Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 21
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 21 Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábærum kjörum með beinu flugi í haust. Alls staðar nýt- ur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar, sem eru á heimavelli á söguslóðum og bjóða spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni stendur. Notaðu tækifærið og kynnstu mest spennandi borgum Evrópu, mannlífi og menningu og upplifðu ævintýri í haust. Fegurstu borgirnar í beinu flugi í haust frá kr. 28.550 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Róm 1.-5. okt. Heimsferðir bjóða nú einstakt tæki- færi til borgarinnar eilífu í beinu flugi þann 1. okt. frá Íslandi til Rómar. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg sem á engan sinn líka í fylgd farar- stjóra Heimsferða og upplifað árþús- undamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið. Sjá www.heimsferðir.is Verð frá kr.65.850 Búdapest október fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynn- ast í beinu flugi frá Íslandi. Hér getur þú valið um góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Budapest og spennandi kynnisferðir með farar- stjórum Heimsferða. Verð kr. 28.550 Flugsæti til Budapest 20. okt. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verona 17. sept., 5 nætur Fegursta borg Ítalíu, þar sem þú getur notið hins besta af ítalskri menningu um leið og þú gengur um gamla bæinn, skoðar svalir Júlíu og kynnist frægasta útileik- húsi Ítalíu, Arenunni í Verona eða ferðast um Gardavatn og Feneyjar. Verð kr. 29.950 Flugsæti með sköttum. Völ um 3 og 4 stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Prag Okt. og nóv. fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú hingað í þúsundatali á hverju ári með Heims- ferðum. Fararstjórar Heimsferða gjör- þekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag. Verð kr. 29.950 Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í her- bergi á Quality Hotel, 3. nóv. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Barcelona 2. okt. 3 nætur 22./26./30. okt. 4 nætur Einn vinsælsti áfangastaður Íslend- inga í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú bein flug í október, sem er einn skemmtilegasti tíminn til að heim- sækja borgina. Menningarlífið er í hápunkti og ótrúlegt úrval listsýn- inga og tónleika að heimsækja ásamt spennandi næturlífi og ótrú- legu úrvali verslana. Fararstjórar Heimsferða kynna þér borgina á nýjan hátt, enda hér á heimavelli. Verð kr. 49.950 Flug og hótel í 4 nætur. M.v. 2 í herbergi á Aragon, 22. okt. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Sorrento 30. sept., 5 nætur Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn á Íslandi beint flug til Napolí og dvöl í Sorrento, þessum frægasta sumar- leyfisstað Ítalíu. Hér kynnist þú hinni ótrúlega fögru Amalfi strönd, eyjunni Capri, Pompei og Napolí. Ótrúlega fallegt umhverfi og heill- andi andrúmsloft á þessum fagra stað. Völ um úrvalshótel í hjarta Sorrento. Verð kr. 63.650 Flug og hótel í 5 nætur. M.v. 2 í her- bergi á La Meridiana með morgunmat. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Verð m.v. 2 í herbergi, Hotel Villa Torlonia, flug, gisting, skattar, íslensk fararstjórn. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. ÞRJÁR vinkonur úr Garðinum áttu ekki von á að fá bréf þegar þær voru á rölti í fjörunni á Garðskaga og fundu flösku. Þetta var vegleg flaska og troðin af lesefni. Ekki tókst þeim að komast í inni- haldið án þess að brjóta flöskuna. Innan um blöð sem troðið var í flöskuna til uppfyllingar var bréf frá Þjóðverja sem var á ferð fyrir skömmu á skemmtiferðaskipinu MS Columbus í Norðurhöfum ásamt teikningu, póstkorti sem stílað er á manninn og fimm evrum fyrir póst- burðargjaldinu. Hann sleppti flöskuskeytinu vest- ur af Horni, ef marka má teikningu hans, hinn 12. júlí. Flaskan fannst á Garðskaga 15 dögum síðar þannig að um er að ræða sannkallað hrað- flöskuskeyti. Stúlkurnar í Garðinum eru ákveðnar í að senda póstkortið sem var í bréfinu til sendanda skeytisins. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Hulda Matthíasdóttir, Sylvía Siggeirsdóttir og Guðrún Þorsteinsdóttir. Hraðflöskuskeyti rak á fjöru við Garðskaga Garður MARK S. Laughton, kafteinn í Bandaríkjaflota, tók í gær við starfi yfirmanns Flotastöðvar varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli af Dean Kiyohara. Flotastöðin er sú deild varnarliðs- ins sem annast rekstur flugvallar- mannvirkja og þjónustustofnana varnarstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli, þar á meðal húsnæði, birgðahald, slökkvilið, tækjabúnað og þjónustu við flugvélar. Yfirmaður flotastöðvarinnar er einskonar bæj- arstjóri varnarstöðvarinnar og starfa flestir íslenskir starfsmenn varnarliðsins á hans vegum. Fráfarandi yfirmaður flotastöðv- arinnar, Dean Kiyohara kafteinn, hefur gegnt starfinu undanfarin tvö ár. Hann tekur nú við stöðu deild- arstjóra í aðalstöðvum Kyrrahafs- flota Bandaríkjanna á Hawaíeyjum. Mark S. Laughton nam við Arizonaháskóla og hlaut meistara- gráðu í þjóðaröryggismálum frá framhaldsskóla Bandaríkjaflota árið 1996. Hann hóf feril sinn sem flug- liðsforingi árið 1981 og hefur starfs- vettvangur hans einkum verið á sviði eftirlits- og kafbátaleitarflugs, þar á meðal sem flugsveitarforingi. Hann hefur auk þess gegnt trúnaðarstörf- um í flotamálaráðuneytinu og und- anfarin þrjú ár starfað í aðalstöðvum sameinuðu bandarísku herstjórn- arinnar í Norfolk í Virginíu. Eiginkona hans er Linda Laugh- ton og eiga þau tvö börn. Bandarísku sjóliðarnir tóku virkan þátt í athöfninni í gærdag enda fór hún fram að dæmigerðum bandarískum sið. Nýr yfir- maður flota- stöðvarinnar Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Viðtakandi og fráfarandi yfirmenn flotastöðvarinnar, Mark S. Laughton og Dean Kiyohara, og fjölskyldur þeirra skáru tertusneið í tilefni skiptanna. Keflavíkurflugvöllur BETUR fór en á horfðist þegar kveikt var í veiðarfærum við fisk- vinnsluhús í Sandgerði í fyrrinótt. Mikinn reyk lagði frá brunanum en slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn áður en hann læsti sig í húsin. Slökkviliðsmönnum brá verulega í brún þegar þeir voru kallaðir út klukkan hálf fjögur í fyrrinótt. Þá var mikill eldur í plastkörfum og trollveiðarfærum við fiskvinnsluhús að Strandgötu 8. Svo mikinn reyk lagði frá eldinum að slökkviliðs- mennirnir héldu að kviknað væri í húsunum. Svo reyndist ekki vera og gekk þeim greiðlega að slökkva eld- inn. Reynir Sveinsson, slökkviliðs- stjóri í Sandgerði, telur allar líkur á að kveikt hafi verið í því mikið af ný- legum dagblöðum var á brunastað, væntanlega úr blaðagámi bæjarbúa sem er þarna skammt frá. Er þetta í annað sinn á tveimur ár- um sem slökkviliðið fæst við bruna á þessum stað. Reynir segir mikilvægt að menn skilji ekki eftir fiskiker eða veiðarfæri við hús til þess að minnka hættuna á tjóni á mannvirkjum. Get- ur hann þess að í þessu tilviki hafi körfurnar og veiðarfærin verið sex metra frá fiskvinnsluhúsunum en samt hafi hiti verið kominn í útveggi þeirra áður en eldurinn var slökktur. Kveikt í veiðarfærum við fiskvinnsluhús Hiti var kominn í útveggi Sandgerði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.