Morgunblaðið - 02.08.2003, Blaðsíða 42
MINNINGAR
42 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
YFIR sumartímann eru kvöldmess-
ur í Laugarneskirkju á sunnudög-
um. Að þessu sinni færum við okkur
um einn sólahring, yfir á mánu-
dagskvöldið 4. ágúst og messum þá
kl. 20. Teljum við fínt að ljúka
verslunarmannahelginni með góðri
messu. Kór Laugarneskirkju mun
syngja undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar organista, Bjarni Karls-
son sóknarprestur þjónar að orðinu
og borðinu ásamt Sigurbirni Þor-
kelssyni. Fermingarstúlkur frá sl.
vori annast barnagæslu meðan á
prédikun og altarisgöngu stendur,
og svo bíður messukaffi Sigríðar
kirkjuvarðar yfir í safnaðarheim-
ilinu. Guðsþjónustur eru innihalds-
ríkar og gefandi samkomur, ólíkar
öllu öðru sem er í boði.
Hvetjum við fólk til að mæta og
njóta með okkur.
Söfnuður Laugarneskirkju.
Þýskur kór syngur
í Kópavogskirkju
FYRSTA guðsþjónusta eftir sum-
arleyfi verður kl.11, sunnudaginn
3. ágúst. Í henni munu félagar úr
kór Kópavogskirkju syngja og leiða
safnaðarsöng undir stjórn Julians
Hewlett, organista og kórstjóra.
Kirkjukór frá Bielefeld í Þýska-
landi tekur ásamt tónlistarfólki
þátt í guðsþjónustunni en kórinn er
hér í heimsókn og mun taka þátt í
guðsþjónustu í Stykkishólmi,
sunnudaginn 10. ágúst.
Orgelleikur og
ljóðalestur í
Hafnarfjarðarkirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 3. ágúst,
verður í Hafnarfjarðarkirkju í stað
sumarmorgunsöngs kl. 10.30, sem
hefur verið það guðsþjónustuform
sem fylgt hefur verið í kirkjunni í
sumar, boðið upp á lestur fagurra
trúarljóða og orgelleik. Við lok
stundar eftir bænar- og þagn-
arstund gefst kostur á því að
kveikja ljós á bænastjaka kirkj-
unnar.
Sr. Gunnþór Þ. Ingason sókn-
arprestur les valin ljóð eftir Matth-
ías Johannessen, Hannes Pétursson
og fleiri nútímaskáld. Antónía
Hevezsi, hinn velmenntaði og hæfi-
leikaríki organisti kirkjunnar, leik-
ur viðeigandi verk á hið „róm-
antíska“ Walkerorgel kirkjunnar.
Sr. Gunnþór Þ. Ingason sókn-
arprestur.
Kvöldmessa í
lok verslunar-
mannahelgar
Kirkjustarf
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks
er bent á guðsþjónustur í nágrannakirkj-
unum.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Söng-
hópur úr Dómkórnum syngur. Marteinn H.
Friðriksson leikur á orgel.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl.
10.15. Organisti Bjartur Logi Guðnason.
Sr. Baldur Rafn Sigurðsson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta fellur nið-
ur vegna verslunarmannahelgar. Sókn-
arprestur.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Sig-
urður Pálsson prédikar. Hópur úr Mót-
ettukór syngur. Organisti Hörður Áskels-
son. Laugardag: Hádegistónleikar kl. 12.
Giorgio Paralini frá Ítalíu leikur á orgel.
Sunnudag: Sumarkvöld við orgelið. Org-
eltónleikar kl. 20. Giorgio Paralini frá Ítalíu
leikur á orgel.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Fossvogur: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Hauk-
ur Ingi Jónasson. Landakot: Guðsþjónusta
kl. 11.30. Sr. Haukur Ingi Jónasson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti
Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Lesmessa kl. 11. Sr.
Jón Hagbarður Knútsson annast stundina.
Kaffisopi á eftir. Sóknarprestur kemur á ný
til starfa eftir sumarleyfi 5. ágúst og verður
skrifstofa kirkjunnar opin á ný eftir sumar-
leyfi frá kl. 10.
LAUGARNESKIRKJA:Kvöldmessa mánu-
dagskvöld kl. 20. Kór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Gunnars Gunnarssonar
organista. Sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt
Sigurbirni Þorkelssyni. Stúlkur, sem fermd-
ust sl. vor annast barnagæslu meðan á
prédikun og altarisgöngu stendur. Messu-
kaffi.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Kór Neskirkju
syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson.
Prestur sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIA: Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 11:00. Ritningarlestur og bæn.
Umsjón Jóhanna Guðjónsdóttir guðfr.
DIGRANES OG LINDAKIRKJA:
Kvöldmessa kl. 20.30, sr. Magnús Björn
Björnsson. „Ömmurnar“ annast söng (sjá
heimasíðu: www.digraneskirkja.is).
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og
þjónar fyrir altari.
