Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI – leiðandi í lausnum Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001 GEORG Ólafsson, forstjóri Sam- keppnisstofnunar, segir að niður- stöðu rannsóknar stofnunarinnar á meintu ólöglegu samráði trygginga- félaganna, sé að vænta innan fárra mánaða. Hann segir rannsóknina hafa dregist af ýmsum ástæðum og þykir miður að hún skyldi hafa tekið svo langan tíma sem raun ber vitni. „Ég dreg ekki úr því að þetta er stíl- brot hjá okkur en á hinn bóginn er það alls ekki óþekkt í löndunum í kringum okkur,“ útskýrir hann. Georg tekur ennfremur fram að þar sem stofnunin sé ekki stór verði hún að forgangsraða málum. Um- rædd rannsókn hafi t.d. ekki verið efst á forgangslistanum, um tíma, m.a. vegna rannsóknar á meintu verðsamráði olíufélaganna. „En við erum að vinna að þessari rannsókn af fullum krafti núna.“ Rannsókn Samkeppnisstofnunar hófst haustið 1997 er stofnunin lagði hald á gögn hjá Sambandi íslenskra tryggingafélaga og Íslenskri endur- tryggingu hf., í kjölfar þess að stofn- uninni höfðu borist vísbendingar um ólögmætt samráð félaganna. Náði rannsóknin til allra tryggingafélaga sem aðild eiga að Sambandi íslenskra tryggingafélaga. Georg minnir á að hluta rannsókn- arinnar hafi lokið árið 1998 með frum- drögum sem urðu til þess að trygg- ingafélög innan Samsteypu íslenskra fiskiskipatrygginga ákváðu að slíta samsteypunni, en í drögunum kom m.a. fram að fyrirkomulagið kynni að stangast á við samkeppnisreglur ESB. Ný atriði voru hins vegar tekin inn í rannsóknina, að sögn Georgs, þegar Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) sendu inn kvörtun til Sam- keppnisstofnunar í júní 1999 vegna breytinga á iðgjöldum trygginga- félaganna árið 1996 þegar FÍB- trygging kom á markaðinn. Sú kvört- un gekk út á það að tryggingafélögin hefðu með ólögmætum hætti niður- greitt bifreiðatryggingar í krafti markaðsráðandi stöðu sinnar til að ryðja samkeppnisaðila af markaðn- um. Tryggingafélögin segja hin meintu brot fyrnd Frumrannsókn lauk síðla árs 2001 og að sögn Georgs fengu trygginga- félögin frumskýrslu til umsagnar í janúar 2002. Andmæli félaganna bár- ust síðan í ágúst og september sama ár, en þá höfðu félögin beðið um frest á frest ofan til þess að skila andmæl- um sínum, segir hann. Þegar Georg er inntur eftir því hvort hann hafi einhverjar áhyggjur af því að meint brot tryggingafélag- anna kunni að vera fyrnd vegna þess hve rannsóknin hafi tekið langan tíma, segir hann: „Ég get ekki lagt mat á það á þessu stigi en það mun verða skoðað við lok málsins.“ Í andmælum allra tryggingafélag- anna er ásökunum í frumskýrslunni mótmælt og auk þess er bent á að komist stofnunin að þeirri niðurstöðu að um brot sé að ræða sé alveg ljóst að hin meintu brot séu fyrnd. Lekinn ekki frá okkur kominn Georg segir að Samkeppnisstofnun hafi verið sökuð um að hafa lekið frumskýrslu stofnunarinnar um olíu- félagsrannsóknina og nú trygginga- félagsrannsóknina í fjölmiðla. „Ýmsir halda að lekinn sé hjá okkur en við höfum farið yfir þetta innan stofnun- arinnar og fullyrðum að hann er ekki frá okkur kominn. Enda er það ekki í þágu okkar rannsóknar að málið fari í fjölmiðla með þessum hætti. Ég bendi á að tugir manna úti í bæ; bæði starfs- menn allra þessara fyrirtækja og margar lögfræðiskrifstofur, hafa ver- ið með þessar skýrslur í höndum; olíufélagsskýrsluna í hálft ár og tryggingafélagsskýrsluna í um eitt og hálft ár.“ Hann tekur þó fram að hann sé út af fyrir sig ekki að ásaka einn eða neinn. „Ég ítreka hins vegar að þetta er alls ekki frá okkur komið enda væri slíkt ekki í okkar þágu.“ Forstjóri Samkeppnisstofnunar um athugun á málefnum tryggingafélaganna Þykir miður hvað rann- sóknin hefur dregist MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út þriðjudaginn 5. ágúst. Fréttaþjón- usta verður alla helgina á mbl.is og er vaktsími hennar 861-7970. Áskriftardeild blaðsins verður opin í dag, laugardag, frá klukkan 6 til 14. Sími hennar er 569-1122. Áskriftar- deildin er lokuð sunnudag og mánu- dag en verður opnuð aftur kl. 6 á þriðjudag. Auglýsingadeild blaðsins verður opin fyrir tilkynningar kl. 13 til 16 á mánudag, frídag verslunarmanna. ANDSPÆNIS þeim válegu atvikum sem urðu í aðdraganda kristnitök- unnar á Þingvöllum árið 1000 var að- eins eitt úrræði að skilningi heiðinna Íslendinga og það var mannblót, seg- ir