Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 20
AKUREYRI 20 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Reykjavík, Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri, Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri og í Radíovinnustofunni Kaupangi Akureyri. Verð kr. 200 FIMMTÍU íslenskar rósategundir eru til sýnis á árlegri rósasýningu Blómabúðar Akureyrar , sem stendur yfir um verslunarmanna- helgina. Sýningin hefur jafnan vak- ið mikla athygli og hafa fjölmargir gestir lagt leið sína í verslunina til að skoða og taka þátt í samkeppni um fallegustu rósina. Á mánudag verða nöfn þriggja þátttakenda í samkeppninni dregin út og fá hinir heppnu fallegan vönd í vinning. Morgunblaðið/Kristján Fimmtíu rósategundir á sýningu FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ sendi álit til Akureyrarbæjar í apríl sl., sem er tilkomið vegna stjórn- sýslukæru sem íbúar við Melateig á Akureyri stóðu að á hendur Akureyr- arkaupstað. Íbúar Melateigs kröfð- ust annars vegar ógildingar á synjun bæjarráðs Akureyrar um endurskoð- un á álagningu gatnagerðargjalds við götuna og hins vegar á höfnun bæjar- ráðs um endurskoðun á skipulagi svæðisins. Í áliti ráðuneytisins kemur m.a. fram að það hafi verið heimilt að fela lóðarhöfum við Melateig gatnagerð á lóðinni. En að ákvörðun um að und- anskilja sig eignarhaldi á götumann- virkjum þar, sé að verulegu leyti í ósamræmi við lög. Í ljósi eðlis gatna- gerðargjalds sem þjónustugjalds hafi verið óheimilt að innheimta fullt gatnagerðargjald af lóðarhafa Mela- teigs en láta hann engu að síður ann- ast alla gatnagerð á lóðinni á eigin kostnað. Því hafi átt að veita lóðar- hafa afslátt af gatnagerð sem næst þeirri fjárhæð sem sveitarfélagið sparaði sér. Það er eðlilegra að af- marka lóðir fyrir hvert fjölbýlishús og skilgreina sérstaklega svæði undir götur, gangstéttir, bílastæði, opin svæði og önnur svæði sem fyrir hendi geta verið í slíkum hverfum. Slíkt fyrirkomulag er mun heppilegra með hliðsjón af hagsmunum íbúa götunn- ar. Bragi Halldórsson, ritari hús- félagsins sagði að íbúar við götuna væru orðnir langþreyttir á biðinni. „Akureyrarbær er að vinna í því að gera einhverja tillögu. Hálfum mán- uði eftir að þeir fengu álitið í hendur, 8. maí sl., fól bæjarráð bæjarlög- manni og sviðsstjóra tækni- og um- hverfisdeildar að vinna að úrlausn málsins á grundvelli álitsins og átti að hraða þeirri vinnu sem kostur væri. Við fengum síðan bréf frá bæjarlög- manni, en þar stendur m.a. að hafnar væru viðræður við félagsmálaráðu- neytið og skipulagsstofnun með hlið- sjón af kröfum hagsmunafélagsins í Melateig. Við gátum ekki litið öðru- vísi á en að það ætti að afgreiða málið, án þess að tala við okkur. Því skrif- uðum við bréf til bæjarins og félags- málaráðuneytisins, 27. maí, þar sem við lýstum því yfir að stjórnin hefði ekki afhent umboð til að fara með okkar mál og að við vildum vera með í ráðum. Sama dag og bréfið var sent komu hingað norður menn frá ráðu- neytinu, lögmaður skipulagsstofnun- ar og lögfræðingur Sambands ís- lenskra sveitarfélaga til fundar við bæinn. Við vorum ekki boðuð á fund- inn og því gátum við ekki komið okk- ar sjónarmiðum fram.