Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kynni okkar Ástráðs hófust haustið 1963 þegar hann tók við starfi skólastjóra Rétt- arholtsskólans. Við vorum samstarfsmenn á þeim vettvangi þar til hann lét af skólastjórn vorið 1981, eða í tæp tuttugu ár. Síð- ustu árin var ég yfirkennari og sem slíkur hans nánasti aðstoðarmaður við stjórn skólans. Þarf ekki að hafa um það mörg orð en ég tel mig hepp- inn að hafa haft slíkan yfirmann. Ástráður var mjög nákvæmur í sínu starfi og vildi hafa allt í röð og reglu, án þess þó að vera smámuna- samur. Með slíkum mönnum er allt- af gott að vinna. Á stjórnartíma Ást- ráðs náði nemendafjöldi Réttar- holtsskóla hámarki og var það engan veginn létt verk að halda svo um stjórnartaumana að allt gengi snurðulaust fyrir sig. Af sjálfu leiðir að oft komu upp vandamál sem mikla stjórnkænsku þurfti til að leysa. Þegar mikið er í húfi, að allt gangi sem best fyrir sig, þá þarf að sýna festu og halda sig við lög og reglur. Hagur fjöldans verður að vera leiðarljósið. En ég kynntist því vel að Ástráður var mikill mannvin- ur og leitaðist ávallt við að leysa allra vanda, og þótti mér oft mikið til um langlundargeð hans gagnvart böldnum nemendum. Hann var hlýr maður og tók það ákaflega nærri sér ef hann í starfi sínu þurfti að beita hörku. Í sögu Réttarholtsskóla verður þáttur Ástráðs fyrirferðarmikill. Hann stjórnaði skólanum á mótun- artíma hans, en Réttarholtsskólinn var rétt búinn að slíta barnsskónum þegar Ástráður tók þar við stjórn. Eins og oft vill verða þá urðu sam- skipti okkar Ástráðs minni eftir að hann lét af störfum við skólann. En ég á eingöngu góðar minningar frá þeim árum sem við störfuðum sam- an og ég lærði margt af honum sem hefur gagnast mér vel í lífinu. Ingibjörgu og öðrum að- standendum votta ég samúð mína. Gunnar Ásgeirsson, fyrrverandi aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla. Kveðja frá KFUM og KFUK Í dag verður lagður til hinstu hvílu Ástráður Jón Sigursteindórs- son, skólastjóri og einn af forystu- mönnum KFUM og KFUK í ára- tugi. Ástráður kynntist ungur séra Friðriki Friðrikssyni og starfi KFUM. Lífsstarf hans var með ungu fólki. Á námsárum í mennta- skóla gerðist hann leiðtogi í drengja- starfi félagsins og veitti síðar Sunnudagaskóla KFUM forstöðu í þrjá áratugi. Á níræðisaldri lagði hann enn drengjastarfinu lið sem sjálfboðaliði við hlið Þorvalds Sig- urðssonar, tengdasonar síns. Á árunum 1942–1946 starfaði Ást- ráður sem framkvæmdastjóri KFUM við hlið séra Magnúsar Run- ólfssonar í fjarveru séra Friðriks. Seinna sat Ástráður í stjórn KFUM í 18 ár og í aldarfjórðung kenndi hann við Kvöldskóla KFUM. Hann gegndi einnig formennsku í stjórn Skógarmanna KFUM í áratug og sat þar í stjórn í 15 ár. Ástráður var einn af frumkvöðlum Kristilegs stúdentafélags og Bóka- útgáfunnar Lilju og sat um árabil í ritstjórn Bjarma. Hann þýddi nokkrar bækur sem Lilja gaf út og ritstýrði barnablaðinu Ljósberanum í tæpan áratug. Forysta hans og frumkvæði varð til þess að hann var ÁSTRÁÐUR