Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 17 PALESTÍNSK börn sitjandi í skotti bíls sem ekið var um götur Gaza-borgar í gær. Ísraelsk stjórnvöld létu nýverið loka sumarbúðum ísraelskra araba eftir að börn sem dvöldu í búð- unum heyrðust hrópa „við viljum sprengjur“ í frétt ísraelskrar sjón- varpsstöðvar. Var framferði barnanna talið óviðeigandi þar sem það þótti sýna stuðning þeirra við sjálfstæðisbaráttu Palestínu- manna á hernumdu svæðunum. Palestínumenn sem ekki flúðu land þegar Ísrael var stofnað 1948 fengu ríkisborgararétt í hinu nýja ríki en hafa langflestir forðast að taka beinan þátt í baráttu þjóð- bræðra sinna á hernumdu svæð- unum. Reuters Á ferð um Gaza ekki í annað hús að venda og þær væru undir hans vernd í einni af höllum hans. Eiginmenn systranna voru tekn- ir af lífi árið 1996 er þeir sneru aftur til Íraks eftir að hafa flúið land með fjölskyldur sínar ári fyrr og boðið fram aðstoð sína við að steypa Saddam af stóli. Saddam hafði heitið þeim grið- um ef þeir kæmu aftur heim. Sögusagnir voru þá á kreiki um að börn þeirra hefðu einnig verið tek- in af lífi. YFIRVÖLD í Jórdaníu hafa veitt tveimur dætrum Saddams Huss- eins, fyrrverandi Íraksforseta, og níu börnum þeirra hæli í landinu af mannúðarástæðum. Nabil al-Sharif, upplýsingamála- ráðherra Jórdaníu, greindi frá því að Raghad og Rana, dætur Sadd- ams, hefðu komið til landsins frá Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í fyrrakvöld. Hann sagði að Abdullah II Jórd- aníukonungur hefði ákveðið að veita þeim hæli þar sem þær áttu Dætur Saddams fá hæli í Jórdaníu Amman. AP. HUGSANLEGT er að Arnold Schwarzenegger etji kappi við klámkónginn Larry Flynt þegar kosið verður til embættis ríkis- stjóra í Kaliforníu í október. Að- stoðarmenn Schwarzeneggers segja að hann sé enn að íhuga framboð fyrir Repúblikanaflokk- inn þrátt fyrir mótmæli konu sinnar, Maríu Shriver. Flynt, sem er demókrati og af- ar umdeildur vegna hins al- ræmda tímarits síns, Hustlers, sagðist í gær hafa náð sér í um- sóknareyðublöð fyrir framboð. Hann sagðist telja að Kaliforníu- búar væru svo framfarasinnaðir að þeir myndu gjarnan sætta sig við að hafa klámkóng sem leið- toga sinn. „Ég held að þeir sætti sig ekkert illa við að klámsali, sem ekki er sama um hlutina, verði ríkisstjóri þeirra,“ sagði hann. Flynt, sem stefnt hefur verið fyrir hæstarétt Bandaríkj- anna vegna tímaritsins Hustlers, lamaðist árið 1978 eftir að maður skaut hann til að mótmæla klám- blaðinu. Enn er beðið eftir því að Schwarzenegger tilkynni hvort hann ætli í framboð en kona hans, sem er frænka John F. Kennedys, fyrrverandi Banda- ríkjaforseta, sem ráðinn var af dögum, hefur áhyggjur af því að framboð komi illa niður á fjöl- skyldulífi þeirra. Frestur til að tilkynna framboð rennur út 9. ágúst. AP Arnold Schwarzenegger Reuters Larry Flynt Hollywood-stjarna gegn klámkóngi? Los Angeles. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.