Morgunblaðið - 09.08.2003, Qupperneq 2
VERÐ GÆTI LÆKKAÐ
Afskriftir Landsbankans fyrstu
sex mánuðina ríflega tvöfölduðust
milli ára, úr 1.206 milljónum í 2.430
milljónir króna. Þetta gæti valdið því
að endanlegt söluverð bankans til
Samsons eignarhaldsfélags ehf.
lækkaði um allt að 700 milljónir
króna samkvæmt ákvæði í sölusamn-
ingi.
Miðlunarlón full
Miðlunarlón Landsvirkjunar eru
full fyrir veturinn og meira er í lón-
unum en í meðalári. Lónin fylltust í
maí en vanalegt er að þau fyllist í júní
eða júlí. Þorsteinn Hilmarsson hjá
Landsvirkjun segir að orsök þess sé
sú að vetur hafi verið mildur og vor-
flóðin komið snemma.
Minni sala á heitu vatni
Orkuveita Reykjavíkur hefur selt
um 5% minna af heitu vatni frá ára-
mótum en áætlanir gerðu ráð fyrir
sem þýðir um 350 milljónum krónum
minni tekjur en búist var við. Orsök
minni notkunar á heitu vatni er hlýtt
veður sem verið hefur í sumar.
Vopnahlé sagt í hættu
Ísraelskir hermenn réðust í gær á
bækistöð Hamas-liða í flótta-
mannabúðum við borgina Nablus á
Vesturbakkanum og felldu fjóra
menn. Einn ísraelskur hermaður féll
í átökunum. Talsmenn Hamas hót-
uðu að hefna árásanna og óttast
margir að ótryggt vopnahlé, sem
staðið hefur á annan mánuð, sé nú í
hættu. Palestínskur ráðherra sagði
ljóst að stjórn Ísraels ætlaði að sjá til
þess að vopnahléið rynni út í sandinn.
Báru kennsl á höfuðið
Ljóst þykir nú að hryðjuverka-
samtökin Jemaah Islamiyah hafi
staðið fyrir mannskæðu sprengju-
tilræði sem gert var á Marriott-
hótelinu í Jakarta, höfuðborg
Indónesíu, í vikunni. Tveir fangels-
aðir liðsmenn samtakanna báru
kennsl á tilræðismanninn er þeir sáu
mynd af höfði hans, sem fannst
skammt frá staðnum.
Hóta frekari árásum
Uppreisnarmenn í Líberíu hótuðu
í gær að hefja aftur árásir á stjórn-
arhermenn Charles Taylors forseta.
Þeir segja stjórnarherinn ekki hafa
hætt árásum í höfuðborginni
Monróvíu. Ennfremur sætta þeir sig
ekki við að liðsmaður Taylors taki við
forsetaembættinu ef Taylor fer í út-
legð. Hann hefur heitið að yfirgefa
landið á mánudag.
L a u g a r d a g u r
9.
á g ú s t ˜ 2 0 0 3
Yf ir l i t
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í dag
Sigmund 8 Úr Vesturheimi 60
Viðskipti 11/12 Umræðan 27/32
Erlent 14/15 Minningar 33/37
Höfuðborgin 16 Kirkjustarf 37/38
Akureyri 17 Myndasögur 40
Suðurnes 18/19 Bréf 40
Árborg 20 Dagbók 42/43
Landið 21 Sport 44/47
Listir 34/35 Leikhús 48
Heilsa 22 Fólk 48/53
Neytendur 22/23 Bíó 50/53
Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54
Viðhorf 32 Veður 55
* * *
Alltaf ód‡rast á netinu
Verð á mann frá 19.500 kr.
ÍS
LE
NS
KA
AU
GL
ÝS
IN
GA
ST
OF
AN
EH
F/
SI
A.
IS
IC
E
21
53
5
05
.2
00
3
SKIPSTJÓRINN á Bjarma BA, Níels Adolf Ár-
sælsson, var í Héraðsdómi Vestfjarða í gær
dæmdur til að greiða eina milljón króna í sekt til
ríkissjóðs fyrir að láta varpa fyrir borð a.m.k. 53
fiskum í sjóinn í tveimur veiðiferðum í nóvember
2001. Myndirnar af brottkastinu voru sýndar í
fréttatíma Sjónvarpsins 8. nóvember 2001. Skip-
stjóranum var einnig gert að greiða sakarkostnað.
