Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ SÖKUÐ UM SAMRÁÐ Í frumskýrslu Samkeppnisstofn- unar um meint samráð trygginga- félaganna í bifreiðatryggingum er komist að þeirri niðurstöðu að tryggingafélögin hafi haft með sér víðtækt samráð um iðgjöld í öku- tækjatryggingum um langt árabil. Hvert tryggingafélagið um sig vísar þessum ásökunum á bug. Fleiri bílar norður Fleiri ferðalangar stefna á bílum sínum norður um þessa versl- unarmannahelgi. Í gærkvöldi höfðu 14.500 bílar farið um Kjalarnes en 9.500 yfir Hellisheiði. Mikil stemn- ing var á BSÍ og Reykjavíkur- flugvelli í gær og voru flest ung- mennin á leið til Vestmannaeyja eða í Galtalæk. Hersjúkrahús sprengt Bílsprengja sprakk fyrir utan rússneskt hersjúkrahús nærri Tétsníu í gær. Sprengingin var það öflug að byggingin eyðilagðist og að minnsta kosti 22 létu lífið og 69 særðust. Enginn hafði lýst ábyrgð á tilræðinu á hendur sér í gærkvöld en tétsneskir uppreisnarmenn hafa á síðustu mánuðum staðið fyrir hrinu slíkra árása á rússnesk skotmörk. Blair mun bera vitni Hutton lávarður, dómarinn sem stjórnar rannsókn á dauða brezka efnavopnasérfræðingsins David Kelly, hefur hafið rannsóknina og staðfesti í gær að Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, yrði beð- inn að bera vitni, ásamt Geoff Hoon varnarmálaráðherra, Alastair Campbell almannatengslastjóra stjórnarinnar og fleiri. L a u g a r d a g u r 2. á g ú s t ˜ 2 0 0 3 Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 32 Viðskipti 14/15 Viðhorf 36 Erlent 16/17 Þjónusta 62 Höfuðborgin 18/19 Minningar 36/42 Akureyri 20 Messur 42 Suðurnes 21 Myndasögur 48 Árborg 22 Bréf 48 Landið 23 Dagbók 50/51 Heilsa 37 Íþróttir 52/53 Neytendur 25 Fólk 53/61 Listir 26 Ljósvakamiðlar 62 Umræðan 28/29 Veður 63 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgir aug- lýsingabæklingurinn „Vetrarævintýri Heimsferða“. Blaðinu verður dreift um allt land. SKIP Hafrannsóknastofnunar, Bjarni Sæmundsson, kom í gær- morgun úr rannsóknarleiðangri fyrir Norðurlandi. Í leiðangrinum var kannað hvort olíugas væri að finna á svæðinu og fundust greini- legar vísbendingar um gasmettuð setlög á botni Skjálfanda ásamt gasuppstreymi á Húsavík-Flateyj- armisgenginu. Vitað er að þykk setlög eru á hafsbotni allt frá Öx- arfirði vestur í Eyjafjarðarál og sýnt hefur verið fram á að olíugas myndast innan hins svokallaða Tjörnesbrotabeltis. Í rannsóknar- stofu hefur verið sýnt fram á að surtarbrandurinn í Tjörnessetlög- unum getur við réttar aðstæður og hita myndað bæði olíu og gas af sama tagi og fundist hefur í Öx- arfirði. Í leiðangrinum tókst í fyrsta sinn að ná ljósmyndum af hafs- botni svæðisins og á þeim koma fram sterkar vísbendingar um gas- uppstreymi. Ekki er hægt að segja með vissu hvers konar gas er á ferðinni en margt bendir til þess að um þroskað olíugas sé að ræða. Sýni sem tekin voru verða nú send til Noregs til nánari rannsóknar og er niðurstöðu að vænta eftir um sex mánuði. Bjarni Richter hjá Ís- lenskum orkurannsóknum segir að ef svo færi að olía fyndist á svæð- inu væri hún í miklu magni enda gasuppstreymi á mörgum stöðum. Hins vegar er ekki víst að þakberg þeirra svæða sem fundust sé nægj- anlega heillegt þannig að mörg þeirra leka. Rannsóknir á botni Skjálfanda koma í kjölfar borana í Öxarfirði sem bentu til þess að olíu og gas væri þar að finna. Eftir boranirnar í Öxarfirði fékk iðnaðarráðuneytið breskan sérfræðing frá Statoil-fé- laginu til að meta gögn um gas eða olíu í setlögunum og hvaða líkur væru á því að