Morgunblaðið - 09.08.2003, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 09.08.2003, Qupperneq 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 39 stangir. Laxveiði er auðlind sem hef- ur verið þverrandi og því aldrei dýr- mætari. Við slíkar aðstæður teljum við að ekki eigi að auka álagið á árnar og laxastofna, þvert á móti. Okkar leið hefur skilað ánni í góðu ásig- komulagi og batnandi veiði,“ sagði Einar. Seiðasleppingar skila sér Veiði gengur afar vel í Langá þrátt fyrir vatnsleysið og hlýindi. Að sögn Ingva Hrafns Jónssonar leigutaka veiðast 12 til 30 laxar á dag þrátt fyr- ir hin döpru skilyrði, auk þess sem lax tekur grannt og fjöldi fiska tap- ast. Í vikulok voru komnir rétt tæp- lega 800 laxar á land, auk þess sem 900 stykki höfðu gengið um teljarann í Sveðjufossi, þ.e.a.s. fram á Fjall. Það þykir gífurleg ganga þangað fram eftir og má búast við gríðar- legum veiðitölum ef einhvern tímann rignir af viti fyrir vertíðarlok. „Þetta eru svoleiðis tölur að við héldum um tíma að teljarinn væri bilaður, en HAFFJARÐARÁ er komin yfir 600 laxa í heildarveiði sem er frábær veiði og er athyglisvert að þessi góða veiði hafi náðst við „skelfilegar að- stæður“, eins og Einar Sigfússon, annar eigenda árinnar, sagði í sam- tali við Morgunblaðið. Sagði Einar ána vera með rennsli sem nemur 20 til 25% af meðalsumarrennsli og það væri með ólíkindum hvað gengi af laxi og veiddist vel. „Mest af ágúst er eftir og átta dag- ar í september þannig að það að vera komin með á sjöunda hundrað laxa er frábært. Við getum ekki annað en verið ánægð með gang mála í þessari stöðu. Þetta hefur veiðst á aðeins 47 dögum og meira og minna allan júlí var aðeins veitt með fjórum stöngum þar sem litlir hópar keyptu upp allar stangirnar til að hafa ána fyrir sig,“ bætti Einar við. Frábær meðalveiði Einar sagði það ekkert nýtt að Haffjarðará væri að skila með bestu meðalveiði sem til væri í landinu. Í fyrra hefðu t.d. veiðst 950 laxar í ánni á 410 stangardögum. „Við höfum far- ið gjörólíka leið en sumir aðrir að því leyti að við höfum stytt veiðitímann og fækkað stöngum auk þess sem mörg dæmi eru um, eins og ég gat um áðan, að hópar keyptu allar leyfi- legar stangir en notuðu síðan færri gengum svo úr skugga um að svo er ekki,“ bætti Ingvi við. Hann segir að sleppingar stór- seiða af Langárstofni í ána skili mikl- um árangri. „Þetta er ævintýralegur árangur, en samkvæmt hreistur- aflestri Veiðimálastofnunar í Borg- arnesi er þriðji hver veiddur lax í Langá úr sleppingum,“ sagði Ingvi Hrafn. Rýrir smálaxar Orri Vigfússon var á Selárbökkum í Vopnafirði í vikulokin og sagði veið- ina afar góða, áin væri komin vel á áttunda hundrað laxa og sömu sögu væri að segja frá Hofsá. „Það er loks- ins að koma smálax, en athygli vekur að hann er rýr, mest 3 og 4 punda. Það eru kenningar á sveimi, ein áleit- in er sú að hið hagstæða hitastig sjávar hafi snúist í andhverfu sína, dýrin ofarlega í fæðukeðjunni séu búin að éta upp átuna og fá þá sjálf skellinn. Það er talað um að mikið sé af horuðum þorski, t.d. í Vopnafirði og Skjálfanda og menn muna eftir fréttum af miklum svartfugladauða fyrir norðan í vor. Og núna kemur smálaxinn seint og horaður. Annars sjáum við hvað setur, það veiðist enn mikið af stórum fiski og þeir eru enn að ganga, þannig veiddust einn morguninn í vikulokin fjórir grálús- ugir,“ sagði Orri Vigfússon. Fjórðungur af meðalsumarrennsli Morgunblaðið/Einar Falur Breskur veiðimaður þreytir lax í Miðfellsfljóti í Laxá í Leirársveit. Morgunblaðið/Golli Sett í lax í Grettistyllum í Hítará við erfiðar aðstæður og laxinn hafði betur. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Fróðleikur, skemmtun og útivist í Alviðru Laugardaginn 9. ágúst kl. 14–16 mun Björg Pétursdóttir jarð- fræðingur leiða létta jarðfræðigöngu í Alviðru. Skoðaðir verða malar- hjalar í Ingólfsfjalli, aurkeilur, skriður, grjót og fleira skemmtilegt sem fyrir augu ber. Boðið verður upp á kakó og kleinur að göngu lok- inni. Þátttökugjald er kr. 800 fyrir fullorðna, ókeypis fyrir börn. Opið hús hjá Vélum og þjónustu. Fyrsta ágúst s.l. tóku Vélar og þjón- usta hf. við umboði fyrir John Deere á Íslandi sem framleiðir dráttar- og heyvinnuvélar. Auk stærri véla er John Deere mikilvirkur í framleiðsu ýmiskonar smávéla t.d. fyrir um- hirðu á golfvöllum og skrúðgörðum. Opið verður við Járnháls í Reykjavík í dag milli kl. 10 og 17 og á Akureyri 16. ágúst n.k. á milli kl. 10–17. Í DAG ÁRLEG tveggja daga veiðipróf fyr- ir sækjandi veiðihunda voru haldin á Hunkubökkum á Síðu um versl- unarmannahelgina. Dómari var Thorben Poulsen frá Danmörku. Alls voru 14 hundar skráðir til keppni og tóku 10 hundar þátt hvorn daginn. Á laugardaginn stóð efstur Fant- ur með 1. einkunn og heiðurs- verðlaun í úrvalsflokki. Eigandi hans og stjórnandi er Ingólfur Guð- mundsson. Á sunnudag stóð efst Kolkuós-Björk með 1. einkunn og heiðursverðlaun í úrvalsflokki. Hún hlaut einnig hinn eftirsótta farand- bikar sem gefinn var í minningu Haraldar Bjarnasonar og er veittur besta hundi seinni prófdaginn. Eig- andi Bjarkar og stjórnandi er Þur- íður Elín Geirsdóttir. Þá náði einn hundur, Kolkuós- Hrafntinna, síðasta áfanga af fjór- um að titlinum Íslenskur veiði- meistari. Eigandi hennar og stjórn- andi er Hávar Sigurjónsson. Sjö sækjandi veiðihundar hafa þá náð þeim árangri frá því skipulögð veiðipróf hófust hérlendis árið 1995. Veiðipróf á Hunkubökkum Þuríður Elín Geirsdóttir og Kolkuós-Björk. Kolkuós-Björk hlaut farandbikarinn ÞESSI frumlegi blómapottur stendur við hús Kristjönu Vagnsdóttur á Þingeyri. Þarna hefur salernið fengið nýtt hlut- verk og hýsir nú sumarblóm í fullum skrúða. Í garðinum hennar Kristjönu er margt skemmtilegt að sjá, og fékk hann viðurkenningu fyrir vinnusemi eigandans fyrr í sum- ar. Rakel Brá Siggeirsdóttir, dótturdóttir Kristjönu, segir að hún hafi aldrei áður séð klósett með blómum úti í garði, og ákvað frekar að heilsa upp á steinfésin í garðinum hennar ömmu en að rannsaka blóma- pottinn frekar. Salerni í nýju hlutverki Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir SUNDLAUGIN í Neskaupstað varð sextíu ára á dögun- um og héldu menn daginn hátíðlegan. Fólki var gefið frítt í sund og boðið var upp á tónlist og veit- ingar á laugarbarm- inum. Benedikt Sigur- jónsson, forstöðu- maður laugarinnar, segir sundlaugina hafa verið byggða af mikilli framsýni við erfiðar aðstæður á stríðsárunum, þegar erfitt var um að- drætti. „Handmokað var fyrir lauginni á sínum tíma og sá sem var í forsvari fyrir bygging- unni, Stefán Örlygsson sem nú er 87 ára gamall, kom einmitt og tók fyrstu sundtökin á afmælisdegin- um. Hann stundar hér sund á hverjum degi,“ segir Benedikt. Þær byggingar sem reistar voru fyrir sextíu árum standa enn fyrir sínu, en laugarkerið sjálft var end- urnýjað fyrir tveimur árum og kostaði það um 25 milljónir króna. „Við þurfum að vera óskaplega natin við að halda þessum gömlu byggingum í horfinu,“ segir Bene- dikt. „Á teikniborðinu eru hugmyndir að nýju búnings- og þjónustuhúsi, ásamt nýjum pottum og barnavað- laug og komnar í það fjárveitingar næstu þrjú árin. Kostnaður er áætlaður á milli 40 og 60 milljónir króna.“ Sundlaugin á Neskaupstað er um þessar mundir sextíu ára gömul. Nú stendur til að gera nýja potta, vaðlaug og þjónustuhús við laugina. Sundgarpar á Neskaup- stað fagna stórafmæli Morgunblaðið/Ágúst Blöndal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.