Morgunblaðið - 09.08.2003, Page 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BILUN í tækjabúnaði og mannleg
mistök urðu þess valdandi að dæla í
vararafstöð RARIK á Seyðisfirði
dældi tíu þúsund lítrum af gasolíu
um fráveitukerfi kaupstaðarins og út
í höfnina í vikunni.
Athugun hefur varpað ljósi á að
ekki var tryggilega gengið frá
birgðatanki vararafstöðvarinnar
þegar hún var prófuð síðast. Bilun í
stýribúnaði dælu og neyðarrofa í
safngeymi varð þess svo valdandi að
gasolían yfirfyllti geyminn og olíu-
skiljur og streymdi óheft út í frá-
veitukerfið.
RARIK mun skipta um búnaðinn
og jafnframt fara yfir sambærileg
tæki í öllum vararafstöðvum sínum á
Austurlandi.
Gasolían er nú að mestu gufuð upp
og áhrif slyssins á lífríki munu smá-
vægileg.
Samverk-
andi þættir
orsök olíu-
lekans
MARGIR í Noregi höfðu áhyggjur
af því á sínum tíma að ákvörðun um
veiðar á hrefnu í atvinnuskyni kynni
að koma veru-
lega niður á við-
skiptahagsmun-
um Norðmanna.
Sá ótti reyndist
þó að mestu
ástæðulaus og
áhrifin, ef ein-
hver, voru hverf-
andi.
Þetta segir
Reidar Nilsen, formaður Norges
Fiskarlag, heildarsamtaka í norsk-
um sjávarútvegi í samtali við Morg-
unblaðið.
Reyndist ekki mikið á
bak við hótanirnar
Reidar segir að vissulega hafi
margir í fiskiðnaði og ekki síst út-
flytjendur í Noregi haft af því
áhyggjur að veiðar Norðmanna á
hrefnu í atvinnuskyni kynnu að
skaða hagsmuni þeirra. „En ég held
að niðurstaðan sé sú að menn hafi
ekki orðið fyrir skaða vegna ákvörð-
unarinnar um veiðar á hval í at-
vinnuskyni.“
Reidar segir Norðmenn hafa
staðið frammi fyrir alls kyns hót-
unum á sínum tíma, ekki síst af
hálfu umhverfissamtaka í Banda-
ríkjunum. „En þegar upp var staðið
reyndist ekki mikið vera á bak við
þær. Ég þykist vera viss um að
heildaráhrifin á norskan útflutning
og ferðamannaþjónustu voru því
sem næst engin eða hverfandi lítil.
Ég held því að Íslendingar þurfi
ekki heldur að hafa áhyggjur af
slíku.“
Telur óþarft að hafa áhyggjur
af þvingunaraðgerðum
„Ég las í frétttum í dag að Banda-
ríkjamenn hóti að beita Íslendinga
viðskiptaþvingunum. Ég held þó að
menn eigi að taka slíku með mikilli
ró. Slíkum hótunum héldu þeir einn-
ig á lofti gagnvart okkur Norð-
mönnum og hafa reyndar haldið
áfram að gera. En slíkar hótanir
hafa ekki haft nein raunveruleg
áhrif og ég er ánægður með að Ís-
lendingar ætli að hefja hvalveiðar á
nýjan leik enda eru þær brýn nauð-
syn þegar horft er til hagsmuna
sjávarútvegsins í heild,“ segir Reid-
ar.
Reidar Nilsen formaður
Norges Fiskarlag
Ekki ástæða
til að óttast
viðskipta-
þvinganir
ABS-BREMSUKERFIÐ, hemla-
læsivörnin, sem er á flestum nýjum
bílum í dag, fer mjög illa saman við
önnur bremsukerfi sem eru á þeim
fellihýsum og tengivögnum sem eru
með bremsur, sérstaklega þegar
þarf að nauðhemla í bleytu og á mal-
arvegum.
„Þetta eru tvö mismunandi kerfi
og hafa hvort sína eiginleika,“ segir
Jóhann Jóhannsson, verkefnastjóri
og umferðarfulltrúi Slysavarnar-
félagsins Landsbjargar og Umferð-
arstofu. Ef bíll með ABS-bremsu-
kerfi með fellihýsi með venjulegu
bremsukerfi í eftirdragi þarf að
nauðhemla í bleytu eða möl er mikil
hætta á að eftirvagninn taki völdin,
segir Jóhann.