vinnanlegt magn væri fyrir hendi. Út frá þeim gögnum sem til voru á þeim tíma taldi sérfræðing- urinn að líkur á vinnanlegu magni væru um 12% en til að vekja áhuga olíufélaganna á að hefja rannsóknarboranir er talið að lík- urnar þurfi að vera um 50%. Að mati Bjarna hafa líkur þess að olía finnist aukist þótt þær séu ekki orðnar nægar til þess að fá olíu- leitarfyrirtæki til að koma og hefja boranir. Fyrirhugaðar eru frekari rann- sóknir á svæðinu, m.a. kortlagning gassvæða í Öxarfirði og Eyjafjarð- arál og sýnataka af gasuppstreymi á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. Vísbendingar finnast um gasmettuð setlög á botni Skjálfandaflóa Auknar líkur eru taldar á að olía finnist                   Vonir standa til að olíu sé að finna á Tjörnesbrotabeltinu sem markast af Húsavíkur-Flateyjar-misgenginu og Eyjafjarðarál í suðvestri og Grímsey í norðri. Á skyggðu flötunum má sjá þá staði í Skjálfanda sem Bjarni Sæ- mundsson kannaði í júlí og fann vísbendingar um gasuppstreymi úr setlögum. Morgunblaðið/Arnaldur Bjarni Richter hjá Íslenskum orkurannsóknum fer yfir niðurstöður úr leið- angrinum ásamt erlendum vísindamönnum sem þátt tóku í leiðangrinum. TVEIR menn á bíl sem fluttu talsvert af fíkniefnum urðu skelkaðir þegar þeir sáu lög- reglubíl í grennd við Akranes á miðvikudags- kvöld og þorðu ekki annað en að kasta efn- unum út um glugga á bílnum. Lögreglu- mennirnir urðu á hinn bóginn einskis varir og það var vegfarandi sem tilkynnti um þau í vegarkantinum skömmu síðar. Um var að ræða 218 e-töflur og 50 grömm af hassi. Sölu- verðmæti þeirra er um hálf milljón króna. Jón S. Ólason, yfirlögregluþjónn á Akra- nesi, segir að lögregla hafi þegar farið á stað- inn og fjarlægt efnin en síðan fylgst með staðnum úr leyni. Ekki leið á löngu þar til mennirnir tveir sneru við og voru þeir hand- teknir þar sem þeir leituðu að efnunum. Í kjölfarið voru tveir menn til viðbótar handteknir og reyndust þeir höfuðpaurar málsins. Annar útvegaði efnin en hinn átti að flytja þau til Vestmannaeyja og selja þau þar. Málið telst upplýst. Köstuðu efnun- um út um glugga ÓHÆTT er að segja að óvenjulega margir stórlaxar, þ.e.a.s. laxar frá 20 pundum og upp í 25–26 pund, hafi veiðst í íslenskum ám það sem af er, ef miðað er við síðustu sumur. Mörgum þeirra hefur verið sleppt, enda vakning í gangi í þá veru að gefa stærri löxum líf til að fleiri stórlaxar hrygni að hausti, og hirða frekar þá smærri sem eru hvort eð er betri matfiskar. Á meðfylgjandi mynd er Bjarni Þórður Bjarnason að gefa 100 sm laxi líf. Laxinn var áætlaður 20 pund samkvæmt þumalputtareglu um samspil lengdar og þyngdar. Bjarni veiddi laxinn á Mjósundi í Laxá í Að- aldal á fluguna Draumadís númer 10. Laxinn barðist hatrammlega í 75 mínútur og var landað aðeins 20 metrum ofan fossbrúnar Æðarfossa. Með Bjarna, sem er til vinstri á myndinni, eru veiðibræðurnir húsvísku, Pétur og Þórður Péturs- synir. Morgunblaðið/Stefán Bjarnason Stórlaxi gefið líf í Laxá FRÁDRÁTTUR frá tekjuskattsstofnivegna hlutabréfakaupa nam 636 milljónum kr. á árinu 2002. Er það lækkun um 22,7% frá árinu áður, að því er fram kemur á heimasíðu Ríkisskattstjóra. Sá hópur sem nýtt hefur sér þennan afslátt hefur farið sí- fellt minnkandi undanfarin ár. Um 5.500 manns nýttu sér þennan afslátt árið 2002 en um 7.800 árið 2001. Til sam- anburðar nýttu 15.100 einstaklingar sér þennan afslátt árið 2000 og 20 til 21.000 árið 1998 og 1999. Sífellt færri nýta sér skattafslátt ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.