Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 15 BRESKA flugfélagið British Airways (BA) tapaði 45 millj- ónum punda eða 5,6 milljörð- um króna fyrir skatta á tíma- bilinu apríl-júní. Félagið hagnaðist um 65 milljarða punda, eða sem nemur um 8,2 milljörðum króna á sama tíma síðasta árs. Tapið nú skýra forsvarsmenn BA með Íraks- stríðinu og bráðalungnabólgu. Þá segir í frétt AFP að mán- aðarlangt verkfall starfsmanna á Heath row, þar sem BA hef- ur aðsetur, hafi tekið sinn toll. Bæði hafi það haft slæmt áhrif á viðskiptavini og á rekstur fé- lagsins. „Við verðum að endur- byggja reksturinn, samband okkar við viðskiptavini og vinna aftur traust okkar fólks,“ er haft eftir Rod Edd- ington forstjóra BA. Flugfélagið hefur sagt upp 11.227 starfsmönnum síðan í ágúst 2001 en samkvæmt áætlunum ætlaði félagið að vera búið að segja upp 13.000 manns til að skera niður kostnað. Yfirmenn BA eru bjartsýnir á framtíðina. „Við erum búin að gera meira en nokkuð annað flugfélag í Evr- ópu á síðustu tveimur árum til að draga úr föstum kostnaði,“ er haft eftir Eddington. Meðal aðgerða sem BA hefur gripið til að er að taka í notkun raf- ræn stimpilkort sem ekki voru áður í notkun. Kortin voru helsta ástæða verkfallsins í sumar en forstjórinn segist sannfærður um að starfsmenn muni venjast þeim með tím- anum. Mettap hjá British Airways HAGNAÐUR olíufélagsins ExxonMobil jókst um 58% á öðrum árs- fjórðungi sé miðað við sama tíma- bil í fyrra og var niðurstaðan nokk- uð umfram væntingar markaðar- ins. Fyrirtækið, sem er hið stærsta sinnar tegundar á almennum hluta- bréfamarkaði, skilaði 4,2 milljarða dollara (320 milljarða króna) hagn- aði á fjórðungnum en hafði árið áð- ur skilað 2,6 milljörðum dollara (200 milljörðum króna). Tekjurnar jukust úr 50,8 í 57,2 milljarða dollara (úr 3.900 í 4.400 milljarða króna) frá fyrra ári. Ástæður þessarar miklu aukn- ingar segir Exxon einkum vera hærra olíu- og gasverð vegna sam- dráttar í heimsframleiðslu. Á fyrri helmingi ársins nemur hagnaður félagsins alls 11,2 millj- örðum dala (860 milljörðum króna) og hefur aukist um 6,5 milljarða dala (500 milljarða króna) frá fyrri hluta ársins 2002. Exxon er þriðja stærsta fyr- irtæki í heimi, samkvæmt úttekt í nýlegu hefti bandaríska viðskipta- tímaritsins Business Week. Hagnaður Exxon vex um 58% SALA dróst saman um 6% á öðrum ársfjórðungi hjá franska fjölmiðla- risanum Vivendi miðað við árið áður. Salan nam 6,1 milljarði evra eða sem nemur um 525 milljörðum króna. Séu fyrstu sex mánuðir ársins skoð- aðir dróst sala saman um 4% frá því í fyrra, nam nú alls 12,4 milljörðum evra eða ríflega 1.000 milljörðum króna, að því er fram kemur í frétt AFP. Inni í þessum tölum er Vivendi Universal Entertainment (VUE), en þann hluta fyrirtækisins hefur Viv- endi-samsteypan auglýst til sölu. Af- koma VUE var lakari en yfirmenn samsteypunnar höfðu gert ráð fyrir en sala á tónlist dróst til að mynda saman um 29% á fyrri helmingi árs- ins miðað við sama tímabil 2002. Kvikmyndafyrirtækið Metro-Gold- wyn-Meyer dró í vikunni tilboð sitt í VUE til baka á þeim forsendum að verðið sem Vivendi setti upp væri of hátt. Vivendi vill fá 14 milljarða dala fyrir VUE, sem er tónlistar- og af- þreyingararmur samsteypunnar, en MGM var reiðubúið að greiða 11,5 milljarða dala eða um 886 milljarða íslenskra króna fyrir. Minni sala hjá Vivendi Sala á tónlist 29% minni á öðrum fjórðungi ársins en á sama tíma í fyrra HAGNAÐUR breska bankans HBOS af rekstri á fyrri helmingi ársins jókst um 21% frá sama tíma í fyrra og nam 1,8 milljörðum punda eða sem nemur um 220 millj- örðum íslenskra króna. Þetta er í takt við áætlanir bankans fyrir ár- ið. HBOS, sem er fjórði stærsti banki á Bretlandi, sagði í fyrradag að útlit í efnahagsmálum færi batn- andi á Bretlandi með lágum vöxtum og veikara pundi. Bankinn spáir því að fasteignaverð muni hækka um ríflega 10%, en hann er sá stærsti í landinu á sviði húsnæðisveðlána. Hagnaður HBOS jókst um 21% Óbreyttir stýrivextir í Evrópu SEÐLABANKINN í Evrópu til- kynnti á fimmtudag að stýrivextir bankans yrðu óbreyttir. Talið er að bankinn vilji gefa sér meiri tíma til að vega og meta horfurnar á uppsveiflu í efnahagslífi álfunnar. Forsvarsmenn bankans hafa sagt að vextir séu nú þegar nægilega lágir til þess að örva viðskiptalífið og efnahagsbata. Stýrivextir Seðlabankans í Evrópu eru 2% og hafa verið síðan í byrjun júní þegar þeir voru lækkaðir um hálft prósent. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.