Kór Grafarvogskirkju syngur
Organisti: Hörður Bragason. Sunnudag:
Bænahópur kl. 20. Tekið er við bæn-
arefnum alla virka daga frá kl. 9–17 í síma
587-9070.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti Julian
Hewlett. Tónlistarmenn og kirkjukór frá
Bielefeld í Þýskalandi taka með virkum
hætti þátt í guðsþjónustunni. Sr. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta fellur niður
sunnudag.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma
fellur niður vegna móts kirkjunnar að Eyj-
ólfsstöðum á Héraði.
GARÐAKRIKJA. Kvöldguðþjónusta kl. 20.
30 með ljúfum sálmum, þjónandi prestur
Bára Friðriksdóttir og organisti Kári Þormar.
Prestarnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræðis-
samkoma kl. 20 í umsjón kafteinanna
Ragnheiðar Jónu Ármannsdóttur og Trond
Are Schelander.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa á
ensku kl. 18.
Alla virka daga: Messa kl. 18.
Miðvikudaginn 6. ágúst: Ummyndun Drott-
ins, hátíð. Hátíðarmessa kl. 18. Í þessari
messu verður sérstaklega minnst Önnu
Soffíu Axelsdóttur Guest.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.
Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30.
Virka daga: Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.
Fimmtudaga: Skriftir kl. 19.30. Bæna-
stund kl. 20.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Alla virka daga: Messa kl. 18.30.
Sunnudaga: Messa kl. 10.
Ísafjörður:
Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri:
Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík:
Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri:
Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2:
Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga:
Messa kl. 11.
REYNIVALLAKIRKJA:
Guðsþjónusta sunnudaginn 3. ágúst kl.
14. Gunnar Kristjánsson sóknarprest-
ur.HAFNARFJARÐARKIRKJA: Orgel og
ljóðalestur kl. 10.30.
Organisti: Antónia Hevezi.
Prestur og lesari: Sr. Gunnþór Þ. Ingason
sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11, léttur há-
degisverður að messu lokinni. Morguntíð
sungin þriðjudaga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 10, kaffisopi á eftir. Foreldra-
samvera miðvikudaga kl. 11.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður
sunnudag 3. ágúst kl. 17. Í messunni
verða fluttir þættir úr kantötu J.S. Bachs,
Vakna, Síons verðir kalla.
AKUREYRARKIRKJA: Helgistund kl. 11.
Prestur: Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.
Magnea Tómasdóttir og Guðmundur Sig-
urðsson syngja. Organisti: Björn Steinar
Sólbergsson. Sumartónleikar kl. 17. Magn-
ea Tómasdóttir, sópran, og Guðmundur
Sigurðsson, orgel. Aðgangur er ókeypis.
GLERÁRKIRKJA. Kvöldmessa verður kl.
20.30 sr. Kristján Valur Ingólfsson, lektor
þjónar. Þýski stúlknakórinn „Pfalziche Kurr-
inde“ syngur í messunni, stjórnandi er
Carola Bischoff.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa kl. 14. Org-
anisti Guðmundur Vilhjálmsson. Almennur
safnaðarsöngur. Ganga undir leiðsögn um
þinghelgi eftir messu. Kristinn Ág. Frið-
finnsson. Kvöldguðsþjónusta undir berum
himni við Þingvallakirkju laugardag kl. 21.
Hjónin Þorvaldur Halldórsson og Margrét
Scheving sjá um tónlistina. Létt tónlist, lof-
gjörð og gleði.
Prestur sr. Kristinn Á. Friðfinnsson.
(Mark. 8.)
Guðspjall dagsins:
Jesús mettar 4 þúsundir
manna.
Elsku pabbi minn.
Ó, þá náð að eiga Jesú
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu’ í Drottins skaut.
Ó, það slys því hnossi’ að hafna,
JÓN
ÓLAFSSON
✝ Jón Ólafssonfæddist á Leirum
undir Eyjafjöllum
14. ágúst 1910. Hann
lést á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi í
Fossvogi 25. júlí síð-
astliðinn og var útför
hans gerð frá Garða-
kirkju á Álftanesi 1.
ágúst.
hvílíkt fár á þinni braut,
ef þú blindur vilt ei varpa
von og sorg í Drottins skaut.
Eigir þú við böl að búa,
bíðir freistni, sorg og þraut,
óttast ekki, bænin ber oss
beina leið í Drottins skaut.
Hver á betri hjálp í nauðum?
Hver á slíkan vin á braut,
hjartans vin, sem hjartað
þekkir?
Höllum oss í Drottins skaut.
Ef vér berum harm í hjarta,
hryggilega dauðans þraut,
þá hvað helzt er Herrann
Jesús
hjartans fró og líknar skaut.
Vilji bregðast vinir þínir,
verðirðu’ einn á kaldri braut,
flýt þér þá að halla’ og hneigja
höfuð þreytt í Drottins skaut.
(Matthías Jochumsson.)
Hin langa þraut er liðin, nú loksins
fékkstu friðinn. Mig langar að kveðja
þig með þessum sálmi, pabbi minn,
því þú varst svo trúaður og kenndir
mér ásamt mömmu að þekkja Jesú
Krist og kærleika hans.
Þegar ég var lítið barn úti í Vest-
mannaeyjum trítluðum við systkini
mín á sunnudagsmorgnum til Einars
í Betel fín og pússuð, aldrei mátti
koma of seint.