“ Bragi sagði að eftir þann fund hefðu þau verið boðuð á fund hjá bænum þar sem þeim var tilkynnt að þeir myndu taka smápart af svæðinu en við sögðum það enga lausn og þannig stendur málið í dag. „Bæjar- ráð tók bréfið okkar fyrir þann 12. júní sl. og þar var bókað að ráðið vænti þess að sem fyrst verði unnt að kynna stjórn félagsins hugmyndir Akureyrarbæjar að lausn málsins og fól sínum mönnum að svara okkur. Síðan hefur ekkert gerst og okkur þykir seinagangurinn vera með ein- dæmum,“ sagði Bragi. Ármann Jóhannesson, sviðstjóri tækni- og umhverfissviðs Akureyrar- bæjar, sagði að unnið væri að málinu. „Niðurstaða verður að koma í málinu en ég get ekki sagt til um hvenær hún kemur. Svona mál leysast ekki einn, tveir og þrír,“ sagði Ármann. Með lóðarleigusamningi í desem- ber 1999 var Byggingarfélaginu Hyrnunni ehf. úthlutað byggingarlóð við Melateig, í samræmi við aðal- og deiliskipulag Akureyrarkaupstaðar. Lóðinni var úthlutað sem einni óskiptri lóð, samtals 20.026 fermetr- ar að flatarmáli og voru lóðarleigu- skilmálar þeir að Akureyrarkaup- staður annaðist tengingu lóðarinnar við gatnakerfi bæjarins, en að öðru leyti annaðist Hyrna alla gatnagerð sem og lagningu gangstétta, skólp- lagna og niðurfalla ásamt frágangi opinna svæða. Samkvæmt fyrrnefnd- um skilmálum ber eigendum gatn- anna einnig að annast allt viðhald þeirra. Hyrna greiddi gatnagerðar- gjald vegna íbúða við götuna í sam- ræmi við gjaldskrá Akureyrarkaup- staðar. 23. nóvember 2001 fóru eigendur fasteigna við Melateig fram á það að bæjarsjóður endurgreiddi íbúum 92,7% af greiddu gatnagerðargjaldi. Byggðist krafa málshefjenda á þeim forsendum að lóðarhafi við Melateig hafi greitt fullt gatnagerðargjald auk þess sem lóðarhafa hafi verið gert að sjá alfarið um gatnagerð við götuna. Síðar kröfðust málshefjendur 100% endurgreiðslu gatnagerðargjalds og var þess enn fremur krafist að bær- inn tæki yfir götumannvirki, gang- stéttir, götulýsingu og opin gras- svæði við götuna, léti breyta eignaskiptayfirlýsingum í samræmi við það og gæfi út lóðarleigusamning fyrir hvert hús. Á fundi bæjarráðs hinn 6. desember 2001 var erindi málshefjenda hafnað. Í kjölfarið kröfðust málshefjendur frekari rök- stuðnings fyrir afstöðu bæjarráðs auk þess sem málshefjendur komu á framfæri frekari skýringum varðandi afstöðu sína. Á fundi bæjarráðs, er haldinn var 7. febrúar 2002, var bæj- arlögmanni Akureyrarkaupstaðar og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs falið að fara yfir framkomnar kröfu- gerðir og leggja greinargerð um mál- ið fyrir bæjarráð sem grundvöll ákvörðunar. Með bréfi, dags. 25. febrúar 2002, var afstaða bæjarráðs tilkynnt kær- endum þar sem kröfum þeirra var hafnað. Í kjölfarið var send inn kæra til félagsmálaráðuneytisins. Skipulag gatnagerðar í Melateig í ósamræmi við lög BEINT flug Grænlandsflugs milli Akureyrar og Kaupmannahafnar er í hættu, ef félagið fær ekki flug- rekstrarleyfi til lengri tíma en nú er. Til að það geti orðið verður nýr loftferðasamningur við Dani um flug til Færeyja og Grænlands að vera frágenginn í september Allir helstu aðilar í ferðaþjónustu á norðurlöndum munu kynna starf- semi sína og áætlanir á Vestnorden sem er árleg ferðakaupstefna sem Ferðamálaráð Íslands, Grænlands og Færeyja hafa staðið að síðast- liðin 20 ár. Kaupstefnurnar eru haldnar til skiptis í löndunum þremur. Næsta Vestnorden-kaup- stefnan verður haldin í Færeyjum 16.