Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 51 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú átt mjög auðvelt með að laga þig að breyttum að- stæðum. Þú hefur miklar gáfur til að bera og býrð yfir töluverðum húmor. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Staða himintunglanna gerir það að verkum að þú þarft að sýna öðrum sérstaka þol- inmæði í dag. Naut (20. apríl - 20. maí)  Gefðu þér tíma til þess að skipuleggja heimili þitt í dag. Þú munt njóta þess mun betur að dvelja heima- fyrir þegar þú hefur lokið þessu af. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Gerðu eitthvað sem gleður þig í dag. Það er í góðu lagi að haga sér eins og barn endrum og sinnum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Innkaup fyrir fjölskylduna eða heimilið munu gleðja þig í dag. Reyndu að finna ein- hvern hlut sem mun fegra heimili þitt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú hefur mikla löngun til þess að hafa samskipti við aðra í dag. Það væri ekki úr vegi að heimsækja vin, eða sækja fjölfarna staði. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Nú er tilvalið að versla fyrir ástvini. Hvaðeina sem við- kemur nútímalegri heilsu- rækt mun vekja áhuga hjá þér. Sýndu þor og fjárfestu í einhverju framandi. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur þó nokkra yfirburði í dag. Það orsakast af stöðu himintunglanna. Ekki hika við að biðja um það sem þú vilt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú kemur afskaplega vel fyrir í dag og sýnir af þér mikinn þokka. Þú skynjar það að aðrir bera í kjölfarið meiri væntingar til þín. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Kvenkyns vinur þinn gæti gefið þér nytsamleg ráð í dag. Reyndu að kunna að meta það sem þér er boðið. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú getur ekki búist við því að einhver reyni að létta undir með þér í dag. Þú verður að gera hlutina upp á þitt einsdæmi. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Reyndu að fá einhvern til þess að taka þátt í litlu æv- intýri með þér í dag. Þig hungrar í þekkingu og breytt umhverfi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Aukið álag í vinnunni gæti komið niður á þér seinna. Reyndu því að fá einhverja hreyfingu í dag og slaka á. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÚR ÍSLANDSLJÓÐI Ég ann þínum mætti í orði þungu, ég ann þínum leik í hálfum svörum, grætandi mál á grátins tungu, gleðimál í ljúfum kjörum. Ég elska þig, málið undurfríða, og undrandi krýp að lindum þínum. Ég hlýði á óminn bitra, blíða, brimhljóð af sálaröldum mínum. Einar Benediktsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 80 ÁRA afmæli. Jak-obína Stefánsdóttir útgerðarmaður á Akureyri verður áttræð 4. ágúst. Jak- obína og eiginmaður hennar Haraldur Ringsted verða með heitt á könnunni sunnu- daginn 3. ágúst á heimili sínu Hjallalundi 20, íbúð 205. 70 ÁRA afmæli. SignaH. Hallsdóttir, Núpasíðu 2B, verður sjötug mánudaginn 4. ágúst. Hún og eiginmaður hennar Gunnlaugur Búi Sveinsson verða að heiman á afmælis- daginn. TROMPBRAGÐ og framhjáhlaup eru þekktar tæknibrellur í tromplitnum. Einstaka sinnum renna þessar brellur saman í eina og mynda tignarlegt sjón- arspil: Norður ♠ K864 ♥ KDG ♦ ÁD64 ♣Á3 Vestur Austur ♠ Á107532 ♠ D109 ♥ 4 ♥ 10973 ♦ 109 ♦ G8532 ♣D1064 ♣9 Suður ♠ -- ♥ Á8652 ♦ K7 ♣KG8752 Suður verður sagnhafi í sex hjörtum og fær út tíg- ultíu. Frá bæjardyrum sagnhafa, sem sér aðeins tvær hendur, er eðlilegasta byrjunin að taka slaginn í borði og spila laufinu. Hann tekur því laufás í öðrum slag og spilar laufi að kóngnum. Austur hugsar sig aðeins um, en hendir svo tígli. Lauflegan setur strik í reikninginn, en er ekki óyf- irstíganleg ef trompið liggur vel. En það er grunsamlegt að austur skuli ekki trompa og sennilegasta skýringin er sú að hann sé með lengd í hjarta. Fimmlit er aldrei hægt að ráða við, en kannski fjórlit. Sagnhafi ákveður að spila upp á þá legu og legg- ur niður tígulkóng. Spilar svo trompi á blindan og tek- ur tígulásinn. Þegar vestur hendir spaða í þann slag er spilið sem opin bók. Sagnhafi trompar nú tví- vegis spaða og lauf til skipt- is og endar í borði í þessari stöðu: Norður ♠ K8 ♥ -- ♦ 6 ♣-- Vestur Austur ♠ Á107 ♠ -- ♥ -- ♥ 1097 ♦ -- ♦ -- ♣-- ♣-- Suður ♠ -- ♥ Á8 ♦ -- ♣G Vörnin hefur enn ekki fengið slag svo sagnhafi vinnur spilið ef hann fær á hjartaáttuna. Hann spilar einhverju úr borði. Þetta er framhjáhlaupsstaða, því ef austur trompar lágt verður áttan slagur strax. En aust- ur stingur auðvitað upp hjartaníu. Þá hendir suður laufi og fær tvo síðustu slag- ina á Á8 með trompbragði. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 80 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 4. ágúst verð- ur Guðmundur Kristleifs- son, Rofabæ 47, áttræður. Hann og kona hans, Erla Bótólfsdóttir, ætla að eyða deginum saman ásamt börn- um sínum, tengdabörnum, barnabörnum og barna- barnabörnum. Þess má geta að dóttursonur hans verður skírður þennan dag. 40 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 4. ágúst verð- ur fertug Rannveig Eyþórs- dóttir, hún og eiginmaður hennar Sigurður Guðnason blása til veislu á heimili sínu Brekkugötu 17, Vogum, sunnudaginn 3. ágúst frá kl. 19 og þau vonast til að sjá sem flesta. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Be7 4. Rgf3 Rf6 5. Bd3 c5 6. exd5 Dxd5 7. dxc5 Rbd7 8. Rb3 Rxc5 9. Rxc5 Dxc5 10. De2 0–0 11. Be3 Da5+ 12. Bd2 Dd5 13. c4 Dh5 14. 0–0–0 b5 15. cxb5 Bb7 16. Kb1 Hfd8 17. Ka1 Bxf3 18. gxf3 Rd5 19. Be4 Hab8 20. Ba5 Rf4 21. De3 Dxb5 22. Bc3 Hdc8 23. Hhg1 Rg6 24. Hd2 Bc5 25. De2 Dxe2 26. Hxe2 Hd8 27. h4 Bd4 28. Bxd4 Hxd4 29. h5 Rf4 30. Hc2 Rxh5 31. Hc7 Rf6 32. Hxa7 Rxe4 33. fxe4 Hxe4 34. Hc7 h5 35. Hc5 He2 36. b3 h4 37. Hh5 Hb4 38. Hh1 Hxf2 39. H5xh4 Hxh4 40. Hxh4 f5 41. a4 g5 42. Hh5 g4 43. a5 Kf7 44. a6 Hd2 45. Hh8 g3 46. a7 g2 47. Hg8 Kxg8 48. a8=D+ Kf7 49. Da7+ Kf6 50. Dg1 f4 51. Kb1 f3 52. Kc1 He2 53. Dd4+ e5 54. Dh4+ Kf5 55. Dg3 Staðan kom upp í A-flokki skákhátíðarinnar í Pard- ubice í Tékklandi. Leonid Totsky (2.505) hafði svart gegn Jóni Viktori Gunn- arssyni (2.411). 55. ...g1=D+! 56. Dxg1 f2 og hvítur gafst upp. Fram að þessum ósigri í sjöundu um- ferð hafði Jón átt frábært mót og átti góða möguleika á að ná stórmeistaraáfanga en vonir um slíkt slokknuðu endanlega þegar hann beið einnig í lægri hlut í áttundu og næstsíðustu umferð. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. vinnupallar Sala - leiga Sími 577 2050 · Fax 577 2055 · GSM 824 2050 · www.formaco.is www.merkur.is 594 6000 Skútuvog i 12a RAFSTÖÐVAR Vandað hljóðeinangrað hús Stór eldsneytistankur Til afgreiðslu strax F.G. Wilson XD 200D Fullkomin tafla og tenglabúnaður Útvegum allar stærðir og gerðir rafstöðva til sjós og lands. 200kvA/160kW MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Hörkukeppni í bikarnum Það er lokið a.m.k. þremur leikj- um í þriðju umferð bikarkeppni Bridssambandsins og var hörkubar- átta í þeim öllum. Suðurnesjamenn fóru norður til Akureyrar um miðja vikuna og spiluðu gegn Norðangarra. Leikur- inn var í járnum allan tímann og dæmigerður bikarleikur þar sem þrjú spil af 40 féllu. Sunnanmenn höfðu nauma forystu allan leikinn en aðeins munaði þremur impum fyrir síðustu lotuna. Suðurnesjamenn voru svo sterkari í lokalotunni og unnu leikinn 119-100. Ógæfumenn spiluðu einnig í vik- unni við sveit Aðalsteins Sveinssonar og þar skildu aðeins fjórir impar en lokatölur voru 116-112. Þá er sveit Sparisjóðs Siglufjarð- ar og Mýrarsýslu komin í 8 liða úr- slit en sveitin vann sveit Skagans með 68 gegn 54. Föstudagsbrids í Gjábakka Það var góðmennt í Gjábakkanum 18. júlí sl. en þá mættu aðeins 12 pör til keppni. Það lifnaði hins vegar yfir 25. júlíen þá mættu 22 pör. Lokastaðan í N/S sl. föstudag: Ragnar Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 239 Eysteinn Einarss. – Magnús Halldórss. 233 Lokastaðan í A/V: Oddur Jónsson – Katarinus Jónsson 272 Björn E. Péturss. – Sigtr. Ellertsson 237 Lokastaðan í N/S 18. júlí: Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 116 Hörður Davíðsson – Oddur Jónsson 115 Og í A/V urðu þessi pör efst: Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 122 Halla Ólafsd. – Jón Lárusson 103 Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Suðurnesjamenn fóru norður í vikunni og spiluðu við sveit Norðangarra. Leiknum lauk með sigri Suðurnesjamanna, 119-100. Talið frá vinstri: Björn Þorláksson, Garðar Garðarsson, Reynir Helgason og Óli Þór Kjartansson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.