Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 14
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LÍBERÍSKIR uppreisnarmenn hót-
uðu í gær að hefja á ný bardaga í höf-
uðborginni Monróvíu, en friðar-
gæsluliðar frá nágrannaríkjunum
reyndu að komast inn á svæði sem
uppreisnarmenn hafa á valdi sínu í
borginni. Uppreisnarmennirnir
sögðu að stjórnarherinn væri enn að
gera árásir, en óformlegt friðarsam-
komulag var gert milli deiluaðila er
gæsluliðið kom til landsins í vikunni.
Charles Taylor, forseti landsins,
hefur lýst því yfir að hann muni láta
af völdum á mánudaginn, en Banda-
ríkjamenn hafa sett það skilyrði fyr-
ir því að þeir sendi friðargæslulið til
landsins að Taylor fari frá. Fyrir-
hugað er að á mánudaginn feli Tayl-
or varaforseta sínum, Moses Blah,
stjórnartaumana, en uppreisnar-
menn segjast ekki munu geta sætt
sig við að Blah taki við. Hann sé yf-
irmaður í her Taylors.
„Ef Moses Blah tekur við þá mun-
um við berjast gegn honum,“ sagði
Sekou Fofana, talsmaður uppreisn-
armanna, í viðtali við fréttastofuna
AFP. „Við getum ekki sætt okkur
við neinn sem er nákominn Taylor.
Við þurfum að fá einhvern hlutlaus-
an borgara til að taka við til bráða-
birgða.“
600 nauðganir í Monróvíu
Borgarastríð hefur staðið með
hléum í Líberíu í á annan áratug, en
undanfarna tvo mánuði hafa harðir
bardagar geisað um höfuðborgina,
og hafa uppreisnarmenn náð stórum
hluta hennar á sitt vald. Breska blað-
ið The Guardian greindi frá því á
fréttavef sínum í gær, að bæði upp-
reisnarmenn og stjórnarhermenn,
sumir aðeins 12 ára og jafnvel yngri,
hafi í skjóli átakanna ráðist á þús-
undir kvenna og að yfir 600 nauðg-
anir hafi verið skráðar í Monróvíu
síðan í síðasta mánuði. Starfsfólk
hjálparstofnana telji þó, að það sé
einungis toppurinn á ísjakanum.
Blaðið hefur eftir sumum fórnar-
lambanna að þegar stjórn Taylors
hafi farið að missa tökin í landinu
hafi vígamenn í röðum beggja deilu-
aðila farið að koma fram við konur í
landinu eins og herfang, og virðist
halda að nú séu síðustu forvöð að
nýta sér stjórnleysið áður en friðar-
gæsluliðar koma til landsins.
The Guardian segir, að fórnar-
lömb nauðgananna hafi verið á aldr-
inum átta til 65 ára, en það sem
hjúkrunarfólki hafi þótt jafnvel enn
ógnvænlegra sé að sumir nauðgar-
anna séu barnungir hermenn, 12 ára
og stundum yngri. Í mörgum tilvik-
um drepi nauðgararnir karlkyns
ættingja fórnarlamba sinna.
Ólíkt fjöldanauðgunum er framd-
ar hafi verið í Síerra Leóne og Rú-
anda, þar sem vígahópar beittu kyn-
ferðislegum árásum skipulega í
hryðjuverkastarfsemi og þjóðernis-
hreinsunum, virðast nauðganirnar í
Monróvíu hafa verið tilviljanakennd-
ar. Þó svo eigi að heita að uppreisn-
armenn og stjórnarliðar ráði hvorir
um sig tilteknum svæðum í borginni
ríkir í raun og veru algert stjórnleysi
í henni og eru íbúarnir ofurseldir
dyntum vígamannanna.
Uppreisnarmenn
hóta meiri átökum
EPA
Líberískar konur sem orðið hafa fórnarlömb nauðgara bíða þess að hitta ráðgjafa í bráðabirgðaskýli sem reist hefur verið á íþróttaleikvangi í Monróvíu.
Monróvíu. AFP.
HVERSU mikla þýðingu hafa þær
pólitísku hræringar sem eiga sér
stað í Líberíu þessa dagana fyrir
barnunga hermenn landsins? Marg-
ir eru ekki nema tíu ára gamlir og
því alls óvíst að þeir hafi fullan
skilning á því hvað koma vestur-
afrísks friðargæsluliðs og vænt-
anleg afsögn forsetans, Charles
Taylor, merkir.