Ríkislögreglustjóri gaf út ákæru á hendur
Níelsi Adolfi í mars sl. en honum var gefið að sök
að hafa brotið gegn lögum um umgengni um nytja-
stofna sjávar. Var vísað til 1. mgr. 2. gr. laganna,
eins og hún hljóðaði áður en lögunum var breytt
árið 2002, en þar sagði að skylt væri að hirða og
koma með allan afla að landi.
Í dómnum kemur fram að á myndskeiði, sem
sýnt var í fréttum Sjónvarps, sjáist að 53 fiskum
að minnsta kosti hafi verið varpað fyrir borð í
veiðiferðunum tveimur. Skipstjórinn hélt því fram
að engum fiski hefði verið hent nema vegna þess
að hann væri svo sýktur af hringormi að hann væri
augsýnilega ónýtur. Byggði hann sýknukröfu sína
á því að í 2. mgr. 2. gr. fyrrgreindra laga væri
kveðið á um að þrátt fyrir 1. mgr. væri heimilt að
varpa fyrir borð afla sem væri sýktur, selbitinn
eða skemmdur á annan hátt. Skipstjórinn sagði
fyrir dómi að hefði einhverjum ósýktum fiski verið
varpað fyrir borð, hefði það verið andstætt hans
fyrirmælum og án hans vitundar.
Allt að tíu tonnum hafi verið fleygt
Í dómnum kemur hins vegar fram að Magnús
Þór Hafsteinsson, þáverandi fréttamaður, hafi
sagt fyrir dómi að hann hafi séð nokkur hundruð
fiskum hent í veiðiferðunum. Hann hafi ekki betur
séð en að sá fiskur væri heill og ósýktur. Einstaka
skipverjar á Bjarma greindu m.a. frá því að fiski
hefði verið hent vegna smæðar en aðrir sögðu að
einungis sýktum fiski hefði verið hent. Einn sagð-
ist hafa fengið fyrirmæli um að fleygja þorski sem
væri undir tveimur og hálfu kílói að þyngd. Áætl-
aði hann að allt að 5-10 tonnum af fiski hefði verið
hent með þessum hætti í veiðiferðunum tveimur.
Í dómnum segir að þegar vitnisburður Magn-
úsar og einstakra skipverja um brottkast sé virt-
ur, sé ekki „varhugavert að telja sannað að varpað
hafi verið fyrir borð a.m.k. 53 fiskum“ í veiðiferð-
unum tveimur. Var staðhæfing skipstjóra um að
fiskurinn hefði verið sýktur metinn sem fyrirslátt-
ur. Skipstjórinn var þó látinn „njóta þess að ekki
verður staðreynt hve miklu magni var varpað fyrir
borð umfram ofangreinda 53 fiska og brot hans
ekki metið stórfellt, þannig að varði fangelsi“.
Greiði skipstjórinn ekki sektina innan fjögurra
vikna þarf hann að sæta fangelsi í þrjá mánuði.
Erlingur Sigtryggsson dómstjóri kvað upp
dóminn. Lögmaður ákærða var Hilmar Ingimund-
arson, hrl. og Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi
sótti málið fyrir hönd efnahagsbrotadeildar Rík-
islögreglustjóra.
Héraðsdómur Vestfjarða fellir dóm í máli skipstjórans á Bjarma BA
Hlaut eina milljón króna
í sekt vegna brottkasts
FYRIR skömmu fóru hestamenn í
Ólafsfirði í ferð yfir Ólafsfjarðar-
skarð, sem liggur á milli Ólafs-
fjarðar og Fljóta. Ferðin var á veg-
um ferðanefndar
hestamannafélagsins Gnýfara, sem
staðið hefur fyrir mörgum slíkum
ferðum í sumar. Í þessari ferð vildi
svo illa til að eitt hrossið féll niður í
íshelli, sem hafði myndast í jökli
sem margoft hefur verið farið yfir.
Berglind Sigurðardóttir, ein af
meðlimum í ferðanefnd Gnýfara,
sagði við Morgunblaðið að það væri
smá spræna sem rynni undir jökl-
inum og greinilegt væri að hellirinn
hefði myndast af hennar völdum í
gegnum tíðina.
