var meðal annars yfirkennari og skólastjóri í Fossvogsskóla í 10 ár. Áslaug er gift Jóhanni Gísla- syni lögmanni. Börn hennar eru Ragnheiður, doktor í eðlisfræði, Birgir, stjórnmálafræðingur og master í sagnfræði, Gunnar Bragi, tæknifræðingur og sjávarútvegsfræðingur og Guð- rún Bryndís barnageðlæknir, en þau eru öll Guðmundarbörn. Margt hefur færst til betri vegar ÍSLENDINGADAGSHÁTÍÐIN í Gimli í Manitoba í Kanada fer fram um helgina og er gert ráð fyrir um 50 til 60 þúsund gestum, en íbúar í bæn- um eru um 1.600 og í sveitarfélaginu búa samtals um 7.000 manns. Þetta er í 114. sinn sem hátíðin fer fram og hefur umfangið aukist mikið á undanförnum árum. Í tengslum við hátíðarhöldin, sem standa yfir frá föstudegi til mánudags, er Kvik- myndahátíðin í Gimli, sem nú er haldin í þriðja sinn, og siglinga- keppni Íþróttaleika Vestur-Kanada 2003 fer fram að hluta í Gimli næstu daga. Kvikmyndahátíðin hófst á mið- vikudagskvöld og verða sýndar 20 myndir í fullri lengd og um 50 stutt- myndir frá Kanada, Íslandi, Noregi, Finnlandi, Englandi og Bandaríkj- unum. Íslensku myndirnar Hafið, Í skóm drekans og Mávahlátur eru meðal annars á dagskrá og Ágúst Guðmundsson, leikstjóri síðast- nefndu myndarinnar, er sérstakur gestur kvikmyndahátíðarinnar. Viðamikil dagskrá verður alla daga Íslendingadagshátíðarinnar en Íslendingadagurinn sjálfur er á mánudag og ná þá hátíðarhöldin há- marki. Sr. Karl Sigurbjörnsson bisk- up flytur þá minni Kanada og dr. Kenneth Thorlakson minni Íslands. Ríkey Ingimundardóttir er auk þess með stóra sýningu í Gimli, en hún sýnir alls um 50 verk í Listasafninu. Íslendingadagshátíðin í Gimli verður haldin um helgina Búist við 60 þúsund gestum Gimli. Morgunblaðið. SVEITARSTJÓRN Raufarhafnar hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli fyrrverandi hreppstjóra gegn hreppnum til hæstaréttar. Þetta var samþykkt samhljóða á fundi 23. júlí sl. Á fundinum voru einnig til um- ræðu ársreikningar fyrir árið 2002 og kom framað rekstur hreppsins hefði gengið samkvæmt áætlunum á árinu. „Þetta hafa verið sársaukafullar að- gerðar sem hafa greinilega skilað ár- angri en samt sem áður er enn ekkert svigrúm til þess að draga úr aðhaldi. Við verðum áfram að gæta aðhalds og eftirlits,“ segir Guðný Hrund Karls- dóttir, sveitarstjóri á Raufarhöfn. Í áritun endurskoðanda segir m.a.: „Þrátt fyrir að afkoma sveitar- félagsins hafi verið afar dökk á árinu 2002 er hún í aðalatriðum í takt við endurskoðaða rekstraráætlun sveit- arfélagsins frá sl. sumri. Fjárhags- áætlun sveitarfélagsins fyrir yfir- standandi ár og það næsta gerir ráð fyrir að verulegum rekstrarbata verði náð og að sveitarfélagið geti staðið við skuldbindingar sínar. Eng- in ástæða er til að ætla annað en það muni ganga eftir m.a. vegna þess að fjármálastjórn sveitarfélagsins, að- hald og eftirlit, hefur verið bætt.“ Mál fyrrum sveitar- stjóra á Raufarhöfn Ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar ♦ ♦ ♦ www.icelandair.is Kaupmannhöfn www.icelandair.is/kaupmannahofn Fá þér smørrebrød og bjór hjá Idu Davidsen, Store Kongensgade 70. Opið til kl. 17:00 virka daga, lokað um helgar. Þar upplifir þú sanna danska stemningu. Í Kaupmannahöfn þarftu að: Verð frá 29.900 kr. á mann í tvíbýlí í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Hótel Admiral, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Brottfarir 8. nóv., 16. jan. og 20. mars. Christianshavn Miðbærinn Tívolí Amalienborg Plads Kul Torvet Central Station Christiania Kongens Nytorv Copenhagen Admiral Hotel Graa- broedre Torv Latínu hverfið Ny Carlsberg Glyptotek N ør re Vo ldg ad e Str øg et Ch ris tia ns Br ygg e Ka lve bo d B ryg ge Ves trbr oga de Tie tge nsg ade Kon geve j Ved Ves terp ort Kampmannsgade Gothersgade Bernstorffsgade HC Andersens Blvd Nyhavn St or e K on ge ns ga de Br ed ga de To ld bo dg ad e Købm agergade NyØstergade Str øget Øst erga de Krø npr ins en- gad e Rådhus- pladsen Palace Hotel Imperial Hotel Hotel Du Nord DGI-byen Hotel Absalon C olbjö rnsensgade H elgolandsgade Vester Farim ags gad e ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 21 70 5 07 /2 00 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.