Hinir ungu hermenn, sem reykja
maríjúana á hverjum degi líkt og
fullorðnu hermennirnir, bera
margir vopn sem þeir hafa málað í
skærum litum, nokkuð sem ber
æsku þeirra glöggt vitni. Það er
hins vegar langur vegur frá því að
þeir fái notið eðlilegrar bernsku.
Leikir þeirra eiga sér stað á göt-
unni, stundum innan um lík þjófa
sem teknir hafa verið af lífi en eng-
inn hefur haft fyrir jarðsetja. Það
er ómögulegt að spá fyrir um hvaða
áhrif þeir atburðir sem þessi börn
hafa orðið vitni að munu hafa á
framtíð þeirra.
BBC greinir frá um það bil tíu
ára dreng sem fréttaritari blaðsins
sá nýverið leika sér að því að hjóla í
hringi á reiðhjólinu sínu rétt við
eftirlitsstöð uppreisnarmanna. Á
flestum öðrum stöðum í heiminum
væri þetta fullkomlega eðlileg sjón.
Það sem var hins vegar óvenjulegt
við þennan dreng var það að á baki
hans sveiflaðist AK-47-rifill. Dreng-
urinn var þó svo smávaxinn og hjól-
ið hans svo lítið að rifillinn dróst
eftir jörðinni.
Barnungir hermennirnir í Líb-
eríu eiga sér sömu drauma og önn-
ur líberísk börn. Öll segjast þau
vilja fara aftur í skóla og öll virðast
þau þess fullviss að þau eigi sér
betri framtíð þrátt fyrir hörmung-
arnar sem þau upplifa á hverjum
degi í þessu stríðshrjáða landi.
Barnungir
hermenn
Líberíu
MAÐURINN sem gerði sjálfs-
morðssprengjuárás á Marriott-
hótelið í Jakarta, höfuðborg
Indónesíu, í vikunni var fenginn til
verknaðarins af Jemaah Islam-
iyah, öfgasamtökum múslima með
starfsemi í Indónesíu og nálægum
löndum, sem eru í tengslum við al-
Qaeda-hryðjuverkasamtök Osamas
bin Laden. Greindi indónesíska
lögreglan frá þessu í gær.
Tveir fangelsaðir liðsmenn
Jemaah Islamiyah kváðu hafa bor-
ið kennsl á tilræðismanninn af
mynd af höfði hans sem fannst á
vettvangi. Viðurkenndu þeir að
hafa fengið manninn til liðs við
samtökin, að sögn Erwins Mapp-
aseng, yfirmanns rannsóknarlög-
reglunnar í Jakarta. Kvað hann
hafa verið tuttugu og átta ára
gamall Súmötrumann, Asmar Lat-
in Sani að nafni.
Þessar niðurstöður indónesísku
lögreglunnar eru nýjasta vísbend-
ingin um að Jemaah Islamiyah,
sem eru sökuð um að hafa staðið
að baki sprengjuárásarinnar á
ferðamannastað á eynni Balí í
fyrra, sem kostaði 202 manns lífið,
hafi einnig staðið að tilræðinu á
Marriott-hótelinu á þriðjudaginn
var, en í því fórust 10 manns og
150 slösuðust.
En í Lundúnum birtist í gær í
arabíska dagblaðinu Al-Quds Al-
Arab útdráttur úr yfirlýsingu dag-
settri 5. ágúst 2003 frá hryðju-
verkahópi tengdum al-Qaeda, svo-
nefndra Sveita Abu Hafs el-Masri,
þar sem lýst er yfir ábyrgð á til-
ræðinu í Jakarta.Í blaðinu segir að
í yfirlýsingunni sé árásinni lýst
sem „hörðu höggi framan í Banda-
ríkin og leppa þeirra í hinni ísl-
ömsku Jakarta, sem hefur orðið
fyrir bölvun hinna skítugu
Bandaríkjamanna og nærveru
hinna ósvífnu og hatursfullu Ástr-
ala“.
Da’i Bachtiar, sem er ríkislög-
reglustjóri Indónesíu, sagði að
þær vísbendingar sem hingað til
hefðu komið fram bentu til að
samtökin Jemaah Islamiyah hefðu
verið að verki.
Kennsl borin á tilræðismann
Jemaah Islamiyah talin hafa
staðið að Marriott-hótelspreng-
ingunni í Jakarta
Jakarta. AP.
VINSÆLDIR George Bush Banda-
ríkjaforseta meðal bandarískra kjós-
enda hafa minnkað og mælast nú
álíka miklar og fyrir atburðina 11.
september 2001 samkvæmt nýrri
könnun. Bandaríkjamenn vilja að
forsetinn einbeiti sér að efnahags-
málum í Bandaríkjunum fremur en
stríðsrekstri.
Niðurstöður könnunarinnar sýna
að frá því í júlí sl. hafa vinsældir
Bush minnkað um 5% og eru nú 53%
sem er álíka mikið og 2001. Þá er
meirihluti kjósenda sammála um að
efnahagsmál landsins séu mikilvæg-
asta verkefni forsetans en í janúar
sögðu hins vegar flestir að baráttan
við hryðjuverk ættu að vera for-
gangsmál hjá honum.
Könnunin bendir jafnframt til
þess að demókratar hafi ástæðu til
að vera bjartsýnir fyrir forsetakosn-
ingarnar á næsta ári en þegar val
þátttakenda stóð á milli Bush og
frambjóðanda úr röðum demókrata
sem flestir þeirra gætu sætt sig við
var munurinn aðeins fimm prósent.
Bush fengi 43% atkvæða en hinn
mögulegi mótframbjóðandi demó-
krataflokksins 38%.
Niðurstöðurnar benda enn fremur
til þess að það sé einna helst stuðn-
ingur eldri kvenna og kjósenda með
lágar eða miðlungstekjur sem Bush
hefur misst.
Vinsældir
Bush dala
Washington. AFP.
STJÓRNVÖLD í Sádi-Arabíu hafa
leyst úr haldi fimm Breta, Kanada-
mann og Belgíumann en þeir höfðu
verið fundnir sekir um sprengju-
tilræði í Sádi-Arabíu á árunum
2000 og 2001.
Breskur maður, Christopher
Rodway, lét lífið í sprengjutilræð-
unum og nokkrir vestrænir menn,
sem starfa í Sádi-Arabíu, slösuð-
ust. Sögðu yfirvöld, að um hefði
verið að ræða átök milli manna um
ólöglega en mjög ábatasama áfeng-
issölu. Fjölskyldur mannanna, sem
voru dæmdir, lögfræðingar þeirra
og fleiri héldu því hins vegar alltaf
fram, að yfirvöld hefðu vísvitandi
skellt skuldinni á þá til að breiða
yfir sprengjutilræði íslamskra
öfgamanna í landinu. Voru tveir
mannanna dæmdir til dauða og átti
að hálshöggva þá.
Margir telja, að með því að láta
mennina lausa séu stjórnvöld í
Sádi-Arabíu óbeint að viðurkenna,
að þeir hafi verið hafðir fyrir
rangri sök.
Sleppt úr haldi í Sádi-Arabíu
London. AFP.
ÆVILÍKUR háskólamenntaðs
fólks ráðast af því hvaða fag það
lagði stund á á námsárunum og
verkfræðingar eru hraustari en
aðrir háskólamenn. Svona
mætti túlka niðurstöður rann-
sóknar sem birtist nýverið í
breska vísindaritinu Journal of
the Royal Society of Medicine
og fjallað var um í breska
blaðinu Guardian.
Niðurstöður rannsóknarinn-
ar, sem unnin var af dr. Peter
McCarron og félögum við
Queens-háskóla í Belfast, benda
til þess að lífslíkur verkfræði- og
raunvísindanema séu meiri en
annarra háskólanema. Þeir sem
lögðu stund á listnám dóu hins
vegar fyrr en annað háskóla-
menntað fólk og tíðni lungna-
krabbameins var auk þess afar
há í þeirra hópi.
Ástæður þess að heilsufar
listnemanna sem tóku þátt í
rannsókninni var jafnslæmt og
raun ber vitni voru helst raktar
til þess að félagslegur og efna-
hagslegur bakgrunnur þeirra
var bágbornari en annarra þátt-
takenda. Þá áttu þeir sem luku
listnámi erfitt með að fá vinnu
og voru með lægri laun en aðrir
þátttakendur og virtist það hafa
áhrif á heilsufar þeirra.
Á hinn bóginn reyktu fáir
verkfræði- og raunvísindanem-
ar og tíðni lungnakrabbameins
var því lág meðal þeirra. Þá voru
hjartasjúkdómar og streita fátíð
í þeirra hópi og var skýring þess
helst rakin til hins örugga
starfsumhverfis verkfræðinga
og vísindamanna.
Að lokum má geta þess að nið-
urstöður rannsóknarinnar
bentu m.a. til þess að læknar
væru líklegri en aðrir til að
deyja af völdum sjúkdóma
tengdra áfengisneyslu og að lög-
fræðingar reyktu eins og
strompar.
Rannsóknin byggist á gögn-
um um heilsufar 8.000 karl-
manna sem stunduðu nám við
Glasgow-háskóla á árunum 1948
til 1968.
Eru verk-
fræðingar
hraustari
en aðrir?