Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 15
1 ÁRS AFMÆLI
Foxxy Santos
JuwelIvoryLeonKarat
Balu Tobago
Útsalan stendur frá 7-23. ágúst.
ÚTSALA
AÐ MATI tveggja af virtustu dag-
blöðum Bandaríkjanna kunna þeir
tveir mánuðir sem eru til stefnu
fram að endurteknum kosningum
til ríkisstjóra Kaliforníu að vera of
skammur tími fyrir Hollywood-
stjörnuna Arnold Schwarzenegger
til að sýna og sanna fyrir kjós-
endum að hann hafi þann pólitíska
dug sem nauðsynlegur sé til að
fella hinn óvinsæla Gray Davis úr
embætti. Að mati stjórnmálaskýr-
enda í Kaliforníu á Schwarzenegg-
er góða möguleika á að ná kjöri til
ríkisstjóra.
„Vöðva-strandar-stjórnmál“ var
fyrirsögnin á forystugrein The
New York Times um kosningarn-
ar, sem verða haldnar hinn 7.
október nk. Í greininni segir, að
Schwarzenegger hefði sýnzt „frek-
ar flatur“ er hann tilkynnti um
framboð sitt, og það sem hann
sagði við það tækifæri hefði hljóm-
að frekar „hugsunarlaust“. Þrátt
fyrir þetta væri ekki loku fyrir það
skotið að „hann muni koma til með
að verða hugsunarsamari fram-
bjóðandi“. En í svo stuttri kosn-
ingabaráttu gefist litlir möguleikar
á að sýna og sanna fyrir kjós-
endum hve mikið innihald er að
baki yfirborði frambjóðandans.
The Washington Post skrifar í
alveg sama dúr, að hinar „fárán-
legu afturköllunarkosningar“ í
Kaliforníu séu „nýr lágkúruáfangi
í hnignun Bandaríkjanna í átt að
„stjórnmálum-sem-stöðugustríði““.
Leiðarahöfundurinn bætir við að
„enginn sem lætur sér annt um
lýðræði í Bandaríkjunum getur
tekið þessum skrípaleik vel.“
Þrátt fyrir galla og skyssur Dav-
is ríkisstjóra og almenns van-
trausts Kaliforníubúa í garð
stjórnmálamanna sé nauðsyn á
„stjórnmálafærni“ til að draga
fylkið upp úr því feni sem það er
lent í og á þessu sviði sé Schwarz-
enegger einfaldlega óskrifað blað.
Jafnvel hið hægrisinnaða Wash-
ington Times, sem er mjög hlið-
hollt Repúblikanaflokknum, sagði
að of snemmt væri að segja til um
hvers konar stjórnmálamaður
Schwarzenegger ætti eftir að
verða.
„Hefur allt sem þarf
til sigurs“
Að mati stjórnmálaskýrenda í
Kaliforníu á Hollywood-stjarnan
góða möguleika á að ná kjöri til
ríkisstjóra. Er hann tilkynnti um
framboð sitt – í sjónvarpsspjall-
þætti Jays Leno – sagðist hann
hafa allt sem þyrfti til sigurs; leið-
togahæfileika, orku og greind, og –
það sem einna mikilvægast er –
þekkt andlit. Og stjórnmálaskýr-
endur virðast sammála um að leik-
arinn kunni að hafa valið sér ein-
mitt réttan tíma til að söðla um í
stjórnmálin. „Frægðin gefur hon-
um óneitanlega nokkurt forskot
hér í heimalandi kvikmyndaiðnað-
arins,“ hefur AFP eftir Sherry
Bebitch Jeffe, stjórnmálafræðingi
við Háskóla Suður-Kaliforníu í Los
Angeles (USC).
Enda er Schwarzenegger ekki
fyrsti kvikmyndaleikarinn sem fer
í framboð og nær árangri í stjórn-
málum. Er þar skemmst að minn-
ast Ronalds Reagan, sem varð rík-
isstjóri Kaliforníu árið 1968 og
síðar forseti Bandaríkjanna. Þá
gegndi Clint Eastwood um árabil
embætti bæjarstjóra í kaliforníska
bænum Carmel.
Martin Kaplan, kennari við sam-
skiptafræðistofnun USC, Annen-
berg School of Communication,
sagði að afturköllunarkosningin
gæti gefið Schwarzenegger beztu
möguleikana á að ná kjöri. Regl-
urnar eru þannig að 15% at-
kvæðanna gætu dugað sigurveg-
aranum til að ná kjöri. Hann er
líka laus við að þurfa að ganga í
gegn um flokksforval og þ.u.l.
Auk þess hefur Schwarzenegger
nokkur önnur tromp á hendi.
Hann er nógu auðugur til að geta
fjármagnað kosningabaráttu sína
úr eigin vasa. Hann er þekktur.
Og hann á gott með að tjá sig á
fjöldafundum.
En þótt kjósendum kunni að
finnast hann skærasta ljósið á
frambjóðendalistanum, sem á
verða sennilega hundruð nafna, er
óvíst hverju hann getur fengið
áorkað þótt hann nái kjöri. Eliza-
beth Garrett, lagaprófessor við
USC, segir að hann myndi standa
frammi fyrir sömu vandamálum og
núverandi ríkisstjóri við að koma
frumvörpum í gegnum þingið, sem
er mjög klofið milli flokkafylkinga.
Þörf á „afli ofar axla“
Dagblöð í Austurríki, uppruna-
landi Schwarzeneggers, spyrja
einnig hvort kvikmyndahetjan hafi
það sem til þarf til að geta leyst
vandamál Kaliforníuríkis, sem eru
mikil að vöxtum, þ.á m. 38
milljarða dala fjárlagahalli og
kreppa í orkumálum. Die Presse,
sem gefið er út í Vínarborg, segir
að þær yfirlýsingar sem fram til
þessa hafi komið frá „Austur-
ríkismanninum viðkunnanlega“
séu ekki mikið annað en „lýð-
skrum“. „Hefur Schwarzenegger
þann skilning sem til þarf til að
leysa þessi vandamál?“ spyr blaðið
og bætir við að hann þurfi á „afli
ofar axla“ að halda ef honum á að
takast að finna árangursríkar
málamiðlanir milli þeirra mismun-
andi hagsmuna sem togast munu á
við leitina að lausnum á vanda-
málum Kaliforníu.
Vínarblaðið Der Standard segir
að það sé snjall leikur hjá
Schwarzenegger að snúa sér nú að
stjórnmálum, þar sem hann verði
brátt of gamall til að leika í has-
armyndum.
Schwarzen-
egger spáð
góðu gengi
Reuters
Arnold Schwarzenegger heilsar stuðningsfólki sem safnazt hafði fyrir utan skrifstofu í Norwalk í Kaliforníu
þangað sem ríkisstjóraframbjóðandinn lagði inn framboðsgögn sín.
Virtustu dagblöð Bandaríkjanna tala
um „skrípaleik“ og „vöðvastjórnmál“
Los Angeles, Washington. AFP.
’ Nýr lágkúru-áfangi í hnignun
Bandaríkjanna ‘
ÖKUMÖNNUM sem eru of
þungir er meira en tvisvar
sinnum hættara en þeim sem
grennri eru við að deyja eða
slasast alvarlega í umferðar-
slysum, samkvæmt niður-
stöðum nýrrar rannsóknar
er breska ríkisútvarpið,
BBC, greinir frá á fréttavef
sínum.
Rannsóknin var gerð í
Seattle í Bandaríkjunum og
náði til 26 þúsund ein-
staklinga er lent höfðu í bíl-
slysum. Í ljós kom að þeir
sem voru á bilinu 100 til 119
kílóa þungir voru hátt í 2,5
sinnum líklegri til að deyja í
slysum en fólk sem var inn-
an við 60 kíló.
Einnig var í rannsókninni
tekið tillit til svonefnds lík-
amsmassavísis (BMI), er seg-
ir til um kjörþyngd miðað
við hæð.
Í ljós kom að þeir sem
hafa BMI-gildi á bilinu 35-39
(30 og yfir er vísbending um
offitu) voru tvöfalt líklegri
en þeir sem hafa BMI í
kringum 20 til að deyja í
umferðarslysum.
Offituvandinn
Þungum
hættara í
bílslysum