JÓN SIGUR- STEINDÓRSSON ✝ Ástráður JónSigursteindórs- son fæddist í Reykja- vík 10. júní 1915. Hann lést 20. júlí síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Selja- kirkju 31. júlí. árið 1978 valinn fyrsti formaður Landssam- bands KFUM og KFUK á Íslandi og þar starfaði hann einnig sem framkvæmdastjóri um tíma. Alla starfsævi sína var Ástráður mikilvirk- ur ræðumaður á fund- um, námskeiðum og samkomum KFUM og KFUK. Það má með sanni segja að Ástráð- ur hafi verið gjafmildur á vinnu sína fyrir félög- in. Hann vissi að menn koma engu góðu til leiðar nema þeir séu sjálfir virkir þátttakendur. Trygglyndi hans var öðrum til fyr- irmyndar og 17. júní 1995 var hann kjörinn heiðursfélagi í KFUM. Hann var ljúflingur í samskiptum en stóð fastur fyrir þegar það átti við. Hann naut mikillar virðingar fyrir fagmennsku sína og heiðarleika sem varð honum drjúgt veganesti til vegsauka og velfarnaðar á löngum og farsælum starfsferli. Trúin og bænin var það mesta hnoss sem hon- um hlotnaðist um ævina. Góður vinur er kvaddur með þakklæti og söknuði. Guð blessi eftirlifandi eiginkonu og ástvini alla. Kveðja úr Vatnaskógi Ástráður Sigursteindórsson var formaður Skógarmanna KFUM frá 1936–1947 og varaformaður 1947– 1951. Í Vatnaskógi var hann drif- fjöður og fyrirliði og Skógarmenn eiga honum mikið að þakka. Ástráð- ur var sæmdur gullmerki Skógar- manna við vígslu Birkiskála hinn 2. júlí 1999. Hún er ógleymanleg, ljósmyndin sem tekin var af honum hinn 5. ágúst 1939, þegar hann tók fyrstu skóflustunguna að Gamla skálanum. Aðeins fjórum árum síðar, í miðri seinni heimsstyrjöldinni þegar skortur á byggingarefni var mikill, var þetta stóra hús tekið í notkun. Þvílíkt afrek! Gamli skálinn var ekki bara þak yfir höfuð þeirra sem í Vatnaskóg komu; húsið mótaði, þroskaði og efldi starfið á staðnum. Það gerði Ástráður einnig. Skógarmenn minnast fallins for- ingja með miklu þakklæti og biðja fjölskyldu hans Guðs blessunar. F.h. Skógarmanna KFUM, Ólafur Sverrisson. Við Ástráður bjuggum í sama húsi og deildum sama garðinum í yfir 20 ár. Og þótt okkur kæmi ekki alltaf saman um nýtingu garðsins þá bar ég ómælda virðingu fyrir Ástráði og þótti vænt um hann. Hann var eins og náinn föðurbróðir enda einn af nánustu samverkamönnum föður míns og vinum. Sem barn vildi ég gera garðinn okkar við Sigtún 29 að fótboltavelli eða leikvelli en hann vildi gera hann að skrúðgarði. Ástráður hafði betur og sannarlega var garðurinn flottur. Fyrir sex árum keyptum við hjón- in íbúðina góðu í Sigtúni 29 sem Ást- ráður og Ingibjörg bjuggu í í yfir 40 ár. Þar er góður andi, þar er gott að búa. Margar minningar úr æsku minni tengjast þeim Ástráði og Imbu, svo samofin voru þau uppvexti mínum og tilveru. Kynnin og minningarnar hafa þroskað mig og kennt mér margt. Eitt af því sem upp úr stendur eru ferðir mínar með honum í sunnu- dagaskóla KFUM, en Ástráður veitti þeim merka skóla forstöðu í áraraðir. Það er algjörlega ógleym- anlegt hvernig hann lauk upp fyrir mér ritningunum. Einlægar