–17. september 2003. Græn- landsflug þarf á þeirri ráðstefnu að geta sagt til um hvort félagið verði með áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar næsta sumar eða ekki, samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu Atvinnuþróun- arfélags Eyjafjarðar. Kaupmannahafnarflug í hættu Þörf á nýjum loft- ferðasamningi TVÆR ungar stúlkur voru fluttar á slysadeild FSA eftir harðan árekst- ur á gatnamótum Smárahlíðar og Skarðshlíðar á Akureyri í hádeginu í gær. Beita þurfti klippum til að ná annarri stúlkunni út en hún var öku- maður annars bílsins. Hinn ökumað- urinn, sem var einn í bílnum, slapp ómeiddur. Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru meiðsl stúlknanna ekki talin mjög alvarleg. Bílarnir eru báðir mikið skemmdir, ef ekki ónýtir og draga þurfti þá báða af vettvangi með dráttarbíl. Harður árekstur í Skarðshlíð Morgunblaðið/Kristján Beita þurfti klippum til að ná ökumanni annars bílsins út. UNDANFARIÐ hafa staðið yfir endurbætur á aðstöðu Ísnets á Ak- ureyri. Byrjað var á að fullkomna víraverkstæði félagsins, aðstaða á netalofti bætt til muna, aðstaða starfsmanna löguð og komið var upp verslunaraðstöðu fyrir ýmsar vörur sem tengjast útgerðinni. Með- al þess sem verður á boðstólum í nýju sjóbúðinni eru vettlingar og sjófatnaður, handfæravörur, silunganet, goggar, skóflur og verk- færi, björgunar- og öryggisvörur og fleira. Ætlunin er að ísnet á Akur- eyri verði með á lager eða geti út- vegað með stuttum fyrirvara allar útgerðarvörur, sem móðurfyrirtæk- ið Ísfell býður upp á, segir í frétta- tilkynningu. Ný sjóbúð UMHVERFISRÁÐ Akureyrar hef- ur samþykkt að leggja dagsektir á húseiganda í Helgamagrastræti 10, þar sem hann hefur ekki orðið við margítrekuðum fyrirmælum ráðsins og ekki staðið við þá fresti sem gefnir hafa verið til að ljúka endurbótum og lagfæringum á húsinu í samræmi við samþykktar teikningar og gildandi burðarþolsstaðla. Sektarfjárhæð er 10.000 krónur á sólarhring, sem lögð verður á húseigandann frá 1. septem- ber og til verkloka, hafi umræddum framkvæmdum ekki verið að fullu lokið fyrir þann tíma. Húseigandinn hafði fengið frest til að ljúka áðurnefndum framkvæmd- um á húsinu til 1. júlí sl. en við úttekt sem starfsmenn byggingareftirlits gerðu á fasteigninni hinn 17. júlí sl. kom í ljós að húseigandi hafði ekki orðið við þeim fyrirmælum. Forsaga málsins er sú að byggingarnefnd samþykkti í apríl árið 2000 að eigend- ur hússins við Helgamagrastræti 10 skyldu rífa húseignir á lóð sinni en fyrir þeim skorti byggingarleyfi. Samtals var um að ræða 100 fer- metra. Húseigendur kærðu þessa ákvörð- un til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. Nefndin skilaði áliti sínu í september árið 2000 og felldi samþykkt byggingarnefndar úr gildi. Úrskurðarnefnd skipulags- og bygg- ingarmála lagði fyrir byggingarnefnd að taka umsókn eigenda um bygging- arleyfi til meðferðar að nýju og ljúka afgreiðslu hennar. Á fundi umhverfis- ráðs í febrúar 2001 var svo samþykkt að gefa húseigendunum frest fram yf- ir miðjan apríl sama ár til þess að skila inn aðalteikningum af húsinu. Í byrjun þessa árs var svo húseiganda veittur frestur til 1. júlí til þess að ljúka endurbótum og lagfæringum á húsinu. Þar sem hann hefur ekki orð- ið við þeim fyrirmælum samþykkti umhverfisráð nýlega að leggja á hann dagsektir frá og með næstu mánaða- mótum. Endurbótum og lagfæringum á Helgamagrastræti 10 ólokið Samþykkt að leggja dagsektir á húseigandann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.