„Sem betur fer þá var knapinn
ekki á baki þegar þetta gerðist, því
hann var að teyma hestinn yfir jök-
ulinn og því var hesturinn með
hnakk og beisli þegar hann féll nið-
ur í hellinn. Hellirinn var það stór
að við hefðum auðveldlega komið
12 hestum þar fyrir, því það var
bæði vítt til veggja og nokkuð hátt
til lofts. Hestinum varð þó ekki
meint af fallinu, fyrir utan lítils-
háttar skrámur. Við lentum samt í
nokkru brasi við að ná honum upp
aftur, þar sem verkfæri voru engin
önnur en grjót. Enda var grínast
með það eftir ferðina að stungu-
spaði yrði þarfaþing í hnakktösk-
unni í slíkum ferðum framvegis. En
að lokum tókst að ná hestinum aft-
ur upp úr hellinum og varð hann
frelsinu feginn,“ sagði Berglind.
Hestur
í íshelli
Hafa þurfti ýmsar tilfæringar við að ná hestinum upp úr hellinum.
Hesturinn hlaut aðeins skrámur við fallið og beið rólegur björgunar.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja heimild Grænlandsflugs til
þess að stunda áætlunarflug frá
Akureyri til Kaupmannahafnar. „Í
ljósi aðstæðna höfum við tekið
ákvörðun um að það verði fram-
lengt til 31. október 2004. Staðan í
þessu máli er þannig að við höfum
lagt á það ríka áherslu að það
verði komið á frelsi í þessu flugi,“
segir Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra í samtali við Morg-
unblaðið.
Þar sem Grænland og Færeyjar
tilheyra ekki EES-svæðinu þarf að
semja sérstaklega við dönsk sam-
gönguyfirvöld um leyfi til þess að
fljúga til og frá þessum löndum.
Erfiðlega hefur gengið að ná
samningum við Dani um þessar
flugleiðir og vilja íslensk sam-
gönguyfirvöld þrýsta á um að höft-
um á flugi til Grænlands og Fær-
eyja frá Íslandi verði létt. „Þess
vegna höfum við efnt til samninga-
viðræðna við Dani um að þetta
verði opnað með nýjum loftferða-
samningi. Við metum stöðuna
þannig að það sé ekki hægt að
ætla annað en að þessar vinaþjóðir
nái að gera nýjan samning sem feli
í sér heimildir okkar til að fljúga
til Grænlands og Færeyja óáreitt
eins og við gerum til Danmerkur.
Því vil ég undirstrika vilja okkar
til þess að ná samningum með að
framlengja þetta leyfi Grænlands-
flugs,“ segir Sturla.
Heimild Grænlands-
flugs framlengd til
31. október 2004
ÍTALSKA verktakafyrirtækið
Impregilo, sem annast byggingu að-
alstíflu Kárahnjúkavirkjunar og bor-
un aðrennslisganga, hefur samið við
Samskip um alla flutninga fyrirtæk-
isins sem tengjast virkjuninni.
Samskip munu í samstarfi við
ítölsku flutningamiðlunina Zust
Ambrosetti annast alla flutninga
Impregilo til og frá Íslandi. Einnig
munu Samskip sjá um alla flutninga
fyrir ítölsku verktakana innanlands.
Að sögn Knúts G. Haukssonar,
forstjóra Samskipa á Íslandi, munu
Samskip ýmist nota eigin skip í áætl-
unarsiglingum eða skip á vegum
Siglu, stórsiglingadeildar Samskipa.
Eitt leiguskip er nú á leiðinni frá
Kína með ýmsan varning og nokkur
skip frá Siglu hafa þegar haft við-
komu á Reyðarfirði með tæki og tól
vegna framkvæmdanna við Kára-
hnjúka.
Þá hefur verið samið við Malar-
vinnsluna hf. á Egilsstöðum um und-
irverktöku við flutninga frá Reyðar-
firði til Kárahnjúkavirkjunar, því
Landflutningar Samskipa á Austur-
landi anna þeim ekki.
Samskip eru nú að koma upp að-
stöðu á Reyðarfirði til að mæta þess-
um auknu flutningum, en til þessa
hefur miðstöð flutninganets félags-
ins verið á Egilsstöðum. Verður nú
bæði tollsvæði og geymsluaðstaða í
hinni nýju aðstöðu á Reyðarfirði.
Samskip
flytur fyrir
Impregilo
Egilsstöðum. Morgunblaðið.