„ABS-kerfið virkar þannig að það
hægir á hjólunum en læsir þeim
ekki. Hins vegar læsast hjólin á felli-
hýsinu og þá er miklu frekar mögu-
leiki á að það fari að ýtast út á aðra
hliðina og getur farið að snúast, og
þá snúið bílnum.“ Þar með glatist sú
stjórn sem ökumaður getur haft á
bílnum, jafnvel þó hann nauðhemli,
sé bíllinn búinn ABS-bremsum. „Ef
þetta gerist þá er voðalega lítið sem
ökumaður getur gert. Ef hann er
með 1.500 kg fellihýsi í eftirdragi og
á álíka þungum bíl þá er voðalega
erfitt að ná stjórn á bílnum aftur.“
Fyrir bandarískar aðstæður
Fellihýsin eru framleidd í Banda-
ríkjunum og hönnuð með þarlendar
aðstæður í huga, segir Jóhann. „Hér
eru fleiri fjöll og verri vegir, hér er
oft keyrt í fjallshlíðum þar sem eru
sviptivindar og annað. Ég held að
við séum með miklu verri aðstæður
til að vera með fellihýsi. Það er ekki
hægt að fara í hvernig veðri sem er
með fellihýsi í togi.“ Jóhann segir að
fólk geri sér oft ekki grein fyrir
þessu, heldur leggi bara af stað þó
illa viðri.
Sigurður Helgason, sviðsstjóri
umferðaröryggissviðs hjá Umferð-
arstofu, segir það mikilvægt að
menn hugsi út í veður áður en lagt
er af stað: „Þegar menn eru að
leggja af stað með svona eftirvagna
þá skiptir miklu að vita hvernig
veðrið er og hvernig veðrið á leiðinni
er, þar eru til mjög góðar upplýs-
ingar frá þjónustukerfi Vegagerðar-
innar. Svo þarf að miða ferðalagið
við það.“
Töluvert hefur verið um tilkynnt
tjón á fellihýsum í sumar, segir
Birgir Guðmundsson frá Trygginga-
miðstöðinni. Þó er ekki víst að tjónin
séu að aukast meira en aukning á
fellihýsum í umferð. Fellihýsin, sem
og aðrir tengivagnar, eru tryggð
með ábyrgðartryggingu bílsins þeg-
ar þau eru tengd við bíl í akstri, en
einnig er hægt að kaupa kaskó-
tryggingu á þau eins og bíla.
Birgir segir að nokkuð sé um að
fellihýsi fjúki til á vegi í akstri:
„Einnig missa menn fellihýsin út
fyrir veg og þau losna aftan úr bíl-
um, eða það kemur grjót upp undir
botninn á þeim. Einnig hefur verið
nokkuð um foktjón þar sem fellihýs-
unum er tjaldað á tjaldstæðum.“
Aðspurður um ástæður þess að
fellihýsin fjúka í akstri segir Birgir
að þau séu léttari en bílarnir, og oft
mjög kassalaga. Það þarf því minna
til að óvæntar vindhviður feyki felli-
hýsinu en bílnum sem dregur það.
„Það eru ekki til tölur um þetta
enn sem komið er, en það er alveg
ljóst að slysatíðni bíla með fellihýsi
og tjaldvagna er að aukast,“ segir
Jóhann. Hann segir nokkur dæmi
undanfarið um alvarleg slys þar sem
fellihýsi komu við sögu, og svo sé
alltaf talsvert af minni óhöppum.
Hann segir það sérlega varasamt að
vera með fellihýsi eða tengivagna
sem eru nálægt eða yfir hámarks-
þyngd sem bíllinn má draga þegar
hjólför séu djúp, og dæmi um um-
ferðarslys þar sem djúp hjólför urðu
þess valdandi að fellihýsið valt og
fólk í bílnum sem dró það slasaðist.
Viðbótarspeglar nauðsynlegir
Jóhann segir að þrátt fyrir áróður
í sumar sé ekki enn nógu mikið um
að ökumenn með fellihýsi, eða aðra
breiða tengivagna, noti viðbótar
hliðarspegla. Lögum samkvæmt
þarf ökumaður að geta séð meðfram
báðum hliðum tengivagnsins, og
þarf að bæta við viðbótarspeglum ef
svo er ekki.
„Viðbótarhliðarspeglar þyrftu að
vera staðalbúnaður með hverju
seldu fellihýsi,“ segir Jóhann. Hann
segir að svo virðist sem sumir átti
sig ekki á lögum um nauðsyn þess að
nota viðbótarhliðarspegla, jafnvel
þegar keyrt er um á jeppa með lítið
fellihýsi. Algengt er að menn telji
sig ekki þurfa speglana þar sem þeir
sjá aftur fyrir bílinn með baksýnis-
speglinum.
Ef viðbótarspeglar eru ekki not-
aðir stóreykst hættan á óhappi þeg-
ar bíll með fellihýsi tekur vinstri
beygju. Erfitt er að sjá hvort annar
bíll sé í framúrakstri og hafa orðið
nokkur lítil óhöpp af þessum völdum
undanfarið, að sögn Jóhanns.
Ættu að vera skoðunarskyld?
Full þörf á að hafa stærri fellihýsi
og aðra tengivagan með bremsur
skoðunarskyld, að mati Jóns Hjalta
Ásmundssonar, tæknistjóra öku-
tækjasviðs Frumherja. „Það er allt-
af að verða skýrara og skýrara að
það sé æskilegt að koma þessu í
skoðun. Kannski ekki árlega heldur
á tveggja til þriggja ára fresti.“
Um 60 manns nýttu sér tilboð
Frumherja og VÍS til að láta skoða
fellihýsi eða tjaldvagn fyrir verslun-
armannahelgina. Nokkrir sem komu
voru með fellihýsi með bremsum og
í þeim tilvikum var yfirleitt eitthvað
að bremsunum, segir Jón Hjalti.