og lif- andi frásagnir af sögum Biblíunnar, pínu og dauða frelsarans Jesú Krists að ógleymdri hrífandi frásögn hans af sjálfri upprisunni. Þessar frá- sagnir og myndir eru nokkuð sem hafði djúp áhrif á barnssálina. Ómet- anlega blessunarrík áhrif sem síðan hafa verið ræktuð. Nokkuð sem aldrei mun gleymast og ásamt öðru jafnvel skipti sköpum í lífi mínu. Þar fór maður með djúpa þekkingu á guðfræði en jafnframt einlæga trú á frelsarann Jesú Krist. Þá mun ég aldrei gleyma jákvæð- um viðbrögðum Ástráðs og Imbu þegar ég var óvænt kallaður til að gegna starfi framkvæmdastjóra KFUM og KFUK árinu áður en halda átti upp á hundrað ára afmæli hinna sögufrægu og dýrmætu fé- laga, sem hafa verið eins og andlegt heimili og varnarþing svo ótal margra í yfir 100 ár. Það var ómet- anlegt að finna fyrir stuðningi Ást- ráðs, hvatningu og uppörvun á þeim tímamótum, manns sem ég virti og hafði haft mikil og mótandi áhrif á mig í æsku, öldungs sem enn var leiðtogi í æskulýðsstarfinu þá 83 ára. Það var ómetanlegt. Hann Ástráður hafði háleitar hug- sjónir. Hann ræktaði garðinn sinn, sem sést kannski best í samhentri fjölskyldu hans. Þann dýrmæta garð vökvaði hann með væntumþykju og fyrirbænum. Það er nokkuð sem fjölskyldan þakkar nú og mun búa að um ókomna tíma. Mér finnst ég vera einn af ykkur. Með einlægri vinarkveðju úr Sig- túni 29. Sigurbjörn Þorkelsson. Góður vinur til margra áratuga, Ástráður Jón Sigursteindórsson cand. theol., lést hinn 20. júlí sl. Hann hafði verið sjúkur um langan tíma. Nokkrum dögum áður en hann kvaddi þetta jarðlíf sat ég hjá hon- um og við töluðum saman um andleg málefni. Við höfðum okkar bæna- stund, ég tók í hönd hans og kvaddi hann. Þá sagði hann við mig: „Helgi minn, ég hef fengið að lifa lengi, ég er tilbúinn að kveðja þetta jarðlíf þegar Drottinn Guð vill.“ Ég hugs- aði um þessi orð hans á leiðinni heim. Það var ávallt ánægjulegt að heimsækja þau hjón, Ástráð og Ingi- björgu, þegar kristniboðshópurinn Vorperlan sem starfað hefur um 50 ára skeið hélt fundi á heimili þeirra, tíminn leið hratt á slíkum stundum. Vorperlan er stuðnings- og fyrir- bænahópur fyrir kristniboðsstarfinu í Afríku. Þegar heim var haldið kom í huga okkar þakklæti til Guðs að eiga svo heilsteypta og góða vini til margra ára. Ástráður tók þátt í hinu mikla starfi KFUM. Hann var formaður Skógarmanna um áratuga skeið. Þegar elsti skálinn í Vatnaskógi var byggður komu margir Skógarmenn á öllum aldri sem sjálfboðaliðar til vinnu. Hver frítími sem gafst var notaður til þess að taka þátt í þessu uppbyggingarstarfi. Það ríkti gleði og hamingja hjá öllum sem að starf- inu komu þótt hendurnar yrðu sárar við skóflumokstur. Ástráður starfaði sem sveitar- stjóri þriðju deildar í KFUM um árabil. Á deildarfundum hans bauð hann upp á áhugavert efni og sögur sem voru bæði drengjum og ung- lingum til ánægju og eftirbreytni. Einnig starfaði Ástráður í Kristilegu stúdentafélagi í mörg ár ásamt góð- um vinum, mikið líf var í því félagi á þeim tíma. Ástráður prédikaði víða, bæði