Jón Hnefill Aðalsteinsson í grein sem birtist í Lesbók í dag. Nokkuð hefur verið deilt um hvort frásögnin af mannblótum á kristnitökuþinginu í Kristni sögu og Ólafs sögu Tryggvasonar ennar mestu séu sannferðugar. Jón Hnefill segir margt benda til að frásögnin sé göm- ul og gild enda sé mannblótið „skóla- dæmi um hárrétt viðbrögð heiðinna manna á örlagaríkri úrslitastund“. Jón Hnefill Aðalsteinsson  Mannblótið/Lesbók Átta mönnum blótað á kristnitöku- þinginu ♦ ♦ ♦ ÁÐUR óprentað kvæði eftir Hjálmar Jónsson frá Bólu um Gretti Ásmund- arson er birt í Lesbók í dag. Kvæðið fann Kristján Runólfs- son safnvörður á Sauðárkróki í handritum Þorsteins Þorsteinssonar frá Heiði. Í handritunum voru tvö áður óþekkt kvæði eftir Bólu-Hjálmar en annað þeirra hefur birst í Skagfirð- ingabók. Í bragnum mærir skáldið Gretti og segir meðal annars: Föður sínum heima hjá hann nam vaxa ungur þar, ódæll þótti ýtum sá, yfrið stór í skapi var. Nýfundið Grettiskvæði Bólu-Hjálmars  Um hreystiverk/Lesbók Hjálmar Jónsson UMFERÐ út úr borginni um mestu ferðahelgi árs- ins gekk vel fyrir sig í gær þegar þúsundir manna héldu út fyrir borgarmörkin á leið í frí. Í gær- kvöldi höfðu 14.500 bílar farið um Kjalarnes á níu klukkustundum og 9.500 bílar yfir Hellisheiði. Lög- reglan var með sérstakt eftirlit með fellihýsum og var tilbúin að kyrrsetja þá bíla sem ekki voru með viðbótarspegla, ef ökumenn vildu ekki kaupa þá á staðnum af umferðarfulltrúum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Talsverð umferð var á vegum í ná- grenni Akureyrar og 600 manns komnir á tvö tjaldsvæði bæjarins í gærkvöldi. Dagurinn gekk vel að sögn lögreglu og sömu sögu var að segja á Ísa- firði, þrátt fyrir þunga umferð og mikinn gesta- fjölda í bænum. Í Vestmannaeyjum voru á milli 7.000 og 8.000 manns í Herjólfsdal í gærkvöld og gekk allt vel að sögn lögreglu, að undanskildum fimm minni háttar fíkniefnamálum sem komu til kasta hennar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Júlíus Ökumönnum voru boðnir viðbótarspeglar til sölu á aftanívagna. Þung umferð var út úr borginni í gær. Þúsundir landsmanna á leið í frí NÝTT kerfi Reiknistofu bankanna (RB) stóðst vel mikið álag sem kom á kerfið seinnipartinn í gær þegar ferðalangar helgarinnar birgðu sig upp af mat og drykk fyrir helgina. Logi Ragnarsson, framkvæmdastjóri Fjölgreiðslumiðlunar, eiganda nýja kerf- isins, segir að þetta nýja kerfi auki rekstraröryggi posakerfanna til mikilla muna: „Það má almennt segja að þetta hafi gengið vel. Það hafa ekki orðið neinir stórkostlegir hnökrar á virkni kerfisins.“ Logi segist vona að það heyri sögunni til að fólk lendi í því að standa með fullar matarkörfur við kassa í verslun og geta svo ekki borgað vegna þess að það eru truflanir í kerfinu. „Það komu upp tilfelli þar sem fólk var stopp í afgreiðslu og komst hvorki lönd né strönd. Vonir standa til þess að með þeim endurbótum sem unnið var að á rafræna greiðslumiðl- unarkerfinu séu þessi vandamál úr sög- unni.“ Mánaðamótin skipta greinilega miklu Örtröð myndaðist í mörgum mat- vöruverslunum og í verslunum ÁTVR í gær þegar ferðalangar keyptu nesti og annan útbúnað fyrir helgina. „Föstudag- urinn fyrir verslunarmannahelgi er einn af stærstu dögunum hjá okkur,“ segir Einar S. Einarsson, deildarstjóri rekstr- ardeilda vínbúða ÁTVR. „Föstudagurinn í ár er ennþá stærri vegna þess að hann er fyrsti dagur mánaðarins að auki. Þetta dreifist oft meira eftir því hvenær mán- aðamótin eru. Í fyrra bar 1. ágúst upp á fimmtudag og þann dag var einnig mikið verslað. Mánaðamótin skipta greinilega miklu og ekki síst þessi þegar fólk fær endurgreitt.“ Verslun í matvörubúðum gekk einnig vel fyrir sig í gær. Nokkrir kaupmenn höfðu áhyggjur af því að brestir yrðu í kerfi Reiknistofu bankanna, en það er talsvert meira að gera þennan dag en á venjulegum föstudegi. Einn af stærstu dögum ársins Örtröð í matvöruverslunum og ÁTVR í gær ♦ ♦ ♦ ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var send í Skáleyjar á Breiðafirði í gær- kvöldi til að sækja innan við árs gam- alt barn sem hafði brennst illa á hönd við að snerta heitan bakarofn. Barn- ið var flutt á Landspítalann í Foss- vogi með áverka á lófa og fingrum annarrar handar. Ekki lá fyrir í gær- kvöldi hversu alvarlegs eðlis meiðsli barnsins voru. Barn brennd- ist á ofni ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.