„Þetta eru yfirleitt rafmagnsbrems-
ur, þær voru annað hvort vanstilltar
eða algerlega óvirkar í einhverjum
tilvikum. Það var hægt að laga eitt-
hvað af þessu þegar þetta var still-
ingaratriði, en í öðrum tilvikum
vantaði rafmagnsbúnaðinn, eða
þurfti að tengja hann rétt.“
Annars voru fellihýsin sem komið
var með í skoðun almennt í góðu
ástandi. „Margir fengu athugasemd-
ir í sambandi við ýmis smáleg atriði
eins og ljósabúnað. Það voru nokkrir
bílar með ónýtar hjólalegur. Oft eru
menn líka með gamla vagna og mik-
ið notuð dekk. Einnig kom fyrir í ör-
fáum tilvikum að bílarnir máttu ekki
draga svona þungan bremsulausan
vagn.“
Óhöppum þar sem fellihýsi koma við sögu hefur fjölgað talsvert í sumar
ABS-bremsukerfi og fellihýsi
með bremsu er varasöm blanda
Morgunblaðið/Arnaldur
Ökumenn verða að viðhafa aðgát á ýmsum sviðum við akstur með fellihýsi og huga vel að þyngd þeirra.
Með aukinni fellihýsa-
eign er óhjákvæmilegt
að óhöppum þeim
tengdum fjölgi. Að-
stæður hér á landi eru
oft erfiðar og geta
sviptivindar, djúp hjól-
för, malarvegir, blautir
vegir og lausir steinar
verið fellihýsaeigendum
þrándur í götu á leið
þeirra um landið.
brjann@mbl.is
ALLT of algengt er að ökumenn
dragi fellihýsi eða aðra tengivagna
sem eru of þung miðað við getu
bílsins og getur það haft mikil
áhrif á aksturseiginleika bílsins,
segir Jóhann Jóhannsson, verk-
efnastjóri og umferðarfulltrúi
Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
og Umferðarstofu.
Sér í lagi eru það ökumenn sem
ekki eru á stórum jeppum og eru
með bremsulaus fellihýsi eða aðra
bremslulausa tengivagna. Skylda
er að hafa bremsur á öllum tengi-
vögnum sem fara yfir 750 kg.
Jóhann segir að ekki sé nóg að
gera ráð fyrir þyngd fellihýsisins,
sérstaklega ekki ef menn hlaða í
það farangri áður en lagt er af
stað. Þá er hætta á að þeir sem eru
ekki á þeim mun stærri bílum séu
komnir yfir leyfilegan hámarks-
þunga sem bílarnir mega draga.
Upplýsingar um hámarks leyfilega
þyngd tengivagns, með og án
bremsu, er í skráningarskírteinum
nýrri bíla, en annars er þumal-
puttareglan að tengivagn án
bremsu má ekki vera þyngri en
helmingur af þyngd bílsins sem
dregur hann. Oft er þó lægri há-
marksþyngd en það.
Ef bíll er með þyngri eftirvagn
en leyfilegt er missir hann aksturs-
eiginleika. „Ökumaður hefur ekki
eins góða stjórn á bílnum,“ segir
Jóhann. „Ég fann það sjálfur þegar
ég prófaði 1.500 kg bíl og var með
rétt tæplega 1.500 kg fellihýsi
[með bremsu] að um leið og ég var
kominn yfir leyfilegan hámarks-
hraða með fellihýsi þá fann ég
hvað tók stjórnina. Og það var
ekki ég. Fellihýsið var farið að
dansa í hjólförunum. Bremsu-
eiginleikar bílsins verða svo ekki
eins og þeir eiga að vera, og þú
missir hæfni til að stjórna bílnum
ef eitthvað kemur upp á.“
Undir þetta tekur Jón Hjalti Ás-
mundsson, tæknistjóri ökutækja-
sviðs Frumherja. Hann segir að af-
leiðingar af því að vera með of
þung fellihýsi verði að sjálfsögðu
alvarlegastar þær að hemlunar-
vegalengd bílsins lengist talsvert,
en einnig geta bremsur bílsins of-
hitnað þegar ekið er niður brekku.
Jóhann segir að annar flötur á
því þegar menn eru með of þung
fellihýsi fyrir bílinn sé að þá sé
einfaldlega ekki mögulegt að
halda sæmilegum hraða, sér í lagi
upp í móti, og þá skapist mikil
hætta vegna framúraksturs, sér-
staklega ef bíllinn með fellihýsið
kemst ekki hraðar en 60 til 70 km/
klst.
Með of þung fellihýsi í eftirdragi
!" # !"
$%&
'
'
'
(!"
' )$ '
'
*+
+,
+-
+.
+,
(!"
&$ '
/.
.
.
.
♦ ♦ ♦