Morgunblaðið - 09.08.2003, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Á HVERJU ári er starfrækt sam-
norræn blásarasveit, Nordisk Blås-
ersymfonikere, á vegum Nordisk
Musik Union (NOMU), http://
www.namu.no/. Þetta er vikulangt
námskeið og er haldið í einhverju
Norðurlandanna hverju sinni. Þetta
árið var það í Noregi, nánar tiltekið í
Hamar, og átti sveitin aðsetur í tón-
listarlýðháskólanum Toneheim.
Þessi sveit er mjög góð þótt hún
æfi saman aðeins einu sinni á ári í
nokkra daga. Verkefnaskráin er
mjög krefjandi og þarf að vinna að
mörgu á mjög stuttum tíma. Þetta
árið voru tíu Íslendingar að spila
með sveitinni, Vilhjálmur Ingi Sig-
urðarson, Ellert S. B. Sigurðarson,
Lydía Ósk Ómarsdóttir, Sigurður
Már Valsson og Styrmir Barkarson
frá Lúðrasveitinni Svaninum, Anna
Lilja Karlsdóttir, Bára Sigurjóns-
dóttir, Daníel Friðjónsson og Sóley
Þrastardóttir frá Lúðrasveit
Reykjavíkur og undirrituð, Berglind
Halldórsdóttir frá Lúðrasveit
Verkalýðsins (og reyndar LR líka).
Lagt var af stað eldsnemma 29.
júní með flugi til Osló. Við lentum á
Gardemoen og tókum lest þaðan til
Hamar.
Við æfðum mjög mikið enda krefst
það mikillar vinnu að fá 50 einstak-
linga, sem eru margir hverjir að
spila saman í fyrsta sinn, til að
hljóma sem ein heild og höfðum við
frá sunnudagskvöldi til fimmtudags
til að undirbúa opinbera tónleika.
Við gerðum líka ýmislegt annað.
Bæjarstjórn Hamars bauð okkur öll-
um í hádegismat á safnasvæði í
Hamar, við stöðuvatnið Mjörs. Þar
eru rústir elstu dómkirkju í Noregi
og er búið að byggja glerhús yfir
þær svo að þær skemmist ekki.
Daginn eftir héldum við tónleika í
dómkirkjurústunum. Tónleikarnir,
sem voru miðnæturtónleikar, gengu
mjög vel og margir mættu á þá. Á
föstudaginn voru svo tónleikar í
Osló, í tónlistarháskólanum þar.
Við lögðum af stað eftir hádegi og
keyrðum sem leið lá til Osló. Þar
stoppuðum við fyrir framan tónlist-
arskólann og æfðum nokkur atriði í
salnum þar. Svo var okkur boðið í
mat á veitingastað þarna rétt hjá.
Hann heitir Old Major’s Lab og var
nafngiftin ekki það eina sem var
spúkí. Þegar við komum inn var gler
í gólfinu sem sýndi ofan í kjallarann.
Þar var lík á borði og beinagrind og
fleira í þeim dúr.
Tónleikarnir gengu frábærlega og
allir stóðu sig í alla staði mjög vel. Á
eftir var farið með rútu aftur heim og
allir fögnuðu frábærum tónleikum.
Daginn eftir var upptaka á verk-
unum sem við spiluðum þetta árið.
Þeim lauk mjög fljótt enda allir farn-
ir að kunna sinn part nokkuð vel eftir
að hafa æft þá örugglega hundrað
sinnum undanfarna daga. Síðasti há-
degismaturinn var snæddur og svo
var bara pakkað niður. Flestir fóru
beint heim til sín en við Íslending-
arnir vorum svo heppin að flugið
okkar var ekki fyrr en daginn eftir
svo við fengum einn aukadag og
ákváðum að verja honum í Osló. Við
kvöddum Lydíu við Gardemoen því
hún yfirgaf okkur til að heimsækja
frænku sína og vera hjá henni í viku í
viðbót.
Á sunnudeginum yfirgaf Villi okk-
ur því hann ætlaði að vera áfram í
Osló og skoða skólann sem hann fer í
í haust en við hin héldum á flugvöll-
inn og tókum flugið okkar heim til
Íslands
Mér fannst mjög gaman að spila
með NBS þó að á stundum hafi verið
erfitt að vera á þrotlausum æfingum
frá morgni til kvölds en þegar ég lít
til baka finnst mér það hafa verið
þess virði.
Það er einstakt að vera hluti af
þessu samfélagi þar sem allir deila
sama tilgangi, að gera sitt besta og
eignast marga nýja vini, og ég held
að ég geti talað fyrir hönd allra þeg-
ar ég segi: Ég ætla aftur og aftur og
aftur.
Fyrir hönd Íslendinganna í Nord-
isk Blåsersymfonikere 2003,
BERGLIND
HALLDÓRSDÓTTIR.
Íslendingar í samnor-
rænni blásarasveit
Frá Berglindi Halldórsdóttur:
Íslenski hópurinn í samnorrænu blásarasveitinni: Styrmir, Daníel, Vil-
hjálmur, Ellert, Bára, Sóley, Lydía, Berglind, Anna Lilja og Sigurður.
!