Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 23
ÚRSLITIN Á HREINU!
fiú getur fari› áhyggjulaus í fríi›. Skrá›u flig í úrslitafljónustuna hjá Símanum GSM og
flú missir ekki af neinu sem gerist í sportinu! fiú fær› úrslitin, stö›una, markaskorara
og allt sem skiptir máli sent í símann flinn um lei› og hlutirnir gerast á vellinum.
Skrá›u flig í úrslitafljónustuna á vit.is og vertu me› úrslitin á hreinu!
Eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum GSM.
Léttkaupsútborgun 1.980 kr.
1.000 kr. á mán. í 12 mán.
13.980,-
Sony Ericsson
T310
EINHVER vinsælasta styttri
gönguleið á landinu er án efa leið-
in frá Arnarstapa að Hellnum. Yfir
sumartímann fer fjöldi fólks dag-
lega þessa leið en vinsældir henn-
ar felast bæði í fegurð og stór-
brotnu landslagi og þeirri
staðreynd að hægt er að keyra
hópa að upphafi leiðar og sækja þá
á endastöð.
Merkingar hefur lengi vantað
við áhugaverðustu staðina á þess-
ari leið en nú hefur Framfarafélag
Snæfellsbæjar, sunnandeild, í sam-
vinnu við Þjóðgarðinn Snæfellsjök-
ul, bætt úr því. Framfarafélagið
keypti tólf skilti til að merkja staði
á þessari gönguleið eftir að hafa
fengið styrk frá Pokasjóði til verk-
efnisins. Skilti hafa nú verið sett
upp við Pumpuna, gjárnar þrjár í
nágrenni vitans á Arnarstapa, við
Gatklett, við Draugalág og Bólhóla
og við Nátthaga, Einbúa,
Þrengslabúð og Arabúð. Jafnframt
var Dreplukolludys, sem er við
veginn niður að Hellnum, merkt.
Framfarafélagið keypti einnig
skilti til að bæta merkingar við
Sönghelli því ferðamenn áttu oft
erfitt með að finna hinn rétta helli
í sandsteinsveggnum. Nú er slíkt
vandamál úr sögunni.
Landverðir Þjóðgarðsins Snæ-
fellsjökuls sáu um uppsetningu á
skiltunum í friðlandinu á Stapa og
Hellnum, svo og við Sönghelli og
hreinsuðu jafnframt hellinn í sum-
ar. Samstarfið milli Framfarafé-
lagsins og Þjóðgarðsins er til mik-
illar fyrirmyndar og styrkir og
eflir ferðaþjónustu á svæðinu.
Vinsæl gönguleið merkt
Hellnar
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
TÓMAS Gunnar Sæmundsson,
bóndi í Hrútatungu í Hrútafirði og
stjórnarmaður í Bændasamtökum
Íslands, og dóttir hans Þorgerður
voru fiskin þegar þau veiddu 29 sil-
unga í Fellsá í Strandasýslu. Fellsá
rennur um gróðursælan Steinadal í
Kollafirði.
Tómas Gunnar segist hafa fengið
veiðiáhugann ungur og fylgst með
veiðum móðurbróður síns og ann-
arra ættingja en hin gjöfula veiðiá,
Hrútafjarðará, rennur um land
Hrútatungu.
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Fengsæl
feðgin
Hólmavík
EYÞÓR Hemmert Björnsson, sex-
tán ára ofurhugi á Húsavík, gerði
sér lítið fyrir á dögunum og setti
Íslandsmet í stökki á mótorkross-
hjóli. Bætti hann eldra met tölu-
vert eða um 5 metra, úr 30 metr-
um í 35 metra.
Stökkið fór þannig fram að
útbúinn hafði verið stökkpallur
úr timbri og lendingarhaugur úr
möl. Þar hafði Eyþór Hemmert
æft sig að undanförnu fyrir
stökkið langa og segir hann þetta
ekki eins glæfralegt og það það
líti út fyrir að vera.
Eyþór Hemmert er einnig efni-
legur keppnismaður í vélsleða-
íþróttinni og stóð sig mjög vel
síðastliðinn vetur og varð m.a. Ís-
landsmeistari í snjókrossi ung-
linga 2003.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Íslandsmet
í vélhjóla-
stökki
Húsavík