í KFUM og KFUK og einnig í kirkjum. Hann var nákvæmur í flutningi Guðs orðs. Hann lagði ríka áherslu á að flytja orð Guðs sam- kvæmt Biblíunni á þann hátt að hver sem hlustaði skildi nauðsyn þess að einstaklingurinn þyrfti að eignast persónulega trú á hinn krossfesta og upprisna frelsara Jesú Krist og lifa kristnu lífi. Hvar sem Ástráður starfaði í kristilegu starfi var hann drifkraft- urinn og hvatning fyrir aðra. Hann lagði ríka áherslu á nauðsyn þess að vera vakandi í bæninni fyrir kristni- boðinu. Við sem sem erum í kristniboðs- hópnum Vorperlunni drúpum höfði í þakklæti til Guðs fyrir að hafa feng- ið að eignast slíkan vin sem Ástráð- G æs er merkilegur fugl og ótrúlega næmur á umhverfi sitt. Að mati margra bænda er þessi fugl hrein plága. Hann situr á túnum á vorin og haustin og étur upp gras sem ætlað er búpeningi. Gæsin er t.d. sérstaklega sólgin í gras sem sáð er í nýræktir á vor- in og dæmi eru um að hún hafi étið upp heilu hektarana. Að þessu leyti er engu betra að vera með gæs í túninu en sauðfé. Bændur standa í því allt sumarið að verja tún sín fyrir tún- rollum sem bera litla virðingu fyrir girðingunum, en góðar girð- ingar hafa ekkert að segja þegar kemur að gæsunum. Fuglahræð- ur og smalahundar gera eitt- hvert gagn við að hrekja gæsir af túnum, en líklega eru skot- veiðar árangursríkastar. Ég er ekki mikill skot- veiðimaður, en ég hef þó gert heiðarlegar tilraunir til að skjóta gæsir. Fyrsta tilraun mín til að bana gæs fékk heldur skjótan endi. Ég var orðinn þreyttur á því að smala gæsum og hafði gert margar misheppnaðar til- raunir til að kenna hundtík að fæla gæsir af túnum. Mér rann í skap, sótti byssu inn í hús og skellti hurðinni duglega á eftir mér. Þegar ég kem með vopnið upp á bæjarhólinn sé ég hvar gæsahópurinn tekur sig flugs og flýgur rólega yfir ána. Það var engu líkara en að gæsirnar skynjuðu að nú var hætta á ferð. Reyndar taldi ég hugsanlegt að gæsirnar hefðu fælst við hurðarskellinn eða þegar ég birt- ist með byssuna á bæjarhólnum. Daginn eftir, þegar enn stærri gæsahópur sat og hámaði í sig grængresið sem átti að fara í mjólkurkýrnar á bænum, gerði ég tilraunir með að skella úti- dyrahurðinni. Gæsahópurinn leit ekki einu sinni upp. Þá sótti ég byssu og veifaði henni sem óður maður á bæjarhólnum. Ekkert gerðist. Ég hlóð byssuna og skaut. Gæsirnar litu upp og gengu svo hægu skrefum eftir túninu, aðeins fjær bænum. Það var alveg ljóst að þær skynjuðu að af mér stafaði engin hætta. Nokkrum dögum síðar ákvað ég að fara á veiðar. Ég vissi að ef einhver von ætti að verða til þess að ég hitti fuglinn yrði ég að komast svo nálægt gæsinni að ég heyrði smjattið í henni þegar hún rifi í sig grængresið. Ég þurfti því að vera lúmskur og klókari en hún. Ég lagði því á mig langa göngu. Fyrst gekk ég upp veg og lét eins og ég væri að ná í beljurnar með prik í hönd. (Prikið var að sjálfsögðu byssa sem ég hélt þétt að mér.) Síðan beygði ég niður að túni í um tveggja kílómetra fjarlægð frá gæsunum. Þar skreið ég niður í