Elsku pabbi, ég er svo þakklát fyr-
ir frækorn trúarinnar sem sáð var í
sál mína, að því mun ég búa alla ævi.
Þakka þér fyrir mildu mjúku
hendurnar þínar sem leiddu mig
fyrstu skrefin.
Þakka þér fyrir að vera alltaf skjól
mitt og vörn þegar ég gerði eitthvað
sem ekki mátti, og var í uppreisn á
unglingsárunum.
Þakka þér fyrir að hafa miðlað
mér af viti þínu og visku.
Þakka þér fyrir að vera alltaf til
staðar þegar ég þurfti á þér að halda.
Þakka þér fyrir alla þá fornfýsi,
hjálp og kærleika sem þú sýndir mér
þegar Aðalsteinn Guðmundsson eig-
inmaður minn dó.
Elsku pabbi minn, það var þér
mikið áfall þegar mamma dó, en það
átti eftir að birta upp, og sólin skein
á ný.
Enga konu hefði Guð getað gefið
þér betri en hana Ingu, góða, fallega
og kærleiksríka.
Þú elskaðir hana og virtir umfram
allt annað og áttir með henni þrjátíu
ára hjúskap.
Aldrei féll styggðaryrði ykkar á
milli.
Þið bjugguð hvort öðru yndislegt
heimili í Stigahlíð og síðar í Árskóg-
um 8, sem stóð okkur öllum opið, og
var okkur tekið fagnandi í hvert
sinn.
Þú varst duglegur að ferðast með
Ingu þinni meðan heilsan leyfði,
nokkrar heimsreisur voru farnar og
heimurinn skoðaður vítt og breitt,
landið þitt þekktir þú mjög vel, en
kærust voru þér Eyjafjöllin þar sem
þú fæddist og ólst upp.
Verslun og viðskipti voru þér
einkar hugleikin, enda vannstu við
þau lengst af ævinni.
Ljóðelskur varstu með afbrigðum,
og áttir það til að kveða sjálfur.
Margar kærar minningar koma
upp í hugann frá Vallholtsveginum á
Húsavík þegar þú, pabbi, last upp úr
Einari Ben. á síðkvöldum, minnis-
stæðust er mér Messan á Mosfelli
sem þú last af mikilli innlifun.
Sorg snýst í fögnuð
floginn er andi
líkams úr hreysi
ljósheima til.
Fagnar sá frelsi
er flugmætti sínum
áður var sviptur
um árabil.
(Á.S.)
Elsku pabbi minn, það var svo sárt
að sjá þig bogna og brotna nú síðustu
misseri, en ég veit að Guð hefur tekið
þig nú í náðarfaðm sinn. Ég flyt þér
að lokum hjartans kveðjur frá börn-
um mínum og fjölskyldum þeirra,
með kærri þökk fyrir alla umhyggju
þína þeim til handa. Megi góður Guð
styrkja Ingu og okkur öll.
Ég kveð þig með þeim orðum sem
þú kvaddir mig alltaf með, elsku
pabbi minn.
Guð blessi þig.
Hvíldu í friði, pabbi minn. Við
pössum Ingu.
Þín dóttir,
Sirrý Laufdal.
MESSUR
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við fráfall og útför ástkærr-
ar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
dóttur, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR ELÍSU BALDVINSDÓTTUR,
Bröttugötu 14,
Vestmannaeyjum.
Hörður Runólfsson,
Baldvin Þór Harðarson, Magdalene Lyberth,
Sólrún Unnur Harðardóttir,
Smári Kristinn Harðarson, Sigurlína Guðjónsdóttir,
Baldvin Skæringsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir og kveðjur til allra, sem sýndu
okkur samúð, vinarhug og heiðruðu minningu
HERMANNS SVEINBJÖRNSSONAR
fréttamanns,
Brúarflöt 9,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir fá allir heilbrigðisstarfsmenn,
sem önnuðust hann í veikindunum.
Matthea Guðný Ólafsdóttir,
Katrín Brynja Hermannsdóttir, Auðunn Sv. Guðmundsson,
Laufey Guðlaugsdóttir,
Hulda Sveinbjörnsdóttir,
Sveinn Sveinbjörnsson, Margrét Samúelsdóttir,
Sigurður Sveinbjörnsson, Guðbjörg Friðjónsdóttir,
Anna Maren Sveinbjörnsdóttir, Jónas Jónsson,
Gunnar Sveinbjörnsson, Elísabet Grettisdóttir,
Ólafur Sveinbjörnsson, Ingibjörg Stefánsdóttir
og afastrákurinn Máni Freyr.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
ÞORGEIRS HALLDÓRSSONAR,
Austurbrún 27,
Reykjavík.
Lára Hansdóttir,
Hrafn Þorgeirsson,
Halldór Þorgeirsson,
Arndís Þorgeirsdóttir
og fjölskyldur.
Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför
GUÐJÓNU F. EYJÓLFSDÓTTUR,
Stórholti 19,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur.
Ólafur Þórðarson,
Gunnar Ólafsson, Sara Hjördís Sigurðardóttir,
Ástríður Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi.