Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 27
GÓÐUR maður sagði að mis-
skilningur væri einhver alversti
skilningur sem hægt væri að
leggja í hlutina.
Línuívilnun sem
samþykkt var á
landsfundum
stjórnarflokkanna
og boðuð í kosn-
ingabaráttunni, án
fyrirvara, virðist nú
orðin slíkur skilningur. Var ein-
hverntíma boðaður fyrirvari í sam-
þykktum um línuívilnun?
Stjórnarsáttmálinn tekur af tví-
mæli. Þar er talað um aukinn
byggðakvóta og línuívilnun. Engin
ríkisstjórn getur látið utanaðkom-
andi þrýsting einhverra ofdekr-
aðra frekjudalla breyta mark-
miðum stjórnarsáttmála –
nokkrum vikum eftir að hann var
skjalfestur og undirritaður.
Auðvitað er byggðakvóti um-
deildur. En er byggðakvótinn eitt-
hvað meira umdeildur en annar
kvóti? Það hafa komið fram gallar
við úthlutun byggðakvóta. En var
ekki byggðakvóta úthlutað vegna
stórfelldra galla sem komu fram
Ívilnun
fyrir fleiri?
Eftir Kristin Pétursson
Höfundur er fiskverkandi
á Bakkafirði.
vegna úthluðaðra kvóta? Ég tel út
í hött að stjórnmálamenn séu að
hræra í nokkrum úthlutuðum
kvótum. Er slík tilraun ekki eins
og að fikta með eldspýtur í púður-
geymslu?
Byggðakvóta hefur verið út-
hlutað samkvæmt gildandi lögum
eins og öðrum kvóta – samkvæmt
lögum. Þar við situr. Stjórnarsátt-
málinn er skjalfestur. Það sem þar
stendur skrifað kemur til fram-
kvæmda. Landsfundarsamþykktir
og gefin kosningaloforð standa
líka skrifuð og koma til fram-
kvæmda. Þetta er svona einfalt.
Það er góð hugmynd hjá skip-
stjóranum á Eldhamri KE að taka
megi upp ívilnun við fleiri veiðar.
Það er einmitt það sem þarf. Til
dæmis er eðlilegt að dauður neta-
fiskur, grásleppufiskur, fiskur
veiddur í rækju og humartroll,
ormafiskur í snurvoð eða á línu fái
t.d. 40% ívilnun frá kvóta, vegna
þess að umræddur fiskur er 40%
verðminni vegna galla. Slík ívilnun
er ekki aukning á veiði, heldur að-
allega minnkun á brottkasti.
Meðafli á t.d. karfa eða grálúðu-
veiðum gæti einnig fengið ein-
hverja ívilnun. Það vantar langt-
um meiri sveigjanleika við
fiskveiðar, m.a. til að minnka
brottkast. Ósveigjanleiki hefur
neytt sjómenn til að kasta fiski
auk þess sem ósveigjanleiki og
einstrengingsháttur hefur valdið
skaðlegu virðingarleysi fyrir
stjórnun fiskveiða.
Kjarni málsins er, að það skiptir
litlu eða engu máli þó veitt verði
10–20% umfram þann kvóta sem
Hafrannsóknastofnun leggur til.
Týnd 600 þúsund tonn sanna það
– fiskur sem við hefðum getað
veitt en virðist hafa verið drepinn
úr hungri vegna of lágra afla-
kvóta. Stóraukinn afli af skötusel
er eitt af sterkustu sönnunar-
gögnum sem fram hafa komið um
að þessi þorskur hafi drepist.
Aukið framboð af fiskhræjum frá
1997 komi nú fram sem aukinn afli
af skötusel – vegna mikillar fóð-
urgjafar af þorskhræjum. Er
skynsamlegt að banna íslenskum
fiskimönnum að veiða þorsk og
gera hann að skötuselsfóðri?
Auk þess er algjör óþarfi að
taka fullt tillit til þess sem Haf-
rannsóknastofnun leggur til,
vegna þess að tillögur stofnunar-
innar byggjast á ólöglegu samráði
Hafrannsóknastofnunar við Al-
þjóðahafrannsóknarráðið um hvað
skuli veitt af bolfiski á Íslands-
miðum.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 27
Í FRÉTTUM undanfarið má
heyra um efnamengaðan lax á mark-
aði í Ameríku. Marka má að fréttirn-
ar séu unnar á vegum
alþjóðlegra um-
hverfissamtaka og að
þær byggist á banda-
rískri skýrslu. Í
Fréttablaðinu 6.
ágúst s.l. er vitnað í
Guðjón Atla Auðuns-
son, hjá Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins, sem er einn viðurkenndasti
vísindamaður Norðurlanda á þessu
sviði. Þar kemur fram að höfundar
skýrslunar hafi auðsýnilega farið
langt út fyrir ramma vísindanna og
virðast fjarri því að vera vandir að
virðingu sinni. Íslenskur eldislax,
sem m.a. var rannsakaður, sé t.d. sex-
tugfalt undir PCB mörkum banda-
ríska matvæla- og lyfjaeftirlitsins og
því fjarri lagi að ráða fólki frá neyslu
hans eins og gert er í skýrslunni.
Þessar fréttir um hugsanleg
voveifleg örlög þeirra sem borða fisk-
meti eru því miður ekki einsdæmi.
Þær eru líka sláandi dæmi um mál-
flutning ýmissa umhverfissamtaka,
sem endanlega hafa höndlað „sann-
leikann“ og hafa stöðugt vaxandi
áhrif á almenningsálitið og ákvarð-
anir á alþjóðlegum vettvangi. Þessar
fréttir eru líka þörf áminning til
þeirra, sem nýta náttúrulegar auð-
lindir, eins og Íslendingar gera, að
láta „sannleika“ öfgafullra umhverf-
isverndarsamtaka ekki vera það eina
sem heyrist í fréttum.
Íslenskur sjávarútvegur þarf að
vera virkur í fréttamiðlun og þar er
þekking sem finna má m.a. innan
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins
mikilvægt veganesti.
„Stórhættulegur“
eldislax
Eftir Pétur Bjarnason
Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og
framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands.
MIKLAR umræður hafa átt sér
stað að undanförnu í Bandaríkj-
unum og í Bretlandi um innrás
þessara ríkja í Írak.
Stjórnvöld í ríkjum
þessum hafa sætt
harðri gagnrýni
fyrir að hafa gert
árás á Írak á fölsk-
um foresendum.
Sagt var að Sadd-
am Hussein hefði yfir gereyðing-
arvopnum að ráða og þess vegna
yrði að gera árás á Írak og af-
vopna Hussein. En engin gereyð-
ingarvopn hafa fundist í landinu.
Svo virðist sem þau hafi ekki verið
til. Bandaríkjamenn og Bretar
héldu því fram að Írak væri að fal-
ast eftir úrani í Afríku til þess að
þróa kjarnorkuvopn. En nú hefur
verið upplýst að skýrslur um þetta
efni voru falsaðar! Þannig stendur
ekki steinn yfir steini í málflutn-
ingi Bandaríkjamanna og Breta
um nauðsyn árásar á Írak. Meira
að segja Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, viðurkennir
nú að það hafi ekki verið vegna
gereyðingarvopna í Írak sem
Bandaríkjamenn gerðu innrás í
landið. Það hafi verið vegna þess
að atburðirnir 11. september 2001
hafi veitt Bandaríkjunum nýja sýn
á hættuna sem stafaði frá Írak og
ýmsum öðrum þjóðum! Með öðrum
orðum: Rumsfeld viðurkennir að
Bush og aðrir ráðamenn Banda-
ríkjanna hafi farið með ósannindi
þegar þeir „réttlættu“ árás á Írak
og sögðu að Írak hefði yfir gereyð-
ingarvopnum að ráða. Breska
þingið samþykkti hinn 3. júní sl.
að fela utanríkismálanefnd þings-
ins að láta fara fram rannsókn á
því hvort breska þjóðin og þingið
hefðu verið beitt blekkingum þeg-
ar ráðamenn Bretlands „réttlættu“
stríð gegn Írak. Rannsókn þessari
er að mestu lokið. Hún hefur þeg-
ar leitt í ljós að margt af því sem
notað var í röksemdafærslu fyrir
stríði gegn Írak var byggt á röng-
um upplýsingum. T.d. hefur verið
upplýst að fullyrðing bresku leyni-
þjónustunnar um að Saddam
Hussein gæti beitt gereyðingar-
vopnum með 45 mínútna fyrirvara
stenst ekki. Fullyrðingin reyndist
röng. Sterkar líkur benda til þess
að ráðamenn bæði í Bandaríkj-
unum og í Bretlandi hafi beitt al-
menning og þjóðþingin í löndum
þessum blekkingum þegar ákveðið
var að hefja stríð gegn Írak. En
hvernig var þessu farið á Íslandi?
Blekktu ráðamenn Íslands þjóðina
þegar þeir sögðu nauðsynlegt að
styðja árás á Íraka vegna þess að
þeir hefðu yfir gereyðingarvopnum
að ráða? Allar líkur benda til þess
að svo hafi verið. Íslenzkir ráða-
menn tóku upp rök Bandaríkja-
manna og Breta í þessu máli og
gerðu að sínum. Þeir eru því undir
sömu sök seldir og ráðamenn í
Bandaríkjunum og í Bretlandi. Ís-
lenskir ráðamenn bera ábyrgð á
sínum gerðum í þessum efnum.
Þeir geta ekki skotið sér á bak við
aðrar þjóðir.
Í júní sl. ritaði ég grein í Mbl.
og lagði til að Alþingi skipaði
rannsóknarnefnd til þess að rann-
saka hvort íslenskir ráðamenn
hefðu staðið rétt að þeirri ákvörð-
un að láta Íslendinga lýsa yfir
stuðningi við árás Bandaríkjanna
og Bretlands á Írak. Hér með
ítreka ég þessa tillögu mína.
Umrædd ákvörðun var hvorki
lögð fyrir utanríkismálanefnd Al-
þingis né Alþingi sjálft. Skylt er
að leggja öll mikilvæg utanríkis-
mál fyrir utanríkismálanefnd.
Ákvæði þar um var brotið. Ég tel
einnig að leggja hefði átt málið
fyrir Alþingi. En það var ekki
gert. Það er alvarlegt mál að gera
vopnaða árás á aðra þjóð. Það er í
raun glæpur. Það er einnig alvar-
legt mál að lýsa yfir stuðningi við
slíka árás. Ráðamenn Íslands
höfðu ekkert leyfi til þess að láta
Ísland styðja árásina á Írak. Allt
bendir til þess að þeir hafi ekki
tekið ákvörðun þar um á löglegan
hátt. Rannsaka þarf hvort svo var
eða ekki.
Blekktu
ráðamenn
Íslands þjóðina?
Eftir Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
ÍSLENSKT MÁL
Jón G. Friðjónsson
8. þáttur
ÞÆTTINUM hafa borist fjöl-
mörg bréf og ábendingar um efni
sem vert væri að fjalla um á þess-
um vettvangi. Ég þakka jákvæð
viðbrögð og þann áhuga sem þætt-
inum er sýndur en hvort tveggja
tel ég staðfestingu á því sem ég
þóttist vita: Íslendingar hafa mik-
inn áhuga á móðurmálinu og láta
sig miklu skipta hvernig með það
er farið. Sumum bréfanna hef ég
svarað beint en að efni annarra
mun ég koma síðar.
Flestir munu þekkja orða-
samböndin koma við sögu , vera úr
sögunni og þegar hér var komið
sögu og fjölmörg önnur með stofn-
orðinu saga . Í flestum tilvikum er
farið rétt með þau enda er merk-
ing þeirra mismunandi og skýrt af-
mörkuð. Ég hef þó veitt því athygli
að á þessu getur orðið misbrestur
þannig að orðasambandið koma
við sögu sækir á. Þannig hef ég
margoft heyrt og lesið á prenti
dæmi eins og ?Þegar hér var kom-
ið við sögu höfðu KA-menn skorað
mark . Hér er smáorðinu við
ofaukið enda eru væntanlega allir
sammála um að við segjum þegar
hér var komið (sögu) . Leikmaður
sem meiðist kemur ekki meir við
sögu í tilteknum leik og kaup á
leikmanni eru úr sögunni ef mikið
ber á milli, ekki þarf að ræða það
frekar.
Breytingar af þessum toga má
kalla áhrifsbreytingar, tiltekið
orðasamband hefur áhrif á notkun
og merkingu annars. Margar
slíkra breytinga eru um garð
gengnar og hafa öðlast viðurkenn-
ingu en aðrar eru nýjar af nálinni
og geta ekki talist rétt mál. Sem
dæmi um þær síðarnefndu má
nefna orðasamböndin kynda undir
einhverju og spá í eitthvað en þau
verða alloft í talmáli og óvönduðu
ritmáli ?kynda undir eitthvað og
?spá í einhverju . Orðasambandið
kynda undir einhverju vísar í
beinni merkingu til þess er eldur
er kyntur undir potti og í yfir-
færðri merkingu til þess er eitt-
hvað er aukið: kynda undir kyn-
þáttahatri / almennri óánægju .
Orðasambandið ýta undir ein-
hvern/eitthvað er notað í svipaðri
merkingu og kynda undir ein-
hverju og ætla má að þar sé að
finna skýringuna á breytingunni
kynda undir einhverju > ?kynda
undir eitthvað . Síðara dæmið er af
svipuðum toga. Orðasambandið
spá í eitthvað felur í sér hreyfingu
og því er venjan að nota þolfall,
sbr. spá í spilin . Í svipaðri merk-
ingu er kunnugt orðasambandið
pæla í einhverju og það togar í,
veldur því að margir (einkum ungt
fólk) segja: ?Ég er að spá í því en
hvorki styðst það við hefð né fellur
að því kerfi sem liggur að baki
fallanotkun með forsetningum.
Margir hafa reyndar amast við
orðasambandinu pæla í einhverju ,
telja það danskættað og því ekki
góða íslensku. Elstu dæmi í fórum
Orðabókar Háskólans um orða-
sambandið eru frá 19. öld og þar er
einnig að finna ýmis önnur af-
brigði, t.d. pæla í gegnum
… skruddu . Sögnin að pæla sam-
svarar að formi til d. pejle og pejle
ud (‘ákvarða eða reikna e-ð út
(stefnu skips)’). Ólíklegt verður að
telja að bein tengsl séu á milli d.
pejle og ísl. pæla í e-u . Í fyrsta lagi
er merkingin í dönsku allt önnur
en í íslensku og í öðru lagi er mun-
ur á því að pæla e-ð út og pæla í
e-u . Trúlegra er að pæla í e-u feli í
sér íslenska nýmyndun eða aðlög-
un að íslensku málkerfi. Merk-
ingin sagnarinnar pæla tengist
grafa (með páli ), sbr. grafast eftir
e-u og grafast fyrir um e-ð, sbr.
enn fremur götva (‘grafa’) og upp-
götva (‘grafa upp’ > ‘finna upp’).
Úr handraðanum
Ýmis orð og orðasambönd vísa
til vitsmuna manna eða gáfnafars,
t.d. flækjast ekki í vitinu , reiða
ekki vitið í þverpokum og vera
með vitið í vasanum . Í flestum til-
vikum er augljóst hvað við er átt
en þó getur einnig saga legið að
baki. Þannig
er því t.d.
háttað um
orðatiltækið
kafna ekki í
vitinu (‘vera
(mjög) vit-
grannur’) en
það vísar til frásagna Snorra-
Eddu (Skáldskaparmál, 5.k.) af því
er dvergarnir Fjalar og Galar
drápu Kvasi og sögðu ásum að
hann hefði kafnað í manviti fyrir
því að engi var þar svo fróður, að
spyrja kynni hann fróðleiks . Hér
er skemmtilega og eftirminnilega
komist að orði og giska má á að
hér sé að finna fyrirmyndina að
öðru og yngra orðatiltæki: kafna
ekki í vinsældum/vinsældunum en
elsta dæmi um það er að finna í
Grettis sögu: kafna ekki í vinsæld-
um manna .
Í tilvitnuðu dæmi úr Snorra-
Eddu er að finna nafnorðið manvit
sem merkir eiginlega ‘hugvit’ þar
sem fyrri liðurinn man - er skyldur
sögninni muna-man-mundi-munað
, sbr. einnig nafnorðin muni ‘hug-
ur’, munúð o.fl. Í nútímamáli er oft
notuð framburðarmyndin mannvit
og orðið er jafnvel ranglega tengt
mannsviti . Mér var kennt í skóla
að rita bæri manvit enda er það
ávallt ritað svo í eldra máli, sbr.
einnig sérnafnið Jórunn manvits-
brekka (Eyrbyggja saga). Mér er
að ljóst að ekki dugir að deila um
smekk manna en sjálfum finnst
mér orðið manvit fegurra en
mannvit og tel rétt að halda því til
haga að hvorki manvit /( mannvit)
né mannsvit tengist sérstaklega
karlmanni.
...því að engi
var þar svo
fróður, að
spyrja kynni
hann fróðleiks.
jonf@hi.is
FLESTIR þátttakendur og gestir eru komnir til
síns heima eftir vel heppnað Unglingalandsmót
UMFÍ á Ísafirði og vill undirritaður senda þeim
bestu kveðjur frá Ísafjarðarbæ fyrir
þátttökuna og komuna. Það var há-
tíðlegt að vera viðstaddur setningu
landsmótsins á föstudagskvöld og sjá
þann fjölda keppenda á aldrinum 11-
18 ára sem mættur var til keppni.
Íþróttasvæðið á Torfnesi iðaði af lífi
frá morgni til kvölds þar sem heil-
brigður keppnisandi ríkti meðal 1200 keppenda alls
staðar að af landinu. Kjörorð UMFÍ ,,Ræktun lýðs
og lands“ var mjög skýrt fyrir þeim sem voru stadd-
ir á Ísafirði um verslunarmannahelgina.
Með endurbótum og nýbyggingu gervigrasvallar
og frjálsíþróttaaðstöðu á Torfnesi hefur skapast góð
aðstaða fyrir íþróttamót og æfingaaðstaða fyrir
íþróttafólk í Ísafjarðarbæ sem nú sér möguleika á
að æfa frjálsar íþróttir auk þess sem gervigrasvöll-
ur lengir æfingatímabilið verulega í fótboltanum.
Loksins þegar slíkt er orðið að veruleika var
ánægjulegt að geta tekið íþróttasvæðið í notkun á
glæsilegu Unglingalandsmóti.
Mótið á Ísafirði staðfesti, að stefna UMFÍ um að
halda Unglingalandsmót yfir verslunarmannahelg-
ina þar sem áhersla er lögð á keppni og samveru
fjölskyldunnar í vímuefnalausu umhverfi er rétt og
eftirspurn eftir því fyrirkomulagi er mikil. Keppni
stóð frá morgni til kvölds, kvöldvaka til 23:30, nema
síðasta kvöldið en þá var flugeldasýning kl. 24:00.
Eftir kvöldvöku var farið heim í tjald að sofa til að
hafa næga orku í keppni daginn eftir. Allir höfðu
nóg að gera og í raun miklu meira en það, skipu-
lagning mótsins gerði ráð fyrir því. Aðstandendur
keppenda gátu stundum tekið sér hlé og skoðað um-
hverfið og nýtt sér það sem ferðaþjónustan býður
upp á en hefðu í raun þurft meiri tíma til þess.
Þannig leið helgin í keppni og skemmtun sem fór
svo vel fram að það er til eftirbreytni. Umgengni
sex til sjö þúsund gesta var til fyrirmyndar. Á tjald-
svæðinu sást t.d. ekki bréfsnifsi þegar gestirnir
voru farnir. Svona fólk viljum við fá í heimsókn aft-
ur og aftur og hefðum viljað hafa mikið lengur á
svæðinu.
Undirritaður vill færa öllum þeim sem komu að
Unglingalandsmótinu þakkir. Fjöldi manns kom að
skipulagningu og vinnu við mótið í sjálfboðavinnu
og gerði þannig kleift að halda svo fjölmenna
íþróttahátíð.
Að loknu Unglingalandsmóti á Ísafirði
Eftir Halldór Halldórsson
Höfundur er bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.