skurð. Þá hófst lengsti og erfið- asti hluti veiðanna, að þræða skurðina í átt að gæsunum. Ég gekk boginn í baki, stundum skreið ég á maganum eins og hermenn gera í bíómyndum. Ég var orðinn blautur í fæturnar og grútskítugur þegar ég komst að túninu þar sem gæsahópurinn var og át gras. Ég ákvað að taka enga áhættu og kíkja ekki upp fyrir skurðbakkann, en fikraði mig í áttina að veiðisvæðinu. Ég var orðinn eilítið móður og ótt- aðist að andardráttur minn yrði mér að falli. Mér fannst líka hugsanlegt að gæsin, þessi lævísi fugl, myndi greina hjartslátt minn. Loks þegar ég var kominn á staðinn þar sem ég hafði ætlað mér að láta kúlnahríðina dynja á gæsinni setti ég skot í byssuna. Ég tók mér góðan tíma til að róa mig niður í von um að mér gengi betur að hitta. Loks áræddi ég að leggja byssuna á skurðbakk- ann og miða á gæsina. Mér gekk erfiðlega að koma auga á hana því talsvert gras var á skurð- bakkanum þó að hún væri búin að éta sig niður í mold innar á túninu. Ég áræddi því að stinga höfðunum lengra upp úr skurð- inum og þá blasti sannleikurinn við mér. Gæsin var löngu flogin á brott. Allur undirbúningur minn og skrið eftir skurðbotnum var til einskis. Ég gekk sneyptur heim og kom byssunni fyrir á sínum stað. Þegar ég kom út var gæsin kom- in á sinn venjulega stað og tekin upp við fyrri iðju. Ég játaði mig sigraðan og hef ekki farið á veið- ar síðan. Þessi kynni mín af gæsaveiði hafa leitt til þess að ég ber mikla virðingu fyrir gæsaveiðimönnum. Ég veit við hvað er að etja og hversu mikla leikni þarf við veið- arnar. Hins vegar hef ég aldrei haft neina samúð með rjúpna- veiðimönnum. Mér hefur alltaf þótt rjúpan einstaklega fallegur fugl og hef haft gaman af því að fylgjast með henni þegar hún flýgur heim að bæjum við að flýja undan fálkanum. Þess vegna tók ég því illa þegar rjúpnaveiðimenn bönkuðu eitt sinn upp á og vildu fá að skjóta rjúpur í trjágarðinum við bæinn. Rjúpan er ekki bara ein- staklega spakur fugl heldur ákaflega hrekklaus. Hún er ekki lúmsk eins og gæsin. Mér hefur alltaf virst rjúpnaveiðin ganga út á að finna fuglinn, en það kostar oft langar göngur, og skjóta hann síðan. Þegar maður er kominn með rjúpu í sigtið er álíka erfitt að hitta hana og hænu. Báðir þessir fuglar virðast bara bíða þess sem verða vill. Hænsnadráp hefur mér aldrei þótt sérstakt virðingarstarf. Sumum þykir hlægilegt að drepa hænur vegna viðbragða hæn- unnar við dauða sínum, en flest- um ber saman um að þetta er leiðinleg iðja. Þess vegna harma ég ekki þó að rjúpum séu gefin grið í þrjú ár. Veiðisögur Þegar maður er kominn með rjúpu í sigtið er álíka erfitt að hitta hana og hænu. Báðir þessir fuglar virðast bara bíða þess sem verða vill. Hænsnadráp hefur mér aldrei þótt sérstakt virðing- arstarf. Sumum þykir hlægilegt að drepa hænur vegna viðbragða hæn- unnar við dauða sínum, en flestum ber saman um að þetta er leiðinleg iðja. Þess vegna harma ég ekki þó að rjúpum séu gefin grið í þrjú ár. VIÐHORF Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.